Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.1.2009 | 21:52
Hmmm... fjör á Samfylkingarfundinum
Það er kannski dáldið eldfimt að halda fundi í Þjóðleikhúskjallaranum þessa daganna. Við skiljum það Framsóknarmenn, við héldum félagsfund þar nýlega það sem var allt að gerast. Sjá hérna Rafmagnaður fundur hjá Framsókn í Reykjavík
Síðan þá höfum við gengið til kosninga um nýja forustu í flokknum. Sigmundur Davíð, Birkir Jón og Eygló og þingmannahópur okkar eru tilbúin til að hefjast handa við uppbyggingu Nýja Íslands. Það getur verið eini kosturinn í stöðunni fyrir hina flokkana að taka tilboði Framsóknarflokksins um að verja stjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna vantrausti þangað til kosningar eru yfirstaðnar. Það þýðir að ríkisstjórn sem núna situr sem sannarlega er vanhæf eins og hrópað er nú á torgum og inn í húsum, sú ríkisstjórn getur farið frá á morgun.
En eitt er mér fyrirmunað að skilja.
Hvers vegna í ósköpunum valdi Geir ekki á sínum tíma að stofna þjóðstjórn með öllum flokkum á Alþingi? Það voru á þeim tíma allir flokkar tilbúnir í það. Sá hann virkilega ekki þetta ástand fyrir?
![]() |
Þið eruð öll rekin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 01:09
Mótmælahljómkviðan
Ég var á Austurvelli í kvöld. Kom eitthvað um átta leytið í kvöld og var yfir miðnætti, fór þegar eldtungurnar frá Oslóartrénu læstu sig til himins. Þetta var svona stemming eins og að vera á hljómleikum þar sem eru engir áheyrendur, þar sem allir troða upp . allir eru með einhvern gjörning. Mest að framkalla hljóð en svo brann þarna eldur og hópur fólks hélt eldinum lifandi og bætti á hann vörubrettum og dekkjum og skrifborðsstólum. Ég hugsa að þeir hafi verið uppiskroppa með eldivið því einn hópur réðist á Oslótréð og felldi það og varpaði því á eldinn.
Þó að meðfram Alþingi væri veggur af óeirðalögreglu með skildi og alls konar útbúnað þá voru mótmælin meira eins og mannfögnuður, það var barið og flautað og slegið og hrópað og klappað og það kvein í hrossabrestum. Það var gleði í lofti, ég veit ekki út af hverju, kannski af því að fólk var að gera eitthvað, að búa til sig sóknar. Annars var þetta líka eins og galdramessa eða nornagleði eða álfareið, svona sefjunarsamkoma þar sem fólk stillir sig saman til búast til orustu og magnar seið.
Það var gaman að heyra af hópnum sem safnaðist saman á Akureyri, það bárust boð um það niður á Austurvöll að fólk væri á sama tíma að mótmæla annars staðar á landinu og það var líka einn liður í samstilla fólk, að vita af öðrum hópum að mótmæla annars staðar.Ég held að það sé aukaatriði hvaða áhrif mótmælin hafa á ríkisstjórnina, aðalatriðið er hvaða áhrif mótmælin hafa á mótmælendur sjálfa. Við erum fólkið.
![]() |
Samstöðumótmæli á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.1.2009 | 10:27
Íslensk bankasaga, íslensk bankasala
19.1.2009 | 01:26
Til hamingju Sigmundur, Birkir, Eygló
Það var svo mikill hiti á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina að brunaboðar í Valsheimilinu fóru í gang rétt áður en gengið var til kosninga um formann. Það voru nálægt 900 manns sem greiddu atkvæði í formannskjöri og þetta var landsfundur flauelsbyltingar í Framsóknarflokknum.
Úrslit kosninganna komu verulega á óvart, ég hugsa að enginn hafi séð þetta fyrir. Úrslitin sýna að það var sterk krafa á endurnýjun og að inn kæmi nýtt fólk. Ég held að undir forustu Sigmunds Davíðs þá séu nýir tímar að hefjast í Framsóknarflokknum.
Nýja forustan í Framsóknarflokknum er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Birkir Jón Jónsson og Eygló Harðardóttir. Ég óska þeim öllum innilega til hamingju með að hafa valist til þessara trúnaðarstarfa og vona að þau myndi samstillta heild sem hjálpar okkur að gera Framsóknarflokkinnað leiðandi afli í íslenskum stjórnmálum.
Hér eru fréttir af kosningunum:
Bylting í Framsókn bara byrjunin (smugan.is)
Óvænt úrslit hjá Framsókn (eyjan.is)
![]() |
Sigmundur kjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2009 | 11:48
Bloggrannsóknarmennska Kastljóssins
Það hljóta allir að falla í stafi yfir uppljóstrunum Kastljóssins, þar er enginn óhultur í Netheimum fyrir þeim þefvísu sporrekjandi spæjurum sem troða sér inn í matarboð bloggara þó það séu mörg ár síðan þau fóru fram. Þetta er eins og að lesa krassandi sakamálasögu eftir Arnald að fylgjast með nýjustu dáðum í rannsóknarmennsku Kastljóssins, sjá hérna Umdeildar ráðningar þyrluflugmanna
Ég sem hélt að ekkert gæti toppað fyrri bloggrannsóknarmennsku kastljóssins sem fólst í því að vakta bloggið hans Stefáns Páls til að vita hvað hann teldi blogg DV ritstjóra breytast mikið yfir daginn. Það er ólýsanlega mikið öryggi af því að hafa svona fólk á vaktinni.
En það verður að segjast eins og er, það er ansi lúðalegt blogg að ljóstra upp að fólk hafi fengið starf gegnum klíku. Fólk kann sig barasta ekki í Netheimum.
En fólk ætti að fara sér hægt í Netheimum og skyggnast um gáttir allar því enginn veit nema kastljósblaðamenn sitji þar á fletum fyrir.
Hér eru kurteisisreglur Hr. Scobleiser fyrir atvinnulausa. Það hjálpar ekki til að fá vinnu aftur að hafa myndir af sér á djamminu á Facebook.
14.1.2009 | 21:28
Aulafréttamennska, aulastjórnmál og skuldir ríkissjóðs
Við höfum lifað í blekkingu. Við höfum kosið fólk á þing til að gæta hagsmuna okkar vegna þess að það blekkti okkur til að trúa því að því væri treystandi til að stýra fjármálum heillar þjóðar.
Við höfum sofið á verðinum að fylgjast með öllum þeim óveðursskýjum sem hrönnuðust upp í kringum okkur, ekki á einum degi, ekki á einu ári. Það tók langan tíma að koma Íslandi í þá stöðu sem það er í núna.
Hrunið kom hins vegar snöggt og var eins og spilaborg sem hrundi - eða frekar eins og skýstrókur sem þyrlaði upp og sogaði í burtu öll þau pappírsverðmæti sem peningabólur og peningavelta bankaeigenda og spilabankaborgareiganda hafði búið til. Hvert skýstrókurinn skilaði þessum pappírsverðmætum þegar hann þeyttist frá landinu er á huldu - ef til vill fóru þeir á undarlegar hentifánaeyjur og féllu eins og regn niður í ríkramannalönd sem búin eru til í kringum pappírsverðmæti, ef til vill slitnuðu pappírsverðmætin og tættust upp í skýstróknum ógurlega og glötuðust að eilífu.
Við höfum verið blekkt vegna þess að sú miðlun sem barst til okkar var vandlega útvarpað til að útvarpa og kasta aðeins þannig ljósi að fjármagnsspilurum sem lét þá virka eins og hetjur og réttlætti spilareglur þeirra. Þeir áttu jú alla fjölmiðlana nema ríkisfjölmiðla. En ríkisfjölmiðlana áttu þeir óbeint því þeim stýrðu stjórnmálamenn og stjórnmálamönnum mátti stýra gegnum kosningasjóði - en ekki bara kosningasjóði heldur líka með styðja þá til valda gegnum þá fjölmiðla sem fjármagnsspilarar áttu.
En við höfum líka verið blekkt vegna þess að fjölmiðlarnir, skólarnir, stjórnmálamennirnir og allir þeir sem áttu að uppfræða okkur og segja okkur hvað væri að gerast gerðu það á yfirborðslegan grunnan og auðmeltan hátt. Hegðuðu sér eins og við almenningur værum aular sem skildum ekkert nema það væri mínútuumfjöllun í einhverjum sjónvarps- eða útvarpsþáttum og að fjölmiðlun gengi út á að byrgja okkur sýn til eigin þekkingarleitar og til þess að taka saman þátt í þekkingarleit um fyrirbæri sem er of flókið og umfangsmikið fyrir einn einstakling til að skilja og greina.
Við höfum verið blekkt til að halda að það virkaði að hafa sterka kalla í brúnni, þeir vissu hvert ferðinni væri heitið og hefðu stjórn á öllu. Við höfum verið blekkt til að halda að mjúkmæltir pólitíkusar sem hafa lítið stúderað og lítið skilja nema auglýsingar og almannatengsl segja okkur í einföldum frösum allt það mikla sem þeir ætla að gera fyrir fólkið. Við höfum verið blekkt til að halda að stjórnmál gengu bara út á að auka þjónustu, eyða bankabólupeningum og búa til kerfi sem gerði öllum kleift að draga á eftir sér sístækkandi skuldahala.
Við höfum verið blekkt á sama hátt og fólkið sem borðaði naglasúpuna og fólkið sem horfði á nýju fötin keisarans. Við höfum verið blekkt til að halda að verðmæti sköpuðust úr engu. En úr hverju sköpuðust þau verðmæti sem fjármagnsspilararnir virtust hafa? Hvernig komust þeir yfir upphaflega spilapottinn? Hver stóð á bak við þá? Eru þeir ef til vill leikmenn í fléttu einhvers sem hefur hag af að vera ekki bendlaður við uppkaup og yfirráð eigna á Íslandi? Eða bjuggu þeir til sinn spilapott með því efni sem spilavítiskapitalisminn leggur til - með skuldum og með því að búa til peninga með því að velkja pappírum fram og aftur marga hringi.
En við sitjum eftir með skuldir. Hvernig má það vera að peningar sem kannski upprunalega voru búnir til úr skuldum og gerðu einhverja ríka skuli núna gera okkur fátæk? Hvernig má það vera að eitthvað rán um hábjartan dag sem kallað var skuldsett yfirtaka eða kaupréttarsamningaeitthvað skuli núna vera okkar skuldir?
Á bankabólutímanum voru íslensk fyrirtæki og einstaklingar hnepptir í skuldafjötra, eftir hrunið var ríkið hneppt í skuldafjötra. En hvaða möguleika höfum við á að borga þessar skuldir - og af hverju ættum við almenningur á Íslandi að borga þessar skuldir?
Af hverju eigum við núna hér á Íslandi þar sem staða einstaklinga og fjölskyldna sem skulda er mjög bág vegna gengistryggingarákvæða og vegna gríðarlegs hruns og atvinnuleysis - líka að borga upp skuldir í útlöndum sem fávísir og gráðugir einstaklingar stofnuðu til - og af hverju erum við núna í fangelsi IMF, í hagstjórn hinna klemmdu sem er allt öðru vísi en annars staðar - annars staðar eru vextir að verða komnir niður í ekki neitt en hér eru vextir ofurháir.
Af hverju eru öll lögmál sem segja hvernig á að takast á við kreppu slitin úr sambandi á Íslandi bara vegna þess að yfir okkur vofir eitthvað sverð einhverja gríðarlegra skulda sem við eigum að vera ábyrg fyrir í útlöndum, skulda sem við vissum ekki að væri til. Af hverju er ekki betra að taka djúp andköf núna og losna við þessi jöklabréf út eins fljótt og auðið er.
Ég get ekki séð að það skipti neinu máli upp á sjálfstæði Íslands hvort við erum í Evrópusambandinu eða ekki - ef ástandið er þannig að magnþrota ríkisstjórn lafir en stýrir engu - heldur kreppast um okkur kaldar krumlur alþjóðabankans og þeirra sem eiga skuldaviðurkenningar á íslenska aðila. Hvað skiptir máli hver stýrir fiskveiðum þegar allur kvótinn er kominn í erlenda eigu?
![]() |
Háar skuldir ríkissjóðs eiga enn eftir að hækka mikið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
14.1.2009 | 13:43
Ný forusta í Framsóknarflokknum, nýjar áherslur
Það er óhjákvæmilegt að stjórnmálaflokkar á Íslandi breytist núna eftir hrunið og endurmeti afstöðu sína til allra mála, ekki síst sérstaklega efnahagsmála og öryggismála. Ég held að Íslendingar átti sig ekki ennþá á því hve mikilvægt er að vera ekki einn á köldum klaka. Ísland þarf að vera í bandalagi við aðrar og öflugri þjóðir sem hafa sömu hagsmuni og Ísland. Ísland naut í marga áratugi góðs af því í samningum við Bandaríkin að hafa þótt mikilvægur bandamaður vegna staðsetningar og hér var herstöð. Nú er bandamaðurinn og verndarinn í vestri horfinn á braut og ekki sýnilegt að það ríki hafi áhuga eða bolmagn til að styrkja stöðu sína á Norðurslóðum. Helstu bandalagsríki Íslendinga og viðskiptaþjóðir eru Norðurlönd og aðrar Evrópuþjóðir. Bankahrunið hefur sýnt að það er erfitt fyrir smáþjóð með örsmáan gjaldmiðil að standa af sér þær sviptingar sem verið hafa í fjármálalífi heimsins.
Það er erfitt að sjá aðra valkosti í stöðunni en að sækja eftir inngöngu í Evrópusambandið. Alþingi er þegar orðin eins konar afgreiðslustofnun og stimplunarstaður fyrir lög sem þaðan koma. Fólkið flæðir á milli og fjármagnið flæðir á milli. Það er augljóst hagræði af því að hafa sama gjaldmiðil og önnur Evrópulönd.
Ef horft er langt fram í tímann, lengra en sem nemur þeirri kreppu sem núna gengur yfir þá verður að skoða stöðu Íslands á landakorti heimsins. Stöðu þar sem fámenn og herlaus og einsleit þjóð býr í landi með viðkvæma heimskautanáttúru og með miklar orkuauðlindir bæði innan lands og hugsanlega líka í sjó. Í heimi þar sem nágrannaþjóðir okkar deila hart um aðgang að orku og akkúrat núna Evrópa er háð Rússlandi með orkuaðdrætti þá mun verða hart barist um yfirráð yfir orkuauðlindum. Þetta er ekki eingöngu spurning um peninga og gróða, þetta er líka spurning um hernaðarlegt mikilvægi þess að hafa yfirráð yfir orku. Stórveldi munu ekki hika við að heyja stríð til að tryggja sér aðgang að orku.
Það þarf að breyta kúrsinum í öllu á Íslandi, það þarf að stýra stofnunum öðruvísi, það þarf að endurskoða viðhorf til einkavæðingar versus ríkiseignar. Eina skynsamlega leiðin er að hverfa aftur til nýrrar samvinnuhreyfingar sem er í takt við nýja tíma. En það þarf líka nýja sýn í utanríkismálum og fólk þarf að átta sig á að bæði íslensk stjórnmál og alþjóðamál koma öllum við. Íslendingar verða að endurskoða og endurmeta afstöðu sína til bandalaga við aðrar þjóðir, það liggur mikið á að vera í öflugu hagsmunabandalagi með öðrum þjóðum. Það eru ekki eingöngu Evrópuþjóðirnar.
Það verður endurnýjun í forustuliði Framsóknarflokksins um helgina og það verður spennandi að fylgjast með því. Það þarf að veljast til forustu fólk sem skynjar kall samtímans á nýja samvinnuhugsjón og fólk sem skynjar þann nýja veruleika sem við búum við bæði innanlands og í alþjóðamálum.
![]() |
Lagt til að sótt verði um aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.1.2009 | 02:04
Gaza
Ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttir
Öryggi
Við ræddum öryggismálin:
vissara að spenna beltin
ganga yfir á grænu ljósi
vefja sig treflum og taka vítamín
hætta að reykja
drekka
allt er svo hættulegt nú á dögum
mengunin voðaleg (blómin sem visna)
og margt er fitandi: rjóminn
þrengir að hjartanu
ofbeldið eykst segja félagsráðgjafarnir
daprir og ábyrgir
vissara að halda sig
heima á kvöldin.
Við ræddum málin af einurð
og fyrirhyggju
en þá barst fréttin af skjáum:
stríðið var hafið.
Við sátum þögul eitt andartak.
Svo slökktum við á sjónvarpinu
og tókum upp léttara hjal.
![]() |
Ísraelar á krossgötum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2009 | 00:10
Mannkynsfrelsaraheilkennið
Þær aðstæður sem eru núna í íslensku samfélagi munu ekki verða til að auka rósemi þeirra sem enga hafa fyrir. Þetta ástand tjúnar upp fólk. Ástþór er maður myndmálsins, hann byrjaði sinn feril á að framkalla myndir fyrir fólk og það var nýstárleg framköllunarþjónusta. Ég notaði hana einu sinni og fékk myndir til baka í svolítið skrýtnum litum og með bréf sem afsakaði að filmurnar hefðu eitthvað hnjaskast og ekki væri hægt að taka eftir þeim. Það gerði nú ekkert til, aldrei stóð til að taka eftir þessum myndum og núna myndi ég bara skanna þær inn.
En Ástþór heldur áfram að framkalla myndir og senur og þær eru í ennþá skrýtnari litum en áður. Hann notar líka stundum skrýtna sviðsmynd, hann tekur myndir af þeim sem taka myndir af heiminum og ber á glugga. Ekki eins og hinir andlitslausu berja á glugganna á Borginni. Það er ekki hans stíll að vera andlitslaus, hann sem er næstum forsetinn af Íslandi, friðaspekúlantinn sem á í sífellum ófriði og mannkynsfrelsarinn sem er mannýgur. Hann sem ærist í að mótmæla sukkinu og svínaríinu fyrir hrunið en virðist sjálfur eða friðarsamtök sem hann stendur að reka netspilavíti sb hið neyðarlega Ip tölu mál. Ástþór guðaði á glugga DV fyrir einhverjum misserum, hann leigði kranabíl og lét ferja sig upp og skaut og skaut með myndavél sinni inn um gluggann. Þetta voru einhver mótmæli út af umfjöllun DV sem náðu einhverjum myndaskotum af Ástþór eða konu hans sem honum líkaði ekki. Ástþór hefur oft áður sýnt viðlíka jólasveinalega hegðun, hann reyndi að stela senunni um árið þegar friðargangan fór niður í bæ með því að mæta útataður í tómatsósu og jólasveinabúning. Ef ég man rétt þá fór hann líka að skrifa hótunarbréf til ráðamanna og var stungið inn.
Sennilega er Ástþór komin á sama stig í jólasveinafílingnum núna og þó það sé partur af góðu samfélagi að menn eins og Ástþóri séu á röltinu eins uppdubbaðir og þeir vilja þá á ekki að vera blindur á merki um að fólk hafi tjúnast of mikið upp. Það getur verið hættulegt.
Það hafa margir jólasveinar í gegnum tíðina gefið sig út fyrir að vera mannkynsfrelsarar en það er nú bara þannig að lausnin fyrir Ísland er að jólasveinarnir hverfi af sviðinu.
![]() |
Lá við að fundurinn leystist upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.1.2009 | 14:19
Hagræðing í ríkisrekstri er ekkert bannorð
Enginn stjórnmálamaður á Íslandi hefur náð í gegnum kosningu með því að koma með áætlanir um hagræðingu og sparnað. Það hefur verið bannorð í stjórnmálaumræðu og það sem verra er - þetta hefur verið notað til að réttlæta einkarekstur og fordæma rekstur í almannaeigum.
Ef ekki er hægt að spara og hagræða í fyrirtækjum í ríkiseign þá er sú leið farin að einkavæða þau og reka eftir hagnaðarsjónarmiðum. En hvort vill fólk - glórulausa einkavæðingu sem felst í því að fyrirtæki í almannaeign eru einkavædd og strax fara hinir nýju eigendur í að skera frá allt sem skilar ekki nógu miklum hagnaði en koma því sem myndar hagnað inn í einhver eignarhaldsskálkaskjól - eða hagræðingu í ríkisrekstri?
Hvort vill fólk að horfst sé í augu við að það verður að hagræða og aðlaga í opinberu heilbrigðiskerfi - eða að það sé farið út í einkavæðingu og einkarekið kerfi sem mun alveg örugglega þjóna best þeim ríkustu og þeim sem eru hér miðsvæðis? Það er hagsmunamál allra Íslendinga að það sé hagrætt í heilbrigðiskerfi og eitt af því sem verður að skoða er spítalar og skurðstofur.
Það er engin stjórnmálaleg ábyrgð hjá vinstri grænum eða öðrum stjórnmálaflokkum sem aðhyllast ríkisrekstur að láta eins og það sé ekki hægt að hagræða og breyta og ef til vill leggja niður starfsemi á einum stað vegna þess að hún er hagkvæmari á öðrum stað.
Það má alveg nota hagkvæmnismælikvarða í ríkisrekstri, það er ekkert bannorð.
Mestu skúrkarnir meðal ráðherra á Íslandi í dag eru ekki þeir sem eru að reyna að skera upp og hagræða og breyta kerfi sem auðsýnilega þarf að breytast, mestu skúrkarnir eru þeir sem lugu okkur full og þóttust vera gæslumenn okkar í efnahagsmálum en voru mest í að leyna vandanum og velta á undan sér. Og ansi miklir skúrkar eru þeir líka sem stunduðu óhefta fyrirgreiðslupólitík fyrir sig og sína ættmenn. Svo eru sumir sem hafa verið æði verklitlir þó þeir hafi setið á þingi, kannast fólk við að Sigurður Kári hafi gert eitthvað annað en reyna að selja áfengi í kjörbúðum og kannast fólk við að Bjarni Benediktsson hafi gert eitthvað annað en veita tengdadætrum stjórnmálamanna hraðafgreiðslu í gegnum ríkisborgararétt?
Hmmm... hvað varð annars af hátæknispítalanum sem við þjóðin áttum að fá fyrir alla peningana sem fengust fyrir einkavæðinguna? Gufaði það fé upp eins og Gist samvinnusjóðurinn?
![]() |
Ráðherra segi af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)