Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
4.9.2007 | 16:09
Jesúsbrandari Símans er þaulhugsuð auglýsing
Auglýsingaherferð Símans eru hönnuð af atvinnumönnum sem væntanlega fylgjast vel með hvaða viðbrögð auglýsingar vekja og hafa vakið hérlendis og erlendis. Auglýsing sem nær að skapa umtal og fangar athygli almennings svo mikið að það sé talað um hana hittir í mark. Það er sennilega ekki markmið auglýsenda að vekja andúð stórra og valdamikilla hópa en sumar auglýsingar m.a. auglýsingar sem beint er til ungs fólks eða karlmanna eru þannig að það er óbeint eða beint verið að gera lítið úr öðrum t.d. eldra fólki með hefðbundin lífsgildi og konum. Þannig er það markmið auglýsandans að hitta betur í mark hjá viðtakendum beinlínis með því að gera lítið úr öðrum.
Auglýsingar og markaðssetning af þessum toga er t.d. súkkulaðið Yorkie frá stórfyrirtækinu Nestle, hér er mynd af hvernig það er markaðsett, það er sérstaklega tekið fram að þetta sé ekki vara fyrir stelpur og margt í markaðssetningu gengur beinlínis út á að móðga stelpur og höfða þannig til unglingspilta sem finna til vanmáttar síns í heimi þar sem karlmennskugildi gærdagsins eru ekki mikils virði lengur.
Það er alveg sams konar markaðssetning í jesúauglýsingu Símans, hún endurspeglar það viðhorf að allt í lagi sé að grínast með trúna því auglýsingunni er ekki beint að trúuðu fólki heldur að fólki sem sækist eftir tækninýjungum í símtækjum og vestrænu fólki sem er ekki sátt við hvernig strangtrúarmúslimar hafa ibbað sig út úr margs konar teikningum af spámanninum Múhammeð. Þessi auglýsing frá Símanum er einmitt spuni í kringum það, hún segir "Sjáðu, ég þori alveg að gera grín af Jesú, ég er enginn strangtrúarmúslími, ég er frjálslyndur Vesturlandamaður sem notar nýjustu samskiptatækni".
Þessi auglýsing talar til viðtakenda með því að gera lítið úr strangtrúar- og bókstafstrúarfólki. Sennilega hefði svona auglýsing aldrei komið frá Símanum nema bara út af því sem undan hefur gengið varðandi þessi skopmyndateiknaramál af Múhammeð.
Auglýsingin segir: "Við erum ekki eins og þeir sem við óttumst mest, við erum ekki brjálaður og blóðþyrstur skríll sem vill drepa þá sem gera grín af spámanninum, nei við erum frjálslyndir og nútímalegir í stuði með Guði og gerum grín að okkar spámanni Jesú".
Þessi auglýsing stuðar mig ekki nema að því leyti að hún kemur frá stóru fyrirtæki sem þjónustar allt landið og alla landsmenn. Samt vogar það fyrirtæki sér að móðga og særa að vísvitandi ákveðinn hluta landsmanna. Svona auglýsing myndi aldrei hafa komið frá Símanum meðan það var ríkisfyrirtæki. Núna er þetta einkafyrirtæki sem vílar ekki fyrir sér að móðga suma til að selja öðrum.
En lifi tjáningarfrelsið og megi fólk um allan heim gera grín að því sem það vill. Hins vegar ættum við sem sjáum eitthvað athugavert við grínið og lesum milli línanna að láta í okkur heyra og mótmæla harðlega ef okkur finnst auglýsingarnar siðlausar. Við verðum samt að passa okkur að mótmæla ekki á þann hátt að við auglýsum upp vöruna sem sá sem er með siðlausa auglýsingu er að falbjóða.
Hér er umræða um sams konar auglýsingu sem olli styrr í Noregi. Þar var m.a. skrípó sem auglýsti handáburð fyrir Jesú á krossinum. Vonandi verður ástandið ekki svona hjá okkur í framtíðinni!
![]() |
Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.9.2007 kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
1.9.2007 | 22:37
Mannréttindi og tjáningarfrelsi í Kína
Kinversk stjórnvöld skemmta okkur í dag með sætu netlöggunum sínum (sjá þessa grein í Washington Post) og þessa umfjöllun á Global Voices
Þetta eru miklu sætari myndir en sænska myndin af Múhammed spámanni sem líka er í pressunni í dag.
Þetta er samt engin barnaleikur hjá kínverskum stjórnvöldum né heldur stjórnvöldum annars staðar í heiminum sem reyna að hefta tjáningarfrelsi okkar og athafnafrelsi í Netheimum og nota oft sem átyllu að þar sé siðspillandi efni og lagt á ráðin um hryðjuverk.
Það er mikilvægt að við setjum siðferðisreglur um Internetið og komum okkur saman um umgengisreglur í þessum nýja heimi en það er líka mikilvægt að við séum á varðbergi gegn kyrkingargreipum öflugs ríkisvalds eða fjölþjóðlegra fyrirtækja sem vilja ráða orðræðu okkar og hvað við megum sjá og og lesa og hvað ekki.
Ég bendi fólk á að fylgjast með Global Voices, það er grasrótarsamtök og vefur sem margir bloggarar og fjölmiðlafólk stendur að og þar er fylgst með hvernig kreppt er að tjáningarfrelsinu víða um heim. Ég vek athygli á því að núna nýverið hafa stjórnvöld í Tyrklandi lokað á bloggsvæðið wordpress.com og segir bloggari þetta um hve hættulegt er að einhver einn aðili hafi einokunaraðstöðu varðandi fjarskipti til landsins.
Turkey has banned WordPress, the blogging platform. This is not a move without precedent; the popular definitions site ekşisözlük and, more famously, YouTube have both been blocked in the past. Turk Telekoms virtual monopoly on internet access in Turkey makes a ban an easy thing to enforce. There is, after all, just the one service provider to submit a court order to.
Reyndar geta sniðugir tyrkneskir bloggarar alveg komist framhjá þessari hallærislegu lokun, það hafa bloggarar gert lengi þegar Kína lokar á blogger.com sem hefur iðulega komð fyrir. Það er bara að láta eitthvað annað bloggsvæði taka rss strauminn frá wordpress eða blogger blogginu (svipað og ég geri með salvor.tumblr.com sem tekur strauminn frá moggablogginu mínu. Þannig að ef fjarskiptafyrirtækin einhvers staðar í útlöndum lokuðu á moggabloggið þá býð ég upp á varaleið
Svo virkar opna hugbúnaðarsamfélagið alveg stórvel til að takast á við svona lokanir. Núna er t.d. komið sérstakt Firefox plögg til að komast framhjá síu á myndum frá myndasvæðinu Flickr. Flickr er af einhverjum undarlegum ástæðum á bannlista hjá kínverskum og arabískum stjórnvöldum.
Annað jafnmikilvægt mál og vera á varðbergi gagnvart svona höftum er að vera á varðbergi fyrir leitarvélum sem finna bara það sem stjórnandi leitarvélarinnar vill. Þannig hafa stjórnvöld í Kína engan skilning á leitarrútínum sem Google er með hér á Vesturlöndum og heimta að óþægilegir hlutir finnist ekki í leit. Eftir því sem ég best veit þá er Google fyrirtækið afar leiðitamt kínverskum stjórnvöldum. Það hefur líka vaknað grunur um að Google finni frekar þær vefsíður sem kaupa google auglýsingar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2007 | 13:24
Mannréttindi og tjáningarfrelsi í Vestfjarðagöngum
Vestfjarðagöngin eru til margs nýtileg annars en spæna þar í gegn á bílum. Nú ætla Vestfirðingar að tappa af þeim vatni og selja í íslenskri útrás. Ég hef sjálf notað Vestfjarðagöngin til óvenjulegra hluta, ég var þar með fámenna ... já og lítið áberandi... tja eiginlega reyndar ósýnilega... mótmælastöðu fyrir nokkrum árum. Ég stóð inn í miðjum göngunum þar sem þau greinast inn í leiðina til Súgandafjarðar og Flateyrar. Ég stóð þar ásamt dóttur minni dágóða stund með mótmælaspjöld þar sem á stóðu slagorð eins og "Frá Tíbet til Tálknafjarðar - Mannréttindi alls staðar" og þetta var í tilefni þess að einmitt á sömu stundu þá tók forsætisráðherra okkar á móti varaforseta Kína en áður höfðu Falun Gong liðar fjölmennt til landsins og reynt að hafa hér uppi einhver mótmæli en því var víst kínverski höfðinginn óvanur og tók því illa og var þrengt að mótmælendum alls staðar. Þeir skreyttu bæinn í gulum búningum og iðkuðu leikfimi. Íslensk stjórnvöld kölluðu erlendu mótmælendurna "ýtið fólk".
Mér fannst á þessum tíma mikilvægt að taka undir málstað tjáningarfrelsisins og mannréttinda þó enga hefði ég áheyrendur nema hulda vætti landsins, ég mótmælti víða þennan dag í víðáttu Vestfjarða, ég hélt mótmælaspjöldum og áróðursspjöldum fyrir tjáningarfrelsi og mannréttindum á lofti í fjöllunum fyrir ofan Botn í Súgandafirði, í þorpinu á Suðureyri, í Bolungarvík og á leiðinni upp á Breiðadalsheiði. Það er alls ekki þörf á því að hafa neina áhorfendur að mótmælum og svona gjörningum og mér fannst nú bara kynngimagnað að hrópa slagorð á fjöllum og inn í miðju fjalli, það er eins og að fremja galdur.
Ég er ánægð með þessi mótmæli og allt í lagi þó þau hafi verið ósýnileg og farið fram hjá flestum ... öllum.
Bloggarinn sem flytur fréttir frá sínu landi orðar svona ósýnileika vel í þessu bloggi:
"Í dag er ár síðan ég hafnaði orðinu blogg og hætti að nota það um eigin netskrif. Fór þessi uppreisn framhjá flestum en ég tel það ekki endilega rýra gildi uppreisna að vera ósýnilegar. "
Þetta finnst mér mikil speki hjá bloggaranum sem reis upp frá dauðum og dvelur nú í sínu landi.
![]() |
Ætla að flytja út vatn úr Vestfjarðagöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.8.2007 | 20:29
Minn gamli skóli býður grunnskólanemum fjarnám í framhaldsskóla
Það er frábært að lesa fréttina af því að Fjölbrautaskólinn í Ármúla bjóði grunnskólanemendum fjarnám og borgin styrki þetta. Ég hef fylgst með þessu undanfarin ár, það hafa verið gerðar tilraunir og það hefur gengið vel. Duglegir og áhugasamir grunnskólanemendur geta þannig flýtt fyrir sér í námi í framhaldsskóla, þeir hafa nóg fyrir stafni af námsviðfangsefnum sem hæfa þeim, þeir stíga fyrstu skref sín inn í framhaldsskóla án þess að vera alveg komin úr grunnskólanum og síðast en ekki síst þá býr þessi tegund af námi þá betur undir framtíðina - þá framtíð þegar vinnustaðir þeirra og ýmis konar samskipti verða í netheimum og það er bara gott að þeir læri sem fyrst að nota stafræn verkfæri.
Ég var framhaldskólakennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fyrstu árin eftir að ég lauk háskólanámi. Þá voru fyrstu tölvurnar að koma í skólann og var ég tölvukennari. Ég skrifaði þetta í reynslusögu um fyrstu skrefin mín sem kennari á tölvur:
Að loknu háskólanámi gerðist ég tölvukennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla en þá höfðu verið keyptar tölvur í fyrsta skipti til skólans og skyldi ég m.a. kenna tölvubókhald. Fyrsta misserið gekk brösuglega, tölvukerfið hrundi oft í hverjum tíma eða tölvurnar frusu. Skrýtnast þótti mér þó þegar það kom í ljós að tölvubókhaldið var bara hægt að vinna á einni tölvu í einu en búnaðurinn var í fyrstu bara fjórir samtengdir skjáir og nemendur mörgum sinnum fleiri. Tölvusalinn reyndi að sannfæra mig um gildi þeirrar kennsluaðferðar að láta einn nemanda færa bókhald í tölvu og alla hina sitja þrjá til fjóra við hvern skjá og fylgjast aðgerðalausir með bókhaldsfærslum renna um skjáina. Ég lét ekki sannfærast og lagði tölvubókhaldskerfið snarlega á hilluna. Svo komu betri tölvur til skólans og ég byrjaði að kenna á notendaforrit eins og ritvinnslu og töflureikna.
Fyrir utan þessa fyrstu önn þar sem allt gekk á afturfótum, tölvurnar virkuðu bara ekki og svo dauðleiddist nemendunum að vera bara að horfa á bókhaldsfærslur líða um skjáina þá gekk kennslan bara vel og mér hefur alltaf fundist skemmtilegt og gefandi að kynna nýja tækni, ný vinnubrögð og nýjar hugmyndir fyrir nemendum. Sérstaklega eru nemendur á framhaldsskólaaldri móttækilegir og jákvæðir, sennilega af því flestir krakkar á þessum aldri eru ekki með stífar fyrirfram mótaðar skoðanir á hvað sé praktískt og þau trúa líka gífurlega mikið á mátt sinn og megin.
Reyndar finnst mér skipulag á fjarnámi á Íslandi í dag vera afar hefðbundið, það er eins og þessi klassíska skólastofa hafi flust inn í netheima, þessi umgjörð utan um skólastarf sem er þannig að skólastofan er lokuð bygging og flæðið er ekki mikið frá heiminum í kring.
Það kerfi sem flestir nota - ég sem ég nota reyndar sjálf með nemendum mínum á þessari önn - er kerfið Web CT. Það er afar hefðbundin nálgun á fjarkennslu og fjarnámi. Ef til vill fellur kennurum og nemendum vel að vinna í því kerfi einmitt af því að það er svo líkt öðru skólanámi. En þó breytingar gerist hægt þá verður við að reyna að hugsa aðeins út fyrir verkfærin og spá í hvernig verkfærin, umgjörðin og byggingarnar móta skipulag stofnunar og vinnulag þar.
Ef öll borð og stólar nemenda eru boltuð niður í stórum fyrirlestrasölum og kennarinn getur hvergi verið nema fyrir framan hóp af nemendum sem allir horfa á kennarann og það er flott og fullkomið hátalarakerfi í pontu og skjávarpi með powerpointglærum og tvö hundruð nemendur í einu í kennslustundum þá er næstum öruggt hvernig kennarinn mun skipuleggja kennslustundir og námsreynslu nemenda, hann hefur ekki mikið val.
Á sama hátt verðum við að skilja að námsumhverfi á Internetinu getur líka verið fjötrandi og hvatt til einnar gerðar af kennslu, gerðar sem er kannski ekki sú albesta. Fjarkennsluumhverfin Web CT, Moodle og Blackboard eru öll alveg ágæt en þau endurspegla afar hefðbundna sín á hvernig nám á að fara fram. Ég hef reynt að tala fyrir því að nám sé byggt upp í kringum nemandann og m.a. reynt að tengja það hugmyndum um leiðarbækur og skilamöppur þar sem nemandinn skrásetur sjálfur sína þekkingarleit og byggir upp þekkingarnet, ekki einn og sér heldur í samvinnu við aðra, námssamfélagið sé eins og starfendafélag (communitiy of practice).
Til að það sé hægt að byggja upp slíkt námsumhverfi þá þurfa kerfi eins og web ct að þróast og bjóða upp á fjölbreytari námsreynslu og þekkingaruppbyggingu og taka meira mið af nemandanum. Eins og er þá þjóna þessi kerfi ágætlega kennurum sem vilja setja inn skjöl og glærur og verkefni og skrásetja árangur stórra nemendahópa. En þessi kerfi eru öll að þróast og verða aðgengilegri og ég er ekki í neinum vafa um að Moodle og fleiri kerfi sem er opinn hugbúnaður hefur pínt áfram framþróun í þessum kennslukerfum, þessi rándýru kerfi verða að hafa eitthvað fram að færa ef fólk vill nota þau frekar en alíslenskuð ókeypis og góð kennslukerfi sem skrifuð eru í samvinnu við kennara og kennslufræðinga og sem eru í stöðugri þróun.
![]() |
Grunnskólanemum býðst ókeypis fjarnám í framhaldsskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.8.2007 | 17:51
Á Mogginn að ráða hvað má tala um?
Fjölmiðlar ganga alltaf erinda eigenda sinna. Það er bara blekking þegar fjölmiðlamenn segja að eigendurnir hafi engin áhrif, stundum held ég að þeir trúi því sjálfir, þetta sé einhvers konar sjálfdáleiðsla sem fjölmiðlamenn stunda til að finnast þeir ráða meiru en þeir raunverulega gera. Það getur verið að svona dags daglega þá telji eigendur sig ekki þurfa að skipta sér af rekstrinum og stundum er það þeim ágætlega í hag leyfa smásprikl blaðamanna til að skapa og viðhalda þeirri ímynd að fjölmiðillinn sé óháður og frjáls og þeim ekki undirgefinn á neinn hátt.
Það gildir það sama um umræðuvettvanga á Netinu. Sá sem á vettvanginn og getur stjórnað boðleiðunum hann getur líka stjórnað umræðunni. Þannig hefur mogginn og moggabloggið verið að þróa ýmsar aðferðir til að lyfta upp umræðuefnum og lyfta um ákveðnum bloggurum. Það tryggir bloggara afar mikla lesningu að vera lyft til skýjanna á Moggablogginu, sérstaklega að vera settur í sviðsljósið á forsíðu mbl.is.
Akkúrat í augnablikinu er kastljósið á kynlífssögur sjónvarpsþulunnar og frásögn af æðisgenginni leit Bjarna Harðarssonar að Framsóknarmönnum, leit sem núna stendur í fjallahéruðum í Perú. Reyndar er það alveg óþarfi, íslenskir Framsóknarmenn eru ekki allir lagstir út og týndir og tröllum gefnir, þeir skila sér af fjöllum í hefðbundna smalamennsku þegar féð rennur til byggða með haustinu.
Svo getur maður séð hvaða umræður eru heitar þ.e. með flestum athugasemdum. Ég tók stöðuna á því núna og það er heitast að taka um kynlíf eldri borgara, þvagleggjarmál og nauðgunarlyf og jagast yfir hvað bloggarar séu miklir hálfvitar að tala um vitlausa hluti.
Sniðugir bloggarar hafa náttúrulega lært á moggabloggið og hvernig megi tryggja vinsældir þar með því að enduróma það sem mogginn segir. Mogginn vill nefnilega náttúrulega láta moggabloggara tala sem mest um það sem stendur á mbl.is. Þannig hefur moggabloggið ýtt undir nýja listgrein á bloggi, svona bergmálsblogg sem gengur út á að endurtaka það sem stendur í fréttum mbl.is bara með pínulítið breyttu orðalagi. Ef t.d. Mogginn flytur krassandi frétt eins og í dag Ljót heimkoma fjölskyldu í Garðabæ þá getur bergmálsblogglistamaður bloggar frétt eins og Ófögur heimkoma í Garðabæ. Reyndar er þessi bergmálum bloggsins farin að breiða sig yfir í aðra fjölmiðla og margir búnir að læra kúnstina af Stebbafr, þannig sýnist mér Kastljósið á RÚV vera að verða daufur endurómur af umræðu sem hefur eða er að fjara út á moggablogginu.
Mogginn býður upp á blogg um fréttir og á forsíðunni þá má skoða það sérstaklega hvaða fréttir er bloggað um. En mogginn leyfir ekki að það sé bloggað um allar fréttir. Stundum er slökkt á bloggafréttstakkanum. Sumir eru svo ánægðir með það að þeir blogga hrós til Moggavefsins en það er ég ekki. Það er ákveðin ritstýring auðvitað í því hvaða fréttir mbl.is velur koma fram með og hvenær og hvernig fréttir eru orðaðar. Fréttirnar eru tilbúningur á þeim veruleika sem við búum við, einhvers konar uppteiknun á heimsmyndinni eins og sá sem skrifar fréttina vill sjá hana. Það er óþægilegt að mbl.is gefi sér fyrir fram að ekki megi hleypa bloggurum að einhverjum fréttum.
Ein nýjasta fréttin núna er frétt um faðernismál Lúðvíks Gizurarsonar en yfirgnæfandi likur eru á því að hann sé sonur fyrrum forsætisráðherra Íslands. Um þetta hefur verið fjallað í ótal mörgum blaðagreinum undanfarin ár. En það er áhugavert að mbl.is hefur stillt þessa frétt þannig að ekki er leyft að blogga um hana.
Það er umhugsunarefni hvers vegna mogginn kýs að beina bloggurum frá því að blogga um þessa frétt sem er mjög áhugaverð og hefur skírskotun langt út fyrir þetta einstaka mál.
Eru ef til vill til einhverjar reglur um hvaða fréttir eru bloggfréttstækar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
28.8.2007 | 15:49
Háskólar á fleygiferð
Ég var að sjá í þessari ræðu Einars Guðfinnssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að ákvörðun hefur verið tekin um að landbúnaðarháskólarnir flytjist undir menntamálaráðuneytið. Það er skynsamlegt og vonandi stuðlar það að meiri samvinnu og hugsanlegum samruna síðar meir milli landbúnaðarskóla og annarra háskólaskóla.
Það er mikið að gerast í háskólaumhverfi á Íslandi akkúrat núna og á næstunni.
Heimamenn í öllum landhlutum leggja kapp á að það rísi öflugt háskólasetur á þeirra heimaslóð og Kennaraháskólinn mun formlega sameinast Háskóla Íslands á næsta ári. Núna var verið að taka fyrstu sköflustunguna að nýbyggingasvæði Háskóla Reykjavíkur í Öskjuhlíðinni. Í framtíðinni verður mikil þekkingarnýlenda í Vatnsmýrinni þar sem háskólarnir tveir Háskóli Íslands og Háskóli Reykjavíkur ná yfir heljarmikið flæmi. Svo er verið að setja upp háskólasetur á gamla varnarsvæðinu og akademíu í Keflavík og Biföst hefur vaxið mjög á undanförnum árum.
Skipulagsbreytingarnar á háskólum endurspegla þær samfélagsbreytingar sem núna ganga yfir, uppstokkun á háskólum þar sem þeir sundrast og sameinast á víxl er ekki bundin við Ísland, þetta er þróun sem við sjáum verða alls staðar í nálægum löndum Vesturlanda. Þetta er ennþá ein birtingarmynd þeirra breytingatíma sem við erum að ganga í gegnum þar sem lykillinn að velgengni er þekkingin og sum þekking og færni verður úrelt áður en varði.
Það er gaman að spá í söguna og framtíðina, spá í hvort þessar skipulagsbreytingar á háskólastiginu hafi áhrif í sjálfu sér eða hvort þær eru hluti af óhjákvæmilegri þróun, hvort að vinnubrögðin hafi ekki fyrst breyst og svo sé meira svona formlegt atriði að breyta opinberri formgerð og staðsetningu stofnunar í skipuritinu.
28.8.2007 | 10:04
Tónlistarnám, frístundakort og stafrænt föndur

Það er gott að búa í borg þar sem velmegun er mikil. Það er ennþá betra að búa í borg þar sem skilningur er á að styrkja menntun, menningu og listir. Það er ekkert að því að tónlistarnám sé niðurgreitt fyrir krakka í Reykjavík, það er þess eðlis að það er dýrt nám og það þarf oft að hafa fáa nemendur í hóp eða jafnvel einkatíma. Svoleiðis nám er náttúrulega dýrara en þar sem hægt er að stafla nemendum inn í stórum hópum.
En er þetta sniðugasta og besta og réttlátasta aðferðin til að styrkja börn í Reykjavík til listnáms? Ég held að svo sé ekki.
Í fyrsta lagi þá er listgreinum gert mjög mismunandi undir höfði, þannig fer afar hár styrkur til að styrkja nemendur í tónlistarnám en miklu minni styrkur til að styrkja nemendur í t.d. myndlistarnám. Í öðru lagi þá er sumt af þessu tónlistarnámi mjög "selectivt", það eru ekki nema nokkrir nemendur sem komast í þetta nám og fremur óljóst hvernig staðið er að því að velja inn nemendur. Í þriðja lagi þá kostar það nemendur mikið að vera í þessu námi þó það sé svona mikið niðurgreitt. Þetta þýðir að það eru einmitt foreldrar sem hafa aðstöðu þ.e. rúm fjárráð og áhuga á listum sem hafa mestu möguleikana að koma börnum sínum í svona nám. Það gildir það sama um niðurgreiðslu á menningu hvað varðar nám í tónlistarskólum og t.d. Symphoníuhljómsveit Íslands og Þjóðleikhúsið, það er sennilega verið að niðurgreiða menningu og menningarnám fyrir þann hóp samfélagsins sem er best settur fyrir - það er verið að niðurgreiða elítumenningu fyrir elítuna.
Það eru aðrar aðferðir sem eru réttlátari gagnvart fátækum börnum og foreldrum sem hafa aðrar áherslur en tónlist í uppeldi barna sinna. Þar má nefna frístundakortin sem við Framsóknarmenn höfum á stefnuskrá okkar þ.e. að hvert barn fái upphæð sem foreldrarnir geta valið hvernig þeir nota fyrir frístundanám barna sinna. Mér skilst að þetta sé einmitt núna að komast í gagnið í Reykjavík. Þess má geta að hagfræðingurinn Milton Freedman hafði eimitt þessar hugmyndir í skólamálum. Hann stakk upp á slíkum kortum eða upphæð sem fylgdi barninu en ekki styrkjum til menntastofnana.
Það er skynsamlegt að láta meðgjöf frá opinberum aðilum fylgja börnum en setja hana ekki beint til stofnana m.a. til skólastarfs. Væri hægt að útfæra þetta fyrir meira en frístundir barna? Væri hægt að hugsa sér að hvert barn fengi ákveðna upphæð á hverju ári sem foreldrar gætu ráðstafað til skólahalds og námskostnaðar? Hugsanlega myndu einhverjir foreldrar kjósa að hafa börnin sín í fjarnámi og einhvers konar óhefðbundnu námi s.s. leshringjum eða jafnvel kjósa að mennta sjálfir börnin sín (home schooling) eða hafa þau í skólum þar sem öll kennsla fer fram á ensku? Væri það vont fyrir Reykjavík og Ísland?
Sennilega ekki. Sennilega eru upplýstir foreldrar - amk ef þeir eru ekki of krepptir í að leysa pössunarvandamál fyrir börnin sín - bestu dómararnir í hvað kemur sér best fyrir börnin og það eru þeir sem eru hvað mest á vaktinni fyrir velferð barnanna sinna og vilja tryggja góðan hag þeirra og hamingju í framtíðinni.
Sennilegra munu foreldrar velja fjölbreytilegri svið ef þau hefðu meira val um hvernig kostnaði vegna náms barna þeirra væri varið. Hugsanlega myndu þeir velja annars konar listnám en klassískt tónlistarnám. Hugsanlega myndu einhverjir foreldrar velja einhvers konar stafrænt föndur eða listssköpun með rafrænum miðlum fyrir börnin sín ef þeir fengju að ráða - ég tala nú ekki um ef börnin sjálf hefðu eitthvað að segja um valið.
Myndin með þessu bloggi er af tveimur vestfirskum bóndadætrum þeim Þorsteinu Þöll og Magneu Gná með Gísla Garðar frá Hvanneyri á milli sín. Ég vann þessa mynd í Fotoflexer, það er ennþá ein vefþjónustan sem breytir myndum. Þetta er dæmi um stafrænt föndur sem í dag er forsmáð og lítilsvirt listgrein, já reyndar svo lítilsvirt að sumir brosa kannski þegar einhver sem tekur stafrænar ljósmyndir og vinnur þær áfram tengir það eitthvað við listsköpun.
Ég lít á bloggskrif sem listsköpun og ég lít á stafræna ljósmyndun og stafræna myndvinnslu sem listsköpun. Ég held að þeir sem líta svo á að þeir séu að sinna list blási öðru vísi lífi í verk sín, einhverju sem kemur ekki nema sá sem skapar trúi á list sína.
Járnsmiðurinn Kristján Jóhannsson frá Akureyri með röddina fögru og þróttmiklu sem síðar varð frægur óperusöngvari sagði einu sinni í víðtali, hann var að tala um fyrri konu sínu sem dó ung:
"Hún kenndi mér að líta á mig sem listamann".
![]() |
Borgin greiðir 274 þúsund með hverjum tónlistarnema |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.8.2007 | 17:12
8 strákar og 5 stelpur
Fyrir hvað er borgin Lianyungang í Kína fræg í dag... eða öllu heldur illræmdust allra borga í heiminum?
Þetta virðist nútímaleg borg sem ætlar sér að verða vinsæll alþjóðleg baðstrandarborg sem trekkir að túrista og fjármagn eins og segir í þessum texta:
Lianyungang is one of the first 14 coastal cities opening to the outside world, a perfect city for investment environment, one of ten port cities in China, a communication hub, an excellent tourist city in China and one of three trade centers in Jiangsu Province. Lianyungang has predominant location and enormous development potential, aiming to become an international seashore city, modern harbor city and a famous tourist city with mountains and sea gathering around.
En myrku hliðarnar á borginni eru ekki þessar háleitu fyrirætlanir heldur er það tölfræðin. Það er eitthvað í meira lagi skrýtið þarna, hvergi nokkurs staðar er kynjahlutfallið ömurlega. Af börnum undir fjögurra ára aldri þá eru 163.5 strákar og 100 stelpur.
