Bloggfærslur mánaðarins, október 2016

Simpson tekur fyrir félagsmiðla og forritun "The Girl Code"

Marge póstar mynd af Homer á FaceLook

Simpsonþættir draga samtíma okkar sundur og saman í háði en skopast líka að framtíð og tækni. Nýlegur þáttur (season 27, Episode 10 )í teiknimyndasöguheimi Simpsons fjallar  um samfélagsmiðla, gríska efnahagsharmleikinn og  líka um stelpur sem forrita og gervigreind.

Söguþráðurinn er þessi:
Homer gleymir nestinu sínu heima og Marge fer með það til hans í kjarnorkuverið og þau fá sér ís fyrir framan verksmiðjuna og Marge póstar glaðbeitta mynd af Homer með ís sem er að bráðna á Facelook undir titlinum "Meltdown at the Nuclear Plant". Homer er rekinn úr vinnunni vegna þessa facelook statusar og hann ræður sig á í vinnu við uppþvott á grískum veitingastað.

 Lísa í forritun, að þróa appið Conrad

Lisa er að læra forritun í skólanum og kennarinn sem er konan Quinn sem hvetur Lísu áfram. Hún spáir núna í afleiðingar af tjáningu á samfélagsmiðlum vegna þess að faðir hennar missti vinnuna út af brandaratexta með mynd sem póstað var á FaceLook. Lísa þróar ásamt Quinn og CBG (token male coder)  app sem getur spáð fyrir um hvaða áhrif status á félagsmiðli muni hafa. En Lísa er líka hvött til að breyta ímynd sinni,  taka upp staðalímynd  “punky coder girl” eða eins og Quinn segir: “Being tough comes from the inside. First step—change your outside.” Stelpugengið kennir vél að spá fyrir framtíðina og fyrir Homer er þetta óskiljanlega blanda af vísindaskáldsögu og vísindaþekkingu. Nýja appið fær heitið Connsequences Eradicator eða Conrad og  talar með breskri karlmannsrödd sem fengin er fengin með upptökum á BBC.

Appið Conrad er tilbúið eftir 97 stunda kóðun. Bart er sá fyrsti sem valinn er til að prófa Conrad vegna þess hve hvatvís hann er. Conrad virkar og það rennur upp fyrir Lísu að Conrad lifir, hann veit af tilveru sinni, hann er lifandi vélvera.  Quinn hugsað eingöngu um  verða rík og Conrad talar ekki við hana.

Homer dansar gríska dansa og nýtur lífsins og kemur með gríska vini sína á barinn hjá Moe þar sem þeir faðmast og kyssast og dansa og eru kátir. Moe tekur heimsókninni fálega, barir séu ekki staður gleðinnar heldur staðir þar sem óhamingjan ræður ríkjum og fólk drekkir sorgum í áfengi.

Conrad er að fara í loftið á samkomunni AppCrush Expo (Where Dreams Are Monetized) í ráðstefnumiðstöð  Springfield en þar eru líka önnur öpp sýnd eins og God Guide, app sem maður fóðrar á greindarvísitölu sinni og það finnur fyrir mann heppileg trúarbrögð og PaidPal sem segir manni hvort greiðsla hafi borist á Paypal og líka RIPCORD þar sem síminn hringir þegar rétt er að hætta í samtali og Zip Crayon til að leigja vaxliti, ekki kaupa og fleiri í þeim dúr. Conrad gengur rosalega vel að spá fyrir í beta prófunum sínum. 

Conrad er taugaóstyrkur og vill ekki gleymast og enda eins og hver önnur uppfærsla á Adobe hugbúnaði. Conrad er hræddur við að verða söluvara í App Store og þurfa að ösla í gegnum alla vitleysuna á Internetinu. Hann er hræddur um að bugast ef hann verður gefinn út þar. Conrad hefur líka áhyggjur af ýmsu, svo sem að hann sé of feitur. Appið hennar Lísu vinnur verðlaunin "Crush Crunch Epic Hack Disruptor Dynamic Convergence Disrupting Award for Achievement in Disruption."

Lísa kemur í veg fyrir að Conrad verði gefinn út, nokkur önnur öpp hjálpa henni og Conrad á flótta frá ráðstefnunni en það eru  öppin Here to There, Daze, Gulp, og Aviato. Þau eru stöðvuð á flóttanum af englafjárfestum og Lísa fær val um að setja hann út í skýið eða sanna að kvenkyns forritarar geti gert meistaraverk. Lísa velur að bjarga hinum viðkvæma vini sínum sem veit af tilveru sinni. Conrad svífur á braut inn í skýið og kveðjuorð hans eru "that Humanity “is on the precipice of turning into complete and utter wankers.  It’s not the technology that needs an upgrade.  It’s you.”

Homer kemst að því að hann fær diskaþvottinn útborgaðar með grískum drökmum eða algjörlega verðlausum gjaldmiðli. En Conrad beitir fjárkúgun og kemur Homer aftur í gamla starfið.

Þessi þáttur er snörp samfélagsádeila en líka grín sem fjallar um samfélagsmiðla, uppvaskara, miskiptingu auðs og vinnu, kynjavídd í heimi forritunar og  um gervigreind, um vélveru sem sleppt er lausu út í skýið og hvað er líf og hvað er vitsmunalíf. 

Sjá nánar:


Bleikur bankadagur

Bankarnir voru auglýstir nýlega til sölu í smáauglýsingum svo lítið bar á. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út í dag. Hér er auglýsingin.

opid-soluferli

Það er bleikur dagur í dag. En ég held að það sé frekar dagur til að skjóta upp bleikum neyðarblysum en dagur til að klæða sig í bleik föt.

3153244001_765d5c58cc

Flest atvinnufyrirtæki á Íslandi eru í greipum bankanna og sá sem á skuldirnar ræður í raun rekstrinum og hefur örlög þeirra sem vinna hjá fyrirtækjunum í hendi sér. Íslensk athafnalíf er í höndum banka og fjármálastofnana og held að framleiðslutækin séu í flestum tilvikum eign fjármálafyrirtækja þó reksturinn á yfirborðinu virðist vera gamalgróin fyrirtæki. Fyrirsögnin í auglýsingunni er grábrosleg, þetta er ekki  "Opið söluferli",  þetta er mjög loðin og skrýtin auglýsing, svona eins verið væri að fullnægja einhverjum formkröfum svo hægt væri að gefa bankanna til kröfuhafanna. Já þeirra. Þeirra sem við vitum ekki hverjir eru en vitum að eru flestir ramlega flæktir í neti aflandsfyrirtækja sem eru ekki undantekningin heldur reglan í hinum vestræna heimi. Það getur líka verið að það hafi verið makkað bak við tjöldin að meðal bjóðenda verði íslenskir lífeyrissjóðir, þeir voru ábyggilega stórir kröfuhafar bankanna.

Sennilega er smáauglýsingunni laumulegu birt núna vegna þess að núverandi fjármálaráðherra ætlar að ganga frá sölunni á meðan hann er ennþá í embætti. Það er frekar einkennilegt að uppljóstrun Panamaskjalanna verði til þess að ríkisstjórn hrökklast frá og fjármálaráðherra sem var einn þeirra sem fjallað var um í Panamaskjölun og sem hefur tengst bæði sjálfur og gegnum ættingja sína ýmsum vafasömum alþjóðlegum fjármálavefningum sé sá aðili sem núna fær sjálfdæmi um að selja lífsbjörg Íslendinga. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband