27.4.2007 | 20:50
Rustalegt Kastljós hjá Helga Seljan
Fjölmiðlar og fréttaskýringarþættir eru vissulega vald í samfélaginu og gott aðhald fyrir stjórnmálamenn. Það er gott að fólk sem stýrir umfjöllun þar sé ekki á mála hjá stjórnmálaflokkum og upplýsi almenning um hvað er að í stjórnsýslunni og krefji þá aðila sem eiga að bera ábyrgð svara á gerðum sínum.
Þannig er það með Jónínu Bjartmarz. Hún ber ábyrgð á umhverfismálum sem umhverfisráðherra og hún ber ábyrgð á gerðum Alþingis sem þingmaður. En hún ber ekki ábyrgð á því sem nefnd sem hún situr ekki í gerir. Það er sjálfsögð krafa okkar til fjölmiðlafólks að það fólk þekki til eða kynni sér stjórnsýsluna og vinnureglur þar og bjóði okkur ekki upp á skrípaleik fjölmiðlafólks eins og þá tilburði sem Helgi Seljan sýndi í Kastljósinu núna áðan. Framkoma hans við Jónínu Bjartmarz var afar ruddaleg og miðlaði engu til mín sem áhorfanda. Það er ekki Jónína sem á að svara fyrir afgreiðslu alsherjarnefndar. Það eru þeir sem stóðu að þeirri afgreiðslu. Það var fáránlegt að hlusta á fréttamanninn reyna að gera það tortryggilegt að Jónína leiðbeindi erlendri tengdadóttur um hvernig hún ætti að reyna að komast inn í íslenskt samfélag. Auðvitað hefur Jónína og/eða maður hennar (þau eru bæði lögfræðingar) hjálpað tengdadótturinni með að útbúa umsókn til alsherjarnefndar, skárra væri það ef fjölskyldan hjálpaðist ekki að við slík mál.
27.4.2007 | 13:28
Kvenna(k)völd hjá Framsókn
Ég fór á kvennakvöld hjá Framsókn í Reykjavík í gærkvöldi. Hér er mynd af þremur efstu mönnum á lista flokksins í Reykjavík suður, þeim Sæunni ritara flokksins sem er í öðru sæti, Árelíu sem er í 3. sæti og Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra sem er í 1. sæti. Þetta eru allt konur sem ég þekki af dugnaði og heiðarleika og sem öflugar talskonur fyrir mannréttindum og skynsamlegri stjórnsýslu.
Þær fluttu allar ávörp á fundinum. Jónína ræddi þar af einlægni um umfjöllun sem var í Kastljósi í gærkvöldi og tengist fjölskyldu hennar. Það var augljóst að hún tekur þessa umfjöllun mjög nærri sér enda er hér hörð atlaga að trúverðugleika hennar sem stjórnmálamanns. Vonandi tekst henni að vinna þannig úr þessu máli að það verði henni ekki fjötur um fót. Ég held að best sé að upplýsa alla um sem flestar hliðar þessa máls, það er í sjálfu sér engu að tapa við það. Það er ekki nema gott um það að segja að fjölmiðlar og almenningur séu á varðbergi fyrir því að einhverjir fái sérmeðhöndlun í kerfinu af því þeir séu tengdir valdsmönnum. Það er upplagt að nota þetta tækifæri til að upplýsa almenning hvernig farið er með umsóknir um ríkisborgararétt og hvaða vinnureglur þeir hafa sem yfirfara slíkar umsóknir og sérstaklega hverjum þeir hafni. Ég átta mig ekki alveg á þessu máli og reyndar sérstaklega ekki hvers vegna Jónínu er stillt upp sem sökudólgi. Eftir því sem ég skil þetta mál þá munu einstaklingar sem fengu ekki ríkisborgararétt á venjulegan hátt hafa sótt um undanþágu og því verið vísað til einhverrar nefndar. Þar munu þrír þingmenn hafa farið yfir umsóknirnar og mælt með því að 18 einstaklingar fengju ríkisborgararétt og það síðan verið lagt fyrir alþingi. Það eru nú þessir þrír þingmenn sem ættu að standa fyrir máli sínu - er þetta eðlileg afgreiðsla frá þessari þingnefnd? Formaður nefndarinnar segir nefndarmenn ekki hafa vitað um að umsækjandinn tengist fjölskyldu Jónínu sb þessa frétt:
Dómsmálaráðherra veitir íslenskt ríkisfang að fenginni umsögn frá Útlendingastofnun. Telji ráðuneytið eða Útlendingastofnun skilyrðum ekki mætt er umsókninni synjað. Þá geta umsækjendur sótt um undanþágu hjá allsherjarnefnd Alþingis.
Þrír nefndarmenn, Bjarni Benediktsson, Guðjón Ólafur Jónsson og Guðrún Ögmundsdóttir, fóru yfir umsóknirnar og lögðu til að 18 einstaklingar fengju íslenskt ríkisfang en ráðuneytið og Útlendingastofnun höfðu áður lagst gegn því í öllum tilvikum.
Fleiri myndir frá kvennakvöldi og opnun á kosningamiðstöð Framsóknarflokksins.
Frambjóðendur í Reykjavík suður að plotta
Glæsilegar mægður.
Andlitsmálunin hjá Framsókn slær allt út.
Ef græni kallinn kemst ekki áfram í vor þá er appelsínugult næst.
Leyfið þúsund blómum að blómstra hjá sígræna flokknum.
Sumardagurinn fyrsti. Allt að byrja að grænka.
![]() |
Nefndarmenn hafi tekið fram að þeim hafi verið ókunnugt um tengsl Jónínu og umsækjandans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.4.2007 | 11:39
Teljarablogg: Sjaldgæfasta einkenni stjórnmálaleiðtoga á Íslandi
hvað eru margir sköllóttir? 2 af 6
hvað eru margir með gleraugu? 3 af 6
Hvað eru margir með bindi? 3 af 6
Hvað eru margir með skegg? 3 af 6
Hvað eru margir yfir fimmtugt? 6 af 6
Hvar eru margir karlmenn? 5 af 6
Hvað eru margar konur? 1 af 6
Það var ekki nóg með að ég rýndi í myndina og reyndi að telja allt sem mér datt í hug heldur reyndi ég líka að bera saman úrtakið (þýðið) og heildina og giska á hvaða eiginleikar samsvöruðu sem mest heildinni og spá í hversu vel formenn stjórnmálaflokkanna endurspegluðu heildina.
Mér sýnist langsjaldgæfasta einkennið hjá stjórnmálaleiðtogum á Íslandi að vera kona. Algengasta einkenni þeirra er að vera komnir á sextugsaldur.

26.4.2007 | 17:45
Teljarablogg: Grænir kallar fara áfram: Fjórir karlar, ein kona
Núna er komin ný stjórn hjá Landsvirkjun. Framsókn yngdi upp sinn mann í stjórninni en kynjahlutfallið er það sama. Það eru fjórir karlar og ein kona í nýju stjórninni. Bæði stjórnarformaður og varaformaður eru karlmenn.
![]() |
Páll Magnússon stjórnarformaður Landsvirkjunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 10:25
Stjórnarformaður Landsvirkjunar
Eftir því sem ég les í fjölmiðlum mun Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra skipa Pál Magnússon bæjarritara í Kópavogi stjórnarformann Landsvirkjunar í dag. Páll er guðfræðingur og gerðist aðstoðarmaður Valgerðar í Iðnaðarráðuneytinu 1999 og var þar þangað til Valgerður tók við Utanríkisráðuneytinu. Hann er nú bæjarritari í Kópavogi. Aðalheiður kona Páls er núna aðstoðarmaður Valgerðar í Utanríkisráðuneytinu. Páll er bróðir Árna Magnússonar sem var félagsmálaráðherra en er núna í banka. Bræðurnir Árni og Páll komu við sögu í Freyjumálinu í Kópavogi.
Páll í hópi samherja við opnun á kosningamiðstöð Framsóknar í Kópavogi.
Moggabloggarar tjá sig um þessa ráðningu:
Auðlindir Íslendinga eru fiskimiðin og orkan í fallvötnum. Það skiptir því miklu fyrir jafnrétti á Íslandi að þeir sem stýra þessum auðlindum séu fulltrúar allra Íslendinga. Það er ekki ósanngjörn krafa að gætt sé kynjasjónarmiða í stjórn opinberra orkufyrirtækja.
Ég skoðaði núverandi stjórn Landsvirkjunar og þar má sjá að það er ein kona í stjórn Jóna Jónsdóttir viðskiptafræðingur.
![]() |
Jóhannes Geir víkur úr stjórnarformennsku í Landsvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 08:32
Garðúrgangur...það er nú ekki aðalruslið
Gaman að sjá Villa borgarstjóra hamast með hrífuna að raka garðinn sinn. Hann hlýtur að búa í öðru hverfi en ég ef garðaúrgangur er aðalvandamálið í hans garði. Í mínum garði hérna í Laugarneshverfinu er mesta draslið í garðinum alls konar plast og pappírsdrasl sem hingað fýkur og stráist yfir garðinn í hvert skipti sem einhverjir vindar blása. Vor í Reykjavík er tíminn þar sem runnarnir blómstra plastblómum og þar sem sígarettustubbarnir liggja eins og hráviði um allt. Það sem mér finnst átakanlegast er hvernig ástandið er við opinberar stofnanir og skóla.
Vor í Reykjavík. Plastblómin blómstra á runnum og trjám.
Ég átti leið framhjá Menntaskólanum í Hamrahlíð um síðustu helgi og þar blöktu plastdræsur í hverjum runna, ástandið við skólann var svona eins og að koma á vígvöll eftir útihátíð um verslunarhelgi. Það eru mörg hundruð ungmenni sem ganga (keyra?) þar um á hverjum degi, af hverju dettur engum í hug að taka til á lóðinni?
Mesta vandamálið í sambandi við umgengni í Reykjavík eru svæði við opinberar stofnanir og fyrirtæki. Það er alveg magnað hvernig stórfyrirtæki í glæsilegum húsakynnum leyfa draslinu að flæða og þeytast um allt. Núna þegar reykingar eru víða bannaðar innanhúss þá er oft það fyrsta sem mætir manni við andyri við stofnanir einhvers konar reykingastampar og sígarettustubbar út um allt. Sem betur fer er sums staðar við skóla líka búið að banna reykingar á skólalóð, ég tók eftir að það er stórt skilti á Verslunarskóla íslands sem segir að reykingar séu bannaðar þar.
Óska svo borgarstjóranum til hamingju með afmælið í dag!
![]() |
Vorhreinsun í Reykjavík hefst um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2007 | 21:08
Framsókn og mykjudreifarinn
Það er mjög algengt að sjá í umræðunni á Netinu alls konar eitraðar pillur út í Framsóknarmenn og meinta spillingu þeirra og þegar Framsóknarmenn leggja út í kosningabaráttu þá er það uppnefnt og kallað að gangsetja mykjudreifarann (dæmi hérna). Svo eru endalaust einhverjir brandarar um traktora og spunameistara.
Mér finnst þetta dáldið fyndið og ég kann vel við mig að tilheyra ofsóttum minnihlutahóp sem þarf að þola hróp og háðsglósur frá lýðnum. Ég hef líka töluverða reynslu í þessu, svona var þetta þegar ég gekk femínismanum á hönd í netumræðunni, þá varð ég samstundis loðin og mussuleg. Það skiptir engu máli þó ég hafi alltaf haft minni hárvöxt en Njáll á Bergþórshvoli og hafi orðið að teikna á mig augabrúnir, ef maður er femínisti er maður loðinn og ef maður er framsóknarmaður er maður spilltur og það sem maður leggur til í opinberri umræðu er sagt vera út úr mykjudreifara.
Svo verður píslarvættið á okkur Framsóknarmönnum ennþá meira núna þegar meintir umhverfisverndarsinnar ganga berserksgang og skemma fínu auglýsingaskiltin sb. þessa frétt á RÚV í dag:
Fyrst birt: 25.04.2007 16:11Síðast uppfært: 25.04.2007 16:14Skemmdir á Framsóknarskiltum
Skemmdir voru unnar á auglýsingaskiltum Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi á Egilsstöðum í nótt sem leið.
Enska orðið "Damnation" var málað yfir mynd af frambjóðendum flokksins í kjördæminu og er einn af þeim Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra. Erlendir andstæðingar virkjana hafa notað orðið "Damnation" í aðgerðum sínum gegn Kárahnjúkavirkjun.
Framsóknarflokkurinn harmar að reynt sé að hafa áhrif á kosningabaráttuna með þessum hætti í Norðausturkjördæmi og skorar á þá sem standa fyrir þessum skemmdarverkum standa að koma fram opinberlega og mæta frambjóðendum Framsóknarflokksins í umræðum um atvinnumál, byggðamál og vistvæna orkunýtingu á málefnalegum grunni.
Svona skiltaskemmdir eru nú ekki beint málefnaleg umræða.
25.4.2007 | 14:24
Græni kallinn
Mér finnst Framsóknarflokkurinn hafa útfært umferðarþema betur í kosningabaráttunni í ár heldur en presturinn í Laugarneskirkju í fermingarræðu sinni fyrir mörgum áratugum. Það er sniðug hugmynd í auglýsingum frá Framsóknarflokknum að nota græna kallinn sem allir kannast við að þýði að við megum ganga yfir götu og hafa slagorðið árangur áfram - ekkert stopp. Það sakar svo ekki að græni kallinn minnir mikið á sáðmanninn sem var í merki Búnaðarbankans svo hugrenningatengslin eru líka við vöxt og þann sem sáir fræjum.
Í auglýsingum sem ég sé núna frá Framsóknarflokknum er mikið fókusað á Jón Sigurðsson og hann tengdur við græna kallinn. Þetta virkar alla vega þannig á mig að ég er í hugann farinn að kalla Jón Sigurðsson græna kallinn.
Það er nú gaman að rifja upp tillögu ágæts femínista og moggabloggara hennar Bryndísar Ísfoldar sem hún lagði fram í mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar:
Innlent | mbl.is | 1.11.2006 | 08:44Græn kona í stað karls
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í mannréttindanefnd, mun í dag leggja til á fundi mannréttindanefndar að sett verði upp gönguljós á fimm áberandi stöðum í Reykjavík þar sem gangbrautarljósið sýni konu en ekki karl eins og venja er.
Lagt er til að þessi ljós verði staðsett á horni Lækjargötu og Bankastrætis, á Hringbraut við gatnamót Bræðraborgarstígs, á horni Snorrabrautar og Laugavegs, í Æsufelli við Fellaskóla og við Spöngina. Jafnframt er þess farið á leit við Framkvæmdaráð að það kanni möguleika á því að setja upp slík ljós á fleiri stöðum t.d. við endurnýjun eldri gangbrautarljósa og við uppsetningu nýrra, að því er segir í tillögu Bryndísar Ísfoldar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2007 | 09:35
Wikipedia og umhverfisdagurinn
Dagur umhverfisins er í dag 25. apríl. Mogginn í dag er undirlagður af umhverfisgreinum og fréttum af opnunum á nýjum vefsetrum. Þannig munu vefirnir co2.is og natturan.is fara í loftið í dag og kolvidur.is eftir hálfan mánuð. Þetta er ágætt tækifæri til að uppfræða Íslendinga um efnafræði og samspil og hringrás efna á jörðinni og vonandi vita núna flestir hvað kolefnisbinding er.
Ég hef reynt að leggja mitt af mörkum til að fræða almenning og skólafólk um umhverfismál en ég hef eins og við öll sem skrifum greinar á íslensku Wikipedia unnið það verk í kyrrþey. En það er upplagt einmitt í dag að vekja athygli á því að íslenska Wikipedia er einn besti miðillinn til að miðla fróðleik um efnafræði og umhverfismál og hringrás efna - ekki síst út af þeim möguleika að tengja greinar innbyrgðis.
Hér eru nokkrar af þeim greinum sem ég hef skrifað um umhverfismál og efnafræði í íslensku Wikipedia:
- Eiturþörungar
- Ofauðgun
- Þörungablómi
- Brennisteinsvetni
- Mór
- mýrarrauði
- surtarbrandur
- viðarkol
- Norðurslóðir
- freðmýri
- rúst
- Mójörð
- Jarðvegsgerð
- Náttúrustofa
- Náttúruvætti
- Vatnajökulsþjóðgarður
Ég skrifa líka stundum greinar um einstök efni og efnafræði , ég skrifaði nýlega greinarnar Gler og pottaska því ég var að vinna efni um glerblástur og vildi sýna nemendum mínum hvernig ég tengdi í wikipedíu. Svo skrifa ég líka greinar um ýmis dýr og jurtir t.d. grein um Fjallagrös, aðallega skrifa ég greinar sem tengjast íslensku líffríki. Ég skrifa líka stundum greinar um iðjuver og framkvæmdir af manna völdum og skrifaði greinina Hellisheiðarvirkjun
Á notendasíðu minni á is.wikipedia.org listi yfir nokkrar af þeim greinum sem ég hef skrifað á íslensku Wikipedia. Ég hef líka skrifað nokkrar greinar um umhverfismál á ensku wikipedia t.d. skrifaði ég meginpartinn í greininni Breiðafjörður og þar er frábært að vinna í ensku wikipedia vegna þess að þar er hægt að tengja í allt nema að ég tók eftir að það vantaði grein um selalátur (haul-out) á ensku wikipedia. Hér er lítið brot úr greininni um Breiðafjörð sem sýnir hvað það er sniðugt að geta tengt í greinar um öll fyrirbæri sem nefnd eru:
The big intertideal zone is high in biodiversity and productivity and has extensive algal forests and other important habitats for fish and invertebrates. The area supports 230 species of vascular plants and around 50 breeding bird species including Common Shag, Glaucous Gull, White-tailed Eagle, Common Eider, Black Guillemot and Grey Phalarope. The area is important staging area for brent goose and Red Knot. The Common Seal and the Grey Seal have their main haul-out on the islands and skerries.
Several species of Cetaceans are commonly found including Common Porpoise, White-beaked Dolphin , Killer Whale and Minke Whale.
Það er miklu sniðugra fyrir þá sem vilja koma fræðslu til almennings um umhverfismál að setja greinar inn í Wikipedia alfræðiritið heldur en að hafa slíka fræðslumola staðsetta í hinum ýmsu vefsetrum sem öll eru mismunandi uppbyggð. Það er líka þannig að Google leitar í Wikipedia, ég prófaði áðan að slá inn í Google leitarorðið eiturþörungar og þá fékk ég fyrst upp greinina sem ég skrifaði í Wikipedia, ekki hinn fína vef sem Hafrannsóknastofnun setti upp um vöktun eiturþörunga.
Lexían sem opinberar stofnanir sem sinna fræðslumálum geta lært af þessu er að passa að upplýsingar á wikipedia séu réttar og t.d. setja greinar inn á wikipedia sem síðan vísa í vefsetur sem heimildir eins og ég geri í wikipedia greininni um eiturþörunga.
20.4.2007 | 06:15
Vídeóblogg 17, 18 og 19 apríl
Ég er að gera tilraun með vídeódagbók úr lífi mínu, ég er með litla vefmyndavél og reyni að taka upp á hverjum degi eina til tvær mínútur. Ég er að prófa ýmis kerfi og það er sniðugt að núna getur maður tekið beint in á vefinn m.a. í photobucket og youtube. Ég prófaði að setja vídeódagbókina mína frá 17 til 19 apríl inn á photobucket og setja þetta saman í eina myndasýningu með umgjörð sem ég valdi. En það er ekki hægt að líma þetta hérna inn í moggabloggið, hérna er tengingin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)