Færsluflokkur: Tölvur og tækni
21.11.2006 | 06:38
Myspace,netsamfélög og höfundarréttur
Það er ágætt að spila Dont download this song með Weirdal á meðal maður les fréttir af málaferlum eins og þessum frá Universal Music á hendur Myspace. Skrýtið ef Myspace væri dæmt fyrir "...leyfa almenningi að sækja myndbönd með ólöglegum hætti og veita aðgang að tækni sem gerir notendum kleift að skiptast á slíkum skrám..". Er það ólöglegt að veita aðgang að tækni? Fyrir mér hljómar það eins og einhver færi í mál við vegagerðina út af því að ökumaður keyrði drukkinn. Með því að hafa vegina opna þá skapast sú hætta að einhverjir ökumenn keyri drukknir. Er það á ábyrgð þess sem býr til og heldur við vegakerfinu?
Það er viðkvæmt ástand í höfundarréttarmálum í heiminum í dag. Höfundarréttarlög eru snarbrotin á vinsælum vefsvæðum þar sem inntakið kemur frá notendum. Það er einmitt eðli "web 2.0" vefsamfélaga að efnið kemur frá notendum.
Síðustu misseri hefur Myspace verið að breytast úr innantómum stefnumótavef og söluapparati í mjög áhugavert tónlistarsamfélag. Sennilega er nauðsynlegt fyrir alla unga tónlistarmenn í dag að hafa síðu á Myspace, þó ekki sé nema til að fylgjast með hvað aðrir eru að gera.
Hér er vefsíða sem ég tók saman um Myspace:
http://fyrirlestrar.khi.is/salvor/myspace/
Það er er ein leið greiðfærari en önnur fyrir skóla og aðila sem vilja og eiga að virða lög en vilja samt vinna með og fjölfalda margmiðlunarefni. Sú leið er að sleppa því alveg að nota efni sem varið er með hefðbundnum höfundarrétti og nota eingöngu efni sem er heimagert eða sem sem má fjölfalda og vinna áfram með eftir settum reglum. Hér á ég við efni sem er sett á vefinn með höfundarréttarleyfi CreativeCommons.
![]() |
Universal Music stefnir MySpace |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 07:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2006 | 11:58
Er líf eftir Frontpage?
Kennarar hafa sumir spurt mig ráða um hvaða vefsmíðaverkfæri þeir eiga að nota með nemendum núna þegar Frontpage hefur loksins verið lagt af Microsoft. Það er núna hætt framþróun á Frontpage. Þetta var fínt og einfalt vefsmíðaverkfæri á sínum tíma og einn kostur er hversu vel það vinnur með öðrum Microsoft forritum. Frontpage vefir sem þegar eru til munu örugglega vera á vefnum í mörg ár í viðbót. En Frontpage er barn síns tíma og það fylgir ekki nógu vel stöðlum og þessi "themes" sem einkenna marga frontpage vefi eru oft til trafala - ekki síst ef flytja á efnið inn í annars konar vefi. Svo er Frontpage ekki ókeypis forrit.
En hvernig verkfæri á að nota til vefsmíða?
Mikið af vefsmíði er komið inn í alls konar vefumsjónarkerfi eða útgáfukerfi (content management systems) þar sem skilið er á milli inntaksins og útlits. Bloggkerfi eru dæmi um það en einnig opinn hugbúnaður eins og Joomla.
Það er líka mikil framþróun núna í wikikerfum og það er oft besta lausnin fyrir verkefni sem eru unnin í samvinnu margra. Ég bjó til wikikennslupakka fyrir kennara og kennaranema, sjá http://wiki.khi.is Ég myndi nú ráðleggja öllum sem áhuga hafa á wiki að búa sér til wiki á wikispaces.com
Svo er það þannig að við vinnum alltaf meira og meira beint á vefnum og viljum nota vefþjónustur þar sem skrifað er beint inn á vefsvæði og auðvelt er að líma alls konar dót á vefsíður svo sem reiknivélar, vídeóklipp, hljóðskrár o.fl. og vefsíðurnar eru settar seman úr einingum sem við færum bara þar sem við viljum. Hér nefni ég dæmi um tvenns konar kerfi þar sem við getum búið til svoleiðis vefsíður. Annars vegar er það googlepages.com þeir sem eru með gmail geta fengið þar ókeypis vefsvæði með alls konar fídusum, ég setti upp til prufu http://salvor.googlepages.com/ og hins vegar weebly.com en þar setti ég til prufu tvo vefi http://christmas.weebly.com/ og http://salvor.weebly.com/ en það má í bæði googlepages og weebly velja úr fjölda uppsetninga fyrir vefsíður og reyndar líka hanna sína eigin. Það er sniðugt fyrir alla sem vilja fylgjast með þróun í vefsmíði að skoða slík kerfi, svona umhverfi þar sem maður dregur og límir einingar inn á vefsíður er líklegt til að verða vinsælt. Þetta minnir nú reyndar á ýmis netsamfélög ala Myspace en er nú lengra þróað.
Ef ég ætti að velja vefsmíðaverkfæri til að nota með nemendum þá myndi ég í fyrsta lagi skoða hvort til væri opinn hugbúnaður,það er til einfalt kerfi sem heitir Nvu, sjá hérna http://www.nvu.com/index.php sem er einmitt sett til höfuðs Frontpage og Dreamweaver.
Í öðru lagi myndi ég hafa í huga að nota kerfi sem tengdist öðru sem nemendur vinna með, ef þeir vinna mest með Office pakkann þá má benda á að það þarf ekki endilega að nota Frontpage, það er líka hægt að vista á vef í ýmsum kerfum Office 2003 bæði úr word skjölum og gera vefi í publisher, það verður eflaust einfaldara og auðveldara í Office 2007.
það mætti alveg hugsa sér að nemendur unnu líka sín verkefni í office kerfum og settu inn í verkmöppur sem væru misaðgengilegar á vef svona eins og ELGG námslandslagið.
Reyndar lofa kerfi eins og jotspot sem google var að kaupa mjög góðu - það er svona wikikerfi og bloggkerfi og stundaskrá og ýmislegt annað þ.e. notendur geta tengt saman blogg og wiki o.fl. Ég er mjög hrifin af jotspot, sérstaklega vegna þess að það er hægt að stjórna aðgangi að einstökum síðum, ég get haft einstakar wikisíður lokaðar en sumar opnar. Wikispaces er líka hægt að hafa opið eða lokað en það gildir um allt svæðið en ekki einstakar síður. Hér er mitt prufusvæði á jotspot: http://salvor.jot.com/WikiHome
Sennilega er það svoleiðis kerfi sem við eigum eftir að vinna með í nánustu framtíð.
17.11.2006 | 12:03
Konungsbók og eineygður köttur
Á mánudaginn fór ég í bæjarferð, ég fór í heimsókn í gamla vinnustaðinn minn á Hverfisgötu 6. Ég held það séu margir mánuðir síðan ég kom í miðbæ Reykjavíkur. Ég var alveg búin að gleyma hvað það er vont veður alltaf þarna við Arnarhól, ískaldur vindstrengur næðir um allt. Það er annað veðurbelti þarna en hérna í Sigtúni það sem er skjöl úr öllum áttum og ylur að neðan úr iðrum jarðar. Eða það er bara svo kalt núna um allt Ísland að hvergi er skjól. Síðustu daga hef ég velt fyrir mér af hverju maður er eiginlega að búa hérna á þessi rokskeri í Atlantshafinu, það hljóta að vera vera aðrir betri kostir til að verja þessari takmörkuðu jarðvist á. Ég held nú reyndar að Ísland gerist ekki napurra en núna, ískuldi og stormur og svo hellist skammdegið yfir þyngra og drungalegra með hverjum degi.
Það er einmitt á þessum árstíma sem þörfin fyrir drauma og sögur er mest. Núna eru líka jólabækurnar að koma út. Á mánudaginn eftir heimsóknina í stjórnarráðið þá fór ég á Súfistann og sat þar góða stund (lesist margar klukkustundir) og drakk kaffi og las konungsbók eftir Arnald og eineygða köttinn eftir Hugleik Dagsson. Ég valdi þessar bækur vegna þess að núna hafa bæst á listannn yfir framtíðarplön mín að skrifa sakamálasögu og gerast skrípamyndahöfundur og ég er að stúdera "tricks of the trade" hjá meisturum. Konungsbók byrjaði vel, gaman að lesa svona kunnugleg íslensk minni í bland við hefðbundnar hryllingssagnasenur, rigningu og nótt og grafarrask. Söguhetjurnar tvær eru líka skemmtilegir karakterar, sérstaklega sögumaðurinn sem kann manna best að ráða í letur og lesa merkingu úr gömlum skræðum. Ég var spennt þegar minnst var á Jón Sigurðsson (sómi Íslands, sverð og skjöldur) og vonandi að hann yrði einhver sögupersóna en það þannig var það nú ekki. Ég hafði nefnilega hugsað mér að hann yrði ein af sögupersónum í minni sögu, hinn ungi og iðni og alvörugefni og nákvæmni Jón Sigurðsson sem fær vinnu í Kaupmannahöfn hjá Finni Magnússyni leyndarskjalaverði við að búa til prentunar hið mikla ritverk Finns um rúnirnar. Mín saga myndi heldur ekki fjalla um Konungsbók heldur um rúnabókina hans Finns. Ég fékk margar góðar hugmyndir úr Konungsbók en ég missti þráðinn í bókinni eftir fyrstu kaflanna þegar þetta fór að verða eltingaleikur út um allar trissur svona í anda Da Vinci lykilsins. En svo endaði ég með að glugga í eineygða köttinn eftir Hugleik og ákvað strax á fyrstu blaðsíðunum að kaupa hana til að gefa í jólagjöf. Sekúndu seinna snerist mér hugur og ég hætti við að gefa hana í jólagjöf, ég tími því alls ekki. Þetta er bók sem ég verð að eiga sjálf. Það þótt að ég sé löngu hætt að safna teiknimyndasögum.
16.11.2006 | 13:00
í augsýn er nú frelsið...
Teiknimyndin um kiwifuglinn er bara þrjár mínútur og hún er um fugl sem getur ekki flogið en er allt lífið að basla við að láta drauminn um flugið rætast. Kiwifuglinn reynir að skapa þá blekkingu að hann fljúgi yfir skóg þegar hann hrapar til bana frá fjallstindi. Það eru tvær milljónir sem hafa séð hinsta flug kiwifuglsins og þetta er vinsælasta vídeóklippið í augnablikinu. Hér er hægt að spila það:
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2006 | 02:24
Runólfur á Bifröst, Árni í Eyjum og Arnar í Rannsóknarlögreglu
Ég held ég hafi undanfarnar nokkrar vikur varla fylgst nokkuð með fjölmiðlaumræðunni á Íslandi. Annað hvort er ekkert að gerast eða ég er bara eitthvað fráhverf íslenskum þjóðmálum þessa daganna. Ég tek eftir að þær fréttir sem ég les með mestri athygli eru tæknifréttir á digg.com og svo tæknifréttir á hefðbundnari miðlum eins og mbl.is og news.bbc.co.uk.
En ég horfði á sjónvarpið núna í gær miðvikudagskvöld og mér fannst umræðan mjög áhugaverð. Sérstaklega fannst mér fréttin um fundinn sem rektorinn á Bifröst hélt og gagnrýni formanns nemendafélagsins á hana og svo gagnrýni/ályklun ungra sjálfstæðismanna á ummæli Árna Johnsen í sjónvarpinu. Þessi mál eru dáldið skyld þegar grannt er skoðað, það er þungur ásökunartónn ungs fólks í garð þeirra sem eru í forsvari yfir vinnubrögðum - annars vegar er það gagnrýni á afar undarlega orðræðu fyrrum og tilvonandi þingsmanns sem stefnir ótrauður á að setjast á löggjafarsamkomu Íslendinga þrátt fyrir að hafa orðið uppvís að alvarlegum svikum og lögbrotum og hins vegar gagnrýni á hvern hátt rektor á Bifröst virðist hafa brugðist við alvarlegum ásökunum um starfshætti sína. Þessi fundur er stórundarlegur og það getur ekki verið eðlilegur farvegur og eðlileg vinnubrögð í háskóla að atkvæðagreiðsla á slíkum fundi sé einhvers konar kviðdómur eða dómstól um starfshætti rektors.
Svo var í Kastljósinu viðtal við Arnar rannsóknarlögreglumann þar sem hann bar fjölmiðla og áhrifamenn í íslenskum viðskiptaheimi þungum sökum og sagði fjölmiðla handbendi áhrifafólks í viðskiptum og að markvisst hefði verið svert æra hans og annarra sem hafa komið að rannsókn efnahagsbrota.
Allar þessar fréttir glöddu mig og mér finnst þær vísbending um að það sé opin og gagnrýnin umræða um íslensk þjóðmál. Ég hef töluverðar áhyggjur af því hvernig þróunin verði á næstu árum, sérstaklega varðandi Netumræðu. Margir halda að það sé sjálfkrafa ávísun á opnari umræðu og lýðræðislegri að fólk tjái sig í umræðukerfum og bloggi eða einhvers konar netsamfélögum. Vissulega eru það fleiri sem tjá sig og umræðan verður öðru vísi. Netumræðan grefur farvegi sem grafa undan og breyta þeim undirstöðum og þeim farvegum sem valdið hefur flætt eftir. En það er tilhneiging víða að þessi umgjörð sé að færast á fárra hendur og ef til vill verða netsamfélög þannig að það eru bara raddir einhverra fárra sem ná að heyrast - og það séu þá raddir sem enduróma það sem valdhöfum og eigendum miðlanna kemur best. Hér á ég við það að fjölmiðlarisar kaupa upp netsamfélög t.d. Myspace og stórfyrirtæki eins og Google kaupa upp hverja netþjonustuna/netsamfélagið á fætur öðru. Ég er að skrifa þetta blogg í kerfi sem Morgunblaðið hefur sett upp, væntanlega til að styðja við það fjölmiðlaveldi sem það byggir á. Hvaða tryggingu hef ég fyrir því að þessu bloggi sé ekki lokað eða það gert óaðgengilegt ef mér myndi detta í hug að tjá mig hérna um eitthvað sem því fjölmiðlaveldi kæmi illa?
Enga.
![]() |
Formaður nemendafélagsins á Bifröst lýsir óánægju með fund rektors |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 03:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2006 | 17:22
Labpixies
Mér finnst svo gaman að líma alls konar dót inn á blogg. Ég fann vefsetrið labpixies.com með súperflottum reiknivélum sem maður gat haft í alls konar litum og ég valdi auðvitað femínistableikt. Svona reiknivélar verða femínistar að hafa til að reikna út launamun kynjanna:
6.11.2006 | 22:34
Youtube uppfinning ársins samkvæmt Time
Youtube er í tísku núna. Ég er búin að vera þar notandi nánast frá því að það opnaði og heilmikið unnið í að sjá til þess að stóru risarnir gleyptu ekki það vefsetur. Ég hef sett inn um fimmtíu stuttmyndir sem ég hef sjálf gerð inn á Youtube. Hér er listi yfir mínar stuttmyndir
Reyndar er það sem ég geri mikið svokallað skjávarp (screencast) þannig að ég er að taka upp það sem gerist á tölvuskjánum en ég hef líka tekið myndir af götunni t.d. af betlarabörnum og götuvændi í Barcelona. Sumar af stuttmyndunum mínum hafa verið skoðaðar mörg þúsund sinnum, önnur stuttmyndin af götuvændi í Barcelona hefur verið skoðuð yfir 20 þúsund sinnum.
En flestir það eru miklu fleiri sem skoða efni á youtube heldur en sem setja inn efni þar. Ég reyni að setja flestar mínar stuttmyndir á youtube vegna þess að þá er svo auðvelt að líma þær inn á blogg og þess háttar.
Hér er myndin mín af betlarabörnum og mæðrum þeirra. Hún hefur nú verið skoðuð um 2300 sinnum.
Þessi frétt er núna á mbl.is :
Time velur YouTube uppfinningu ársins
Vefsetrið YouTube, þar sem notendur geta deilt myndskeiðum með öðrum, hefur verið valið uppfinning ársins af tímaritinu Time, og sló þar með við uppgötvun á bóluefni gegn kynsjúkdómi er veldur krabbameini, og skyrtu sem líkir eftir faðmlagi.
Segir Time að umfang og skyndilegar vinsældir YouTube hafi valdið gerbreytingu á dreifingu upplýsinga á netinu. Samkvæmt mælingum Nielsen NetRatings voru gestir á YouTube í september 27,6 milljónir.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2006 | 22:23
Wikispaces fyrir kennara - skjákennsla
Um þessar mundir býður vefþjónustan wikispaces.com kennurum og nemendum upp á ókeypis wiki án auglýsinga. Hægt að láta þessi wikisvæði vera lokuð fyrir aðra en áskrifendur eða alveg galopin. Þetta er mjög gott wikikerfi og ágætt fyrir kennara og kennaranema að prófa að skrifa inn í svona kerfi. Ég skráði t.d. svæðið nkn.wikispaces.com og bjó til skjákennslu sem sýnir hvernig maður býr til síðu og setur inn texta, tengingar og myndir.
þetta er innan við þrjár mínútur.4.11.2006 | 01:04
Skrifað á veggi í Barcelona
Í fyrrasumar tók ég nokkur vídeóklipp af því sem fyrir augun bar. Ég nota bara lítla stafrænu ljósmyndavélina mína. Hérna er 2 mín. stuttmynd sem ég setti saman úr vídeóklippum og ljósmyndum sem ég tók sjálf og svo fann ég tónlist á Creativecommons.org til að halda mig aðeins við efni sem ég má fjölfalda og nota. Ég gerði líka nokkrar tilraunir með titilglærur.
Vídeóið er frá hverfinu Raval í Barcelona, þar er slatti af húsum sem nú er verið að rífa og rétt áður þá blómstra göturnar þegar graffitilistamennirnir skreyta rústirnar.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2006 | 07:04
Að skrifa greinar um fólk í íslensku wikipedia
Þessi skjákennsla sýnir hvernig maður gerir greinar um fólk á íslensku wikipediu. Íslenska wikipedia er á slóðinni is.wikipedia.org. Það eru núna komnar um 12 þúsund greinar í íslensku wikipedíu en það viktar nú ekki mikið miðað við ensku útgáfuna sem hefur yfir milljón greinar. En mjór er mikils vísir.
Tölvur og tækni | Breytt 4.11.2006 kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)