Sjá nánar greinina China to act on gender inbalance og greinina China warned on gender imbalance
Þetta er sterk vísbending um að meyfóstum sé eytt í milljóna tali og stúlkubörn séu myrt. Þetta er dæmi um hryllilega útrýmingarherferð á fólki á grundvelli kynferðis. Það er furðulegt hve litla eftirtekt þetta vekur í fréttum og umfjöllun hérlendis að víða um heim er konum og meybörnum mismunað mikið og svo hrottalega eingöngu vegna kynferðis og þær pyntingar og þau dráp byrja í móðurkviði.
25.8.2007 | 16:20
Brúðkaupstollur og hreppaflutningar á Íslandi árið 1921
Eftirfarandi frásögn er í bókinni "Ágúst á Hofi lætur flest flakka" en þar segir frá konu og dóttur hennar sem komu í Vatnsdal árið 1921 og hvernig hreppurinn losnaði við þær. Þessi saga sem minnir mig á frásögnina í Sölku Völku af því þegar Salka og Ólína móðir hennar koma til þorpsins Óseyri við Axlarfjörð:
Um miðjan ágúst þetta sumar vitum við Vatnsdælingar ekki fyrri til, en frú ein er flutt hreppaflutningi heim til hreppstjóra okkar með tólf ára dóttur sína. Þarna var farið alveg að gamalli hefð, og konan send frá einum hreppstjóra til annars, og hófst sú ferð austur í Rangárvallasýslu.
Fyrirmenn í Vatnsdal tóku nú að grennslast fyrir um, hverju þessi sending sætti. Þeir könnuðust ekki við konuna né vissu til, að hún ætti þar fæðingarsveit, og við athugun málsins kom í ljós, að svo var ekki. Oddviti varð að taka við konunni og sjá henni fyrir samastað. Konan var vanheil og örðug í vist. Bréfaskipti allmikil fóru nú á milli hreppa um þessi mál. og skýrðist það brátt. Þá kom í ljós, að beitt hefði verið allóvenjulegum klækibrögðum til þess að koma konunni á Áshrepp.
Hún átti sveitfesti í tilteknum hreppi í Rangárvallasýslu, og sá hreppsnefndin fram á, að af henni yrðu sveitarþyngsli. Kom henni þá það snjallræði í hug að fá staðfestulítinn mann, sem átti Áshrepp að fæðingar- og framfærslusveit, til þess að kvænast konunni. Sá maður var löngu farinn úr Vatnsdal en hafði víða dvalizt og hvegi svo lengi, að hann ynni sér sveitfesti.
Hin rangæska hreppsnefnd bauð nú þessum manni þúsund krónur fyrir að kvænast konunni. Skyldu 500 kr. greiðast við brúðkaupið en 500 kr síðar. Auk þess lagði hreppsnefndin brúðgumanum til brúðkaupsföt en tók þau aftur að loknu brúðkaupi.
Hin nýgiftu hjón dvöldust þar eystra í nokkrar vikur, en brátt hlupu snurður á þráðinn, og sambúðin gerðist örðug enda var lítill auður í búi. Maðurinn taldi sig svikinn, því að hreppsnefndin borgaði ekki það, sem eftir stóð af brúðkaupstollinum, eins og heitið hafði verið. Þágu þau hjón nú af sveit áður en hjónabandið leystist upp. En þá hafði hreppsnefndin rangæska náð tilgangi sínum og komið konunni af sér. Hún taldi einboðið að senda konuna heim í framfærsluhrepp eiginmanns hennar, Áshrepp.
Nú þóttust Vatnsdælingar heldur en ekki grátt leiknir af þeim Rangvellingum en fengu enga leiðréttingu mála með bréfaskriftum. Rangvellingar töldu hjónabandið löglegt og einsætt, hvar konan ætti sveitfesti úr þessu. Málinu var loks skotið til sveitafundar í Vatnsdal upp úr áramótum, og þar þóttu þetta firn mikil. Fundurinn samþykkti einróma að leita réttar hreppsins eftir lagaleiðum, en það var allt annað en auðgert.
Dýrt þótti að senda oddvitann, sem þá var Eggert á Haukagili, suður á land til þess að reka mál hreppsins, en líklegra yrði enn dýrara að ráða lögfræðing til þess að taka málið að sér. Varð því úr ráði að kæra málið til sýslumanns. Hann skrifaði síðan starfsbróður sínum í Rangárþingi, færði rök að því, að hjónavígslan hlyti að teljast ólögleg, þar sem brúðguminn hefði verið tældur til hennar með féboðum og teldi sig svikinn, og bað þess, að réttarpróf yrði haldið í málinu.
Skýrsla sýslumanns Rangæinga barst með vorinu, og gat þar að lesa, að ítarleg réttarrannsókn hefði farið fram, margir aðilar hefðu verið kallaðir fyrir, en ekkert hefði komið fram, sem benti til þess, að nokkrir meinbugir væru á hjónavígslunni eða nokkur nauðung hefði átt sér þar stað. Sýslumaðurinn sendi sem sönnunargagn ásamt öðrum málskjölum, konunglegt leyfisbréf til hjónabandsins, og er sá minjagripur enn til í skjölum Áshrepps.
Vatnsdælingar urðu því að sitja með sendingu Rangvellinga, og líkaði stórilla, sem vonlegt var, því ekki var auðséð fyrir konunni, og varð af töluverður kostnaður. Hún fór milli bæja og var stutt í stað, og varð meðgjöf að vera allnokkur. Gekk svo í ein þrjú ár, að tilraunir til þess að losna við hana báru ekki árangur. Reynt var að koma henni á ríkisframfæri vegna vanheilsu, enda lék grunur á, að hún væri berklaveik. Konan hafði fyrr á árum gengið sértrúarflokki á hönd, og lausn Vatnsdælinga varð sú að semja við trúarsystkin hennar í Hafnarfirði um að taka hana að sér fyrir hóflega meðgjöf, og þótti flestum sem vandræðamál þetta leystist vonum fremur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.8.2007 | 19:46
Tjóðraða stelpan
Ég er að taka til í dóti og fann eftirfarandi frásögn á ljósrituðum blöðum, frásögn manns sem rifjar upp minningar úr bernsku. Það var nýlega haldið upp á afmæli Kleppsspítalans. Þessi frásögn segir frá lífi eins af fyrstu vistmönnum þar, konu sem dó á Kleppi:
Ekki er mér kunnugt um, hve mikla skatta faðir minn bar á þessum árum til ríkis og sveitarsjóðs. En hitt fellur mér aldrei úr minni, á hvern hátt hluti útsvars var á lagður í Seltjarnarneshreppi. Það var einn vetrardag, fyrsta árið okkar í Skildinganesi, að maður sást koma heim traðirnar og hafði konu í bandi, sem búin var kufli úr hessian-pokastriga, og allur var annar búnaður hennar eftir því. Á eftir konunni gekk unglingur og hottaði á hana, ef hún hægði á sér, rétt eins og þegar verið var að leiða kú, sem treg er í taumi. Kvatt var dyra hjá foreldrum mínum, og þeim afhent konan til varðveizlu ákveðinn tíma.
Kona þessi hét Guðný Einarsdóttir. Ekki er mér kunnugt um aldur hennar, en hún mun þá hafa verið eitthvað um fertugt. Hafði hún farið fimm ára telpa með foreldrum sínum út í Örfirirsey að morgni, en er á daginn leið þurftu hjónin að fara snöggvast í land. Var þá grandinn milli lands og eyjar undir sjó. Og með því að veður var hið bezta, telpan sofandi í sólskininu og ætlunin að koma strax aftur, tóku foreldrarnir það ráð að tjóðra telpuna, svo að hún færi sér ekki að voða, ef hún skyldi vakna, áður en þau kæmu aftur til eyjarinnar.
En svo illa vildi til, að þegar hjónin ætluðu aftur úr bænum, var komið slíkt illveður, að ófært þótti öllum fleytum út til eyjarinnar. Það var ekki fyrr en að morgni næsta dags, að komizt varð út til barnsins. Var telpan þá enn lifandi og enn í tjóðrinu, en vitið hafði hún misst um nóttina af hræðslu, og aldrei fengið það aftur.
Þegar hreppurinn varð að taka við henni þótti hún svo erfiður ómagi, að enginn fékkst til að hafa hana að staðaldri, og var þá þetta snjallræði fundið upp, að jafna henni niður á bæina eftir efnum og ástæðum, á sama hátt og útsvarinu.
Víða var hún látin dvelja í fjósinu, bundin þar á bás með kúnum, með moði að sæng og einhverjum druslum að yfirbreiðslu. Skammtað var henni í dall eða ask, og át hún allar máltíðir með höndunum einum, hvort heldur um var að ræða fasta eða fljótandi fæðu, nema hvað hún drakk lög úr krúsum eða bollum.
Ég man hvað okkur öllum brá, er við sáum fyrst þennan vesaling, og móður minni þó mest. Er spurt var í hvaða bás ætti að binda hana, bauð móðir mín að hún skyldi færð í baðstofu sem annað fólk. Klæddi hún hana úr hverri spjór, bjó henni ullarnærföt og gekk svo frá sem hún væri með hvítvoðung á höndum sér. Henni var síðan fengið eitt af rúmunum til að sofa í, en binda varð hana þar, svo hún færi sér ekki að voða. Hjá okkur var hún þannig um hálfsmánaðartíma ár hvert, og var það jafnan móðir mín, sem annaðist hana að öllu leyti.
Guðný var þægt stórt barn, gerði engum mein, en hún skalf og nötraði í hvert sinn, sem hún var leidd fyrir gripahús, en í þeim hafði hún eytt mestri ævi sinni. Hún var alla tíð ákaflega myrkfælin, og þó að hún fengi ekki mælt, þá sást jafnan á svipbrigðum hennar, hvort henni bjó í huga gleði eða sorg, kvíði eða ánægja.
Það er fátt, sem ég hef blessað móður mína meira fyrir eftir að ég fór að hafa fullt vit, en það, hvernig hún hjúkraði Guðnýju og reyndi allt til að létta henni þann kross, sem lagður var á herðar henni í æsku. Þegar geðveikrahælið á Kleppi var reist, var hún með fyrstu sjúklingunum, sem þangað voru fluttir, og þar lauk hinni ömurlegu ævi hennar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)