Bloggstríð og samsæriskenningar

 Bloggstríð fyrir kosningar

Í Fréttablaðinu í dag á blaðsíðu 18 er greinin Bloggstríð fyrir kosningar. Það er vitnað í mig, Stefán Páls og Steingrím Sævar.

Ég held að Fréttablaðið og það fjölmiðlaveldi sem það tilheyrir sé ekki par hrifið af uppgangi moggabloggsins. Það er nú eitthvað að gerast þar og hugsa ég að þessi grein sé nú ekki til að mæra moggabloggið heldur sem liður í að blása til sóknar. Sennilega ekki tilviljun heldur að þarna var viðtal við Stefán sem bölsótast manna mest út í moggabloggið og svo Steingrím Sævar sem er kominn á mála hjá Vísi 

Blaðamaðurinn sem hringdi í mig spurði eitthvað á þá leið hvort ég héldi að gróska moggabloggsins væri einhver samantekin ráð, ég tel svo ekki vera, þetta er einfaldlega besta kerfið á íslensku og það er aukakostur að það er partur af samfélagi sem tengist einu stærsta dagblaði landsins. Svo eru kosningar í nánd og reyndar svo miklar hræringar í fjölmiðlaheiminum að margir blaðamenn og fjölmiðlamenn eru milli vita og fá útrás með því að tjá sig hérna þangað til þeir verða of önnum kafnir við önnur verkefni. Sýnilleiki bloggsamfélagsins af forsíðu mbl.is hefur líka valdið því að blogg eru meira lesin en áður,  auðvelt er að sjá hversu margir lesendur eru og hverjir eru tengdir hverjum og stundum verður það til þess að bloggarar drekkja sér í athyglissýkinni. 

 Nokkrar greinar um bloggheiminn

Mínar greinar: 

Ekkibloggsaga Íslands 2. hluti

 Myspace fjölmiðlamanna

 Ekkibloggsaga Íslands 1. hluti

Drottningarviðtal við sjálfa mig sem mann ársins

Bloggtoppur árið 2007

Tjáningarfrelsi - Hver má lýsa íslenskum veruleika?

 Greinar frá öðrum:

 Byltingin í Bloggheimum og kóngurinn af Íslandi í dag (Hrafn Jökulsson)

Er Stefán Pálsson hinn íslenski Romario?(Hrafn Jökulsson)

Bloggið þróast (Guðmundur Magnússon)

Eitt allsherjarblogg? (Guðmundur Magnússon)

 Hefði Jón forseti bloggað?(Guðmundur Magnússon)

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Er óskaplega ópóitískt Salvör min. Vildi bar segja að það e mikill munur þa myndinni sem þú hefur af þér á höfundlýsingunni og hinni sem kom í Mogganum. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.1.2007 kl. 00:55

2 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

tja... ef þú átt við myndina sem birtist með fréttablaðsgreininni þá var hún tekið í fyrradag og er sennilega líkust ásýnd minni núna. Myndin í höfundalýsingunni var tekin fyrir fjórum árum og þá var ég líka fjörutíu kílóum þyngri. myndin sem er í mogganum í dag hlýtur að vera einhver mynd sem þeir eiga í myndasafninu hjá sér, ég hef sennilega sent hana með einhverri grein. Hún er mjög virðuleg. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 27.1.2007 kl. 16:20

3 identicon

Komdu sæl Salvör. Mátti til með að grípa í pennann... Það var ég sem skrifaði greinina í Fréttablaðinu og hringdi í þig.  Ég hef bloggað í rúm þrjú ár, fyrst á blogspot og nú lengi á blog.central.is/gudrun-helga. 

Ekki veit ég hvaða skoðun Fréttablaðið og 365 hafa á uppgangi Moggabloggsins en hitt veit ég að hugmyndin að þessari grein var alfarið mín. Ég fylgist með bæði Stefáni og Steingrími og reyndar ýmsum fleirum og hef mikinn áhuga á bloggi. Ég velti fyrir mér hvað væri að gerast eða hefði verið að gerast í bloggheiminum upp á síðkastið og ákvað að gera mitt til að varpa ljósi á það.

Ekki er ég sammála þér um það að ég hafi spurt hvort gróska Moggabloggsins væri einhver samantekin ráð. Það er hinsvegar alveg ljóst að Moggabloggið hefur hitt í mark, mikill fjöldi bloggara hefur tekið sér bólfestu þar og maður veltir fyrir sér hvort kaninka, visir og fleiri reyni að blanda sér í umræðuna, ekki síst þar sem kosningar eru í vor og bloggumræðan blómstrar sem aldrei fyrr.

Ég fylgist spennt með þróuninni.

ghs (IP-tala skráð) 28.1.2007 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband