Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
26.1.2009 | 21:29
Búsáhaldatakturinn
Stjórnin er fallin. Í tilefni af þessum miklu tímamótum þá frumsýni ég hérna á blogginu nýjustu stuttmyndina mína, það er stuttmyndin Búsáhaldatakturinn, 10 mínútur að lengd. Sviðið er Austurvöllur á 16anda útifundinum og myndin er raddsett af Guðmundi Andra Thorssyni en myndin er tekin upp undir ræðu hans, þar sem ég gekk um með litlu stafrænu myndavélina mína stillta á record og tók myndir af fólkinu á Austurvelli sem hlýddi á ræðu Guðmundar. Ég er með varíant af kreppudogma í þessari stuttmynd, ég nefnilega hljóðsetti myndina með smábút af búsáhaldaglamri og hrópum sem upphófust eftir að útifundinum lauk.
Ég hugsa þó að mótmælin leggist af og nýjabrumið fari af þeim eins og öðru þá sé hér komin ný íslensk tónlistarstefna.
Efst í þessu bloggi er stuttmyndin á youtube. Hér er stuttmyndin í betri gæðum en ekki streymimiðlum og því erfitt nema fólk hafi góða nettengingu, sjá hér Búsáhaldatakturinn
Þetta var vanhæf ríkisstjórn. En hvernig er hæf ríkisstjórn í þeirri stöðu sem við erum í núna? Ég held að því sé auðsvarar. Það verður að vera hér ríkistjórn sem hefur hagsmuni alþýðu að leiðarljósi, þá hagsmuni að halda Íslandi í byggð því hér er að bresta á landflótti. Ríkisstjórn sem er ekki feimin við ríkisafskipti og ríkisrekstur og það sem menn í heiminum í dag, ekki bara á Íslandi þurfa að snúa til það er einhvers konar áætlanabúskapur og einhvers konar hagkerfi sem er ónæmt fyrir peningabólum.
Stjórnarsamstarfi lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.1.2009 kl. 07:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2009 | 18:19
Börn og geðveikir foreldrar og fíklar
Ég var að lesa blogg Heiðu Þórðar Áður en þið dæmið geðsjúka móðir...lesið; en núna er viðtal við Gísla Þór bróður hennar í Vikunni um uppvaxtarár hans hjá móður sem bæði glímdi við geðræn vandamál og alkóhólisma. Þau voru sex sammæðra syskini og þrjú alsyskini. Sum ólumst upp hjá ömmum sínum. Gísli lýsir jólum bernsku sinnar í þessu bloggi Óyfirstíganlegir veggir
Það eru mjög margir sem glíma við geðræn vandamál á einhverjum hluta ævi sinnar, vandamál sem stundum magnast upp af ytri aðstæðum eins og fjárhagserfiðleikum, drykkjuskap eða annars konar fíkniefnaneyslu. Sumir þeirra eiga börn og þegar fólk er svo veikt að það getur ekki stjórnað eigin lífi þá getur það stundum ekki veitt börnum þá umönnun sem þau þurfa og eiga rétt á.
Í barnaverndarlögum er þetta ákvæði um tilkynningaskyldu almennings:
25.1.2009 | 13:52
Stjórnlaust land
Afsögn Björgvins skapar ennþá meiri glundroða í íslensku samfélagi. Sérstaklega ef það er rétt að afsögn hans hafi komið Ingibjörgu Sólrúnu á óvart. Það var komin tími til að skipta út stjórn fjármálaeftirlitsins og forstjóri þess hefði átt að fjúka sama dag og Geir flutti "Guð blessi Ísland" ræðuna sína. Ríkisstjórnin sem nú sítur er bæði ráðlaus og dáðlaus. Hún megnar á engan hátt að taka á þeim gríðarlega vanda sem blasir við Íslandi, öll hennar orka virðist fara í að leyna vanmætti sínum.
Ég hugsa að moggabloggarar gætu stjórnar þessu landi miklu betur en sú ríkistjórn sem nú situr. Það er reyndar ekki sagt í tómu gríni, moggabloggarar og aðrir bloggarar eru áberandi í andspyrnuhreyfingu gegn stjórninni, hér er mynd af sviðinu á útifundinum á laugardaginn og moggabloggarar eiga sviðið. Hildur Helga er að flytja sína ræðu, Jakobína er í biðstöðu að flytja næstu ræðu og Lára Hanna vopnuð myndavél er að skrá niður atburðinn. Á næstu mynd má sjá Heiðu sem slær taktinn á torgum í búsáhaldabyltingunni og hefur verið þar kórstjóri og innsti koppur í búri.
Nú er bara spurningin hvort það verði útifundur næsta laugardag. Ef stjórnin er fallin hvað þá? Ef það verður fundur þá verður hann skrautlegur, það er nú tíska á hverjum laugardag bæði í klæðnaði og í verkfærum. Nú mætir fólk með skeiðar og álþynnur og dollur og potta og sleifar og skreytir sig appelsínugulum borðum. Einstaka ebe regnhlíf sá ég á lofti.
Ég hugsa að mótmælin eftir viku verki í appelsínugulum og svörtum tónum.
Ef stjórnin lifir svo lengi.
Björgvin segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2009 | 13:33
Kreppudagur og þegar skosku hálöndin voru rýmd
Ég ætla að mæta á Austurvöll á eftir eins og ég hef reynt að gera flestalla laugardaga. Ég get ekki séð að það hafi neitt áunnist nema tímasetning er nokkurn veginn komin á kosningar. En mér finnst mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn sitji ekki þann tíma að völdum. Ég get ekki annað séð en að ríkisstjórnin sem núna situr sé lömuð og rúin trausti. Samt hefur þessi ríkisstjórn óhemju þingmeirihluta frá síðustu kosningum.
Ég óska bæði Ingibjörgu og Geirs góðs bata í veikindum sínum. Það er sorgleg og erfið staða að einmitt núna þegar mikið mæðir á ríkisstjórninni þá skuli báðir foringar hennar eiga við alvarleg veikindi að stríða. Bæði Geir og Ingibjörg vinna einlæglega fyrir íslensku þjóðina og ég hef aldrei efast um að þau vilji vel og vinni fyrir fólkið í landinu en ekki fyrir sjálfa sig.
En það er því miður þannig að ég á erfitt með að treysta öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar á þessum tímum, sérstaklega er erfitt að treysta ráðherrum Sjálfstæðisflokksins sem virðast sumir sjálfir tengjast undarlegum fjármálagjörningum og halda hlífiskildi yfir mönnum sem tengjast undarlegum fjármálagjörningum. Þar á ég ekki síst við Þorbjörgu Katrínu og hvernig hún og eiginmaður hennar hafa gert upp eða ekki gert upp skuldir sínar vegna hlutafjárkaupa og svo Árna Mathiesen í fjármálaráðuneytinu sem hefur þar ráðuneytisstjóra Baldur Guðlaugsson sem hefur stundað undarleg hlutabréfaviðskipti og virðist hafa hagnýtt sér innherjaupplýsingar í auðgunarskyni. Þess má geta að umræddur Baldur mun hafa verið í einkavæðingarnefndinni á sínum tíma. Það er hneykslanlegt að Baldur skuli ekki þegar kominn í frí frá störfum.
Eftir hrunið hefur afhjúpast fyrir okkur forað sem við vissum ekki að væri til. Ef allar getgátur og sögur eru sannar þá er yfirgengileg spilling í íslensku fjármálalífi og þessi spilling hefur grafið um sig með sátt og raunar líka þátttöku margra Sjálfstæðismanna.
Í Morgunblaðinu í dag var grein um Burns daginn hjá frændþjóð okkar Skotum. Ég hef alltaf öfundað Skota af þessum degi, deginum sem þeir minnast gamalla tíma, sjálfstæðisbaráttu og sérstöðu Skota og tengja það matarhefð fyrri tíma. Eitt í sögu Skota sem er alveg heldjúpt sár ennþá er highland clearance. Þegar landeigendurnir vildu nota skosku hálöndin fyrir sauðfjárbúskap og ráku alla leiguliða í burtu.
Ég velti fyrir mér hvort einhvern tíma komi sú tíð á Íslandi að við verðum í sömu sporum og leiguliðarnir á skosku heiðunum - við verðum rekin hérna burtu af eyjunni Íslandi vegna þess að við erum fyrir einhverjum sem hafa komist yfir eignarhald á öllum auðlindum hérna. Það er alveg fyrirsjáanlegt að í náinni framtíð verða auðlindir Íslands mikilvægar, hér er orka og hér er land, hér eru hafnir við sjó, hér eru ein gjöfulustu fiskimið heimsins. Ef til vill er sú staða einmitt uppi núna að það er verið að reka okkur í burtu, ekki sýnilega og á yfirborðinu heldur með þeim undarlegu þráðum viðskipta og eignarhalds sem hneppa okkur í fjötra og kippa undan okkur lífsbjörginni.
Ef til vill getum við þegar tímar líða fram haldið árlega hátíðlegan kreppudaginn alveg eins og Skotar halda hátíðlega sláturkeppadaginn og minnst með angurværð gamalla tíma, tíma þar sem við héldum að við værum sjálfstæð þjóð sem réði eigin örlögum og byggi í landi sem hún réði yfir. Ef til vill munu barnabarnabarnabörn okkar finna í ljóðum og sögnum og söngum og hljómkviðum og skáðum frásögnum finna þá djúpu sorg sem lagðist yfir íslensku þjóðarsálina þegan heimsmynd okkar hrundi.
Ég held að kreppudagurinn sé ágætur í kringum 20 janúar.
Tenglar um rýmingu skosku heiðanna
The Patterns of the Highland Clearances
Highland Clearances - Wikipedia
The Age of Revolutions The Highland Clearances
The Highland Clearances and the Effects on Scotland Today
Mótmæli halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2009 | 19:01
Alvarlegar og sorglegar fréttir
Íslands ógæfu verður allt að vopni. Heimurinn hrynur í kringum okkur í heimskreppu sem dýpkar og dýpkar, víða eru róstur og uppþot og sums staðar geysa blóðug stríð. En hrunið er meira á Íslandi en annars staðar í Evrópu, hér hrynur allt, hér var rík og skuldlaus þjóð í fyrra og atvinnulíf blómlegt. Núna erum við bjargþrota skuldum vafin þjóð og vegna sérstakra íslenskra aðstæðna þ.e. gengistryggingar og myntkörfulána þá eru líka margar fjölskyldur og stór hluti atvinnufyrirtækja komin í þrot. Tveir stórir atvinnuvegir bankastarfsemi og byggingariðnaður hafa alveg hrunið og munu væntanlega aldrei ná aftur fyrri þunga.
Eina sem við vitum er að botni kreppunnar er hvergi nærri náð og hvernig okkur reiðir af er háð því hvernig umheiminum reiðir af. Og það er ekkert bjart framundan. Össur reynir að segja okkur frá því að við verðum rík af olíu af Drekasvæðinu en hve skyldum við trúa því, það á eftir að finna olíu og var það ekki þessi sami Össur sem dásamaði einhvers konar dularfulla orkuútrás í einhverjumr REI ævintýrum, útrás sem mér virðist hafi verið af sama meiði og sala Kaupþings til arabískra sjeika, útrás sem var í rauninni dulbúin innrás.
Eitt enn reiðarslagið fyrir íslensku þjóðina er að foringar á stjórnmálasviðinu, formenn beggja þeirra stjórnmálaflokka sem nú eru við völd glíma við alvarleg veikindi. Ég óska þeim góðs bata og vona að þau jafni sig á þessum veikindum. Það er ómanneskjulegt álag á þeim stjórnmálamönnum sem stýra Íslandi núna.
