9.6.2009 | 14:30
Hver á fiskinn í sjónum, Ólafur ÓIafsson eða íslenska þjóðin?
Ólafur á Ker, Ker á Eglu, Egla á Kjalar (eða var það öfugt? eða var það bæði?), Kjalar á HbGranda og HbGrandi er að stofninum til gamla bæjarútgerð okkar Reykvíkinga og stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á landinu og á gríðarlegar aflaheimildir. Stærsta eign Eglu er krafa á Kjalar.
Það hefði verið alveg ágætt fyrir Reykvíkinga að eiga bæjarútgerð núna, ágætt að eiga kvóta fyrir byggðalagið hérna og ágætt að geta stýrt því þannig að fiskur væri seldur eða nánast gefinn til efnalítilla fjölskyldna á Íslandi. Þannig var farið að í öðrum kreppum og því stýrði Jónas frá Hriflu ef ég man rétt.
Núna sýnist mér að búið sé að samþykkja nauðasamninga upp á 15% af kröfum í Eglu einmitt af því að eignir í Kjalari (þ.e. stærsti hluthafi í HBgranda) muni þá glatast. Ég fæ ekki betur séð en einhver sé með þessu að fá yfirráðarétt yfir stórum hluta fiskveiðikvóta Íslendinga fyrir slikk. Er það Ólafur Ólafsson? Eru það ríkisbankarnir?
Ég er alveg sátt við að ríkisbankarnir eigi hlutann í Kjalari en ég er mjög ósátt við ef eitthvað möndl og baktjaldamakk er með þessi gríðarlegu verðmæti, verðmæti sem eru verðmæti okkar Reykvíkinga, þetta er kvóti sem er tilkominn vegna veiða fyrirtækis sem er að stofni til gamla bæjarútgerðin okkar, fyrirtæki sem var selt vegna þessarar einkavæðingartísku.
Er til of mikils mælst að þeir sem standa að þessum nauðasamningum og það hljóta að vera íslensku bankarnir upplýsi almenning í Reykjavík um hver muni eftir þessa nauðasamninga ráða yfir hlutnum í HBGranda?
Er til of mikils mælst að almenningur á Íslandi fái upplýsingar um hvað felst í gjaldeyrissamningi Kjalars við gamla Kaupþing?
Á meðan HbGrandi var á hlutabréfamarkaði þá keypti ég bréf í því fyrirtæki, ég vildi á þann hátt eiga skerf í sjávarauðlindum Íslands og reyna að hafa mín áhrif á hvernig máum væri stjórnað þar. Ég bauð mig fram í stjórn HBGranda í hitteðfyrra en hafði enga möguleika, litlir hluthafar hafa enga möguleika vegna þess að félög eins og Kjalar eiga meirihlutann. Það að HBGrandi hafi verið almenningshlutafélag var bara skrípaleikur. Það eru menn eins og Ólafur Ólafsson sem hafa átt bak við tjöldin í einhverri fyrirtækjaspagettikássu allan kvóta sjávarútvegsfyrirtækja eins og HbGranda. Það er ekkert í regluverki sem hindrar að þessar fyrirtækjaspagettikássur geti verið í eigu einhverra sem eiga sín skjól á Tortúlaeyjum og svipuðum stöðum. Ekkert nema vökult auga okkar almennings sem fylgjumst með fjármálaumhverfinu og heimtum að almenningur á Íslandi ráði fyrirtækjum eins og HBgranda.
Hér segir: Skuldir Eglu eru rúmir 8,3 milljarðar króna, á meðan áætlað verðmæti eigna félagsins nemur um 1,2 milljörðum króna, eða ca. 15% af skuldum.
Það sem ég er mest hrædd um er að í þessum nauðasamningum felist að Ólafur Ólafsson haldi áfram hlutnum í HBgranda. Það sem ég er líka hrædd um er að lánadrottnar Eglu séu erlendir aðilar sem Ólafur hefur fengið lán hjá til að kaupa hlutinn í HbGranda.
Ég er að reyna átta mig á hlut Ólafs Ólafssonar í íslensku viðskiptalífi, Ólafur hefur alltaf verið talinn tengjast Framsóknarflokknum og mér finnst nauðsynlegt að það sá upp á borðum hvernig sú tenging hafi verið. Í öllum flokkum þarf að eiga sér stað opinská umræða og hreingerning. Ég hef heyrt þessa sögu með brotakenndum hætti og sumt af því ber ekki viðskiptaháttum ólafs vel söguna. Þannig virðist hann oftar er einu sinni hafa þóst vera eitthvað erlent fyrirtæki en það verið bara leppur. Þannig mun hann hafa gengið undir nafninu Hauck und Aufhäuser á sinni tíð og þóst vera virtur erlendur banki. Það var á þeim árum sem erlend fyrirtæki þóttu voða fín (áður en við uppgötvuðum að þau eru mestmegnis pósthólf á tortúlaeyjum) og það átti að einkavæða íslenska banka með því að því að erlendir aðilar væru með og legðu inn sína reynslu og sérfræðikunnáttu.
Það eru þrír athafnamenn sem hafa verið bendlaðir við Framsóknarflokkinn. Þeir eru Ólafur Ólafsson, Sigurður Einarsson og Finnur Ingólfsson. Ólafur Ólafsson er sonur stjórnarformanns Sambandsins og Sigurður Einarsson er sonur ráðherra Framsóknarsflokksins. Finnur Ingólfsson var ráðherra Framsóknarflokksins. Það er nokkuð ljóst að allir þessir menn fengu upphaflegan meðvind í athafnalífi vegna tengsla sinna við Framsóknarflokkinn og Sambandið.
Ég safna hérna fyrir saman ýmsu sem ég finn á Netinu um viðskiptanet Ólafs Ólafssonar til að reyna að glöggva mig á því hver á hvað. það er nú ekki auðvelt.
Ólafur Ólafsson, einkavæðing bankanna og pólitísk spilling
Slóð Ólafs Ólafssonar um íslenskt athafnalíf er ekki beinlínis saga þar sem öll eignatengsl eru gagnsæ og upp á borðinu. Hann er einn af þeim sem spiluðu með fjöregg Íslendinga og hann gerði það án þess að almenningur á Íslandi vissi hvað væri að gerast. Ég er reið öllum þeim sem hafa atvinnu af eða voru kosnir fulltrúar fólksins sem hefðu átt að fylgjast með fólki eins og honum en gerðu það ekki og vöruðu ekki við.
(2006) Kjalar á meirihluta í Ker, Ker á Olíufélagið, Olíufélagið á stóran hluta í KEr
(2006) Kjalar á meirihluta 87 % í Ker. Helstu eignir Kers hf. eru Olíufélagið ehf. og stórir hlutir í Samskipum hf., SÍF hf. og Iceland Seafood International ehf. Þá á Ker 68% hlut í Eglu hf. sem er eignarhaldsfélag um 10,88% hlut í Kaupþing banka hf. Kjalar ehf., félag Ólafs Ólafssonar, á nærri 28% hlut í Eglu.
Jafnframt á Ker um 56% hlut í fasteignafélaginu Festingu ehf. sem varð til árið 2003, við skiptingu Kers, þegar fasteignir Olíufélagsins voru færðar yfir til Festingar og síðar sömuleiðis fasteignir Samskipa og eignir frá Sundi. Festing hefur nú keypt alla hluti Sunds ehf. og J&K eignarhaldsfélags ehf. í Festinu
Kjalar á 90% í Samskipum og 33% í HB Granda. Þá átti hollenskt félag í eigu Eglu 40% hlut í Alfesca. Ólafur var (er kannski ennþá?) stjórnarformaður Samskipa og SÍF. Hann átti líka félagið Serafin shipping og mun það félag hafa orðið sjötti stærsti eigandi í Icelandic Group (átti Sjóvík sem sameinaðist Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna) og átti 6 %. Þessum eignarhlut var skipt niður á tvö félög Fordace Limited og Deeks Associates Ltd. væntanlega til að komast hjá tilkynningaskyldu í Kauphöll.
Eigendur Eglu eru Ker, sem er að hluta til í eigu Ólafs Ólafssonar og Kjalar, með 68 prósenta hlut, Kjalar með 28 prósenta hlut, sem einnig er í eigu Ólafs Ólafssonar og Grettir, með fjögur prósent. Stofnendur Eglu voru Ker, Vátryggingafélag Íslands og Hauck & Aufhaeuser
Ólafur Ólafsson átti Serafin Shipping
Ólafur Ólafsson reynir að verja vígin amx
Kjalar vill knýja fram skuldajöfnunKjalar krefst uppgjörs á gjaldeyrissamningi við Kaupþing
Egla á 15% upp í skuldir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Erlendar fréttir á mbl.is eru þýddar að mestu leyti beint af BBC. Þannig er um þessa frétt um sprungnu twitter bóluna, hún er bein endursögn og stytting úr BBC grein. Það er út af fyrir sig ekkert slæmt, gott að fólk á Íslandi sem er ekki sleipt í ensku skuli hafa aðgang að hraðsoðnum þýddum fréttum á einföldu máli.
Það sem er verra er að val frétta á mbl.is er ekki að velja það sem skiptir máli og fjalla um það sem skiptir máli upp á framtíð okkar á Íslandi og í heiminum og vekja athygli á hættum og mannréttindabrotum heldur að styggja ekki umheiminn, sérstaklega hvað varðar íslenska viðskiptahagsmuni og að flytja fréttir sem segja þá sögu sem viðtakandinn þ.e. lesandinn vill heyra.
Í fréttinni um sprungnu twitterbóluna er inntakið að fáir skrifi inn á twitter en margir séu notendur. Allir sem lifa og hrærast í netheimum vita að það er mikil blekking í gangi um fjölda notenda á öllum félagsnetum. það eru miklu færri virkir en tölurnar yfir þá sem einhvern tíma hafa skráð sig. Það er mikill munur á fjölda virkra notenda og á þeim sem skrá sig á einhverja netþjónustu. En það er vaxandi fjöldi sem notar twitter og notkunarmöguleikar svona örbloggs eru að sýna sig á fleiri og fleiri sviðum, ekki síst með öflugum leitarvélum sem leita í twitterstraumum. Einnig að með verkfærum eins og twitter má tengjast ýmsum öðrum netverkfærum og senda boð milli kerfa og twitter er verkfæri sem hentar fyrir Internet þeirra sem eru nota símann fyrir sínar uppfærslur.
Það er hins vegar ekkert skrýtið að það séu aðeins örfáir sem setja inn efni. Þannig er það um flesta fréttamiðlun, það eru tiltölulega fáir sem setja inn fréttir á mbl.is en það eru margir lesendur. Hlutfallið þar er ábyggilega frekar mælt í 1/1000 heldur en 1/10.
Reyndar er mesta hættan sem vofir yfir Twitter ekki sú að nokkrir notendur setji inn mest af efninu og hafi flestu uppfærslurnar heldur það að "hype"-ið í kringum Twitter hefur orðið til að margir sem eru að selja vöru og þjónustu ánetjast þessu verkfæri og reyna að þrengja sér inn í félagsnet sem þar eru. Þannig getur twitter auðveldlega orðið eins og mörg önnur verkfæri sem maður hefur gefist upp á vegna þess að þau eru orðin mestanpartinn einhverjar dulbúnar auglýsingar og þeir sem skrá inn í félagsnetin eru ekki fólk heldur róbotar sem pósta undir mörgum nöfnum til að vekja athygli á einhverri vöru og þjónustu. Það þarf samt ekkert að kvíða því, ef twitter klikkar þá er bara að fara yfir í eitthvað annað örbloggskerfi sem auglýsendur hafa ekki ennþá tekið yfir og skafið innan úr.
Svo ég lýsi eigin reynslu af twitter þá er hún tvenns konar. Annars vegar sem notandi, þetta er ágæt leið til að bæði skrá minnispunkta fyrir sjálfan sig og til að koma míkrófréttum á framfæri, vekja athygli á slóð eða vídeó og það er einfalt að tengja facebook og twitter saman.
En þessi not mín af twitter til að pósta sjálf þar inn eru miklu veigaminni en þau not sem ég hef af twitter sem leitarvél. Þannig er að google er ekki nógu góð leitarvél fyrir það sem er að gerast hér og nú en http://search.twitter.com er mjög fín vél fyrir það. Hópar sem vilja koma einhverju áleiðis eru líka farnir að nota svona "hash tags" eins og að merkja twitter með #icesave ef maður væri að fjalla um icesave samning. Svoleiðis notkun færist í vöxt og það var svoleiðis notkun sem kínversk stjórnvöld voru að reyna að koma í veg fyrir með því að banna twitter og fleiri tól.
En aftur að því sem átti að vera efni þessa bloggs. Ég ætla ekki að eyða fleiri orðum að innantómri aulafrétt á mbl.is um að 10 % notenda á twitter séu með mest af efninu í vefmiðli þar sem ábyggilega minna en eitt prómill notenda hraðsýður fréttirnar sem þýddar eru frá bbc heldur að vekja athygli á frétt sem ekki er á mbl.is og það er ný frétt um njósnaforrit sem kínversk stjórnvöld heimta nú að sé sett í allar nýjar pc tölvur. Þetta njósnaforrit á að nafninu til að vera til að koma í veg fyrir klám en í rauninni er forritið til þess eins að láta stjórnvöld í Kína geta stanslaust dælt inn í allar tölvur í landinu nýjasta listanum um hvaða vefsíður eru bannaðar. Þetta er hryllilegt, hvað heldur fólk að svona aðstaða stjórnvalda geti þýtt fyrir mannréttindi í landinu?
hér er grein um þetta
China Requires Censorship Software on New PCs
Í greininni stendur:
BEIJING China has issued a sweeping directive requiring all personal computers sold in the country to include sophisticated software that can filter out pornography and other unhealthy information from the Internet.
The software, which manufacturers must install on all new PCs starting July 1, would allow the government to regularly update computers with an ever-changing list of banned Web sites.
The rules, issued last month, ratchet up Internet restrictions that are already among the most stringent in the world. China regularly blocks Web sites that discuss the Dalai Lama, the 1989 crackdown on Tiananmen Square protesters, and the Falun Gong, the banned spiritual movement.
But free-speech advocates say they fear the new software could make it even more difficult for Chinas 300 million Internet users to obtain uncensored news and information.
This is a very bad thing, said Charles Mok, chairman of the Hong Kong chapter of the Internet Society, an international advisory group on Internet standards. Its like downloading spyware onto your computer, but the government is the spy.
Called Green Dam a reference to slogans that describe a smut-free Internet as green the software is designed to filter out sexually explicit images and words, according to the company that designed it. Computer experts, however, warn that once installed, the software could be directed to block all manner of content or allow the government to monitor Internet use and collect personal information.
Details of the new regulations, which were posted Monday on a government Web site, were first reported by The Wall Street Journal.
Það voru seldar 40 milljónir pc tölva í Kína í fyrra og búist er við að ennþá fleiri seljist í ár.
Er Twitter-bólan sprungin? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.6.2009 | 00:49
"Húsið er okkar" - ungdómshúsið á Fríkirkjuvegi 11
Hér er vídeó sem ég tók af hústökunni á Fríkirkjuvegi 11 í Reykjavík núna í kvöld. Vídeóið er um 10 mínútur og sýnir stemminguna, þetta var nú engin ofbeldisaðgerð, fremur svona táknræn gjörningur.
Þegar ég var unglingur þá var Fríkirkjuvegur 11 miðstöð fyrir unglinga, mig minnir að þetta hafi verið undanfari Tónabæjar sem svo opnaði. Ég fór nú aldrei í þessa tómstundamiðstöð en ég þekkti krakka sem voru þar flest kvöld. Núna í kvöld var húsið heimtað aftur úr helju og hópur fólks streymdi í húsið og hrópaði "húsið er okkar" og átti þar við að núna ætti almenningur á Íslandi þetta hús, það væri ekki hluti af ránsfeng útrásarvíkinga og fjárglæframanna.
Ruddust inn í Fríkirkjuveg 11 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2009 | 20:06
Ríkisstjórn sem skilur ekki grundvallaratriði efnahagsmála
Ég var á Austurvelli í dag og reyndi eins og aðrir á velllinum að koma þeim skilaboðum til þingheims að ég vil ekki þessa nauðungarsamninga og skuldaánauð um aldur og ævi. Núna hlusta ég á Kastljósið, Sigmundur Davíð og Steingrímur fjármálaráðherra eru viðmælendur. Reyndar var ég ein af þeim sem borgurum sem talað var við á Austurvelli þannig að mér brá fyrir í byrjun þáttarins.
Núna er á Íslandi ríkisstjórn sem virðist ekkert átta sig á hvað er að gerast í heiminum og ekki hafa neitt innsæi á hvað muni gerast á næstu árum og núna er fjármálaráðherrann Steingrímur er kjaftaskur sem virðist ekkert átta sig á fjármálakerfi heimsins eða afleiðingum þeirra gerða sem hann er að stefna Íslandi í. Steigrímur er ekki vondur eða óheiðarlegur maður en eftir þeim upplýsingum sem koma fram í brotakenndum fréttum sem við almenningur fáum af íslenskum fjármálum þá var fyrirrennari hans öllu verri og það er kominn tími til að virkja landsdóm og láta hann fjalla um embættisafglöp ráðherra.
Það er ömurlegt að svona ríkisstjórn sé draga hengingaról utan um háls okkar allra Íslendinga og selja okkur í ánauð og reyni að selja okkur þessa niðurstöðu eins og þetta sé einhver díll.
Blekkingar, heimska og hótanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2009 | 13:50
Frá Baldri Guðlaugssyni til Svavars Gests, frá innherjasvikum til lýðskrums og blekkinga
Það er gott að finna að ég er ekki sú eina sem blöskrar framganga ríkisstjórnarinnar í Icesave, blöskrar að í skjóli næturs og pukurs eigi að hengja á íslensku þjóðina drápsklyfjar og þetta sé kynnt fyrir okkur af ráðherrum og fjölmiðlum eins og einhver rosalegur díll, það hafi tekist að þoka vöxtunum niður um einhver prómill og svo sé þetta mjög sniðugt lán af því það þurfi ekkert að borga af því næstu sjö árin. Núna eru komin 13.689 í facebook mótmælendahópinn Við neitum að borga skuldir sem við berum ekki ábyrgð á.
Ég vona að einhverjir þeirra mæti á Austurvöll kl. 14:50 í dag, alla vega ætla ég að mæta.
Heilsíða í Morgunblaðinu í dag er tekin undir rugl úr Svavari Gestssyni sem stýrði Icesave samninganefndinni, viðtalið sýnir svo enn og aftur að hann hefur ekki hundsvit á því sem hann var settur til að semja um, enda var það ekki sérfræði hans né skilningur á innviðum fjármálaheimsins eða ástandinu í heimsmálum sem réði því að hann var fenginn til verksins. Hann er ekkert annað en gamall lýðskrumari úr Alþýðubandalaginu, maðurinn sem var ritstjóri Þjóðviljans þegar það málgagn lofaði í hástert sæluríki kommúnismans, lofsöng innanrotið kúgunarkerfi sem féll saman með bauki og bramli og féll ofan á almenning í gömlu Ráðstjórnarríkjunum. Þessi maður kann ekki annað en lýðskrum, blekkingar og kjaftagleði, kann ekki annað en fela lygina inn í skrúðorðum og selja almenningi eymd eins og það séu sérstök kostakjör.
Það var erfitt að lesa heilsíðuna í Morgunblaðinu í dag, erfitt að sitja undir því að svona einhliða áróður og blekking sé borin á borð fyrir íslenskan almenning, erfitt að horfast í augu við skrímslin í íslenskum veruleika, erfitt að horfast í augu við að ekkert hefur breyst með þessum kosningum, áfram er reynt að blekkja almenning, áfram er reynt að láta eins og ekkert hafi gerst þó að kerfi heillar þjóðar hafi hrunið og heimurinn hangi á sömu heljarþröm, áfram er látið eins og hinar kasínókapítalísku reglur eigi að gilda, þetta sé bara spurning um að leyna vandanum, fresta honum, sópa honum undir teppin, telja fólki trú um að lán sem ekki er á gjalddaga í dag sé lán sem næstum því er ekki til og ábyrgð sem er fyrst ábyrgð einhverra annarra en síðan að lokum ríkisábyrð sé næstum engin ríkisábyrgð. Halda þeir sem skrifa þessar fréttir að við séum fávitar sem skiljum ekki hvað felst í fjárhagsábyrgð og ríkisábyrgð?
Ekkert hefur breyst með stjórnarskiptunum nema að fyrri samninganefnd í Icesave var leidd af manni sem var algjörlega vanhæfur vegna gruns um athæfi sem í öllum siðuðum löndum er talið saknæmt, gruns um að hann notaði innherjaaðstöðu sína til að skara eld að eigin köku, fyrri Icesave samninganefnd var leidd af Baldri Guðlaugsson og voru vinnubrögð hans slík að það var með öllu óskiljanlegt að fyrri forsætisráðherra eða fjármálaráðherra skyldu ekki löngu vera búnir að setja hann í langt frí.
Vissulega er Svavar Gestsson ekki eins slæmur og Baldur Guðlaugsson en það er samt tákn um hvernig hlutirnir hafa breyst að núna sé reynt að selja íslensku þjóðina í ánauð ekki af fólki sem er undir grun um glæpsamlegt eiginhagsmunapot heldur af fólki sem hefur áratugareynslu í lýðskrumi og fagurgala, fólki sem ætlað er að láta fjötrana líta út eins og sæluríki.
Það er móðgun við íslenskan almenning að hegða sér eins og ríkisstjórnin gerir núna.
Þá og nú (grein um viðsnúning Steingríms Sigurðssonar)
Margir skrá sig gegn Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.6.2009 | 15:19
Landráðamenn
Það er gott að halda til haga hverjir eru það voru sem seldu íslenska þjóð í ánauð. Það var Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna sem í skjóli nætur undirritaði samninga um Icesave en hann gerði það í umboði íslensku ríkisstjórnarinnar sem beitir núna ennþá verri vinnubrögðum en sú óhæfa sem hraktist frá völdum. Sitjandi ríkisstjórn er óhæf í öðru veldi.
Hér eru myndir af fólkinu:
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra | Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra | ||
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra | Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra | ||
Kristján L. Möller,
| Katrín Jakobsdóttir, | ||
Ragna Árnadóttir, | Gylfi Magnússon, | ||
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
| Jón Bjarnason, | ||
Árni Páll Árnason, | Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra |
Icesave-samningur gerður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2009 | 09:54
Vanhæf stjórnvöld II. Pukur og myrkraverk
Hversu oft höfum við ekki heyrt vanhæf stjórnvöld eftir Hrunið lýsa yfir hve mikilvægt sé að upplýsa allt og rannsaka allt. En bara ekki strax. Ekki fyrr en búið er að skuldbinda okkur fyrir 630.000.000.000 krónum með 5.5 % vöxtum. Núna horfum við almenningur á Íslandi upp á ríkisstjórn sem blygðast sín ekki fyrir að veðsetja Íslendinga fyrir 630.000.000.000 krónur með 5.5 % vöxtum án þess að almenningur fái nokkrar upplýsingar um hvað er að ræða og hvers vegna þessi kostur er valinn og hvaða aðrir kostir eru í stöðunni og hvers vegna við almenningur á Íslandi eigum eða verðum að bera ábyrgð á netbanka sem vann fyrir breska viðskiptavini. Við vissum ekkert af þessum banka fyrr en skuldir hans voru orðnar okkar skuldir, við héldum að bankakerfið væri einkavætt, við vissum ekki að sú einkavæðing væri þannig að fjárglæframenn gætu búið til sýndarpeninga og féflett banka og fjármálastofnanir og alþjóðlegt eftirlitskerfi og fjármálakerfi sem og íslenskt eftirlit væri ekki annað en skrípaleikur. Breska leynilögreglan Scotland Yard var einn þeirra aðila sem töpuðu í Icesave og það eru innlán slíkra aðila sem við eigum núna almenningur á Íslandi að ábyrgjast. Hvað var breska fjármálaeftirlitið að hugsa, hvað væru alþjóðlegar matsstofnanir að hugsa sem gáfu íslenskum aðilum allt of háar einkunnir?Hvað voru aðilar eins og Scotland Yard að hugsa með að setja peninga inn í slíka netbanka?
Og hvað er ríkisstjórnin núna að hugsa að ætla að kúska sig undir nauðasamninga þar sem aðilar eru ekki ríki sem ákveða að láta dómstóla leysa ágreining heldur lúffa í villtu fjármálastríði þar sem hinn sterki beitir hryðjuverkalögum á hinn veikari og þetta eru kallaðir samningar. Þetta eru ekki nauðasamingar. Þetta er þvingun.
