2.4.2009 | 19:27
Bein útsending frá kosningamiðstöð Framsóknar
Þetta er tilraun. Ég er með rásina http://ustream.tv/channel/framsokn og sendi núna beint út héðan úr Borgartúninu. Allt á fullu hérna eins og vanalega!
Útsendingu lokið. Allt gekk vel.
![]() |
Samfylking áfram stærst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2009 | 14:22
Sigurður Kári er vandi heimilanna
Sumir þingmenn Sjálfstæðismanna kunna ekki að skammast sín. Eftir að hafa steypt þjóðinni í glötun með stefnu sinni og hömluleysi og einkavæðingaræði, stefnu þar sem ágóði í ársreikningum gervifyrirtækja var notaður í blindni sem eini mælikvarðinn á velsæld og eftir að hafa blekkt okkur misserum saman til að halda að efnahagsstjórnin væri í traustum höndum hjá þeim þrátt fyrir að við vitum núna að lengi hefur þjóðin rambað á barmi hengiflugsins í bankaútrásaræði og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins vissu það líka en lugu að þjóðinni, eftir allt þetta þá reynir sumir sitjandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins að tefja öll mál og hlykkja sig eins og naðra og læsast utan um allt sem getur hreyft við og bætt lýðræði og stjórnsýslu í þessu landi og komið á stað alveg lömuðu athafnalífi.
Það er grátbroslegt að lesa í frétti svona orð:
"Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði eðlilegt að ræða um breytingar. Gallinn er sá, að þetta stjórnarskrármál leysir engan vanda heimila eða fyrirtækja. Væri ekki vænlegra að ræða atvinnumál ungs fólks í landinu? spurði Sigurður Kári. "
Málið er það að Sigurður Kári er einkar gott tákn um þá æskumenn sem átt hafa sviðið í Sjálfstæðisflokknum undanfarin ár og það má skoða ferill hans á þingi til að sjá hvaða málum hann hefur barist fyrir á þingferli sínum. Eru það atvinnumál ungs fólks? Er það vandi heimila á Íslandi og lífskjör fólks á Íslandi? Nei, það örlar ekkert á því. Satt að segja þá held ég að Sigurður Kári hafi aðeins haft eitt hjartans mál undanfarin ár. Það er að selja áfengi í kjörbúðum. Hann hefur verið svo óþreytandi við nuddast í því máli að ég hef stundum gleymt að hann er þingmaður og haldið að hann væri einhvers konar almenningstengslafulltrúi einhverra víninnflytjenda.
Svo er Sigurður Kári ekki fremur en allir blindir markaðshyggjumenn neitt næmur á hvað er að gerast í umheiminum. Þannig drap ég niður í eina nýlega ræðu frá honum, ræðu sem hann flytur jafnvel þó að það sé þegar komin merki um að hrikti í húsnæðislánakerfinu víða um lönd vegna undirmálslána í Bandaríkjunum. Sigurður Kári hins vegar eins og aðrir Sjálfstæðismenn stakk bara höfðinu í sandinn og hjakkaði í einhverjum einkavæðingar- bankaglópagullsgír og sagði rétt fyrir hrunið þetta á þingi (lok febrúar 2008) :
"Ég er ekki í neinum vafa um það að Framsóknarflokkurinn og málshefjandi vilji hlut íslenskra viðskiptabanka sem mestan en ef menn segja A verða þeir líka að segja B. Það þýðir að ef menn vilja að bönkunum vegni vel verða þeir að opna augun fyrir því að það sé hugsanlega nauðsynlegt að jafna samkeppnisstöðu bankanna gagnvart ríkisbankanum, Íbúðalánasjóði. Ég er ekki að segja að það eigi að leggja Íbúðalánasjóð niður en við eigum að opna augun fyrir því að það er eflaust ástæða til að draga úr hlutverki sjóðsins miðað við hvert það er í dag."
Sigurður Kári er vænsti drengur og hann kannski áttar sig einhvern tíma á hve ógæfulegt er að kjörnir fulltrúar fólksins berjist ekki fyrir neinu nema blindri einkavæðingu, hömluleysi og áfengisdrykkju. Það er kannski best fyrir þá Sjálfstæðismenn sem vilja ábyrga stjórn í þessu landi að loknum kosningum að hvíla þingmenn eins og Sigurð Kára og gefa honum tækifæri til að ná einhverjum þroska.
Það gera Sjálfstæðismenn best með að segja B og kjósa Framsóknarflokkinn í næstu kosningum.
![]() |
Vilja vísa stjórnarskrármáli frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
2.4.2009 | 09:40
G20 fundur í grafalvarlegu heimsástandi
Það er ekki aðeins Ísland sem er með ónýtan gjaldmiðil. Það er allur heimurinn með ónýtt fjármálakerfi og núna stendur yfir neyðarfundur G20 en það er fundur 20 valdamestu ríkja heims. Það skiptir Ísland miklu hvað kemur út úr þessum fundi. Það mun skipta sköpum fyrir uppbyggingu eftir hrunið hér á Íslandi hvenær fer að rofa til í umheiminum í kringum okkur.
Ef ekkert verður að gert af hálfu stjórnvalda og ekki samhæfðar aðgerðir milli landa þá getur farið illa. Það getur hreinlega farið svo að ríki sem núna eru voldug liðist í sundur og borgarastyrjöld og róstur brjótist út í löndum sem hingað til byggja á langri lýðræðishefð. það skiptir miklu máli hvað gerist í Bandaríkjunum. það getur verið að ástandið þar sé miklu verra en kemur fram í fréttum, ríkið er stórskuldugt og fjármagnar sig með lánum. Einstök fylki eins og California eiga í miklum erfiðleikum.
Búist er við að áherslumunur verði milli USA annars vegar og Þýskalands og Frakklands hins vegar eða "among them are French and German calls for fast and far-reaching financial regulation, while the U.S. has stressed stimulus plans and argued for a lighter regulatory approach to some parts of the financial world, particularly hedge funds." þ.e. Evrópuríkin kalli á meiri reglur og höft á fjármagnsflæði.
Staðan er sem sagt þannig að USA berst fyrir auknu frelsi og minni hömlum með þeim röksemdum að það verði innspýting í lamað fjármálakerfi en Þýskaland og Frakkland vilja koma meiri böndum opinberra aðila yfir fjármálakerfi heimsins m.a. til að koma í veg fyrir skattaskjól og stjórnlaust fjármagnsflæði.
Það er hápólitískt mál hvernig þessi G20 fundur fer og ríkisleiðtogar þurfa að búa til sýningar í kringum sig til að róa öldurnar heima fyrir. það er samt eitt öruggt, það er að valdatilfærslur eru að verða í heiminum og það er hvorki Evrópu né Bandaríkjunum í vil.
Hér er grein í Nyt.com um fundinn:
At Summit, Obama Faces Calls for Finance Rules
það er þörf á gríðarlega viðamiklum aðgerðum ef á að koma lömuðu fjármálakerfi heimsins á eitthvað hringsól, það er líklegt að of miklar opinberar hömlur hafi þveröfug áhrif. Það er samt alveg öruggt að í öllum löndum þá er ríkisvaldið eina aflið sem núna getur stutt við atvinnulíf og það verður að vera einhvers konar ríkisrekstur amk um nokkra hríð.
Við þurfum öll að verða hagfræðingar núna og kosningabaráttan er ekki rekin með gjálfuryrðum heldur með upplýstri umræðu um efnahagsmál. Efst í þessu bloggi er nýtt myndband þar sem ein af efnahagstillögum Framsóknarflokksins er útskýrð.
hér eru svo myndband sem útskýrir hvernig kasínókapítalískt bankakerfi virkar og hvernig það býr til bólupeninga úr skuldum.
![]() |
Viðræðurnar að hefjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 01:32
Smart hjá Samfylkingunni að vinna áfram með þetta álfaþema
Nú þegar ég er svona innvikluð í kosningabaráttuna (ég er í 4. sæti hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík suður) þá finnst mér gaman að sjá hvaða liði andstæðingarnir stilla upp og hvernig þeir hyggjast heygja sína baráttu. Mér sýnist ágætis fólk þarna á listum hjá Samfylkingunni, sérstaklega gaman er að sjá konur í efstu sætum sem voru með mér í Kvennalistanum á sínum tíma, Steinunn Valdís og Sigríður Ingibjörg voru bandamenn mínir í kvennalistanum í gamla daga og ennþá miklir femínistar eins og ég.
Það rifjast hins vegar upp fyrir mér að þetta var einmitt tilfinningin sem ég hafði í Reykjavík eftir síðustu kosningar, mér fannst vera ágætis lið í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hins vegar hefur spilast óttalega grautarlega úr málum hjá þeim nema þegar þau hafa Framsókn til að styðja sig við. Það minnir mig nú á að þannig er því líka farið með þá ríkisstjórn sem núna situr.
Annars hreifst ég mikið af myndinni af rauðsól og höfuðleðrinu á Jóhönnu sem fylgdi með fréttinni. Mér fannst þetta hljóta að vera eitthvað framhald af þessu álfaþema sem Davíð Oddsson tengdi við Samfylkinguna í meinfyndinni útgönguræðu sinni um síðustu helgi. Merkilegt að hann skuli hafa náð að stela senunni frá því að þá helgi var skipt um hausa á tveimur stærstu stjórnmálahreyfingum á Íslandi, þessi umskipti mörkuðu endaloks tímabils einkavæðingar á Íslandi... en enginn tók eftir þessum Bjarna eða hvað sem hann heitir sem var kosinn í Sjálfstæðisflokknum og enginn tók eftir að landsfundur Samfylkingarinnar fjallaði um eitt eða neitt eða að þar hefði verið kosið um eitthvað - allir eru ennþá að hlæja að bröndurum og meinfýsi Davíðs Oddssonar... já á milli þess sem þeir eru að gúgla og tékka á því hvernig nýjasti seðlabankastjórinn gúglast.
En mér finnst smart hjá Samfylkingunni að ætla að takla kosningabaráttuna með svona álfaplakötum með Jóhönnu í rauðsól eins og fylgdi með þessari moggafrétt. Dáldið fyndið líka, ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að taka þessu, setti mogginn þetta plakat inn til að gera gys að forsætisráðherra og flokki hennar?
Þetta er virkilega listrænt plakat og minnir á huldar lendur og yfirskyggða staði.
![]() |
Listar samþykktir í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
31.3.2009 | 23:46
Átthagakvöld hjá Framsóknarflokknum
Á meðan þingmennirnir funduðu um gjaldeyrishöft og gengishrun þá héldum við Framsóknarmenn í Reykjavík átthagakvöld. Það var kvöld þar sem Framsóknarfólk sem flust hefur til Reykjavíkur kemur saman. Þetta átthagakvöld var helgað fólki sem á ættir sínar að rekja til Norðvesturkjördæmis en til stendur að hafa tvö önnur átthagakvöld. Það voru um 80 til 90 manns sem mættu á þetta fyrsta átthagakvöld og það var greinilegt að margir eldri aðfluttir Framsóknarmenn sem komu á átthagakvöldið eru ánægðir með í hvaða átt flokkurinn stefnir núna og hvernig vinnubrögð og áherslur hafa breyst.Það er margt fullorðið fólk sem er hætt búskap eða annarri vinnu sem hefur flust til Reykjavíkur og Framsóknarflokkurinn á sterkan bakhjarl í því fólki. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík hefur heldur ekki gleymt uppruna sínum, þetta er flokkur sem sækir styrk sinn í sveitirnar og landsbyggðina, þaðan koma rætur Framsóknarflokksins eins og raunar rætur okkar flestra sem búum á mölinni.
Hérna eru myndir frá átthagakvöldinu.
Hér er sjálfkeyrandi myndasýning frá átthagakvöldinu.
Það mættu Framsóknarmenn frá ýmsum stöðum á Norðvesturlandi.
Frambjóðendur kynntu sig og Sigmundur Davíð formaður flokksins flutti stutt ávarp og fyrrum þingmenn sögðu gamansögur úr kosningabaráttunni og brýndu menn til dáða.
Nú er safnað meðmælendum fyrir framboðslista og um að gera að nota átthagakvöldin til þess.

Átthagakvöldin eru mannfagnaður og á léttum nótum þó að farið sé yfir hið erfiða efnahagsástand og útskýrt hvers vegna best er fyrir þjóðina að Framsókn komi að stjórn landsins. Eitt af skemmtiatriðum kvöldsins var þegar þingmannsefni af norðvesturlandi þandi nikkuna og spilaði "kátir voru karlar".
Fleiri myndir frá átthagakvöldinu.
Hér er sjálfkeyrandi myndasýning frá átthagakvöldinu.
![]() |
Sér ekki á svörtu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.4.2009 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.3.2009 | 16:06
Þeir sem detta niður gegnum öryggisnet velferðarkerfisins
Það er mikið blekking að við lifum í velferðarsamfélagi þar sem séð er fyrir þörfum allra til læknisþjónustu og aðhlynningar og lífsviðurværis. Það er vissulega til öryggisnet trygginga- og bótakerfis en möskvarnir í því neti eru miklu gisnari og hleypa miklu meiru í gegn heldur en möskvarnir í þeim netum sem kvótaeigendur leggja við Íslandsstrendur. Fólk sem flytur á milli landa er réttlaust um nokkra hríð og það þó það sé borið og barnfætt á Íslandi en hafi flutt út einhvern tíma til að freista gæfunnar.
Nú er tími heimskreppu og uppflosnunar í öllum löndum, héðan flýr fólk og leitar til Norðurlandanna og Kanada í von um betri framtíð og atvinnu og hingað kemur fátækt fólk sem flýr ennþá ömurlegri kjör í sínum heimahéruðum heldur en þeim bjóðast í kreppu og réttleysi útlendinga á Íslandi.
Það geturverið að hingað komi eða hingað sé þegar kominn eða muni koma margt fólk sem engin ummerki skilur eftir sig í opinberum gögnum, fólk sem vill ekki finnast en lifir huldu höfði við mjög kröpp kjör. Það getur verið að þannig lifi fjölskyldur með börn.
Það er líka þannig að atvinnuleysisbótakerfi okkar og reyndar margs konar ívilnanir samfélagsins eru bundnar þannig að engir hafa rétt nema þeir sem hafa verið í vinnu en missa hana. Þannig hafa skólanemar sem engan rétt hafa til atvinnuleysisbóta ekki neina ástæðu til að skrá sig á atvinnuleysisskrá, það er enga vinnu að fá, það er engar bætur að fá. Þannig er háttað með þá sem núna hrökklast út úr framhaldsskólum, ef til vill vegna námsörðugleika eða námsleiða. Í fyrra hefðu þeir valið úr vinnum. Nú er þessi hópur týndur og þessi ungmenni drepa tímann og mæna göturnar, þessi hópur er eins ósýnilegur og hinir réttlausu og óskráðu útlendingar sem hér unnu verk sem Íslendingar voru of góðir til að vinna í gróðærinu.
![]() |
Aðgerðaáætlun um velferð kynnt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2009 | 23:28
Sjálfstæðisflokkur situr hjá í næstu umferð
Hér fyrir ofan er einnar mínútu svipmynd sem ég tók í dag í kosningarskrifstofu Framsóknarflokksins í Reykjavík. Þar eru nú margir fundir á dag, þessi svipmynd er af fundum kvennahóps og frambjóðenda og kosningastjórnar. Kosningabaráttan er komin í fullan gang og opnunarhátíð kosningamiðstöðvar verður á laugardaginn kl. 14.
Það virðist ljóst af því hvernig allir stjórnmálaleiðtogar tala núna að Sjálfstæðisflokkurinn verður ekki með í næstu ríkisstjórn. Þetta ættu þeir sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum að hafa í huga og hugleiða hvort það sé mjög skynsamlegt að kjósa þann flokk aftur. Það er nú reyndar frekar gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn að vera utan stjórnar, þar er erfitt fyrir Sjáfstæðismenn núna að standa andspænis íslenskri þjóð núna og verja stefnu og útfærslu sem steypt hefur okkur í glötun. Sjálfstæðisflokkurinn hefur gott af því að skoða sín mál og taka sig á.
Það virðist útilokað að mynda ríkisstjórn á Íslandi að loknum kosningum án þátttöku Vinstri grænna og Samfylkingar. Steingrímur er enda kokhraustur og drambsamur og finnst ríkisstjórnin vera undin saman úr stálþráðum, sams konar þráðum og halda mannvirkjum. En þannig er það nú bara ekki þessi ríkisstjórn sem núna er lafir gerir það eingöngu fyrir tilstuðlan Framsóknarflokksins og hún er undin saman úr tveimur illa spunnum ullarþráðum og er eingöngu mynduð til að hér sé ekki algjör glundroði fram að kosningum.
Í Framsóknarflokknum búa menn sig núna undir kosningabaráttu sem háð er heiðarlega og af alvöru og festu stjórnmálaafls sem vill ekki taka þátt í að blekkja almenning, ekki taka þátt í að leyna því hve alvarlegt ástandið er. Framsóknarflokkurinn bendir á leiðir til að vinna sig út úr þessum aðstæðum öfugt við stjórnarflokkana sem því miður eru uppteknir af leiðum sem líklegar eru til að magna upp kreppuna og velta vandanum á undan sér.
![]() |
Framsókn vill í vinstrisæng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2009 | 16:04
Hvað er mest spennandi við kosningarnar 25. apríl?
Svar: Hvort ríkisstjórn verður mynduð með eða án Framsóknarmanna.

Málið er að eins og oft áður þá verður það Framsóknarflokkurinn sem verður hverfisteinninn í íslenskum stjórnmálum. Staðan er þannig núna eftir algjört hrun á Íslandi að íslenskir kjósendur hafa sömu fjóra flokkana og áður og svo geta þeir valið nokkra kverúlanta eins og Sturlu vörubílstjóra, Ástþór forsetaframbjóðanda, Sævar Síselski fulltrúa þeirra sem dvelja í 101 Reykjavík og svo Selfyssinga sem kunna ekki vel á tölvupóst.
Framboðin utan fjórflokkanna eru ekki beint gæfuleg.
En hvernig standa málin varðandi fjórflokkana? Ég get svarað því með Framsóknarflokkinn. Framsóknarflokkurinn hefur gengið í gegnum algjöra endurnýjun og margir hafa lagst á eitt við að breyta flokknum og hverfa aftur til þeirrar félagshyggju og samvinnuvinnubragða sem flokkurinn stendur fyrir. Það tekur hins vegar langan tíma að breyta stjórnmálaflokkum og þessum breytingum er ekki lokið í Framsóknarflokknum. En það er óhætt að fullyrða að Framsóknarflokkurinn hefur breyst mest fjórflokkanna og er sá stjórnmálaflokkur sem áttar sig best á ástandinu og er tilbúnastur til að vinna að lausnum. Hér er mynd af nokkrum af frambjóðendum Framsóknarflokksins við kosningarnar 25. apríl:
Allt bendir til að ekki sé hægt að mynda hér starfhæfa stjórn án þess að bæði Vinstri-grænir og Samfylking komi að þeirri stjórn. Það er margt gott fólk í þessum flokkum en það er ekkert sem bendir til þess að þessir flokkar hafi eitthvað breyst við það að allt féll á hliðina á Íslandi og ríkið rambar á barmi gjaldþrots. Landsfundur Vinstri-græna var bara já-og-amen samkoma og flokkurinn hegðar sér ennþá eins og hann sé í stjórnarandstöðu í góðæri. Einu tillögurnar eru að setja himinháa eignaskatta og tekjuskatta, eignaskatta á eignir sem eru hafa gufað upp og skila engum tekjum lengur. Samfylkingin endurnýjaði hjá sér með Jóhönnu sem er vissulega félagshyggjumanneskja og meinar ábyggilega að hún vilji standa vörð utan um heimilin og hún var ansi grimm í félagsmálaráðuneytinu í den og passaði upp á sína málaflokka.

Það var fínt í góðærinu en því miður er núna afar erfitt ástand sem krefst nýrra lausna og stjórnvöld verða að geta tekið ákvarðanir, ekki bara um hvernig eigi að eyða meiri peningum í samneyslu heldur líka um niðurskurð, kerfisbreytingar og aðgerðir til að reyna að blása lífi í lamað athafnalíf í landinu. Það er bara þannig að til að við náum að halda hér uppi velferðarsamfélagi þá þarf að vera fólk og fyrirtæki sem stendur undir greiðslum til velferðarmála. Satt að segja tók ég ekki eftir neinni breytingu á Samfylkingunni og prófkjöri þeirra og landsfundi nema það að Sigríður Ingibjörg flaug upp í öruggt þingsæti af því hún sagði sig úr bankaráði Seðlabankans eftir að hafa setið þar í nokkra mánuði. Það er sem sagt uppgjör Samfylkingarinnar við fortíðina í hnotskurn, það er sektin sem Samfylkingin finnur hjá sér fyrir að hafa blekkt þjóðina, beitt sér fyrir óheftri einkavæðingu og gengið erinda auðjöfra og þeirra sem vildu eiga alla fjölmiðla í landinu og stýra allri umræðu í landinu.

Það er ekki svo miklir valkostir eftir kosningar varðandi stjórnarmynstur. Það er sem sagt spurning um tvo staðnaða flokka Samfylkingu og Vinstri-Græna og hugsanlega fara leikar svo eftir kosningar að þessir flokkar gætu myndað starfhæfa en mjög veika stjórn. Veika vegna þess að þinglið þeirra verður samsett af sólóistum sem margir hverjir virðast alls ekki skilja það vandamál sem Ísland stendur frammi fyrir núna, kannski einmitt af því að þeir eru hluti af vandamálinu og tóku þátt í að búa það til. Svo eru þessir tveir flokkar að mörgu leyti eins og andstæðir pólar, Samfylkingin hjakkar í ESB eins og einhverju trúboði og vilja álhúða Hafnarfjörð en Vinstri-Grænir fylgjast ekkert með álverðinu í heiminum og halda að ennþá hafi einhver áhuga á að byggja álver hérna.

Það er við svona aðstæður sem það skiptir öllu máli hvort Framsóknarflokkurinn sem hefur einn flokka gengið í gegnum algjöra uppstokkun geti með yfirvegun sinni og skynsemi tryggt stöðugleika í íslenskum stjórnmálum. Íslenskur almenningur ætti að hugsa sig um að átta sig á því að ef Framsóknarflokkurinn hefði ekki gripið inn í þá væri Ólafur Magnússon kannski ennþá borgarstjóri í Reykjavík og það væri styrjaldarástand í Ráðhúsinu og ef Framsóknarflokkurinn hefði ekki gripið inn í og komið ríkisstjórn Geirs Haarde frá völdum þá væri enginn fjórflokkanna við völd á Ísland núna.
Satt að segja þá eru allar líkur á að hérna hefði verið algjört upplausnarástand og óvíst að hægt hefði verið að koma við lýðræðislegum kosningum, verið gæti að fólk upptendrað af búsáhaldabyltingu og ráðleysi og dáðleysi stjórnvalda væri búið að taka yfir opinberar byggingar og allt væri hér í glundroða og ringulreið og götubardagar í miðbænum.

Það eru þannig aðstæður í íslensku samfélagi ennþá að það er þörf á að sem flestir stjórnmálaflokkar komi að því að stýra landinu eftir kosningar og það er ennþá besti kosturinn að hér verði einhvers konar þjóðstjórn. Því miður tókst það ekki og ef það getur ekki orðið af þjóðstjórn þá er besti kosturinn fyrir íslenskan almenning að Framsókn komi að því að tryggja hér stöðugleika og skynsemi og fái hina stjórnmálaflokkana til að horfast í augu við hið gríðarlega vandamál sem við stöndum frammi fyrir og fái þá til að gera eitthvað í því. Ekki sitja auðum höndum og halda að það gufi upp af sjálfu sér.

Um síðustu helgi hélt Framsóknarflokkurinn frambjóðendaráðstefnu og með þessu bloggi eru svipmyndir frá henni. Sjá hérna fleiri myndir.
Þetta eru myndir af fólkinu sem er reiðubúið að reisa við Ísland.

![]() |
Þolinmæði framsóknarmanna þrotin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.3.2009 | 10:08
Eggjaskurnin eftir fjöreggjakastið
Við erum smán saman að horfast í augu við þann dökka veruleika sem mætir okkur eftir hrunið á Íslandi. Öll höfum við tapað, þeir sem áttu eignir í hlutabréfum hafa tapað þeim að miklu leyti, þeir sem áttu fasteignig hafa tapað gríðarlegu því að fasteignaverð hefur hríðlækkað og er ennþá í frjálsu falli en þeir sem skulda hafa tapað mestu. Skuldirnar hafa hækkað gríðarlega vegna verðbólgu og gengisþróunar en eignirnar sem stóðu sem veð fyrir þessum skuldum lækka og lækka í verði.
Í fyrirtækjum og bönkum er vaninn að meta hversu líklegt er að krafa innheimtist og nota þá varfærni að ef verulegar líkur eru á því að kröfur tapist þá eru þær afskrifaðar. Þeir sem áttu mestar eignir í íslensku samfélagi voru ekki útrásarvíkingar eða íslenskir auðmenn, við vitum núna vel að það ryk sem þeir þyrluðu upp var bara sjónhverfingar, þeir bjuggu til einhvers konar sýndarauð með því að þyrla peningum á milli sín eins og lottókúlunum í úrdrætti í víkingalóttó. Þeir sem raunverulega áttu mestar eignir í íslensku samfélagi og eiga ennþá eru lífeyrissjóðirnir. Þar hafa safnast upp gríðarleg verðmæti sem eru ekki bólupeningar heldur raunverulegt framlag launþega og atvinnurekenda á Íslandi ætlaðir til að tryggja launþegum á Íslandi viðurværi þegar þeir geta ekki unnið lengur. Það voru líka þessi verðmæti sem þeyttust upp í víkingalóttói hins kasínókapítalíska kerfis sem við lifum við og þau brotnuðu eins og egg. Núna er áætlað að lífeyrissjóðirnir hafi misst einn þriðja af verðmætum sínum á árinu.
Það er athyglisvert að lesa eftirfarandi frétt með hliðsjón af efnahagstillögu Framsóknarmanna um 20% niðurfellingu skulda. Svona er nefnilega áætlað að þurfi að afskrifa verðmæti líffeyrissjóðanna:
"Þegar gert er ráð fyrir 90% afföllum af skuldabréfum bankanna, 75% afföllum af öðrum fyrirtækjaskuldabréfum og 70% afföllum af erlendum skuldabréfum er neikvæð raunávöxtun lífeyrissjóðanna í fyrra nær 33%."
Það er sem sagt áætlað að ekki innheimtist nema tíundi partur til þriðjungur af þeim peningum sem lífeyrissjóðirnir lána. Tillaga Framsóknarmanna gengur út á að fimmtungur skulda verði strax afskrifaður hjá skuldunautum. Menn verða að átta sig á því hvað fyrirtæki varðar að þessar skuldir eru þegar afskrifaðar hjá þeim sem eiga kröfurnar um miklu meira en sem nemur fimmtungi, einfaldlega vegna þess að það er kalt mat að skuldarar muni ekki ná að borga nema lítið brot af þessum skuldum.
Það er í svona aðstæðum sem Framsóknarmenn setja fram tillögu um að skuldir verði lækkaðar um 20%, skuldir sem þegar hafa vaxið um meira en það bara vegna verðbólgu og gengismunar en skuldir sem eru þegar afskrifaðar eftir öllum eðlilegum skynsamlegum viðskiptaaðferðum, einfaldlega vegna þess að það eru engar líkur á að þær innheimtist. Það er hins vegar afar ósennilegt að þetta sé nóg, það verða að koma til miklu stærri og umfangsmeiri efnahagsaðgerðir. En það er gríðarlega mikilvægt að búa þannig um að ekki sé sorfið svo að fjölskyldum og fyrirtækjum í landinu að þau hafi enga möguleika til að bjarga sér.
![]() |
Staða lífeyrissjóða afhjúpuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.3.2009 | 13:18
Borguðu 11 milljarða fyrir Landsbankann, skildu eftir Icesave skuld upp á 640 millljarða
Gróðinn af einkavæðingu bankanna er átakanlega lítill.
Tökum Landsbankann sem dæmi, hann var seldur fyrir um 11 milljarða til þess eins að við þyrfum að taka á okkur skuld upp á 640 milljarða fimm árum seinna. Íslensk stjórnvöld gerðust mesta ginningarfífl íslenskrar viðskiptasögu þegar þau voru tæld á haustmánuðum árið 2002 til að afhenda peningargerðarvélar samfélagsins til manna sem komu með fé frá Rússlandi. Bankar í kasínókapitalísku kerfi vestrænnar auðhyggju eru stórhættulegar stofnanir, stofnanir sem búa til sýndarpeninga með loftbólum og skuldum. Með því að handsala slíkar stofnanir til manna sem eingöngu stjórnast af eigin gróðahvöt og skapa umhverfi þar sem slíkir menn fá að athafna sig og skuldsetja aðra í því skjóli sem bankaleynd og einkavæðing gefur þá hafa stjórnvöld tekið þátt í að rústa lífsskilyrðum margra kynslóða á Íslandi.
Peningarnir sem hingað streymdu úr bjórgróða í Rússlandi voru rúmir 11 milljarðar.
Síðan liðu fimm ár. Þá allt í einu vöknum við fólkið í landinu upp við það að íslensk stjórnvöld hafa með ráðleysi og dáðleysi, andvaraleysi og blekkingum látið stela öllu frá Íslendingum og eigendur þessa fyrrum ríkisbanka hafa með vitund og vilja stjórnvalda og að því er virðist nokkurri velþóknun stjórnvalda framan af gert okkur ábyrg fyrir 640 milljarða Icesave skuld, skuld vegna fimm ára einkavæðingar þessa fyrrum ríkisbanka.
Landsbankinn spratt upp úr fyrsta banka á Íslandi, banka sem Tryggvi Gunnarsson stýrði, banka sem tryggði okkur Íslendingum fjármagn til að við gætum nýtt fiskimiðin okkar, banka sem lánaði í íslenskan sjávarútveg til þilskipa sem borguðu sig upp á þremur árum. Má ég frekar biðja um afturhvarf til gamla hundraðkallins heldur en þessa "fé án hirðis"hugsun taumlausrar gróðahyggju sem hefur núna rústað íslensku efnahagslífi.
Það er Sjálfstæðisflokkurinn sem fyrst og fremst hefur staðið fyrir því að afhenda ríkisbankana á gullfati til einkaaðila, til þess eins að þjóðin þurfi að taka svo við þeim aftur fimm árum seinna, en núna ekki á neinu gullfati, það er fyrir löngu komið í geymslu á einhverri af Tortola eyjum heimsins.
Nei núna er bönkunum grýtt til baka í höfuðið á okkur og við þá hanga eins og drekkingarsteinar ofboðslegar skuldir þannig að í þessu grjótkasti höfum við Íslendingar verið slegin í rot, alla vega tímabundið og við munum aldrei ná að rísa upp aftur og synda upp á yfirborðið nema við náum að ýta frá okkur einhverju af þessum steinum.
Ísland marar í hálfu kafi á meðal þessir skuldaklafar halda okkur í djúpinu.
Í ágætri úttekt í Morgunblaðinu í dag kemur fram að Samson borgaði 11,2 milljarða fyrir bankann en samningar stóðu yfir haustin 2002. Það kemur líka fram í greininni að Framsóknarmenn reyndu á sínum tíma hvað þeir gátu til að ekki yrði seldur svona stór hluti úr ríkisbönkunum. Það væri áhugavert að vita hvort það hefði breytt einhverju.
Ég held raunar ekki, ég held að það hefði þá bara tekið lengri tíma fyrir þennan Samson hóp að komast yfir ráðandi hlut í bankanum. Eina sem hefði getað breytt einhverju er að íslenska ríkið hefði alltaf átt meirihluta í bankanum. En það er gott að það kom upp á yfirborðið hvernig Framsóknarflokkurinn reyndi í lengstu lög að sporna við að svona stór eignarhluti væri seldur úr ríkisbönkunum.
Sjálfstæðisflokkurinn var hins vegar sleginn blindu, þar var einkavæðing alls sem hægt var að setja verðmiða á nánast trúaratriði og gróðahyggjan var eins og guðspjöll og spámennirnir voru menn eins og Pétur Blöndal sem er ágætur tölfræðingur en afleitur spámaður í trúboði, hann talaði hins vegar í bíblíulegum frösum og lýsti þeim samsafnaða auð sem hér bjó í eignum, fólki og fyrirtækjum með orðum eins og "fé án hirðis", fé sem ætti að afhenda einhverjum auðhyggjumönnum og þá myndi gróðablik þeirra og gróðahyggja gera okkur hin rík. Málið er að það hefur ekki gengið eftir, gróðahyggja fárra sem vinna bara fyrir sjálfan sig hefur gert okkur öll fátæk.
Til langs tíma er miklu betra að byggja upp samfélag þar sem leiðarljósið er alltaf samfélagið og samfélagsleg ábyrgð og samtryggingarkerfi, þar sem velferð allra er höfð að leiðarljósi og þar sem atvinnulíf er byggt upp, ekki út af skammsýnum gróðasjónarmiðum út af tölum í ársreikningum fyrirtækja heldur til að búa til samfélag þar sem fólk starfar saman og í samvinnu að því að byggja upp en ekki í samkeppni og gróðahyggju.
En núna þegar komið hefur í ljós hvernig Framsóknarmenn reyndu að sporna við óheftri bankasölu þó þeir væru í stjórnarsamstarfi við helsta markaðshyggjuflokkinn og gætu ekki fylgt því eftir þá er áhugavert að greina hvernig þeir sem voru í vaktinni í stjórnarandstöðu þessi gróðærisár stóðu sig. Það er áhugavert að skoða hvernig maður eins og Ögmundur Jónasson varaði við og reyndi að hafa áhrif. Vissulega var Ögmundur í aðstöðu til að sjá hvað væri að gerast, vissulega var Ögmundur sem formaður eins stærsta félags launþega í aðstöðu sem við hin höfðum ekki í að hafa aðgang að hagfræðingum sem höfðu púls á markaðinum. Vissulega var Ögmundur í kjöraðstöðu til að benda á hvað var að gerast, hann var tengdur einum stærsta lífeyrissjóði landsins og í starfi sínu þá hlýtur hann að hafa áttað sig á því hlutverki sem lífeyrissjóðirnir gengdu í því að steypa okkur í þessar aðstæður. Ögmundur hefur staðið sig vil, hann birtir upplýstar greinar en af hverju gerði hann ekki meira? Af hverju varaði hann okkur ekki betur við, af hverju gerðu Vinstri grænir ekki neitt ?
Framsóknarflokkurinn reyndir einn flokka að koma með tillögur sem myndu hjálpa Íslendingum í þeim aðstæðum sem þeir eru í núna. Fyrsta skrefið er að aflétta hluta af skuldum af einstaklingum og fyrirtækjum, skuldum sem mynduðust þegar gengið féll og eru að sliga fólk því verðmætin sem standa fyrir þessum skuldum hafa hraðfallið í verði og fyrirsjáanleg er ennþá meiri verðlækkun. Skuldarar báðu ekki um að bankakerfið myndi hrynja yfir þá og hagkerfi heimsins myndi hrynja þannig saman að verð á öllu lækkaði. Öllu nema skuldum.
En þar þarf líka að semja um afnám og niðurfellingu á hluta þeirra skulda sem útrásarmenn með velþóknun stjórnvalda steyptu okkur í. Eða eigum við kannski að heimta að borga skuldirnar eins og Samfylkingarmenn vilja? Eigum við bara að biðja Guð að blessa Ísland og stóla á ófundnar olíulindir og EBE?
![]() |
Vildu ekki selja Samson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)