Ég held hins vegar að það sé mikilvægt að Sjálfstæðisflokkurinn fari frá völdum sem fyrst. Svo mikil er tortryggni mín út í hvernig þeir hafa gengið erinda auðmanna og bankaeigenda að ég má ekki til þess hugsa að þeir sitji fram í maí. Mér finnst Þorgerður Katrín ekki trúverðugur forsætisráðherra sem staðgengill Geirs, ekki síst vegna tengsla hennar við Kaupþing. Eiginmaður hennar var lykilstjórnandi í Kaupþingi og eftir því sem komið hefur fram í fréttum þá munu þau hafa keypt skuldabréf í Kaupþingi fyrir háar fjárhæðir en fáum sögum fara af því að þau hafi borgað þær skuldir.
Ég efast líka um stjórnkænsku hennar á tímum eins og núna. Sérstaklega man ég eftir hve illa hún tók tillögu Davíðs Oddssonar á sínum tíma um þjóðstjórn allra flokka. Það var auðvitað ekki hans að segja ríkisstjórninni hvað hún ætti að gera og hann er ráðríkur maður sem hefði átt að vera löngu búinn setjast í helgan stein og sinna ritstörfum. En það var bara góð hugmynd þetta með þjóðstjórnina, það sáu það allir. Meira segja Steingrímur hjá Vinstri grænum og það segir sitt um hve augljóslega góður kostur það var.
Af hverju vildi Þorgerður Katrín ekki þjóðstjórn?
Sjálfstæðismenn í sjokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.1.2009 | 19:04
Nærmynd af Bjarna Benediktssyni, nærmynd af íslensku þjóðinni
Hún er skýr en ekki viðkunnanleg myndin af Bjarna Benediktssyni vonarpeningi Sjálfstæðisflokksins sem teiknuð er upp í þessari frásögn í DV :
"Heimildir DV herma að Sigmundi Erni hafi lent saman við Frey Einarsson um efnistök Íslands í dag á dögunum. Sindri Sindrason vildi víst fjalla um mótmælin á Íslandi en Freyr mun hafa heimtað að nærmynd yrði tekin af Bjarna Benediktssyni."
Viku fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins breytist fjölmiðillinn Stöð 2 í svo einstrengingslega áróðurmaskínu fyrir þann fulltrúa sem gamalt og útjaskað ættar- og auðveldi ætlar að flikka upp á til formennsku í Sjálfstæðisflokknum að þar neita menn að taka eftir því að á sama tíma brennur Ísland og uppþot og bylting er að brjótast út.
Fyrir þremur vikur var Sigmundur Ernir inn á Borginni og stýrði Kryddsíldinni þar sem ljúfir tónar Stradivarius fiðlu hljómuðu og heldri menn sátu á rökstólum. Úti fyrir knúðu dyra mótmælendur með hrossabresti og ýlur en þeirra taktur var meiri, þeirra kraftur var meiri og þeirra geta var meiri til að ráða fram úr stöðunni á Íslandi í dag heldur en sú gjörspillta ásýnd íslenskra stjórnvalda og auðjöfra sem blasir við okkur í þeim litlu leiftrum sem við fáum af því hvað er að gerast í þeirra heimi. Bjarni Benediktsson er formennskukandidat þess Íslands sem einu sinni var. Þess Íslands þar sem auðjöfrar og ættarveldi stýrðu allri miðlun á Íslandi og puntuðu upp einn úr sínum röðum á nokkurra ára fresti og keyrðu alþýðufólk á kjörstað.
Annars finnst mér nærmyndin af Bjarna Benediktssyni vera skemmtileg andstæða við þessa mynd sem ég tók af einum mótmælanda fyrir framan Alþingishúsið kvöldið sem þingið hófst. Hann var með sundgleraugu og hélt á skilti og hrópaði. Sagðist hafa verið sá sem sat alltaf heima, fór aldrei á mótmæli en nú væri honum nóg boðið. Mótmælandinn er nú eiginlega nærmynd af íslensku þjóðinni. Hún er með sundgleraugu þessa daganna.
Frjáls undan oki auðjöfra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
22.1.2009 | 11:46
Samvinnuhugsjón er eina vitið
Það kemur ekki á óvart að gengi Framsóknarflokksins fari nú upp á við í skoðanakönnunum. Stefna flokksins hefur höfðar til fólks og aldrei átt betur við en núna þegar öfgastefnur til hægri og vinstri hafa beðið skipsbrot og stórveldi sem byggja á þeim stefnum hafa liðast í sundur eða eru að liðast í sundur. Ekkert á betur við á þessum tímum en öfgalaus miðjuflokkur þar sem saman fer skynsemishyggja og samvinnuhugsjónir - flokkur þar sem ekki er byggt úr loftköstulum og spilaborgurm heldur horfst í augu við raunveruleikann og besta lausnin fyrir alla valin.
Þannig er Framsóknarflokkurinn í dag það stjórnmálaafl sem hefur og getur skapað frið um nauðsynlega vinnu stjórnmálamanna - í ríkisstjórn með því að bjóðast til að verja stjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna falli og í borgarstjórn Reykjavíkur með því að bjarga borginni frá hreinum glundroða.
Það hefur verið margt ámælisvert í Framsóknarflokknum undanfarin ár og stefna og stjórn flokksforustu í mikilvægum málum hefur verið vægast sagt vond. En Framsóknarflokkurinn er samsettur af því fólki sem í flokknum er og það hefur verið hrópandi kall á breytingar og öðruvísi áherslum. Á nýafstöðnu flokksþingi var kjörin ný forusta og Framsóknarflokkurinn er einn flokka að horfast í augu við fortíð sína og vinna að breytingum.
Framsókn með 17% fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 22:16
Oslótrésmótmælin
Nýliðnir atburðir hafa ekkert nafn. Í sögunni fær sami atburður kannski mörg nöfn, allt eftir því hver segir söguna. Ég veit ekki hvað mótmælin í gær og í nótt verða kölluð en ég kalla þau til bráðabirgða Oslótrésmótmælin vegna þess að þegar ég fór þá hafði tekist að fella Oslójólatréð og draga það á eldinn sem logaði fyrir utan Alþingishúsið. Ég fór þegar tréð hafði fuðrað upp. Það var nú svolítið hættulegt ástand, eldtungur léku um himinn og þarna nálægt gömul timburhús.
Mér fannst líka táknrænt við að brenna jólatréð. Ekki bara af því það er skammdegismerki heldur líka táknrænt að brenna tré frá Noregi þaðan sem Íslendingar komu fyrir þúsund árum, þaðan sem rætur Íslendinga eru, tréð sem er afhent og uppljómað með viðhöfn á hverjum vetri til að minna okkur á upprunann. Skreytt og uppljómað jólatré er skammdegismerki, eins konar hermigaldur þar sem minnisvarði um líf og ljós og grósku er fluttur inn í hús í svartasta skammdeginu eins og til að hugga mann og fá mann til að trúa því að skammdeginu ljúki einhvern tíma og það birti á ný og næsta vor muni veröldin blómgast að nýju. En þegar við þurfum ekki huggunina lengur þá fleygjum við jólatrénu og tökum niður jólaljósaseríurnar. Í ári Hrunsins mikla þá brennum við jólatréð. Bruni er nýtt upphaf.
Ég reyni að skrásetja þau mótmæli sem ég tek þátt í. Það er erfitt að skrá þessi mótmæli með ljósmyndum. Það nær ekki stemmingunni, ekki hljómlistinni úr ótal hljóðfærum og snarkinum af eldinum. Vídeómyndin nær ekki heldur viðarlyktinni og kaldri janúarnótt í Reykjavík.
En ég tók upp vídeó af Oslótrésmótmælunum og setti í tvær skrár svo það yrði ekki allt of langt.
Oslótrésmótmælin 20-21 janúar 2009 fyrri hluti (10 mín)
Oslótrésmótmælin 20-21 janúar 2009 seinni hluti (10 mín)
Sjá líka myndina mína frá mótmælum á gamlársdag
Þetta eru dáldið stórar skrár og tekur tíma þangað til þær byrja að spilast.
Ég er að reyna að setja þetta inn á youtube en það hefur ekki gengið ennþá hjá mér (allt of stórar skrár)
Stjórnarslit fyrir helgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.1.2009 | 21:52
Hmmm... fjör á Samfylkingarfundinum
Það er kannski dáldið eldfimt að halda fundi í Þjóðleikhúskjallaranum þessa daganna. Við skiljum það Framsóknarmenn, við héldum félagsfund þar nýlega það sem var allt að gerast. Sjá hérna Rafmagnaður fundur hjá Framsókn í Reykjavík
Síðan þá höfum við gengið til kosninga um nýja forustu í flokknum. Sigmundur Davíð, Birkir Jón og Eygló og þingmannahópur okkar eru tilbúin til að hefjast handa við uppbyggingu Nýja Íslands. Það getur verið eini kosturinn í stöðunni fyrir hina flokkana að taka tilboði Framsóknarflokksins um að verja stjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna vantrausti þangað til kosningar eru yfirstaðnar. Það þýðir að ríkisstjórn sem núna situr sem sannarlega er vanhæf eins og hrópað er nú á torgum og inn í húsum, sú ríkisstjórn getur farið frá á morgun.
En eitt er mér fyrirmunað að skilja.
Hvers vegna í ósköpunum valdi Geir ekki á sínum tíma að stofna þjóðstjórn með öllum flokkum á Alþingi? Það voru á þeim tíma allir flokkar tilbúnir í það. Sá hann virkilega ekki þetta ástand fyrir?
Þið eruð öll rekin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 01:09
Mótmælahljómkviðan
Ég var á Austurvelli í kvöld. Kom eitthvað um átta leytið í kvöld og var yfir miðnætti, fór þegar eldtungurnar frá Oslóartrénu læstu sig til himins. Þetta var svona stemming eins og að vera á hljómleikum þar sem eru engir áheyrendur, þar sem allir troða upp . allir eru með einhvern gjörning. Mest að framkalla hljóð en svo brann þarna eldur og hópur fólks hélt eldinum lifandi og bætti á hann vörubrettum og dekkjum og skrifborðsstólum. Ég hugsa að þeir hafi verið uppiskroppa með eldivið því einn hópur réðist á Oslótréð og felldi það og varpaði því á eldinn.
Þó að meðfram Alþingi væri veggur af óeirðalögreglu með skildi og alls konar útbúnað þá voru mótmælin meira eins og mannfögnuður, það var barið og flautað og slegið og hrópað og klappað og það kvein í hrossabrestum. Það var gleði í lofti, ég veit ekki út af hverju, kannski af því að fólk var að gera eitthvað, að búa til sig sóknar. Annars var þetta líka eins og galdramessa eða nornagleði eða álfareið, svona sefjunarsamkoma þar sem fólk stillir sig saman til búast til orustu og magnar seið.
Það var gaman að heyra af hópnum sem safnaðist saman á Akureyri, það bárust boð um það niður á Austurvöll að fólk væri á sama tíma að mótmæla annars staðar á landinu og það var líka einn liður í samstilla fólk, að vita af öðrum hópum að mótmæla annars staðar.Ég held að það sé aukaatriði hvaða áhrif mótmælin hafa á ríkisstjórnina, aðalatriðið er hvaða áhrif mótmælin hafa á mótmælendur sjálfa. Við erum fólkið.
Samstöðumótmæli á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)