Þessi ríkisstjórn sem núna situr ætlar að keyra í gegn svona þvingun í sams konar stjórnsýsla og sú ríkisstjórn beitti sem kóaði með fjárglæframönnum og fullvissaði lánardrottna og almenning um að hér væri allt í stakasta lagi en keyrði svo í dauðans ofboði gegn neyðarlög og tók yfir banka í ótrúlega illa undirbúnum aðgerðum þrátt fyrir að hún hefði vitað vel að bankarnir stefndu í þrot mörgum misserum eða mörgum árum áður en að því kom. það kom enda í ljós að sú vanhæfa ríkisstjórn stóð fyrir vanhugsuðum gjörningum og rétt eftir setningu neyðarlaganna upplifðum við einn mesta hrylling Hrunsins þegar bresk stjórnvöld settu Íslendinga undir hryðjuverkalög. Þetta var ekki bara íslenskur hryllingur, þetta var hryllingur heimsins og birtingarmynd þess hvernig stjórnvöld sem smán saman molnar undir og fjarlægjast þegna sína(hér er ég að tala um þau bresku) bregðast við aðstæðum með að byggja upp lögregluríki þar sem barátta við hryðjuverk er notuð sem skálkaskjól og yfirhylming til að geta gengið á svig við lýðræðislegar reglur sem erum blekkt til að trúa að gildi í samskiptum þjóðfélagsþegna og þjóða við stjórnvöld. Íslenska ríkisstjórnin hélt að það væri hægt að vísa máli sem ágreiningur væri um til dómstóla, máli sem varðandi innistæðutryggingarsjóð. En fjármálakerfi Evrópu stendur á þvílíkum brauðfótum að slík málaferli "myndu setja allt í uppnám" og Evrópuþjóðir sameinast um að standa á móti því að lýðræðislegar leikreglur gildi um hvernig ágreiningur er útkjáður og AGS er eitt verkfæri voldugustu þjóða heimsins til að viðhalda blekkingunni, blekkingunni um að eitthvað kerfi virki sem hefur alveg hrunið, blekkingunni um að þetta sé bara spurning um að endurbyggja og tjasta í það kerfi sem sprakk, blekkingu sem er reyndar sú blekking sem ríkisstjórnir Evrópu sækja vald sitt í. Ef þeirri blekkingarhulu væri aflétt þá vita ríkisstjórnir að þær standa berar fyrir og valdalausar og úrræðalausar og það sem þær kalla skjaldborgir utan um þegna sína eru ekki annað en fúlnaðar virkisgrafir sem einangra og læsa inni fólk á stöðum þar sem ekkert rennsli er og þar sem ekkert getur vaxið vegna stöðnunar, kyrrstöðu, hafta og skrifræðis.
Það er mjög, mjög undarlegt að þurfa á hlusta á umræður eins og í Kastljósi í gærkvöldi, umræður þar sem jafnvel stjórnarandstæðingar geta ekki tjáð sig um Icesave af því þeir eru "bundnir trúnaði" og heyra fulltrúa ríkisstjórnarinnar (Álfheiði) tala um hvað allt ætti að vera upp á borðum, bara ekki strax.
Það er líka stórundarlegt að heyra talað um lán sem ríkisstjórn Íslands ætlar að taka upp á 630.000.000.000 krónur með 5.5 % vöxtum, lán sem virðist eiga að þröngva upp á Íslendinga með aðstoð hryðjuverkalaga og með því að virða engar leikreglur, lán sem Bretar veita til að breiða yfir sína eigin óhæfu fjármálastjórn, lán sem ég veit ekki til að ríkisstjórn Íslands hafi nokkurn tíma beðið um, heldur lán sem stendur til að þröngva upp á Íslendinga án þess að við almenningur á Íslandi fáum nokkuð að segja um hvort við samþykkjum að ríkisstjórnin selji okkur og afkomendur okkar í ánauð.
Þetta er ótrúleg vanvirðing við íslenskan almenning að ætla að koma í gegn svona gjörningum án þess að við fáum að vita hvað er um að ræða, hvaða valkostir eru og hver málsatvik eru. Það er tala um eitthvað lán sem ekki þarf að borga af í sjö ár og svo er einhver vaðall um "Á meðan ekki þarf að greiða af láninu gefst skilanefndinni ráðrúm til að hámarka virði eigna Landsbankans eða semja um endurfjármögnun". Hvaða rugl er þetta? Við vitum ekkert um eignir Landsbankans eða hverjir eiga kröfur á þær eignir. Í þessu orðalagi er látið eins og íslenska ríkið muni einhvern tíma fá eitthvað út úr eignum Landsbankans. Svo getur ekki verið. Það eru kröfuhafar bankanna sem munu fá það sem kemur út úr þeim eignum og þær eignir munu óhjákvæmilega rýrna vegna þess að það verður að afskrifa og niðurskrifa skuldir. Íslenska ríkið mun ekki fá neitt út úr eignum Landsbankans til að greiða þetta Icesave rugl. Það er alveg óþarfi að blekkja íslenskan almenning með því.
Er það sem við héldum eini sinni að væri stóra brotlending Íslands ekki annað en ókyrrð í lofti, er verið að fresta brotlendingunni um sjö ár og binda okkur ekki í sætisólar heldur hengingarólar, fórum við úr hinni vanhæfu ríkisstjórn sem sagði bara "Guð blessi Ísland" inn í ríkisstjórn sem segin núna "Guð klessi Ísland", ríkisstjórn sem flýgur aflvana vél beint inn í brotlendingu.
Það sem er svo allra, allra furðulegast og gerir mig alveg gáttaða á hvers konar stjórnsýsla er núna í landinu er að ríkisstjórn Íslands skuli svínbeygja undir hryðjuverkalagaógn Bretlands og á sama tíma og í fréttum kemur að sá sem þröngvar upp á okkur láni sem enginn bað um og okkur er sagt að sé "afborgunarlaust í sjö ár" þá geti lánveitandi sem setti Íslendinga undir hryðjuverkalög ákveðið að við byrjum strax að borga upp lánið. Þetta er með öllu óskiljanlegt:
Samkvæmt upplýsingum blaðsins mun höfuðstóll lánsins lækka mjög fljótlega eftir að samkomulag liggur fyrir. Skýringin er sú að hluti 300 milljóna punda á reikningi Landsbankans hjá Englandsbanka verður nýttur til að greiða lánið niður.
Lán sem strax er byrjað að borga af er ekki afborganalaust. Málið háttar þannig að Bretland er fjármálamiðstöð hins vestræna heims. þar eru peningar banka væntanlega oft geymdir. Þar er gullforði Íslendinga geymdur. Ástæðan er sú að Bretlandi er treyst. Í viðskiptum er aðalatriðið traust. En hversu vel er hægt að treysta ríki sem leysir ágreiningsmál út af fjármálum með því að setja ríki undir hryðjuverkalög og neitar að útkjá ágreiningsmál fyrir dómstólum?
Bresk stjórnvöld eru vanhæf og það molnar svo hratt undan fjármálaveldi Breta að það er varla neitt orðið þar eftir nema mylsna. En hin nýja íslenska ríkisstjórn er bullandi vanhæf og notar sams konar óhæfuaðferðir við stjórnsýslu og sú sem hrökklaðist frá völdum í janúar.
Hvers vegna heldur ríkisstjórnin áfram að blekkja okkur? Hvernig má það vera að íslenska ríkisstjórnin ætli núna að breyta sér í verkfæri fyrir bresku ríkisstjórnina og ösla í þrotabú bankanna og taka þar úr 300 milljónir punda til að greiða breskum stjórnvöldum - fé sem bresk stjórnvöld kyrrsettu með hryðjuverkalögum.
Hvaða miskabætur ætla bresk stjórnvöld að borga Íslendingum fyrir þann hroðalega skaða sem þau ullu íslenskum almenningi og Íslendingum með beitingu hryðjuverkalaga?
Gengið frá samkomulaginu í gærkvöldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.6.2009 | 23:46
Blóðbað í Perú
Það er ekki mikið að marka fréttir frá opinberum fréttastofum af svona ástandi eins núna er í Perú. Hérna er blogg sem segir frá því sem þar er að gerast
Þar segir:
Indigenous peoples in Peru are in strike for the last 52 days protesting against free trade policies that would allow multinationals to take over their territories. This attack occurred around 5:00 AM this morning, a day after the Congress of Peru decided not to debate one of the most important decrees that allow the sale of Indigenous land. The number of casualities is according to a Twetter sent by a Peruvian journalist who is in the area of Bagua, a city located in the Amazonas region of Peru.
Mannskæð átök í Perú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2009 | 19:02
Haldið áfram að blekkja almenning
Það er átakanlegt að hlusta á nýársávarp Geirs Haarde um áramótin 2008, áramótin fyrir hrunið. Hann talaði þar um sterka stöðu skuldlauss ríkissjóðs og lagði áherslu á auðlegð þjóðarinnar. Svo bað hann Guð að blessa Ísland og hvarf sjálfur af vettvangi. En mér sýnist ekki mikið hafa breyst, það eru komnir við stjórnvölinn menn af sama sauðarhúsi, menn sem viðhalda sams konar blekkingarleik. Í staðinn fyrir að taka á vandamálinu og gera haldhöfum skuldakrafna grein fyrir stöðunni og fara fram á niðurfellingu krafna eða mál fyrir dómsstólum þá svínbeygja íslensk stjórnvöld sig undir þá skipan sem Gordon Brown og ráðherra hans Darling vildu hafa. Það er nú reyndar tímaspursmál hvort þeir menn verða við stjórnvöl í sínum ríkjum þegar gengið verður til Icesave samninga.
En blekkingarleikur stjórnvalda vegna Icesave er mikill. Málið er sett fram eins og þetta sé einhver díll fyrir Íslendinga að fá að selja sig og afkomendur sína í ánauð.
Ríkisstjórn Íslands heitir núna Vinstri-græn-Samfylkingarrauð en það er alveg ljóst hverjum þessi ríkisstjórn er að þjóna og hverra erinda hún gengur. Það er ekki erinda íslensks almennings eða almennings í öllum löndum, fólks sem núna er að flosna upp og missa alla afkomumöguleika. Ríkisstjórn Íslands stendur með fjármagnseigendum, ríkisstjórn Íslands stendur á móti fólkinu í landinu.
Ríkisstjórn Íslands er að selja okkur undir óhemjuháar stríðsskaðabætur út af stríði sem við vissum aldrei að við værum í sem þjóð. Stríðið sem háð er í heiminum í dag er fjármálastríð, það er reynt að fella heilu samfélögin með því að læsa þau inn í myrkviði fjármálafrumskóga sem enginn botnar neitt í nema þeir sem hafa girt skóginn af og grafið undirgöng fyrir sjálfa sig til að ferðast um. Núna hefur verið kveikt í þessum fjármálafrumskógi og hann stendur ennþá í ljósum logum eins og helvíti á jörðu. Samt lætur ríkisstjórn Íslands eins og þær leikreglur sem myrkviðahöfðingjarnir unnu eftir og bjuggu til séu þær leikreglur sem eigi að gilda eftir sem áður.
Við viljum öðruvísi og réttlátara samfélag, samfélag þar sem einhver fjármálafrumskógur sem vex yfir landamæri margra ríkja getur ekki svipt okkur frelsi og lífsafkomu á örskotsstundu.
Breska ríkisstjórnin horfir til langs tíma og hungrar í orku og auðlindir sem Ísland hefur yfirráðarrétt á. Það er ekki mikil áhætta að semja um lán með ríkisábyrgð Íslendinga og það er mikill aflsmunur milli þessara þjóða. Það er ömurlegt hvað hin vanhæfa íslenska ríkisstjórn hafði lítið í spindoktora Gordons Browns og ekki hefur hin nýja ríkisstjórn meiri burði. Það mátti samt ekki á milli sjá hvor var vanhæfari, sú hin íslenska sem hrundi í janúar eða sú breska sem nú er að liðast í sundur.
Það eru þannig aðstæður í heiminum í dag að það er sjálfsagt að kasta til hliðar öllum þeim kerfum sem komu okkur á hliðina og þar með talið að virða ekki þær skyldur að borga skuldir og semja upp á nýtt um skuldir og fjárhagsskuldbindingar. Það eru þannig aðstæður að það er betra að stokka upp hin fjármálalegu spil og gefa upp á nýtt heldur en að búa til þannig þjóðfélagsaðstæður að þar muni geysa linnulaust stríð milli stjórnvalda og almennings og milli hópa innbyrðis og fólk flosni upp og lendi á vergangi. Það er þannig að margt fólk á Íslandi getur ekki borgað þær skuldir sem skyndilega hafa fallið á það. Ríkissjóður Íslands getur heldur ekki borgað þær skuldir sem á hann hafa fallið samkvæmt einhverjum samningum sem segja að netbanki í Bretlandi sem þjónar breskum aðilum sé í íslenskri lögsögu.
Það er bara gálgafrestur að borga ekkert núna, það er þýlyndi við bresk stjórnvöld, þau vilja semja og það eru augljósir hagsmunir þeirra að vilja geta sett einhverjar tölur í reikninga hjá sér, það er engin áhætta fyrir þau að fá ríkisábyrgð frá Íslandi, ábyrgð sem er tryggð í auðlindum Íslands og framtíðarafrakstri lands og þjóðar.
Það er átakanlegt hversu litaðar fréttir eru af því hvernig staðið er að þessum samningum, samningum sem eru ekki neinir venjulegir samningar heldur nauðasamningar milli smáríkis og ríkis sem er herveldi sem beitti hryðjuverkalögum.
"Skuldabréf sem Landsbankinn mun koma til með að gefa út vegna Icesave-reikninganna kemur til með bera 5,5% vexti. Lánið er til fimmtán ára og ekkert þarf að greiða af því næstu sjö árin. Miðað við vextina kemur lánið til með að hækka um 37,4 milljarða króna árlega, sé miðað við núverandi gengi. Höfuðstóll lánsins er 680 milljarðar króna.
Um er að ræða skuldabréf með ríkisábyrgð. Á þessum sjö árum sem ekki þarf að greiða af höfuðstól skuldabréfsins verður reynt að selja eignir Landsbankans upp í skuldina."
Á tímum eins og þessum þar sem stjórnvöld eru vanmáttug og vanhæf er raunar aðeins ein leið fyrir almenning. það er að grípa til sinna ráða og bindast samtökum og reyna að keyra í gegn breytingar. Við þurfum líka að átta okkur á því að almenningur í öðrum löndum glímir við sama vanda, þar eru stjórnvöld alls staðar að ganga erinda markaðarins, að reyna að byggja upp að nýju kerfi sem hrundi af því það virkar bara ekki lengur. Það þarf nýtt kerfi og það ætti að byggja á samvinnu ekki samkeppni.
Hækkar um 37 milljarða árlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.6.2009 | 18:36
Steingrímur hefur ekki mitt umboð
Steingrímur hefur mitt umboð og allan minn stuðning til að stöðva hvalveiðar. Hann hefur líka fullt umboð mitt til að í alþjóðlegum samningum að reyna að fá sem mest af losunarheimildum til Íslands, það er arfavitlaust annað en berjast fyrir að fá sem mest af svoleiðis heimildum, þetta eru verðmæti sem við getum breytt í peninga.
En Steingrímur hefur ekki mitt umboð til að selja Íslendinga í ánauð skulda. Steingrímur hefur ekki umboð til semja um lán að upphæð 650.000.000.000 með ríkisábyrgð og ofurvöxtum. Hvernig stendur á því að fráfarandi ríkisstjórn (sem reyndar myndaði lungann úr núverandi ríkisstjórn) yfirtók bankakerfið og flýtti sér ofboðslega að greiða öllum sem áttu peninga inn í íslenskum peningamarkaðssjóðum nánast allt sitt, meira segja fólki sem setti peninga í sjóði sem eru ekki venjulegir innlánsreikninga, hvernig stendur á að þessi ríkisstjórn sem er svona annt um fjármagnseigendur á Íslandi skuli eingöngu hugsa um þá sem áttu peninga í kreppunni en selja venjulega borgara á Íslandi í ánauð? Hvernig eigum við að geta borgað þessar skuldir? Þetta er gríðarleg áhætta og þetta er hengingarsnara um hálsinn á íslensku þjóðinni.
Steingrímur fær fullt umboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |