Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Íslensk stjórnvöld skulda okkur skýringar - Ræður Gordon Brown okkar stöðu?

Hvaða möguleika hefur Ísland með sína lítt veraldarvönu ráðherra og forsætisráðherra sem treystir sér ekki til að tala máli Íslands á Nató fundum og víðar? Hvaða möguleika hefur Ísland gagnvart spinndoktorum í þjónustu breska fjármálaheimsveldisins sem lætur andlit  kröfuhafa heimsins vera spítalasjóðir og veik börn sem ekki fá mein bóta sinna? Þegar við hér á þessu skeri (já, nú er ég hætt að tala um Ísland sem eyju, nú er það sker) mitt í Atlantshafinu vitum að andlit erlendra kröfuhafa er ekki veiklulegt andlits helsjúks barns, nei andlit breskra kröfuhafa er andlit Philips Greens

Íslensk stjórnvöld skulda okkur skýringar. Ræður Gordon Brown og breskir hagsmunir eins og þeir birtast í spinni sem ver fjármagnseigendur heimsins hvernig við semjum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið?

Er ekki alveg eins gott að skoða aðra möguleika ef svo er?

Tekið af öðru bloggi:

 

"Brown lenti í mikilli orrahríð í fyrirspurnartímanum en þingmenn sóttu hart að honum varðandi Christie spítalann í Manchester sem tapaði sex milljónum punda við fall íslensku bankanna. Brown var sakaður um að standa í vegi fyrir því að spítalinn gæti endurheimt fé sitt. Ráðherrann sagðist deila áhyggjum þingmanna en benti á að margir aðrir hefðu orðið fyrir tjóni og að nauðsynlegt væri að líta á málin í heild sinni.

„Mikilvægast er að íslensk stjórnvöld borgi," sagði Brown. „Þess vegna erum við í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og önnur yfirvöld um hversu hratt Ísland mun borga til baka af því tjóni sem landið er ábyrgt fyrir."

Sjá: http://www.visir.is/article/20090507/VIDSKIPTI06/392138847


mbl.is 3100 milljarða skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lestölvur í les-skrifmenningu

Nýja tölvan frá Amazon vekur eftirtekt, ég hugsa að hún verði vinsæl ef hún verður nógu ódýr og nógu auðvelt að hlaða hana af upplýsingaefni. Það getur verið að einhvers konar svona græja verði eitthvað sem allir verða með í neðanjarðalestunum, alveg eins og núna eru margir með ipod og aðra mp3 spilara.  Nýlega las ég aftur tölvupóst sem ég hafði sent til nemenda minna heima á Íslandi þegar ég skrapp á ráðstefnu til Kaliforníu á miðju kennslumisserinu fyrir meira en tuttugu árum. Ég var á www ráðstefnu í Santa Clara að mig minnir árið 1994  og ég var að segja nemendum mínum frá hvað allt væri skrýtið, hugsa sér að ég sá vefslóð þar (url) á skilti við þjóðveginn í Kísildalnum, mér fannst það stórfurðulegt, á þeim tíma vissu afar fáir á Íslandi hvað vefslóð var og ekkert sem bendi til að það yrði partur af menningu almennings eftir nokkur ár að slá inn vefslóðir.

Í bréfinu frá 1994 þá var ég að segja nemendum mínum frá fyrirlestri sem ég fór á um framtíðarþróun, þar talaði fyrirlesarinn um að dagblöð yrðu þannig að fólk væri bara með eins konar skjái sem það myndi hlaði niður blaðinu á hverjum degi og svo myndu fréttirnar vera þannig að maður kannski smellti á mynd í blaðinu og þá færi allt af stað, poppaði upp mynd og kvikmynd byrjaði að spila. Þetta þótti mér þá ótrúleg og fjarlæg framtíðarsýn en mér virðist nú flest hafa komið fram.  Núna finnst okkur alveg sjálfsagt að fréttirnar hjá Morgunblaðinu á mbl.is séu sumar  líka með vídeó sem byrjar að spila þegar við smellum á það og það er ýmis konar flash efni með fréttum sem poppar upp byrjar að hreyfast eða færir okkur annað.  Svo er fólk byrjað að lesa Moggann í símanum sínum.  Smán saman fækkar þeim sem lesa moggann á trjákvoðuformi, fólk les Moggann á Netinu með ýmis konar tækni. 

Ef svona lesvélar heppnast vel þá kemur þetta í staðinn fyrir prentútgáfu og leysir mikil vandamál. Það kostar mikið að dreifa og vinna allan þennan pappír, það eru margir liðir sem sparast þó að stofnkostnaðurinn sé töluverður við svona vél og kannski einhvers konar búnað til að hlaða þær af efni. 

En ég velti fyrir mér  hvað mikið gagn er að lesvél í menningu sem er ekki lengur lesmenning, menningu sem er ekki lengur prentmenning, menningu sem er les og skrif menning (read-write culture)þar sem boðskiptin eru ekki bara í eina átt, þú vilt ekki vera lokaður inn í einni grein eða einni bók, þú vilt geta tengt efnið við annað efni, flett upp þvers og kruss t.d. smellt á orð í bók og þá poppar upp orðabók sem útskýrir það hugtak betur eða fréttir tengjast við allar aðrar fréttir sem hafa verið skrifaðar. Mér sýnist þetta nýja verkfæri vera verkfæri menningar sem er að hverfa, menningar hins óvirka fjölda sem les og les.

Það stuðar mig líka verulega að þessi nýja tækni virðist vera miðuð við námsefni fyrir skólanemendur, ekki síst háskólastúdenta alveg eins og dagblöð..  Ég er mikill baráttumaður fyrir opnu námsefni (OER), námsefni með opnu höfundarleyfi, námsefni sem líka getur verið efniviður í önnur verk. Ég get ekki séð að svona gamaldags lesvélatækni auki útbreiðslu á slíku efni eða stuðli að framþróun í heimi þar sem nám fer fram í samfélögum og með sífelldri endurblöndun.

Ég les svona skrif:

"Students will be able to save significant money on books for their education. Online schools can rent the Kindles to students and provide the online marketplace (in cooperation with Amazon) to sell the textbooks for a cut of the price. Plus, textbook companies will save on printing costs and everyone will save money on not having to ship heavy textbooks.

There’s serious money to be made here by everyone. It will be interesting to see which online schools will move first and how quickly the textbook industry will catch on."

Þegar ég les svona skrif þá verð ég bara leið og skil varla hvað fólk er að fara, hvers vegna er verið að fjárfesta í tækni sem augsýnilega þjónar menningu sem er á fallanda fæti. Þetta lestæki er eins og að fá ofboðslega fína og ódýra og þægilega prentara. Ég man að árið 1986 var ég að flytja erindi um "skrifborðsútgáfu" (desk top publishing), þá þótti það ofboðslega merkilegt að einstaklingar gátu búið til sín rit sjálfir og þurftu ekki á mörgum starfsstéttum í prentsmiðjum að halda t.d. fólki í umbroti eða setningu.

Ég reyndar notfærði mér á sínum tíma svoleiðis tækni, ég var sjálf með umsvifamikla bæklingaútgáfu á þessum árum, ég gaf t.d. út hefti um töflureikna sem seldist í meira en 10 þúsund eintökum.  Núna er ég hins vegar orðin fremur andsnúin prentmenningu. Það er mjög sniðugt  og gott að hafa öfluga prentara og prentvélar en við erum á tímum þar sem sífellt minni þörf er á að prenta út og frekar fáir vilja lesa prentað efni ef þeim býðst að fá það á stafrænu formi.

Hér er skýringarmynd yfir verðmyndun á námsefni í USA:

 

 Þessi  skýringarmynd sýnir að höfundur fær ekki nema 10% því sem nemandinn greiðir. Þetta er mjög áhugavert en mínir nemendur þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur, ég hef þá stefnu núna að notast bara við ókeypis efni, efni sem er á Netinu með CC leyfi eða í opnum aðgangi og forrit sem eru "open source" eða sem háskólar hafa sérstaklega gert saming um ódýran eða ókeypis aðgang fyrir nemendur.

Þegar ég var með mína eigin bókaútgáfu, ég gaf út amk þrjár bækur eftir mig og græddi á tá og fingri þá passaði ég vel að

1) hafa verðið svo lágt til nemenda að það borgaði sig ekki að ljósrita
2) að hafa prentupplagið sem stærst
3) að framleiða beint upp í pantanir þ.e. liggja aldrei með neinn lager
4) sjá sjálf um alla dreifingu og allt nema prentun og sölu í bókabúðum
5) Að búa til bækur sem uppfylltu þörf og mikil eftirspurn væri eftir. 

Ég seldi alveg rosalega mikið af bæði bókum um töflureikninn Multiplan og gagnasafnskerfið dBase III, ég held að langflestir sem voru í framhaldsskólum og einhvers konar viðskiptanámi í háskólum á Íslandi á þessum árum hafi notað þessar bækur á þessum árum. Reyndar er ég nokkuð viss um að þær voru vinsælar vegna þess að margir komust yfir þessi forrit (þetta var fyrir Microsoft office væðinguna) á ...hmmm... hvernig á ég að orða það.... óformlegan hátt og án þess að hafa greitt mánaðarkaup fyrir sem þá var verð á þessum forritapökkum.

Reyndar get ég núna líka upplýst að ég sjálf átti aldrei lögleg afrit af þessum forritum þó ég skrifaði um þau kennslubækur með handbókum og reyndar átti aldrei handbækur til að styðjast við heldur, man eftir því hvað ég var þakklát honum Baldri í Versló sem lánaði mér Multiplan handbók sem fylgdi með forritinu.  Ég græddi ágætlega á þessari einkaútgáfu minni en ég man eftir að ef ég hefði látið bókaforlag gefa bækurnar út miðað við þá samninga sem þá tíðkuðust þá hefði ég fengið miklu minna og bækurnar verið miklu dýrari fyrir nemendur. Mig minnir að ég hafi selt bækurnar á þreföldu prentkostnaðarverði en venjuleg útgáfa hafi þá selt bækur á tíföldu prentkostnaðarverði. 

Núna er ég hins vegar orðin mjög fráhverf þessu hefðbundna markaðsmódeli sem samfélag okkar byggir á. Ég hef undanfarin ár  gefið allt mitt efni og reynt að hafa það í opnum aðgangi á Netinu og  nú síðustu ár með CC höfundarleyfi. Það efni sem ég bý til núna er ekki lengur hefðbundið námsefni, ekki texti eða eitthvað sem setja má á blað, ég bý miklu meira til ýmis konar margmiðlunarefni og síðast en ekki síst ýmis konar tengingarefni. Allt reyni ég að hafa aðgengilegt á vefnum. 

Ég verð alltaf byltingarsinnaðri í sambandi við námsefni, ég hef bæði afneitað hefðbundnum höfundarrétti og ég hef líka afneitað skrifum sem merkt eru einum höfundi. Ég held að mest af því sem ég geri núna sé höfundarlaust og efni sem allir geta hrært í og breytt. Dæmi um slíkt efni eru ýmis konar samvinnuskrif m.a. í íslensku wikipedia. 

Það eru margir hneykslaðir á því að ég skuli prédika ókeypis menningu og ókeypis og takmarkalaust aðgengi að þekkingu, ekki bara aðgengi til að geta lesið efni í einhvers konar textavélum eða á prenti eða skoðað á skjá heldur líka aðgengi til að nota efni í eigin verk. En málið er bara að þetta peningahagkerfi og eignaréttarhagkerfi sem við erum í núna er ekkert að virka, það er að mörgu leyti einn helsti fjötur í framþróun og dreifingu þekkingar.

Það er samt þannig að einhver hvati verður að vera til að búa til námsefni, einhver verður að borga námsefnishöfundum. Það er raunar ákveðið módel frá open source samfélögum sem vel er líklegt að nýtist við námsefni, það er ef til vill mikilvægara að byggja upp samfélög þar sem safnað er saman efni og ákveðið kerfi um hvernig efni er notað áfram. Líka samfélög þar sem ekki er svona gríðarlegt gap og hyldýpi milli höfundar og lesandi, milli sérfræðings og byrjanda, milli þess sem hefur verkfærin og má gera og milli þess sem bara má horfa.

 


mbl.is Ný útgáfa af lestölvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur og konan undir jökli

Það einblína allir á ferðamannaiðnað sem eitthvað sem bjarga á okkur út úr ógöngum kreppunnar, alla vega eitthvað sem er í blússandi uppgangi. Þannig er staðan ekki bara á Íslandi, ég les grein eftir grein á Netinu þar sem fólk ætlar sjálft að herða sínar sultarólar í sinni heimabyggð og fara að stunda sjálfsþurftarbúskap og gera svo út á alla túristana sem það telur að muni hegða sér eins og túristar fyrri ára hafa gert. En það er heimskreppa og eins og það sé ekki nóg þá æðir plága yfir heiminn, plága sem byrjaði sem Inflúensufaraldur í Mexíkó en enginn veit hversu hættuleg verður. Það er því engin líkindi til að ferðamenn heimsins hegði sér eins og þeir gerðu í fyrra og hitteðfyrra og haldi áfram að kaupa lúxus eins og dýrar sumarleyfisferðir og fara á fjölmennar ráðstefnur. Það hlýtur að verða samdráttur í þannig ferðum. 

Það vinnur margt með Íslandi núna sem ferðamannalandi. Náttúran og áhugi á norðlægum slóðum, fólk vill flýta sér að sjá jöklana áður en þeir hverfa. Svo er ekki amalegt að fyrir túrista með evrur og dollara er allt orðið miklu, miklu ódýrara hérna þannig að hér er hægt að velta sér upp úr lúxus og láta innfædda stjana við sig, það þarf ekki að borga þeim hátt kaup fyrir það.  Það líka vinnur með ferðamennsku á Íslandi að orkuverð hefur lækkað og þá væntanlega eldsneyti á flugvélar og þar með  kosnaðurinn við að ferja fólk til landsins.

Það er mjög sennilegt að framtíð Íslands sé björt sem ferðamannalands fyrir náttúrutúrista og ég hugsa og reyndar vona að túristar flykkist til Reykjavíkur, ekki út af villtu næturlífi, drykkjulátum og nektarstöðum og spilavítum heldur út af því að hér er heimskautaborg með sérstæða menningu og tengsl við þá undarlegu og stórbrotnu náttúru sem er hér allt í kringum okkur, borg þar sem dýrasta djásnið er ekki tóm tunna eins og geymarnir í Öskjuhlíðinni og ekki gjáfægt og glerjað líkhús kreppunnar eins  og tónlistarhúsið  heldur fjallið Esjan sem gnæfir við himinn. Ég vona að ferðamenn sem koma til Reykjavíkur meti það betur að geta tekið strætó upp að fjallrótum Esjunnar, fjallsins sem er inn í borginni, geta lagt á brattann og  horft af fjallinu á Reykjavík og náttúruna í kring, meti það betur en sitja í tónlistarhúsinu sem var byggt fyrir blóðpeninga og hlusta á tilbúna niðinn í Perlunni sem er engin perla, bara minnismerki um  kúlusukk í kúlulánasamfélagi.

Aðstæður sem eru í heiminum núna munu hins vegar ekki vinna með ferðamennsku þar sem seldar eru dýrar svaðilfarir á norðurslóðir. Ég hef ekki séð neinar tölur og upplýsingar um hvernig íslenska ferðasumarið kemur undan kreppuvetri nema að  fréttaskot þar sem fréttamenn hafa eftir hótelum í Reykjavík að bókanir séu góðar fyrir sumarið.  Svo var nýlega rétt fyrir kosningar stutt viðtal í kvöldfréttum Rúv við eina konu sem rekur hótel eða einhvers konar ferðamennsku innan Vatnajökulsþjóðgarðar, sú kona sagðist ekki hafa orðið vör við neina kreppu, allt í blússandi uppgangi hjá þeim þarna undir jökli.  Svo vildi til að Steingrímur hinn úrræðagóði sjáandi sem núna stýrir fjármálum Íslands var í kosningaþætti RÚV sama kvöld og hann er alltaf sannfærandi hann Steingrímur, hann vitnaði í konuna undir jökli sem sinn aðalheimildarmann um hin gríðarlegu sóknarfæri sem við ættum í ferðamennskunni, allt væri í svífandi uppgangi þar. Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar ég hlustaði á fjármálaráðherrann, ég hugsaði með mér, hvernig fer fyrir þessari þjóð ef þeir sem víðast ættu að leita fanga um gögn og vísbendingar og þeir sem best ættu að spá um ástandið hefðu ekki fyrir því að leita annað en hlusta á fréttirnar á RÚV og taka augljóslega tilbúna frétt svona "góðu fréttina í enda fréttatímans" þessa frétt sem sett er eftir búið er að lesa upp allar hörmungafréttirnar og gjaldþrotafréttirnar. 

Hvað verður um Ísland með svoleiðis fjármálastjórn, fjármálastjórn sem lætur ekki svo lítið að rýna í þau gögn sem þó eru tiltæk víða? Er hægt að treysta svona efnahagsstjórn? Eða er þetta 2009 útgáfan af traustri efnahagsstjórn?


mbl.is 30% fækkun farþega á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandarafrétt

Þessi frétt um stuldinn á 40 tommu flatskjá sem stolið var úr sumarbústað fær mig til að brosa.  Ég vorkenni náttúrulega fólkinu sem stolið var frá en það er samt þannig að flatskjár er táknmynd um hversu mikið þú spilaðir með í spilaborginni sem hrundi. Tölvurnar í dag eru allar með flatskjám en einn samstarfsmaður minn stillir upp hjá sér forljótum stóreflis skjáhlunk sem tekur mestanpartinn af skrifborðinu hennar. Hún segir það sína þjófavörn. Ég held að sumarbústaðaeigendurnir gætu alveg lært af henni, 40 tommu flatskjár er ekki öflugasta þjófavörnin á Íslandi í dag.

Það er líka annað sem fær mig til að brosa. Það er gaman að búa í samfélagi þar sem nytjastuldur á einu sjónvarpstæki er tilefni fréttar. Það fær mig líka til að skælbrosa ennþá breiðar að hugsa um alla milljarðana og æruna sem var stolið frá mér og þér og öllum Íslendingum í þessum skrípaleik sem fjármálalíf undanfarinna missera var og hvernig það rán var aldrei nein fyrirsögn í netmiðlum, þvert á móti var það rán með vitund íslensku ríkisstjórnarinnar og klappað upp af forsetanum og lofsungið í fjölmiðlum sem voru í eigu þeirra sem frjálslegast gengu í sjóðinn, í eigu þeirra sem prentuðu peninga fyrir sjálfan sig og þeyttu þeim á milli sín svo þeir litu út fyrir að margfaldast.

Það fær mig líka til að brosa að  í hinni nýju vinstristjórn VG og Samfylkingar þá stígi á stokk hver á fætur öðrum sem dásamar það kerfi sem núna eftir að allt er farið ætlar að stela meira og meira þannig að meira fari frá þeim sem skulda til þeirra sem eiga skuldirnar. Það er svona öfugt Hróa hattar kerfi núna á Íslandi, það er stolið frá þeim fátæku og skuldugu og fært yfir til þeirra sem eiga peninga. 

En svo ég geti brosað meira þá horfi ég á nokkrar skrýtlur eftir þá frábæru skoplistamenn Halldór og Henrý Þór.Takk fyrir að létta okkur lífið og láta okkur brosa á þessum erfiðu tímum!

28-04-09

04-05-09__ 

3ce2e3672dba964


mbl.is Fjörutíu tommu flatskjá stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafskip í skotlínu, árið sem ég vann hjá Björgólfi

Það má vart á milli sjá hvort var óheppilegri tímasetning á útgáfu af bókinni um Forseta Íslands núna fyrir jólin eða bókinni Hafskip í skotlínu, bókinni sem átti að fegra og rétta við hlut Björgólfs Guðmundssonar í Hafskipsmálinu.

Það má gjarnan rifja upp að á forsíðu Helgarpóstsins þann 22. maí 1986 var mynd af Björgólfi Guðmundssyni þar sem hann var leiddur inn í gæsluvarðhald og textinn með fréttinni er:

"Leynireikningar í Útvegsbankanum og erlendum bönkum, tugmilljóna fjársvik, fasteignir erlendis, bókhald og ársreikningar falsaðir, rannsóknarbeiðni ríkissaksóknara staðfesting á skrifum Helgarpóstsins - HP segir alla söguna um Hafskipsævintýrið.!

Ég komst nýlega að því að ég vann einu sinni hjá Björgólfi, ég hef skrifað sérstakt blogg um það og hvernig starfskjör mín voru  og ég man ekki eftir neinum kúlulánum eða kaupaukum þar, ég vann í  Dósagerðinni en það mun hafa verið eitt af fyrirtækjum Björgólfs á þeim tíma sjá minningabrot mitt hérna:

 Dósagerðin árið 1972

Það er sama hvað ég reyni, ég get ómögulega munað hvort að maðurinn sem kom í upphafi hverrar vaktar og skrifaði upp tölurnar á vélinni sem ég vann á hafi verið í teinóttum jakkafötum. Ég reyndar hugsa ekki, hugsa að það hafi ekki verið Björgólfur, ég hef alltaf heyrt að fólki hafi líkað vel við hann og hann sé alþýðlegur maður, ekki maður sem virðir verksmiðjustúlkur ekki viðlits.

Ég rifjaði upp þennan tíma sem ég vann hjá fyrirtæki Björgólfs þegar núna 6. febrúar  birti DV úttekt á manni að nafni Haukur Heiðar sem var deildarstjóri ábyrgðardeildar Landsbankans 1970 til 1977. Haukur Heiðar þessi mun hafa farið frjálslega með fé en notað aðrar aðferðir en þessar kúlulánablekkingar sem nú tíðkast og í staðinn fyrir eyjuna Tortula þá mun hann hafa notað bankareikninga í Sviss. Í DV greininni segir:

"Sem deildarstjóri ábyrgðardeildar Landsbankans hafði Haukur Heiðar um sjö ára skeið, frá 1970 til 1977, dregið að sér rúmar 50 milljónir króna með skjalafalsi. Í flestum tilfellum notaði Haukur Heiðar féð sem hann dró sér til þess að borga ábyrgðarskuldir fyrirtækja Björgólfs Guðmundssonar, Dósagerðarinnar og Bláskóga, eða kom fénu úr landi og inn á bankareikning í Sviss."

Mér virðist full ástæða til að kanna feril Björgólfs Guðmundssonar alveg frá því að hann fékk peninga til að borga ábyrðarskuldir sínar hjá Hauki Heiðar þangað til hann er kominn persónulega í ábyrgðir fyrir skuldbindingum við Landsbanka Íslands upp á 58 milljónir.

Það er litrík saga og spannar íslenska bankasögu og viðskiptasögu í fjörutíu ár.

Saga Björgólfs spannar líka skrýtna hluti, hluti eins og að hann setur upp áfengismeðferðarstöð og fer í útrás í að þurrka upp fólk (Veritas ævintýrið) og svo í að selja fólki áfengi í Rússlandi. 

 

1986-05-22-hp-forsida-akaera


mbl.is Björgólfur ábyrgur fyrir 58 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgst með flensunni blossa upp

Upplýsingagátt frá  TM Software sem Heilbrigðisráðuneyti Mexíkó hefur tekið í notkun  virðist vera gerð í Sharepoint hugbúnaðinum frá Microsoft. TM Software mun hafa þróað þessa lausn fyrir OCHA skrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Ég er reyndar undrandi á því að samræmingarskrifstofa Sameinuðu Þjóðanna skuli ekki hafa nota opnar hugbúnaðarlausnir, hugsa sér ef það væri línan hjá Sameinuðu þjóðunum að nota eingöngu kerfi með opnu höfundaleyfi, hugsa sér hvað það myndi þá gagnast heiminum meira. En það er gaman að lesa um að íslenskt fyrirtæki komi að upplýsingagátt fyrir flensuna. Það er nú reyndar  ekki svo að almenningur í Mexíkó hrósi stjórnvöldum neitt sérstaklega fyrir upplýsingaflæði um veikina. 

Það er áhugavert að spá í hvernig tæknin getu nýst bæði við náttúruhamfarir, stríð og  aðrar plágur m.a. til að sjá hvenær pestir blossa upp. Núna eru ekki bara alls konar aðgerðir í gangi til að koma upp um hryðjuverkahópa áður en þeir láta til skarar skríða, núna er líka til eitthvað sem heitir "biosurveillance" og það er væntanlega vöktun á lífrænni ógn svo sem mengun, eitrun og smitsjúkdómum og ætli undir það felist ekki líka að fylgjast með ágengum tegundum t.d. hættulegum býflugum sem eru smán saman að breiðast út.

Það má velta fyrir sér á vegum hvers og í hvaða tilgangi þessi rafræna vöktun er og einnig að þó að hún sé gerð í almannaþágu þ.e. upplýsingar keyptar af stjórnvöldum þá má búast við að stjórnvöld leyni fyrir okkur upplýsingum, sennilega í góðri trú til að skapa ekki óróa. Ég á við að stjórnvöld eru líkleg til að leyna því í lengstu lög að tilvik þar sem grunur er komin upp um smit ef það er ekki staðfest. ÞEtta  á m.a. rætur í því að gríðarlegir viðskiptahagsmunir eru í húfi. Við sáum í fjármálafárviðrinu hvernig íslensk stjórnvöld leyndu fyrir almenningi á Íslandi og sérstaklega fyrir erlendum kröfuhöfum hvernig ástandið væri hérna í fjármálum. Treystum við þannig stjórnvöldum til að segja okkur satt og rétt frá öllu ef hér væri að breiðast út hættuleg sýki?

Það er mjög áhugavert hvernig fyrirtæki eru að koma sér upp vöktunargræjum, fylgjast með síbyljunni á Netinu. Kannski skannar eitthvað forrit þetta blogg og finnur mynstur í orðum, finnur að hér er fjallað um sjúkdóma og ber saman við önnur blogg og býr til magntölur um hve mikið hype sé á tilteknum stað í heiminum og dregur ályktanir "something is cooking" ef eitthvað ákveðið mynstur kemur í ljós. Hér er grein um hvernig síbyljan á Netinu er greind:

Veratect, a Seattle-based biosurveillance startup, claims they alerted the Centers for Disease Control to the situation in Mexico — where health officials suspect swine flu has killed up to 149 people — on April 16, before even the Mexican health authorities declared a problem.

How’d they get ahead of the outbreak? By monitoring and analyzing the flow of social media traffic along with more official reports, the company’s CEO said.

“We started picking up the early indicators of social disruption, whether it shows up on blogs or Twitter,” said Bob Hart, the CEO of Veratect. “We can pick up the first indicators of behavioral changes.”

Hér er önnur grein um svona bio vöktun:

Experimental Flu Trends for Mexico

 


mbl.is Íslensk hugbúnaðarlausn nýtt í Mexíkó vegna flensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svarið kallinu, póstið myndbönd á youtube um kreppuna

Hans J. Lysglimt   talar á vídeóinu hér fyrir ofan og stingur upp á því að Íslendingar boði heiminum nýjan fögnuð, segi sögu sína  á youtube vídeoum (setji sem svör við hans vídeó) og segi hvers vegna þeir hafi ekki tekið eftir að það var hérlendis kerfi sem gekk ekki upp, segi frá því hvernig þeir kljást við kreppuna, segi frá hvernig gengur núna.  Hans heldur því fram að önnur ríki muni hrynja á sama hátt og Ísland. Þetta er góð hugmynd hjá þessum manni, ég held við ættum að taka hann á orðinu og hefja samræðu við umheiminn, samræðu sem er ekki milli Gordons Browns og Geir Haarde, samræðu sem er milli einstaklinga þar sem við reynum að uppfræða umheiminn um ástandið hérna í því augnamiði að gefa eitthvað til alþjóðasamfélagsins.

Hans þessi sem ég veit nú lítil deili á er nú samt ansi (smá)borgaralegur hagfræðingur  og að mér virðist í frjálshyggjugír, hann leyfir sér að fullyrða að Íslendingar hefðu átt að kaupa gull og silfur til að bjarga verðmætum sínum. Það er frekar erfitt að hlusta á þetta vídeó, Hans þessi er afar, afar yfirlátsfullur. Þetta virðist líka vera afar viðvaningsleg greining á Íslandi, alla vega er ekki sannfærandi að maður sem kallar sig hagfræðing meti aðstæður á Íslandi miðað við hvað hann þurfti að borga mikið fyrir gistingu þegar hann var túristi hér fyrir nokkrum árum á hagfræðingaráðstefnu.  En ég held að þetta sé góð hugmynd með youtube kreppuvídeó á ensku, ágætt fyrir okkur að segja umheiminum frá okkar sjónarhorni og það getur líka verið ágæt kreppuminningabók fyrir okkur síðar.

Hér annað vídeó frá þessum Hans:

 


mbl.is Kikna undan skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norræn velferðarstjórn - íslensk skrípamynd

Þegar bankarnir á Íslandi hrundu þá  keypti ég mér rautt hjól, ég átti þá nálægt milljón á bankareikning því ég hafði verið að safna fyrir bíl.  Ég taldi nánast öruggt að ég myndi tapa þeim peningum og það var þá ekki um neitt annað að velja en skipta yfir í hjól og strætó. En þá var tilkynnt að öll innlán í íslenskum bönkum yrðu tryggð fyrir þá sem hefðu íslenska kennitölu. Á sama tíma hrundi bílamarkaður, allt yfirfylltist af bílum sem fólk gat ekki borgað af lengur. Ég gat því tekið út peningana í bankanum og  keypt nánast nýjan bíl á hálfvirði. Núna ek ég þess vegna um á nýjum rauðum kreppubíl en hjóla ekki um á rauðu kreppuhjóli. 

Ríkisstjórn Íslands sló vissulega skjaldborg í kringum þegna sína með neyðarlögum og með því að borga út úr peningasjóðum úr bönkum. En sú skjaldborg var bara í kringum suma þegna, bara í kringum þá sem áttu innistæður í bönkum og innistæður í peningamarkaðssjóðum, bara í kringum fjármagnseigendur. Það er ekki ónýtt að  sleppa svona vel þegar kerfishrun verður að eiga alla peningana sína og allt í kringum mann er orðið miklu ódýrara, það er hægt að kaupa bíla og hús og fyrirtæki á slikk í dag miðað við hvað verðið var fyrir hrun.  Það var mjög fallegt af ríkisstjórninni að passa upp á að ég gæti keypt bíl en þyrfti ekki að notast við hjól og strætó.

Margar vörur hafa  hrapað í verði, olía og ál kostar bara brot af því sem verðið var fyrir hrun fjálmálamarkaða heimsins. Þetta er því mikil gósentíð fyrir þá sem eiga peninga og íslenska ríkisstjórnin var örlát við fjármagnseigendur og gaf og gaf  og fylgdi  "gakktu í sjóðinn nr. 9 og sæktu þér hnefa" stefnu þegar borgað var út úr íslenskum peningamarkaðssjóðum.

Sumir fjármagnseigendur hafa hugsanlega tekið peninga sína úr landi til að geta svo komið með þá aftur hingað þegar allt hefur lækkað ennþá meira hérna með hruni gengis og almennu hruni. Þeir geta þannig margfaldað ágóða sinn af kerfishruninu, kannski alveg á löglegan hátt og með með aðstoð og góðvilja íslensku ríkisstjórnarinnar.

En það búa fleiri á Íslandi en fjármagnseigendur.
Satt að segja þá er flest ungt fólk og flestir sem reka fyrirtæki frekar skuldarar en fjármagnseigendur. Fyrirtæki hafa um langt skeið verið rekin þannig að ekkert eigið fé er í fyrirtækjum, allar vélar, húsnæði og bílar eru á kaupleigu og það gefur augaleið ef allir kostnaðarliðir hækka skyndilega um 25 % út af gengisfalli og verðbólgu á sama tíma og verðhrun og sölutregða verður á afurðum þá eru nánast engin fyrirtæki sem lifa af svoleiðis aðstæður.

Það varð kerfishrun, ekki bara á Íslandi heldur í öllum heiminum. Gjaldmiðlar. ekki bara íslenska krónan heldur allir gjaldmiðlar heimsins eru ekki að virka í því samfélagi sem við búum í og með þeim eru búnar til alls konar  bólur og froða sem á sér enga stoð í raunverulegum verðmætum. Það er skrýtið að í þannig kerfi sé helgasta eignin peningar í banka. Reyndar er kreppan skýrð eftir þessu, kölluð "lausafjárkreppa" og  sögð hafa verið hrint af stað af "undirmálslánum". 

Undirmálslánin eru glötuð lán, lán sem verður að afskrifa. Þau ganga kaupum og sölum í hinu kapítalíska kerfi, stundum er verðið fyrir lánapakkana ekki nema 10 % af upphæð lánanna. En í alveg kapítalísku kerfi þá ganga lánapakkarnir kaupum og sölum í bankaheiminum og fjármálaheiminum án tillits til þess hvað gerist þegar gengið er af lánunum. Þau hafa verið afskrifuð af því að gert er ráð fyrir að þegar bíllinn er tekinn aftur af kaupleigufyrirtækinu og húsið er tekið yfir af bankanum þá fáist ekki nema lítið brot fyrir þetta á uppboði.

En á meðan þetta gerist þá eru milljónir gerðar heimilislausar og settar á vergang. Lánin eru ekki afskrifuð á þessar fjölskyldur, lánin eru afskrifuð í viðskiptum um viðskipti um viðskipti í einhverju alþjóðlegu bólu- og froðukerfi sjokkkapitalista. Við horfum upp á þetta gerast í Bandaríkjunum og íslenska ríkisstjórnin fylgir sama módeli, bara kallar þetta hérna  norræna velferðarstjórn.

Hér er íslenski viðskiptaráðherrann í viðtali um norrænu velferðarstjórnina á Íslandi, þið vitið, þessa sem slær skjaldborg utan um fjármagnseigendur og tjaldborg utan um skuldara.

8abf7104dd7a1da


mbl.is „Viljum hafa fast land undir fótum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru erfiðir tímar, það er atvinnuþref

aIMG_4870

Hér eru myndir sem ég tók niðri í bæ í dag. Tók líka vídeó af ræðu forseta ASÍ. Einkennilegt hvað mín sýn á hvað er að gerast í samfélaginu er mikið öðruvísi en fjölmiðla svo sem  mbl.is og RÚV.

Mogginn á Netinu flytur þá frétt helsta að það sé allt fullt af atvinnulausu fólki að svindla inn á sig atvinnuleysisbótum og RÚV flytur okkur fréttir af útifundinum á Austurvelli þar sem tæknimenn hafa sett einhvern sniðugar filter og hljóðdeyfir á hljóðnemann hjá Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ. Ekkert heyrist í útsendingu RÚV af úum og púum og bauli sem yfirgnæfði ræðuna. IMG_4862

Maður gæti haldið ef maður vissi ekki betur að RÚV væri að leyna fyrir almenningi á Íslandi að ekki var gerður góður rómur að ræðu Gylfa.  Það var Ú-að og það var Ú-að og pú-að. En auðvitað vakti það ekki fyrir RÚV, hvernig læt ég, þar eru menn fjórða valdið og fimmta valdið og tjaldið utan Ísland, tjaldið utan um blekkinguna um skjaldborgina.

Svo var eitthvað seiðandi og segjandi um alla löggubúninganna sem runnu eftir skjánum (sjá fréttina  hérna Bað um hærri laun lögreglumanna og fangavarða )og óminn úr lögreglukórnum í bakgrunni og upplestur af fréttinni um þegar Magga Frímanns fangelsisstjóri sagði í messu í morgun að löggur og fangaverðir ættu að hafa nokkrum launaflokkum hærri laun, hefðu staðið sig svo vel á þessum erfiðu tímum.  Þetta er æðaslátturinn á Íslandi 1. maí 2009. Það hefur verið skipt um ríkissjórn... hei.. ekki beint skipt... frekar svona útskipt flokkum... Samfylkingin sem var í vanhæfu ríkissjórninni, munið þessari með "trausta efnahagsstjórn" er ennþá í brúnni og komin ennþá meira í brúnna og stýrir núna og núna lúta fjölmiðlar og verkalýðshreyfing nýjum herrum og við heyrðum forseta ASÍ í dag taka rispu dauðans í sjokkkapítalisma og troða inn á okkur ESB í ræðu undir úi og púi.

IMG_4852

Fréttin um löggumessuna var snilld. Kom inn messa, karlakór, lögreglur, fangaverðir. Hærri laun fyrir lögreglumenn og fangaverði, elta betur alla þessa atvinnuleysingja sem eru að svíkja út bætur. Fréttir með hljóðdeyfi. Svona eru fjölmiðlar núna eftir Hrunið mikla, svona er sannleikurinn sem borinn er fyrir almenning.

Svona er veruleikinn búinn til.

IMG_4866

Það var áberandi margir núna að krefjast einhverra endurbóta varðandi flóttamenn og hælisleitendur. Þau buðu okkur að smakka framandi mat.

IMG_4876

Það er nú svolítið nostalgía að sjá Þorvald þarna í Austurstræti vígbúinn og baráttuglaðan. Hér fyrir nokkrum áratugum gat maður alltaf gengið að því vísu á hverjum föstudegi þá væri Þorvaldur að selja einhver barátturit í Austurstræti, þarna við andyrið á Eymundsson. Einar Már og Birna Þórðardóttir voru  líka stundum að selja svoleiðis rit. Þetta hafa sennilega verið einhver Æskulýðsfylkingaskrif eða kannski nýjasta línan frá Hoxa í Albaníu.

aIMG_4840

Fleiri myndir má sjáí þessu myndaalbúmi 1. maí 2009 á Austurvelli.

Hér er það sem ég hef áður skrifað um 1. maí ár:

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASI ekki að meika það

Borgaralega skylda, ekki brottrekstrarsök!


mbl.is Fjölmenni í kröfugöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASI ekki að meika það

Þetta var ekki dagurinn sem Gylfi Arnbjörnsson sló í gegn.  Það var erfitt að hafa heimil á sér og taka ekki undir baulið og púið á Austurvelli sem yfirgnæfðu ræðu Gylfa. Hér er vídeó sem ég tók:

Hér er annað vídeó með seinni partinum af ræðu Gylfa. Það er hann að tala fyrir aðild að Efnahagsbandalaginu. Gylfi er undarlega upptekinn af að ganga erinda Samfylkingarinnar. Ég er algjörlega fylgjandi því að hér verði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB en ég á samt erfitt með að sjá að það sé brýnasta hagsmunamál íslensks verkalýðs á tímum þegar ríkið er tæknilega gjaldþrota og margar íslenskar fjölskyldur fara á vonarvöl ef ekki verður gripið strax til róttækra ráðstafana. Þær ráðstafanir eru ekki að æða inn í ESB með eins miklum hraði og hægt er, það er Sjokk kapítalismi af verstu sort og það er ömurlegt að heyra forseta eins stærsta verkalýðsfélagsins ganga erinda fjármagnseigenda heimsins á þennan hátt.

Ég sárvorkenndi Gylfa, það er svo sannarlega erfitt að halda ræðu þegar maður er svo púaður niður. En það sem Gylfi sagði og greinin eftir hann í Vinnunni sem fylgdi með Morgunblaðinu í dag er ekki trúverðugt.


mbl.is Nýjan sáttmála um stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband