Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
25.4.2007 | 14:24
Græni kallinn
Mér finnst Framsóknarflokkurinn hafa útfært umferðarþema betur í kosningabaráttunni í ár heldur en presturinn í Laugarneskirkju í fermingarræðu sinni fyrir mörgum áratugum. Það er sniðug hugmynd í auglýsingum frá Framsóknarflokknum að nota græna kallinn sem allir kannast við að þýði að við megum ganga yfir götu og hafa slagorðið árangur áfram - ekkert stopp. Það sakar svo ekki að græni kallinn minnir mikið á sáðmanninn sem var í merki Búnaðarbankans svo hugrenningatengslin eru líka við vöxt og þann sem sáir fræjum.
Í auglýsingum sem ég sé núna frá Framsóknarflokknum er mikið fókusað á Jón Sigurðsson og hann tengdur við græna kallinn. Þetta virkar alla vega þannig á mig að ég er í hugann farinn að kalla Jón Sigurðsson græna kallinn.
Það er nú gaman að rifja upp tillögu ágæts femínista og moggabloggara hennar Bryndísar Ísfoldar sem hún lagði fram í mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar:
Innlent | mbl.is | 1.11.2006 | 08:44Græn kona í stað karls
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í mannréttindanefnd, mun í dag leggja til á fundi mannréttindanefndar að sett verði upp gönguljós á fimm áberandi stöðum í Reykjavík þar sem gangbrautarljósið sýni konu en ekki karl eins og venja er.
Lagt er til að þessi ljós verði staðsett á horni Lækjargötu og Bankastrætis, á Hringbraut við gatnamót Bræðraborgarstígs, á horni Snorrabrautar og Laugavegs, í Æsufelli við Fellaskóla og við Spöngina. Jafnframt er þess farið á leit við Framkvæmdaráð að það kanni möguleika á því að setja upp slík ljós á fleiri stöðum t.d. við endurnýjun eldri gangbrautarljósa og við uppsetningu nýrra, að því er segir í tillögu Bryndísar Ísfoldar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2007 | 19:04
Teljarablogg: Abu Mohammad og kona hans
Ég er haldin einhvers konar teljaraþráhyggju á háu stigi. Ég þarf alltaf að vera að telja og mæla allt sem fyrir ber eða sem ég les í blöðum. Ég má ekki sjá svani á flugi, gæsir í túni eða lóur í móa án þess að byrja að áætla hvað það séu margir fuglar.
Svo hef ég oft þörf fyrir að telja það sem alls ekki er ætlast til að maður telji - svona eins og til að leita að földum mynstrum í orðræðu og skynjunarheimi okkar. Þetta háir mér verulega, ég gat til dæmis ekki alveg lifað mig að fullu inn í raunir fjölskyldu Abu Mohammad sem stjörnublaðamaðurinn Davíð Logi segir okkur frá vegna þess að ég var alltaf að telja. Ég var að telja hversu oft Davíð Logi nefnir heimilisfaðirinn á nafn og hversu hann nafngreinir eiginkonuna. Í vídeóklippinu á mbl.is hef ég fundið það út að eiginmaðurinn Abo Mohammad er er nafngreindur 5 sinnum (að ég held á sömu mínútu) en eiginkonan er einu sinni nefnd og þá hefur hún ekkert nafn, til hennar er vísað með orðalaginu "kona hans".
Svo mikil er þráhyggja mín að ég stóðst ekki mátið og taldi líka hversu oft eiginmaðurinn og eiginkonan eru nefnd á nafn í Morgunblaðsgreininni á blaðsíðu 14. Mér telst til að eiginmaðurinn Abu Mohammad sé þar nafngreindur 18 sinnum en eginkonan Abd Al-Yima einu sinni í fyrirsögninni. Síðan er þrisvar sinnum í löngu greininni vísað til hennar sem "konan hans". Svo mikið er lagt upp úr að nafngreina manninn að við fáum að vita um tvö nöfn á honum við fáum að vita "Dhia a Hammoodi sem jafnan er kallaður Abo Mohammad".
Þetta er ekki saga af írakskri fjölskyldu. Þetta er hetjusaga af karlmanninum Abu Mohammad og saga sögð út frá sjónarhóli hans og lýsir væntingum hans og viðhorfum og hugsunum vel.
Þetta er ekkert verri saga fyrir það. Hinar sögurnar þarf bara að segja líka. Þær eru oftast ósagðar sögur.Mér líður miklu betur með þessa teljaraþráhyggju núna þegar ég er búin að sjá á moggablogginu að ég er ekki ein með þetta vandamál. Sérstaklega virðast aðrir femínistar líka vera í talningunum og svo eru einstaka aðrir farnir að telja.
![]() |
Tvær milljónir Íraka hafa flúið land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.4.2007 kl. 08:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.4.2007 | 03:03
Móðurmálið og föðurlandið
Orðalagið hjá Sahlin um að það þurfi konu til að koma jafnaðarmannastjórn að völdum hreyfir við mörgum. Skondið að lesa að sumir pirrast og taka þetta sem mógðun til allra karlmanna og segja sem svo að það hefði allt orðið vitlaust ef þetta hefði verið á hinn veginn - ef Sahlin hefði sagt að það þyrfti karlmann til að koma jafnaðarmannastjórn að völdum.
Ég veldi fyrir mér hvort það þeir sem pirrast yfir þessu orðalagi séu þeir sömu sem hafa eins lengi og elstu menn muna tekið þátt í að hylla karlveldið og halda karlmönnum við völd og hvort það séu þeir sömu og hafa skoðað lista yfir forsætisráðherra Islands og pælt í því hvort ekki sé soldið skrýtið að allir þeir 36 aðilar sem hafa leitt ríkisstjórnir á Íslandi eru karlmenn.... Já, nú man ég, þessir pirruðu hafa svar á reiðum höndum við því. Það er svarið um að þetta sé nú allt að koma, þetta hafi verið voða slæmt í den áður en menn föttuðu jafnréttið en núna sé þetta allt að koma og þetta sé allt að jafna sig bara ef við látum markaðinn ráða og "hæfasti einstaklingurinn" muni þá sjálfkrafa veljast til forustu.
Við þá sem ekki þola svona umbúðalaust tal um að það þurfi konur við stjórnvölinn til að einhvers konar jöfnuður ríki á Íslandi vil ég segja að það mun ekkert þokast áleiðis nema með baráttu og frekjulátum femínista í orðum sem eiga að nota hvert tækifæri til að hamra á því að við búum í óréttlátu samfélagi þar sem karlmenn hafa völdin og eiga landið og konur hafa ekkert nema málið og engin völd nema að kalla eftir rými í orðræðunni.
Ég er að skrifa þetta blogg til að prófa að senda sjálfkrafa afrit af moggablogginu mínu (rss feed) inn á tumblr.com bloggkerfið en ég bjó til blogg þar http://salvor.tumblr.com/
![]() |
Það þarf konu til að koma jafnaðarmannastjórn að völdum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.4.2007 | 19:18
Ekki fallegt hjá Mogganum
Það er virkilega ótuktarlegt hjá Mogganum að skemma stemminguna á landsfundi Samfylkingarinnar sem núna stendur yfir með neyðarlegum fréttafyrirsögnum eins og þessari: "Fylgi Samfylkingarinnar minnkar enn". Næsta frétt er svo stefnuræða Ingibjargar Sólrúnar formanns Samfylkingarinnar. Þessi samsetning frétta er mjög augljóslega til að draga úr kraftinum í orðum hennar. Það er öðruvísi kastljós hjá Morgunblaðinu - blaði allra landsmanna - á landsfundi Sjálfstæðisflokksins , þar er vefvarp og fyrirsögnin þar er "Bjartsýni sögð einkenna landsfund Sjálfstæðisflokksins" og í þeirri frétt er mærðarleg rulla sem endurtekur fyrirsögnina eins og "Segja fundarmenn mikla stemningu vera á fundinum og bjartsýni og baráttuhug ríkjandi". Merkileg ekki frétt. Veit einhver um stjórnmálaflokk þar sem ekki er stemming og bjartsýni og baráttuhugur korter fyrir kosningar?
Mikið er gaman að sumt breytist ekkert í íslensku samfélagi, frá því að ég man eftir þá hefur Mogginn alltaf breytt svona í kringum kosningar og fengið þá á sig heiðbláa slikju þó hann geti verið fölbleikur og grár og ómarsumhverfisgrænn þess á milli. Annars get ég ekki betur séð en allt sé á niðurleið hjá Sjálfstæðisflokknum frá síðustu viku þegar ég rýni í þessu fínu og litríku súlurit, mér sýnist bæði Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur pompa álíka mikið niður milli vikna (eitthvað tæp 10 %) í skoðanakönnunum þannig að það skýrir ekki þessa skrýtnu fjölmiðlun hjá mbl.is
Vinstri grænir eru áfram á bullandi siglingu, þau eru nú óumdeilanlega senuþjófarnir í þessari kosningabaráttu með flott málefni eins og kvenfrelsi og náttúruvernd. Framsókn réttir mikið úr kútnum frá síðustu skoðanakönnun - mælist núna með 9.9 % en mældist áður með 8.1%. Hafa verður í huga að Framsókn sækir jafnan á í sjálfum kosningunum - ólíkt Sjálfstæðisflokknum sem mælist jafnan með meira fylgi í skoðanakönnunum en hann hefur í kosningum.
Það er mjög áhugavert að skoða hve miklu munar á milli kynja hvaða stjórnmálaflokka fólk styður. Sérstaklega er áhugavert að sjá að 33,1 % kvenna styðja Sjálfstæðisflokkinn. Maður getur ekki annað en velt fyrir sér fyrir hvað? Sennilega eru þetta konur sem eru fæddar inn í Sjálfstæðisfjölskyldur og hafa ekki mikið velt fyrir sér þeim möguleika að kjósa aðra flokka
Annars er gaman að spá í það að því meira sem Samfylkingin skreppur saman þeim mun líklegra er að hún komist til valda að loknum kosningum og þeim mun ólíklegra er að Vinstri Grænir komist í stjórn. Sá flokkur sem væntanlega mun leiða stjórnarmyndunarviðræður eftir kosningar er Sjálfstæðisflokkurinn. Það eru nokkrir kostir í stöðunni að fá einhverja til fylgilags við sig. Það getur verið sama stjórn og áður þ.e. Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, það er þekkt mynstur og það hefur gengið vel. En ef það er of naumur meirihluti þá er til í stöðunni hjá Sjálfstæðismönnum að leita samninga með Vinstri Grænum eða Samfylkingu.
Ef þeit tveir kostir eru skoðaðir frá sjónarhóli Sjálfstæðismanna þá er ólíkt fýsilegra að mynda stjórn með Samfylkingu, sérstaklega ef það verður orðinn pínulítill flokkur sem hefur ekki ofurdramb þess sem telur að hann sé sigurvegari. Svo eru sjónarmið um hvernig eigi að standa að stjórn landsins og áhersla á atvinnumál miklu svipaðri hjá Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu heldur en hjá Sjálfstæðisflokk og Vinstri Grænum. Það þarf heldur ekkert að hafa áhyggjur af því að umhverfismálin verði ekki mál allra flokka á næstu misserum, sennilega munu Sjálfstæðismenn sem og aðrir flokkar vinna í því á næsta kjörtímabili að stela allri stefnu Vinstri Grænna og gera að sinni, svona eins og þeir gerði við stefnu Kvennalistans. Ég var svo ánægð með stefnu Sjálfstæðisflokksins í borgarmálum síðasta vor þegar Villi vann með bleikum slagorðum og bleikri stefnuskrá. Þetta var bara alveg eins og að vera í Kvennalistanum í kringum 1980 og að vera í Sjálfstæðisflokknum í borgarmálum 2006. Það er nú líka eðli Sjálfstæðisflokksins að skynja ekki tíðarandann fyrr en svona aldarfjórðungi á eftir öðrum
Ef stjórnarmyndun með Sjálfstæðisflokk versus með Vinstri grænum (og undir forustu Vinstri Grænna) er skoðuð frá sjónarhóli Samfylkingarinnar þá verða bara Samfylkingarmenn að horfast í augu við það fyrr eða síðar að aðalóvinur Samfylkingarinnar er Vinstri Grænir og ef menn eru ekki þeim mun trúaðri á að sameining þessara stjórnmálaafla verði að veruleika þá er fáránlega vitlaust af Samfylkingarfólki að efla óvin sinn til valda.
En það eru eins og allir vita bara málefnin sem ráða hvernig stjórn verður mynduð eftir kosningar, þar er enginn stjórnmálaleiðtogi neitt að spá í framtíð sinnar fylkingar heldur bara að spá í hvað er best fyrir Ísland
![]() |
Fylgi Samfylkingar minnkar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.4.2007 | 16:30
Græn skref í Reykjavík
Mér líst vel á áætlunina Græn skref í Reykjavík. Vonandi halda stjórnendur borgarinnar áfram á sömu braut. Eina sem mér finnst orka tvímælis er að verðlauna þá sem eru með vistvæna bíla með því að leyfa þeim að parkera ókeypis. Það orkar tvímælis á sama hátt og ef tannlæknir verðlaunaði barn sem hefur enga skemmda tönn með því að gefa því sælgæti. Reykjavík er borg bílanna og sennilega breytist það ekki í bráð. Veðráttan hérna og fámennið og strjál byggðin veldur því að ekki er auðvelt að koma við tíðum ferðum almenningsfarartækja og velmegunin er svo mikil að það geta flestir átt bíla. En það er atriði að við byggjum upp griðastaði í borgarlandinu þar sem bílar eru ekki velkomnir og styðjum ekki við bílismann og niðurgreiðum ekki það val fólks að vera á einkabílum og taka upp pláss fyrir bíla á götum og parkeringsstæðum, nema náttúrulega það sé fólk sem er fatlað eða á erfitt með gang. Það er víðáttuvitlaust að það sé ókeypis að leggja bílum við marga háskóla miðsvæðis í Reykjavík, það er engan veginn partur af menntun að sjá nemendum fyrir ókeypis geymslusvæði fyrir bíla.
Ég fór að pæla í hvað mér þætti mikilvægast til að gera Reykjavík að grænni borg. Eitt er að mér ofbýður ruslið í Reykjavík að vorlagi þegar snjóa leysir. Reykjavík er mjög snyrtileg og fín borg yfir hásumarið þegar krakkarnir úr unglingavinnunni og vinnuflokkunum hafa puntað allt. En veðráttan er þannig að hér er enginn snjór t.d. núna í apríl en engir eru til að tína ruslið sem alls staðar flýtur meðfram vegum. Ég bendi fólki sérstaklega á að keyra Ártúnsbrekkuna, eina fjölförnustu götu í Reykjavík og skoða vegakantana, þar flýtur allt í rusli. Ef ég væri að keyra erlendis á svona stöðum þá myndi ég verða dauðhrædd, það er alls staðar merki um að maður sé kominn inn í verslu slömmin þegar ruslið feykist svona á móti manni. Það er núna þannig að það líður allt of langur tími þangað til krakkarnir í unglingavinnunni byrja og það verður einhver veginn að brúa þetta bil og það verður líka að virkja sem flesta borgarbúa í að taka þátt í þessu. Hvernig væri að virkja skólana og/eða félagasamtök í að hreinsa rusl meðfram vegum - væri ekki hægt að styrkja þetta á einhvern hátt t.d. að skólarnir fengju þannig fé í félagsmál/hverfahátíðir?
Annað sem myndi prýða Reykjavík mikið er fleiri trjálundir við iðnaðarsvæði og blokkarhverfi og skólalóðir og verslunarmiðstöðvar
Á þeim stöðum þar sem fólk býr í einbýlishúsum eða raðhúsum eru garðar víðast hvar fallegir og vinjar þar sem fólk getur notið sumarsins og góða veðursins. Hins vegar er það þannig að mjög víða eru garðar og svæði við blokkir eru mjög óspennandi , engin tré heldur bara skjóllausar grasflatir og malbikuð bílastæði. Þannig eru útivistarsvæðin við skóla líka oft og í iðnaðarhverfum eru oft mjög nöturlegt og hvergi tré að sjá. Það sama á reyndar líka við um verslunarmiðstöðvar eins og Spöngina í Grafarvogi. Svona staðir væru miklu skemmtilegri ef það væru gróðursett tré sem verða með tímanum hávaxin eins og hlynur. Það myndi prýða borgina mikið ef núna strax væri hugað að því að búa til trjálundi eða einstök tré sem geta seinna myndað skjól og búið til fjölbreyttari götumynd á samgönguæðum gangandi fólks.
Það vantar alveg að huga að því að gróðursetja tré sem verða stór - flest stór tré eru aspir sem eru alls ekki heppileg tré í þéttbýlu borgarlandi, alla vega ekki nálægt lögnum.
Fegrun umferðarmannvirkja
Stór hluti af ásýnd borgar og rými í borg eins og Reykjavík er umferðarmannvirki - alls konar brýr, aðreinar og hraðbrautir. Það er ekkert náttúrulögmál að svona mannvirki þurfi að vera ljót og að þar megi ekki sjást neitt stingandi strá. Í hverfinu sem ég var í París fyrir tveimur sumrum þá man ég eftir að hafa séð gróður sérstaklega hannaðan fyrir brýr yfir hraðbrautir, þar voru gróðursett tré (t.d. birki) sem eins og uxu á brúnni og stærri tré slúttu yfir á endum brúnna þar sem var meiri jarðvegur. Það er líka flott að sjá hvernig sums staðar eru listavirk á umferðarmannvirkjum sem gleðja alla sem aka um.
Ókeypis farartæki t.d. hjól
Í nokkrum evrópskum borgum t.d. Kaupmannahöfn er boðið upp á ókeypis hjól, það má taka hjól á ákveðnum stöðum og svo á maður að skilja þessi sömu hjól eftir á ákveðnum stöðum þegar maður er búin að nota þau. Þessi hjól eru sérmerkt og í ákveðnum skærum litum þannig að allir sjá að þetta eru almenningshjól og það er bannað að geyma þau hjá sér. það mætti t.d. prófa svona hjólakerfi við einhverja fallega hljólaleið með ströndinni í Reykjavík, ég hugsa að aðkomufólk í Reykjavík, erlendir ferðamenn og fólk utan af landi sem ekki hefur tök á að koma með hjól með sér muni taka fegins hendi að geta hljólað einhverja leið eða hluta af einhverri leið - þó það gengi stóran part leiðarinnar. Mér fannst gaman sjálfri að nota svona hljól þegar ég var í Kaupmannahöfn. Þetta er líka tilraun í hvernig fólk gengur um sameign - að venja fólk á að ef einhverjir hlutir eiga að vera ókeypis þá verða að vera strangar reglur og fólk verður að hlýða þeim og taka tillit til að aðrir verða líka að fá að njóta gæðanna. Það væri gaman ef gerð væri tilraun með svona hljól í Reykjavík.
Þetta minnir mig nú á að ég á núna ekki hjól. Ásta var með hjólið mitt í láni og því var stolið í vetur. Þetta var gott hjól með dempurum. Ég stefni að því að kaupa fljótlega annað hjól og hjóla í sumar um öll þessi fínu útivistarsvæði í Reykjavík. Mér finnst Reykjavík mjög falleg borg. Sérstaklega finnst mér strandlengjan falleg og Laugarnesið langfallegast, þar er ég líka alin upp og lék mér í fjörunni sem barn og hef fylgst með breytingum þar í marga áratugi en svo finnst mér líka Öskjuhlíðin og Heiðmörk algjörar náttúruperlur og ströndin fyrir neðan Staðahverfi er engu öðru lík, þar er gífurlega fallegt og þar er fjölskrúðugt fuglalíf allan ársins hring og oftast þegar ég geng þar sé ég líka hóp af selum.
11.4.2007 | 17:30
Blogg og stjórnmál í Víðsjá
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2007 | 18:06
The Secret
Ég fór í verslunarferð í gær, keypti tónlist og mynddisk. Það er viðeigandi að kaupa tónlist hérna í Austin, þetta er tónlistarhöfuðborg heimsins, hér eru árlega heimsþekktar tónlistarhátíðir og hér gekk Janis Joplin um garða. Ég keypti mynddiskinn The Secret og svo keypti ég tónlist með Lila Downs. Ég vissi ekkert um þessa söngkonu en nafnið minnti mig á Lilju Eysteins svo ég valdi hana úr búnkanum og hlustaði á nokkur lög. Ég vildi kaupa spænska tónlist svo ég gæti æft mig í spænsku. Hér í Austin er þriðjungur íbúa spænskumælandi en í San Antonío snýst það við, þar eru tveir þriðju hlutar spænskumælandi.
Mynddiskurinn The Secret er með því heitasta í sjálfshjálpar- og nýaldarfræðum hérna. Hann tengist The Law af Attraction sem gengur út á að nota hugarorkuna á jákvæðan hátt. Bæði Larry King o og Oprah Winfrey hafa nýlega gert þætti um þessa speki og það er óbrigðult merki um að þetta er tískustraumurinn í Ameríku. Ég ætla að reyna að kynna mér þessar kenningar eða ráðleggingar án þess að ana beint í fordóma og afskrifa þetta sem trúarvingl. Sálfræðingar hafa lýst þessari bók eins og "pseudoscientific, psychospiritual babble." Ég spái í hvers vegna svona kenningar eru vinsælar og hvaða tómarúm þær fylla í sál þeirra sem aðhyllast þær.
2.4.2007 | 20:18
Sex ára bloggafmæli - Hátíðarhöld í Texas og á Íslandi
Ég hélt upp á sex ára bloggafmæli mitt í gær, ég stofnaði mitt einkablogg 1. apríl árið 2001 og fyrsta bloggið var um fjölmiðla og hverjir búa til sannleikann. Árið 2003 hélt ég 1. apríl upp á tveggja ára bloggafmælið með framhaldsstofnfundi Femínistafélags Íslands en einmitt þann dag opnuðum við vefinn www.feministinn.is sem ég sá um fyrstu tvö árin.
Það var gaman að Morgunblaðið tók þátt í blogghátíðarhöldum mínum í gær með því að birta mynd af mér og viðtal sem Inga Rún tók við mig. Viðtalið var nú reyndar ekki út af hinum glæsta bloggferli mínum heldur var þetta hluti af umfjöllun um Wikipedia. Viðtalið við mig (ég hef ekki séð blaðið ennþá, bara á gagnasafni Mbl) var þrælgott og titillinn er "Notandinn skapar verðmætin" og mér finnst vænst um eftirfarandi kafla:
Þekkingin á Wikipediu byggist upp með notandanum. "Notandinn skapar verðmætið. Þú ert aldrei bara neytandi eða framleiðandi þekkingarinnar. Þú setur inn grein og notar hana aftur einu eða tveimur árum seinna. Nám snýst ekki lengur um að nemendur lesi bara ákveðnar bækur heldur meiri þátttöku og sköpun. Endurblöndun er orð dagsins. Verkfæri til sköpunar og þátttöku þekkingarneytandans, eru orðin miklu fleiri. Hingað til opnaði neytandinn bara bókina og las hana. Eina sem hann gat stjórnað var kannski að gera hlé á lestrinum eða byrja í miðju. En núna getur hann líka bætt við bókina. Það er eitthvað sem er ekki hægt að gera í prentaðri bók," segir Salvör og útskýrir nánar: "Þetta minnir í raun meira á munnlega geymd. Eins og þekking var áður en hún var læst inni í helgum bókum. Eins og þekking hefur alltaf verið, hún flæðir og er síkvik og sívaxandi.
Moggaviðtalið er hérna á gagnasafni Mbl. (það þarf innskráningu)
Hérna í Austin í Texas hélt ég með stæl upp á bloggafmælið. Ég þekki enga í borginni svo ég skráði mig í meetup og mætti á laugardagskvöldið í veislu hjá hóp sem kannar saman næturlífið í Austin. Það voru eitthvað um tuttugu manns sem borðuðu saman á veitingastaðnum Vivo á Manor stræti og svo var farið saman á einhverja bari. Ég lagði nú ekki í barferðina því ég rata svo lítið hérna og vildi ekki vera rammvillt um miðja nótt.
Myndir úr fagnaði næturlífskönnuða 31. mars
Í gær fór ég svo á annað meetup en núna hjá hóp sem kannar saman kaffihús, Austin Coffee and Wine Meetup Group. Við hittumst á útikaffihúsinu Javahive í Hilton hótelinu kl. 10 á sunnudagsmorgni og spjölluðum saman í um tvær klukkustundir. Þetta er í annað skipti sem ég fer í meetup hjá kaffihúsahópnum, ég fór fyrir rúmri viku með þeim á annað kaffihús á fimmta stræti í gamla verksmiðjuhverfinu, það var svona hipp og kúl kaffihús sem er innréttað í gömlu vöruhúsi. Öll þessi þrjú meetup sem ég hef farið í hérna í Austin hafa verið skemmtileg og ég hef kynnst og spjallað við fullt af fólki sem býr hérna.
Ég hef farið í svona meetup líka í Barcelona og París og það hefur líka gengið vel. Þetta er fín leið fyrir þann sem er nýkominn í eitthvað samfélag eða gestkomandi um stund. Þeir sem sækja svona meetup eru fólk sem þegar er opið fyrir að hitta annað fólk með sömu áhugamál (já það er áhugamál að hanga á kaffihúsum og skoða næturlífið). Ég fékk nú reyndar upprunalega áhuga á svona meetup vegna þess að ég las að þetta væri notað með góðum árangri í bandarískum stjórnmálum, fólk sem hefur sameiginlegar skoðanir kemur saman og spjallar um mál sem eru þeim hugleikin. Sumir hóparnir eru nú einhvers konar sjálfshjálparhópar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2007 | 16:17
Gert grín að Hillary
Internetið hefur áhrif í kosningabaráttunni hér í USA. Frambjóðendur ná til yngri kjósenda sem sækja sína visku meira á Netið en úr dagblöðum og ljósvakamiðlum, frambjóðendur ná líka til þeirra hópa sem eru mestu aktívistarnir og hafa sterkustu skoðanirnar á þjóðmálum (málverjar og bloggarar allra landa sameinist!) en með þessari nýju einstaklingsbundnu tjáningu þá verður kosningabaráttan líka ruddalegri. Þetta seinasta er reyndar sérstakt áhyggjuefni hérna á Íslandi, það er skemmtilegur hluti af þjóðareðlinu að vera rustalegur og margir bloggarar og málverjar tjá sig á sinn séríslenska hátt í yfirgengilega groddalegum og rætnum árásum á nafngreinda einstaklinga og virðast aldrei velta fyrir sér ábyrgð sinna skrifa.
það hafa nú reyndar engin dómsmál sem ég man eftir verið háð, nema náttúrulega þegar auðmaðurinn Jón flutti sig til útlanda og fór í mál í Bretlandi. Jón mátti alveg reiðast, það er hreinn ótuktarskapur að bera dópsölu upp á fólk en það er hæpið að fleiri geti leikið það eftir að stóla á breska dómstóla að kenna Íslendingum kurteisi. Talandi um æruleysi og pólitík þá er eitt fyrsta tilvikið sem ég man eftir af slíku mjög óvægin nafnlaus árás sem var á Hrannar forkólf í Reykjavíkurlistanum, það var sett upp nafnlaus vefsíða til að gera hann tortryggilegan vegna fjárhagserfiðleika . Ég vona að við eigum ekki eftir að sjá mikið af rætnu slúðri í framtíðinni en ég er næstum viss um að það gengur ekki eftir, það virðast allir fjölmiðlar keppast núna við einhvers konar uppljóstranir þar sem miklar sakir eru bornar á nafngreinda menn og reyndar allt samfélagið kóa með í þessu, hvað varð að réttarstöðu grunaðra?
Það er tímanna tákn að nú hefur "negative advertisment" mest áhrif ef það sett upp á youtube. Hér er vídeó sem yfir tvær milljónir manna hafa skoðað sem hæðist að Hillary forsetaframbjóðenda. Annað vinsælt vídeóklipp er af henni þar sem hún syngur falskt þjóðsöng Bandaríkjamanna.
Ég er náttúrulega mikill aðdáandi Hillarys og afar ósátt við þessa kaldhæðni, ég tjáði mig um það í kommentunum en þau eru orðin yfir 5200 þannig að mín orð drukkna þar eins og annarra. Mér finnst þetta vídeóklip sem á að vera einhver skopstæling á Orwell 1984 vera frekar eins og kopía af revovling door auglýsingunni frá 1988 og ég vona að Bandaríkjamenn átti sig á því að það er ekki eðlilegt að fólki í fangelsum fjölgi og fjölgi og ímynd þeirra í heiminum sé tengd fangaflutningum og fangabúðum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2007 | 08:43
Grátt og grænt er ótrúlega ljótt

Ég er alveg hugfangin af auglýsingunum frá mínu ágæta félagi Framtíðarlandinu, þær eru svo ljótar og stuðandi og þverbrjóta öll lögmál fagurfræði og formskyns að þær eru hoppandi flottar og gargandi snilld. Auglýsingarnar eru eins og einhver sem er nýbúinn að læra á fótósjopp hafi skannað inn gamalt ríkisskuldabréf og hafi ákveðið að setja alls konar krúsidúllur ofan á og alls konar lógó og tákn og sem flestar leturgerður og liti trúi alls ekki á "less is more". Ég kann vel við þessa ofgnótt.
Skjámyndin hér til hliðar er af sáttmálanum eins og hann birtist á vefsíðu Framtíðarlandsins, auglýsingin sem birtist í blöðunum er miklu, miklu yfirdrifnari með fullt af krúsídúllum.
Ég fæ snjóbirtu í augun út af sjónvarpsauglýsingunum frá Framtíðarlandinu og ég barasta sé ekki fólkið enda er náttúrulega sniðugast að láta athyglina beinast svona að því sem fólk segir. Ég tók nú samt ekkert eftir því þar sem ég var að pæla í hvers vegna auglýsingarnar væru svona óþægilegar og ljótar. Er þessi óþægilegi hvíti bakgrunnur vegna þess að það var ekki til mikið fé til að búa til auglýsingar eða kannski það sé verið að auglýsa upp Vatnajökulsþjóðgarð?
Ég hélt kannski að náttúra Íslands væri eitthvað meira en hvíttið, eitthvað meira en óþægilegt ekkert.
Annars var ég að skoða betur þessa herferð Framtíðarlandsins og það er margt sem stuðar mig. Það stuðar mig að það séu á vefsíðunni birt nöfn allra sem skrifa undir yfirlýsingu og það stuðar mig að það sé einhvers konar "gerðu þingmann grænan" leikur í gangi þannig að myndir (myndir sem teknar eru af alþingisvefnum- er það virkilega með samþykki þeirra sem sjá um þann vef?) af þingmönnum eru málaðar grænar eða gráar eftir því hvort þeir hafi verið svínbeygðir til að skrifa undir.
Mér finnst þessar aðferðir minna mig á það sem flokkur mannsins (flokkurinn hans Péturs sem varð fyrir vitrun á fjalli) stóð fyrir og það sem Scientology agentar gera. Það gengu menn um stræti og báðu mig að skrifa undir einhverja sjálfsagða hluti eins og hvort ég væri á móti atvinnuleysi og svo kom Pétur í fjölmiðla og veifaði undirskriftum sem stórkostlegum meðbyr. Ég er mjög efins um hvort það samræmist því sem ég tel felast í persónuvernd að það sé annars vegar nafnabirting og hins vegar einhvers konar þingmannalitabók í gangi. Vil nú samt taka fram að þó ég sé pirruð yfir þessum aðferðum þá finnst mér Framtíðalandið bara fínn félagsskapur og fínt að hamra á umhverfismálunum. Vonandi hafa þingmennirnir sem hafa verið málaðir grænir samþykkt þessa meðhöndlun.
Varðandi nafnabirtingar þá finnst mér líka fyrir neðan allar hellur þessar fjöldastuðningsmannayfirlýsingar sem hafa birst oft fyrir kosningar í dagblöðum (sérstaklega minnir mig að Reykavíkurlistinn hafi staðið fyrir þeim en allir tóku það upp) þar sem mörg hundruð Reykvíkingar lýsa yfir stuðningi við ákveðna aðila. Það eru margir í þannig störfum að það alls ekki rétt þeir skrifi undir svona yfirlýsingar (t.d. þeir sem gegna opinberum störfum í stjórnsýslunni) en ég geri ráð fyrir að það sé töluverð pressa á að fá sem flesta til að skrifa undir. Það er ekkert að því að fólk styðji opinberlega einhverja aðila m.a. með að lýsa yfir stuðningi við viðkomandi og bakka hann upp - en þegar þetta er orðið þannig að mörg þúsund nöfn eru birt sem stuðningsaðilar þá er þetta hætt að vera það - þá er þetta orðið eins og einhver fjöldaskráning og rafræn vöktun á skoðunum fólks og það eru þeir sem eiga mest undir sér og eru líklegir til að verða valdamestir sem hafa mesta möguleika á nafnasöfnun. Þeir hafa líka möguleika á að hegna þeim sem ekki vilja vera nöfn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)