Kristín Helga að fara til Palestínu, ég mamman í Gautaborg, Ásta á TV 4 í Svíþjóð

Ég er núna í Gautaborg á námskeiði þar. Ég á afmæli í dag. Ég er dáldið áhyggjufull, Ásta Lilja eldri dóttir mín er veik heima á Íslandi og Kristín Helga yngri dóttir mín er á leið til Palestínu á morgun, hún verður farin áður en ég kem heim. Kristín fer síðdegis á morgun, þetta verður vonandi lærdómsrík ferð hjá henni og vonandi gengur allt vel, hún er að fara á vegum Rauða krossins, þetta er sérstök ferð ungmenna til að kynnast aðbúnaði barna og ungmenna í tengslum við verkefni sem Rauði krossinnn er með þarna. Það fara tveir krakkar frá Íslandi, það var viðtal við þau í Ísland í bítið í morgun, hér má hlusta á viðtalið.

Þau koma til með að halda úti bloggi palestinufarar.blog.is

Núna þegar ég er stödd í Svíþjóð þá datt mér í hug að leita á TV4 að því hvort eitthvað hefði komið um Ísland þar, Ásta var nefnilega nýlega í viðtali við þá sjónvarpsstöð. Ég fann vitalið, það má horfa á það hérna,

Þetta er sem sagt staðan í heiminum og staðan hjá fjölskyldu minni núna. Kristín Helga er að fara að kynnast því og kynna fyrir öðrum  hvernig fólk hefur það á átakasvæði í Palestínu þar sem blóðugt stríð ríkir og þar sem milljónir manna eru innikróaðar. Ásta Lilja segir Svíum frá því hvernig er að vera ungur atvinnulaus Íslendingur í dag og hafa ekki von um betri framtíð í bráð. Hennar kynslóð er sú sem hefur orðið mest fyrir barðinu á hruninu á Íslandi, margir hafa mist vinnuna og margir eiga ekkert í íbúðum sínum nema skuldir sem eru miklu hærri en það sem íbúðirnar seljast fyrir í dag og vonir Ástu  eru margir að flytjast frá Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Sæl Salvör. Frábært að uppgötva tengsl. Ég er einn af kennurum Kristínar í Borgó og svo er Gunnlaugur Bragi frá Höfn í Hornafirði nálægt æskuslóðum mínum í Lóninu. Við höfum verið fínir spjallfélagar síðan hann var ofurlítill patti. Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 27.2.2009 kl. 00:16

2 identicon

Kæra Salla.

Ég las ofanvert og fannst leiðinlegt að heyra með Ástu.  Og vona að Kristínu Helgu gangi vel í Palestínu. 

Elly (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband