Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
7.3.2009 | 23:40
Sterkar konur hjá Framsóknarflokknum
Þetta er skemmtileg frétt, við fyrstu tölur þá er ástandið þannig hjá Framsóknarflokknum að konur eru í efstu fimm sætunum, þar af tvær af þingkonum flokksins í fyrstu tveimur sætunum. Ef þetta verður lokaniðurstaðan þá verður að færa einhverjar konur niður til að rýma til fyrir körlum sem þá komast inn út af kynjakvóta. Það er nú bara hið besta mál. Helmingur kjósenda í Suðvesturkjördæmi er karlmenn og það er atriði að lokalistinn endurspegli samfélagið og einn hópur sé ekki útilokaður frá því að koma þátttöku í stjórnmálum.
Ég er ansi ánægð með hvað konum gengur vel í prófkjörinu hjá Framsóknarflokknum í suðvesturkjördæmi, ég er hrædd um að þannig sé staðan ekki í öðrum flokkum. Svo vil ég benda á að kosningu um fólk á listana sem fór fram hjá okkur í Reykjavík í dag þá er staðan þannig að af átta efstu á lista eru fimm konur.
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók af fundi okkar Framsóknarmanna í Reykjavík í dag:
![]() |
Staðan enn óljós hjá Framsókn í Kraganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2009 | 18:57
Margir vilja í framboð fyrir Framsóknarflokkinn
Það var náttúrulega eftir Mogganum að telja bara upp þrjá efstu á listum okkar Framsóknarmanna. Ég sem verð í fjórða sæti í Reykjavík suður er ekki nefnd á nafn. Ef þetta er ekki þöggun þá veit ég ekki hvað þöggun er. Ég hef farið fram á það við fjölskyldu mína að kalla mig hér eftir þingmannsefnið enda erum við Framsóknarmenn bjartsýn á úrslit kosninganna í vor.
Ég var ánægð með fundinn í dag þar sem kosið var um sæti á listanum, mér finnst sá fundur sýna að það er grasrót og lýðræði í Framsóknarflokknum og það er auðvitað tekist á um sæti. Við í Reykjavík erum feikiánægð með að Sigmundur Davíð sé í fyrsta sæti í Reykjavík norður þannig að það þurfti ekkert að kjósa um það sæti. En fyrsta sætið í Reykjavík suður var eftirsótt. Það voru Vigdís, Hallur og Einar sem sóttust eftir því sæti en forvalsnefnd hafði mælt með Vigdísi. Það var kosið milli þessara þriggja afbragðsmanna og vann Vigdís yfirburðasigur.
Svo var nú mest tekist á um annað sæti. Þar var stungið upp á Magnúsi Árna Skúlasyni og Ástu Rut Jónasdóttur. Þau eru nýir liðsmenn í Framsóknarflokknum og hafa áður verið í Sjálfstæðisflokknum. Það er alveg ljóst að straumurinn mun liggja frá Sjálfstæðisflokknum til Framsóknarflokksins. Ég kannast nú við hvorugt þeirra en heyrði af verkum þeirra og vona að þau komi af fullum þunga til starfa með Framsóknarflokknum. Það komu engin mótatkvæði fram um Ástu Rut en Einar Skúlason bauð sig fram á móti Magnúsi enda Einar mikill áhugamaður um lýðræði og lýðræðisleg vinnubrögð og að fólk hefði val. Hann lét það nú ekki aftra sér að hafa áður tapað um fyrsta sætið fyrir Vigdísi.
Eftir töluverðar umræður þá tilkynnti Magnús að hann drægi sig í hlé og átti ég þá von á að Hallur myndi bjóða sig fram í annað sætið svo við gætum kosið milli Halls og Einars. Hallur ákvað hins vegar að gera það ekki. Svo var nú ekki neinn ágreiningur um önnur sæti á listanum og mér sýnist hafa valist gott fólk á listana. Það er hins vegar ljóst að það er mikil endurnýjun.
það má líka nefna að í átta efstu sætum á listum Framsóknarflokksins þá eru fimm konur. Þetta er nú alveg í samræmi við Framsóknarflokkinn, það var nú einkum þetta sem dró mig að þessum flokki. Í Framsóknarflokknum þá fá konur tækifæri til að vaxa upp sem öflugir stjórnmálamenn. Því er ekki þannig varið í Sjálfstæðisflokknum.
Núna þegar prófkjörsslagurinn er sem hæstur í Sjálfstæðisflokknum, hvað skyldi konum í Sjálfstæðisflokknum finnast um það? Ég get nú varla séð að þær fái að vera með í baráttunni um toppsætin. Meira segja menntamálaráðherrann og varaformaðurinn verður kannski að taka annað sætið í Kraganum og skyggja ekki á vonarstjörnu ættarveldisins. Mér sýnist konur í Sjálfstæðisflokknum hafa engan séns í völd nema þar sem Framsóknarmenn styðja þær til valda eins og nú er í Reykjavík. Það er nú kannski samt alveg eins hyggilegt fyrir þær að flytja sig bara yfir í Framsóknarflokkinn.
![]() |
Sigmundur í Reykjavík norður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.3.2009 | 09:34
Mannréttindi útrásarvíkinga, mannréttindi vítisengla
Ríkisútvarpið, fjölmiðillinn í eigu allra landsmanna og undir stjórn menntamálaráðherra er áhrifaríkur miðill í íslensku samfélagi, rödd Íslendinga. Í gærkvöldi var í fréttum og Kastljósi RÚV tekin fyrir tvö mál, annars vegar kóngulóarvefur gervifyrirtækja sem Björgólfsfeðgar hafa spunnið utan um sig út um allar trissur og þeir hafa fest vef sinn á ýmsum skerjum langt út í hafi, eyjum sem enginn hefur heyrt minnst á nema gegnum frásagnir af ferðum fjármagns þeirra. Ferðalög víkinga nútímans eru nefnilega ekki bara virtual heldur eru þau þannig að maðurinn ferðast ekki, eignirnar ferðast heldur ekki, það sem flæðir á milli er eignarhald og skuldir, það er það sem sogast frá einu skeri á annað í einhverjum skrípaleik kasínókapítalísks hagkerfis.
Hitt málið sem takið var fyrir á Rúv í gær var koma nokkurra vítisengla sem voru boðnir í partý hérna. Þeim var meinaður landgangur, að mér skilst vegna alsherjarreglu og af því að þeir ganga í leðurfötum og keyra mótórhjól og eru í félagi sem sums staðar er skilgreint sem glæpasamtök. Ég hef nú dálitla samúð með fólki sem er sjálfkrafa dæmt óalandi, ég hef reynslu af því að vera af meintri hryðjuverkaþjóð.
Svo var í Kastljósinu afar, afar ósmekkleg og undarleg sena. Það var einhvers konar auglýsing fyrir skemmtistað (af hverju er Kastljós með svona illa dulbúnar auglýsingar fyrir skemmtibúllur?)en einn liður í því að auglýsa þennan skemmtistað var að auglýsa upp klósettin hjá þeim. Það var miklum tíma eytt í að sýna klósett sem voru myndskreytt með myndum af útrásarvíkingum og eigandi þessa staðar útlistaði í nokkrum smáatriðum gleðina og útrásina sem fólst í að spræna á þessa meinta sakamenn.
Þetta var viðbjóðslegt viðtal. Ég hef enga samúð með þeim sem komu okkur í þessa stöðu sem við erum í núna en engin réttarhöld hafa farið fram og engin hefur ennþá verið opinberlega ákærður fyrir að bera ábyrgð á hruninu. Og jafnvel þó að þessi menn hefðu verið dæmdir og fundnir sekir um landráð og glæpi gagnvart íslensku þjóðinni þá er það siðlaust og vitfirringslegt að nota myndir af þeim á þenna hátt, það er eins konar hermigaldur að reyna að lítilsvirða þá með því að kúka og pissa á þá.
Allir menn eiga rétt á heiðarlegri og málefnalegri umfjöllun, líka vítsenglar, líka útrásarvíkingar í ónáð. Við ættum ekki að skerða mannréttindi þeirra sem okkur líkar illa við ef við myndum ekki vilja skerða mannréttindi vina okkar á sama hátt.
Hvað ef þessi skemmtistaður hefði haft myndir af íslenskum fréttakonum á klósettunum? Hefði þessi frétt verið birt með sams konar gleði í Kastljósinu? Og varðandi vítisenglanna þá er það alveg klárt að þetta er félagsskapur sem dregur að sér svona gæja sem vilja virka hættulegir og eru hugsanlega hættulegir. En ég hugsa að mótorhjólasportið dregi til sín sams konar fólk og fer í þessar flúðaferðir (river rafting), svona fólk sem fær kikk út úr að koma til eldlandsins Íslands og upplifa sig í stöðugri lífshættu og baráttu við náttúruöflin. Ég held líka að vítisenglar dragist upp á hálendið, þeir hafa svona fjalla-eyvindar-mentalitet.
Mér finnst nú frekar mikil skammsýni að útiloka mótórhjólagengi í að vera túristar á Íslandi og raunar mannréttindamál að þeir fái að fara í ofurhugaferðir hér á landi.
En þá fyrst reynir á hversu mikið við styðjum við mannréttindi þegar kemur að því hvaða mannréttindi við viljum fyrir þá sem okkur er illa við og þá sem við teljum okkur eiga eitthvað sökótt við.
![]() |
12 vísað frá landinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2009 | 17:56
Framsókn er flokkur félagshyggju og samvinnu
Það er gott að formaður okkar Framsóknarmanna tali skýrt um hvernig ríkisstjórn Framsóknarflokkurinn vill. Það er sams konar stjórn og meirihluti landsmanna. Það er stjórn án Sjálfstæðisflokksins. Það er ekki einleikið hvað Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að klúðra miklu, ég held að þar á bæ hafi menn gott að komast í frí og endurhæfingu.
Ég held að það hafi aldrei verið meiri þörf á stjórnmálaafli sem aðhyllist öfgalausa samvinnustefnu og félagshyggju.
![]() |
Vill vera í vinstri stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2009 | 09:16
Íslenska þjóðin að leysast upp
Í upphafi kreppunnar var litið til Kína og því spáð að það ríki myndi ekki finna mikið fyrir kreppunni. Kína er kommúnistaríki með miðstýrt hagkerfi og digra gjaldeyrissjóði. Mest af viðskiptum í Kína eru innan Kína. Þannir virðiðst Kína ekki á sama hátt næmt fyrir dominoáhrifum efnahagshrunsins eins og sumar Vesturlandaþjóðir, sérstaklega þjóðir þar sem markvisst hefur verið unnið að því að færa alla stjórnun á viðskiptum til "markaðarins" í þeirri nýfrjálshyggjubylgju sem gengið hefur yfir Vesturlönd frá Thatcher-Reagan tímanum. Sá tími er liðinn og núna sjá flestir að þessi "markaður" getur breyst í skrímsli eða tímasprengju sem hleðst upp ef stjórnvöld og almenningur sofna á verðinum og skipta sér ekkert af því hvað er að gerast.
Það er of snemmt að skoða hver er undirrót þess fjármálahruns og endurmats sem heimurinn gengur nú í gegnum. Það er hins vegar alveg hægt að fullyrða að birtingarmyndir fjármálakreppunnar þurfa ekki að vera sama og orsakir hennar, ekki fremur en læknir getur fullyrt að birtingarmynd sjúkdómsins sé það sem valdi sjúkdóminum. Þannig eru afleiðuviðskiptin og undirmálshúsnæðislán ekki það sem veldur þessu kerfishruni þó að þar hafi hinn ægilegi sjúkdómur þessa kerfis birst fyrst og hroðalegast á þeim sviðum.
Sennilegt er að þetta hrun hafi einhverjar dýpri orsakir en bara peningalegar - einhverjar strúktúrbreytingar í samfélögum manna, hugsanlega eru peningaviðskipti eins og við búum við núna og það að nota peninga sem mælikvarða á verðmæti og einingu sem mælir völd (þ.e. í gegnum eignarétt) og flytur til völd - hugsanlega er það kerfi ekkert að virka. Þetta segi ég vegna þess að ég hef undanfarin ár séð hvernig flæði sem byggir á markaðshagkerfi og eignaréttarvörðum hugverkum eru beinlínis að kyrkja framþróun og sköpunarkraft í stafrænum hugverkasmíð, ekki síst hugverkum sem unnin eru í samstarfi og samvinnu margra. Markaðshagkerfi okkar tíma, markaðshagkerfi iðnaðarsamfélagsins passar ekkert við þann veruleika sem við búum við.
Eina sem ég hef getað gert við þannig er að snúa eins mikið baki við þessu markaðskerfi og hægt er, nota alltaf það sem er með öðruvísi og opnara höfundaleyfi (CC og GNU), nota eins og hægt er ókeypis og opinn hugbúnað og opin og ókeypis söfn stafrænna eininga hvort sem það eru vísindagreinar, gagnabankar, kennslugagnasöfn eða forrita- og námsefnissöfn.
Það getur verið að sama þróun og ég sé að gerist í heimi stafrænnar smíði sé líka að eiga sér stað á öðrum sviðum, fólk hefur öðruvísi verkfæri núna og vinnur öðruvísi. Framleiðsla fer ekki bara fram í verksmiðjum, sambandið milli neytanda og framleiðanda er ef til vill að leysast upp og við tekur einhver konar diy tímabil, tími þar sem fólk semur saman sína hluti sjálft, tímabil hinna lausu eininga, tímabil gáma og hjólhýsahverfa, tímabil sjálfsþurftarbúskapar. Ég segi þetta ekki til að draga upp dökka mynd, ég sé gáminn sem eina af táknmyndum nútímans, hann var umbúðir utan um vörur en hann er kannski líka varan sjálf. Ég er líka sérstaklega hugfangin af arkitektúr sem notar gáma og svona "prefab", svona hjólhýsahugsun nútímans, hugsun þar sem allt er í stöðluðum einingum en einmitt staðlarnir gera fjölbreytnina mögulega.
Kínverjar finna mikið fyrir kreppunni, kannski einmitt vegna þess að þetta er ekki bara kreppa sem snýst bara um afleiðuviðskipti og fjármagnskreppu, þetta eru hræringar sem birtast sem kreppa og misvægishreyfingar vegna þessa að nú eru straumamót í sögu manna, miklar strúktúrbreytingar á atvinnuháttum.
Það munu allir finna fyrir kreppunni, líka þeir á Íslandi sem halda því fram að þetta sé bara Reykjavíkurkreppa, þeir búi á svæðum þar sem aldrei kom góðæri og því geti ekkert farið þaðan. Þannig er það nefnilega ekki, það er hættulegt ástand fyrir íslenska þjóð núna, svo hættulegt að það getur farið svo að íslenska þjóðin leysist upp. Ekki í einhverri sprengingu eða vígvélastríði heldur með þeirri uppflosnun sem virðist verða óhjákvæmilegur hluti af kreppunni.
Núna flytur unga fólkið úr landi, sumir eru búnir að ákveða brottfarardaginn, sumir eru fluttir og sumir eru að hugsa sig um. En það er ekkert sem bendir á bjartari tíma hérlendis á næstunni, það eina sem mun verða til þess að ungt fólk flytur ekki frá Íslandi er að það eru fá atvinnutæki annars staðar.
En hingað kemur líka fólk núna. Ég hef frétt af því að hingað komi nú fjölskyldur frá Eistlandi og fleiri baltneskum löndum, flytjist hingað í hinni djúpu og dökku kreppu sem hér ríkir, flytjist hingað vegna þess að þó hér sé erfitt þá eru tímarnir núna miklu, miklu verri á þeirra heimaslóð.
Þannig birtist kreppan okkur núna líka í uppflosnun og fólksflutningum víða um heim. Ef þróunin heldur áfram þá mun þetta hafa veruleg áhrif á Ísland einfaldlega vegna fæðar Íslendinga. Hver árgangur Íslendinga er ekki nema rúmlega 4000. Hvað gerist á Íslandi ef stór hluti af hverjum árgangi ungs fólks á barneignaaldri flytur frá Íslandi?
![]() |
Erfitt ár fyrir Kínverja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.3.2009 | 01:33
Snjóflóð á Vestfjörðum, skothríð í Palestínu
Kristín Helga faldi sig í dýragarði í borginni Qalqilya á meðan skothríð Ísraelsmanna stóð þar yfir í dag. Ég fylgist með blogginu palestinufarar.blog.is og þar er þessi frásögn nýjust:
Innrás og skotárás í Qalqilya
Hún heimsótti skóla í borginni. Þar voru engin börn. Ég átta mig ekki á hvers vegna, það kemur fram í blogginu þeirra að núna eru kennarar þarna í verkfalli, ekki til að berjast fyrir hærri launum, heldur til að mótmæla því að þeir fá engin laun. Menntamálaráðuneytið hefur enga peninga til að greiða kennurum laun.
Krakkarnir taka myndir af ferðalagi sínu og þeim sem þau hitta. Hér fyrir ofan er mynd af Kristínu Helgu (í rauða jakkanum) með krökkum sem sækja stuðningshópana sem Rauði krossinn býður upp á. Gaman að sjá litla sprelligosann á myndinni, minnir á að börn eru eins í austri og vestri og þó það sé stríð þá er hægt að bregða á leik.
Ég er ekki mjög hrædd um Kristínu Helgu þó þarna sé skothríð og stríð. Ég held að Rauði krossinn passi vel upp á krakkana, þar er fólk sem veit alveg hvernig ástandið er og er vant að vinna á átakasvæðum.
Satt að segja hef ég núna miklu meiri áhyggjur af systur minni og fjölskyldu hennar í Bolungarvík. Hún vinnur á Ísafirði og keyrir þennan hættulegasta veg landsins á hverjum degi í vinnuna, veg þar sem margir hafa látist gegnum tíðina og snjóflóðin og skriðurnar falla iðulega.
Og hann Jói mágur minn er starfsmaður Veðurstofunnar, hann er snjóflóðaeftirlitsmaður í Bolungarvík og þarf að fara og mæla snjóalög og fylgjast vel með í svona aðstæðum.
Það kom grein um ferð Kristínar Helgu og Gunnlaugs í Morgunblaðinu. Hérna er hún:
![]() |
Ófært víða um land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2009 | 04:48
Jórsalaför Kristínar Helgu
Kristín Helga hefur náð til borgarinnar helgu og ferðast nú þaðan til Palestínu. Hún er núna í borginni Ramallah. Kristín Helga fæddist 15. október 1989 í borginni Iowa City í Bandaríkjunum en ég var þar við nám. Um það leyti fylgdist ég og öll heimsbyggðin með því þegar járntjaldið féll í Evrópu, þegar Berlínarmúrinn var brotinn niður.
Í ágúst 1989 opnuðu Ungverjar landamæri sín fyrir Austur-Þjóðverjum sem voru að flýja úr landi. Í maí 1989 byrjuðu Ungverjar að brjóta niður girðingar við austurísku landamærin, þá opnaðist flóttaleið fyrir Austur-Þjóðverja sem fóru fyrst til Ungverjalands og þaðan til Austurríkis.Íbúar Eistlands, Lettlands og Litháen mynda 600 km keðju í ágúst, Berlínarmúrinn féll 9. nóvember og flauelsbyltingin byrjar í Tékklandi litlu seinna. Hér á Íslandi hafði Sambandið lognast út af og fyrsta Bónusverslunin opnaði eimitt árið 1989. Kristín Helga fæddist árið sem mótmælin voru á Torgi hins himneska friðar í Kína og á árinu sem Bush eldri komst til valda í USA og hún fæddist árið sem stríðið í Afganistan endaði.
Endaði? Afganistan. Jú, víst yfirgáfu Sovétmenn Afganistan í febrúar 1989 en stríðið þar endaði ekki. Það magnaðist. Berlínarmúrinn hefur verið brotinn niður en þar sem Kristín Helga ferðast um núna hefur annar múr risið, múrinn milli Ísraels og Vesturbakkans.
Þetta er múr reistur til að vernda Ísraelsmenn frá hryðjuverkamönnum. En hverjir eru hryðjuverkamenn? Do I look like a terrorist?
Eru allir Íslendingar mögulegir hryðjuverkamenn? Eru allir með arabískt nafn eða af arabískum ættum mögulegir hryðjuverkamenn? Kristín Helga er í hópi með krökkum frá mörgum löndum, frönsku krökkunum var haldið í 7 tíma á flugvellinum, það mun hafa verið út af því að einn þeirra heitir arabísku nafni og er af arabískum ættum.
Þessi múr er hugsanlega verndarmúr fyrir einhverja. En hann er líka víggirðing sem lokar inni mikið af fólki sem á þarna heima. Það eru brotin niður hús fólks, hér er mynd af konu daginn eftir að heimili hennar var lagt í rúst. (frá flickr notanda farfuglinn)
Það er ekki annað að sjá og heyra á fréttum sem okkur berast frá Palestínu að Ísraelsmenn fari þar með miklu offorsi og grimmd gagnvart almenningi af palestínskum uppruna.
Palestínumenn eru undirrokuð þjóð, hnepptir í fjötra og lokaðir inni.
Vonandi opnar þetta verkefni Rauða krossins augu Kristínar Helgu og annarra ungmenna fyrir því hve mikilvægt er að sinna börnum og unglingum og almenningi á hernumdum svæðum og halda á lofti rétti þeirra sem eru í þannig aðstöðu að þeir geta það ekki sjálfir. Hér er fínt viðtal við ferðafélaga Kristínar Helgu í Fréttablaðinu: Augu opnuð og víðsýni aukin fyrir landi fyrir þjóð í ánauð
Ég held ekki að allir séu móttækilegir til að sjá hve mjög kreppir að Palestínumönnum og hve illa er komið fram við þá þjóð sem þarna býr. Ég skrifaði bróður mínum sem núna er í Suður - Ameríku og sagði honum frá að Kristín Helga væri að fara til Palestínu. "Það er ekkert ríki til sem heitir Palestína" svaraði hann. Mér skilst að í vegabréfum Palestínumanna gefnum út af Ísraelsmönnum sé eyða fyrir þjóðerni.
En Kristín Helga er núna á stað sem sumir segja að sé ekki til að kynna sér líðan barna í stríðsátökum, barna af þjóð sem sumir segja að sé ekki til. En hver ákveður hvaða þjóðir eru til og í hvaða umboði taka þjóðir sér vald til að fara með stríð á hendur öðrum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég er núna í Gautaborg á námskeiði þar. Ég á afmæli í dag. Ég er dáldið áhyggjufull, Ásta Lilja eldri dóttir mín er veik heima á Íslandi og Kristín Helga yngri dóttir mín er á leið til Palestínu á morgun, hún verður farin áður en ég kem heim. Kristín fer síðdegis á morgun, þetta verður vonandi lærdómsrík ferð hjá henni og vonandi gengur allt vel, hún er að fara á vegum Rauða krossins, þetta er sérstök ferð ungmenna til að kynnast aðbúnaði barna og ungmenna í tengslum við verkefni sem Rauði krossinnn er með þarna. Það fara tveir krakkar frá Íslandi, það var viðtal við þau í Ísland í bítið í morgun, hér má hlusta á viðtalið.
Þau koma til með að halda úti bloggi palestinufarar.blog.is
Núna þegar ég er stödd í Svíþjóð þá datt mér í hug að leita á TV4 að því hvort eitthvað hefði komið um Ísland þar, Ásta var nefnilega nýlega í viðtali við þá sjónvarpsstöð. Ég fann vitalið, það má horfa á það hérna,
Þetta er sem sagt staðan í heiminum og staðan hjá fjölskyldu minni núna. Kristín Helga er að fara að kynnast því og kynna fyrir öðrum hvernig fólk hefur það á átakasvæði í Palestínu þar sem blóðugt stríð ríkir og þar sem milljónir manna eru innikróaðar. Ásta Lilja segir Svíum frá því hvernig er að vera ungur atvinnulaus Íslendingur í dag og hafa ekki von um betri framtíð í bráð. Hennar kynslóð er sú sem hefur orðið mest fyrir barðinu á hruninu á Íslandi, margir hafa mist vinnuna og margir eiga ekkert í íbúðum sínum nema skuldir sem eru miklu hærri en það sem íbúðirnar seljast fyrir í dag og vonir Ástu eru margir að flytjast frá Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.2.2009 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2009 | 07:50
Gengi deCode lækkar um ennþá eitt sentið
Íslendingabók er samheiti yfir rit sem sýna eiga uppruna Íslendinga og þar með tilkall þeirra til gæða þessa heims. Íslendingabók hin eldri (Íslendingabók Ara fróða - Wikipedia) er sögð skrifuð af Ara fróða og er sennilega skrifuð til að rökstyðja hvernig ákveðnir menn sölsuðu undir sig landsvæði á Íslandi. Íslendingabók hin yngri er Íslendingabók (ættfræðigrunnur) er saga um genamassa íslensku þjóðarinnar. En staðan er nú þannig í augnablikinu að umheimurinn tekur ekkert mark á Íslendingabókunum og þær tryggja okkur engin völd í heimi sem á hverfanda hveli. Núna eru það skuldbindingar nokkurra fjárglæframanna sem umheimurinn tekur mark á sem segir til um hver á Ísland, sá sem á kröfurnar hann á líka eignirnar segja þeir sem trúa á kerfi kasínókapítalismans. Og Íslendingabók hin síðari hefur ekki fært gull og græna skóga til Íslands heldur.
![]() |
Hlutabréf lækkuðu í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eru margir viðskiptafræðingar sem heita Gunnar Örn Kristjánsson? Er ég kannski að fara mannavillt, er það þessi sami Gunnar Örn og varð að segja af sér sem forstjóri SÍF vegna þess að hann skrifaði upp á ársreikninga fyrir vin sinn án þess að athuga þá nánar. Þessi vinur hans var að möndla með lífeyri lækna. Ég hugsa að læknar á Íslandi hafi ekki verið paránægðir með að Gunnar færi að möndla með fé landsmanna - eða alla vega iðkaði það að skrifa upp á reikninga sem hann hefði ekki farið yfir. Þetta var nú alveg víðáttuvitlaust að skipa hann í bankaráðið, hverjum datt það í hug á tíma þar sem nauðsynlegt er að það engin tortryggni sé um hæfi fólks til setu í bankaráði.
Eða er svona mikil mannafæð í þeim sem koma til greina í bankaráð? Ætli maður verði þá ekki að fórna sér og ég gef þess vegna kost á mér í hvaða bankaráð sem er. Ég er nú enda skólasystir hans Gunnar úr Viðskiptafræðinni í háskólanum. Ég var reyndar í þjóðhagskjarna en ekki fyrirtækjakjarna en það hlýtur nú bara að vera kostur í dag þegar bankakerfið er allt komið í opinbera umsjá og gjörgæslu. Svo þarf enginn að efast um heiðarleika minn og ekki er ég neitt bendluð við spillingu. Til marks um það má nefna að ég er í Framsóknarflokknum en þangað flykkjast allir núna sem vilja siðbót í íslenskum stjórnmálum.
En hér er frétt sem ég fann á BB.is um þetta læknalífeyrissjóðsmál og eftirköst þess:
Iðgjöldum stolið og rukkað um lán
Ástráður Hreiðarsson yfirlæknir stefnir Tryggingasjóði lækna fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krefst niðurfellingar á láni sem sjóðurinn veitti honum. Ástráður er félagi í Tryggingasjóðnum og einn þeirra sem töpuðu öllum sínum lífeyri þegar sjóðurinn fór í þrot vegna 80 milljóna króna fjárdráttar Lárusar Halldórssonar fyrrverandi sjóðsstjóra. Lárus fékk fangelsisdóm vegna afbrotsins. Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri SÍF, hefur verið ákærður fyrir sinn hlut með því að bregðast skyldum sem endurskoðandi sjóðsins.
Borgaraleg uppreisn Ástráðs gegn sjóðnum hófst eftir að honum var tilkynnt að lífeyrir hans væri glataður.
Gunnar Örn segir að sér komi málið ekki við.
Fyrrverandi forstjóri SÍF sýknaður
Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri SÍF, var í dag sýknaður af öllum ákærum um brot í starfi sem endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna á síðasta áratug.
Gunnar Örn var ákærður fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um starfsemi lífeyrissjóða, með því að hafa á árunum 1993-2001 vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi ársreikninga Tryggingarsjóðsins. Skilanefnd Tryggingarsjóðsins krafðist þess að Gunnar Örn skyldi dæmdur til að greiða sjóðnum rúmlega 47,5 milljónir króna. Hann var sakaður um að hafa áritað ársreikningana án fyrirvara og ekki hagað endurskoðunarvinnu sinni í samræmi við góða endurskoðunarvenju.
Ríkislögreglustjóri krafðist þess að Gunnar Örn yrði dæmdur til refsingar og ennfremur sviptur réttindum til starfa sem löggiltur endurskoðandi. Gunnar Örn neitaði öllum sakargiftum og komst Héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á sök hans. Hann var því alfarið sýknaður og bótakröfu Skilanefndar vísað frá dómi.
![]() |
Gunnar Örn hættir í bankaráði Kaupþings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)