10.5.2007 | 08:29
Kúlusukk, Orkuveituhúsið og stefna Sjálfstæðisflokksins í orkumálum
Perlan í Reykjavík var svo dýr í byggingu að gárungarnir uppnefndu húsið og kölluðu Kúlusukk. Nýja orkuveituhúsið (ég hef aldrei verið svo fræg að koma inn í það hús) hneyklar víst marga með íburði. Bæði þessi hús eru byggð af stöndugu orkufyrirtæki sem malar gull fyrir Reykvíkinga. Það er líka í eigu Reykvíkinga og gróðinn af fyrirtækinu er notaður í þágu Reykvíkinga og þó við getum hneykslast á íburði í þessum húsakynnum þá skulum við samt hafa í huga að ef þessi orkufyrirtæki hefðu verið í einkaeigu þá værum við kannski núna að hneykslast á því að gróðinn af þeim hefði verið notaður til að kaupa lúxusíbúðir á Manhattan eða spilavíti í Mónakó.
Fyrirtæki í opinberri eigu geta vel verið vel rekin og það er okkar kjósenda og borgara í þessu landi að fylgjast með eigum okkar í orkufyrirtækjunum og reyna með öllum ráðum að tryggja að farið sé þar vel með eigur almennings.
Það tryggir alls ekki að fyrirtæki séu vel rekin að þau séu í einkaeigu. Það má reyndar leiða líkur að því að það sé betra á tímum mikils umróts í viðskiptaumhverfi að hafa fyrirtæki sem samanstanda af sjálfstæðum litlum einingum sem geta brugðist fljótt við aðstæðum - við markaðinum. Það getur stórt fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga ekki, sérstaklega ekki ef það er fyrirtæki sem tekur tillit til annarra hluta og hefur víðari samfélagssýn en einkafyrirtæki sem hugsar bara um hagnað næsta árs. Þannig getur einkafyrirtæki í sjávarútvegi selt kvótann frá byggðalaginu bara vegna þess að verðið er hátt eitt árið en það gæti bæjarútgerð í eigu sveitarfélags aldrei gert, það væri eins og að skjóta sjálfan sig í fótinn.
Við lifum á tíma þar sem ofurtrú er á fjármagni og óheftu frelsi til að flytja fé milli landa og þeir menn eru dásamaðir mest í fjölmiðlum sem hafa einhvern veginn búið til naglasúpu úr peningum sem þeir hræra saman og alltaf eru búnir til meiri og meiri peningar sem síðan eru teknir út í alls konar lúxuseinkaneyslu í fjarlægum löndum. Æstustu fylgjendur þessarar fjármagnstrúar eru í Sjálfstæðisflokknum og það er mikilvægt að við hin sem ennþá höfum eitthvað til að bera af heilbrigðri skynsemi reynum að hindra eins og við getum hræðilega glópsku Sjálfstæðisflokksins, glópsku sem lýsir sér hvað best í þessari heimskulegu ályktun frá síðasta landsfundi þeirra:
Ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins 2007 um umhverfismál og auðlindanýtingu
Landsfundur telur að skynsamleg og hagkvæm nýting náttúruauðlinda Íslands verði best tryggð með því að nýtingar- og afnotarétturinn sé í höndum einstaklinga. Ríkisvaldið hefur ekki öðru hlutverki að gegna á þessu sviði en því að fara með fullveldisrétt þjóðarinnar yfir auðlindunum, þ.á m. að setja skorður við nýtingu og afnotum í því augnamiði að tryggja að auðlindir Íslands verði til staðar fyrir komandi kynslóðir.
Íslensku orkufyrirtækin eru í dag leiðandi þekkingarfyrirtæki Landsfundur fagnar aðkomu einkaaðila að útrás orkufyrirtækjanna. Tímabært er að leysa úr læðingi krafta einkaframtaksins svo að íslensk sérþekking og hugvit fái notið sín til fulls í þeirri útrás. Landsfundur leggur til að skoðaðir verði kostir þess að færa eignarhald ríkisins á orkufyrirtækjum yfir til einkaaðila, sérstaklega með tilliti til samkeppnis- og jafnræðissjónarmiða.
Afturhvarf til nýlendutímans
Ég sé ekki mikinn mun á þjóðfélagi þar sem allar auðlindir og framleiðslueiningar eru í eigu auðmanna og auðhringja sem staðsettir eru í New York og London og öðrum stórborgum og á því að vera arðrænd dönsk nýlenda.
Það var hlutskipti Íslendinga í nokkrar aldir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 11:05
Græni kallinn í Berlín
Græni karlinn hérna í Berlín heitir Ampelmännchen og hann er líka tákn í stjórnmálum hérna eins og á Íslandi. Hann er tákn fyrir ostalgie en það er fortíðarþrá eftir lífinu í gamla kommúnistaríkinu Austur Þýskalandi. Ef til vill er græni kallinn í íslenskum stjórnmálum líka fortíðarþrá eftir þeim tíma þegar Samvinnuhreyfingin var öflugasta viðskiptablokk landsins og samvinnufélögin seldu ull og fisk fyrir olíu í vöruskiptum við Ráðstjórnarríkin og Framsóknarflokkurinn var bændaflokkur. Græni kallinn minnir á sáðmanninn í vörumerki Búnaðarbankans.
Það eru götuljós með grænni konu Ampelweibchen í nokkrum þýskum borgum.
Græni kallinn í Austur Þýskalandi var hannaður af umferðarsálfræðingi sem sagði að fólk myndi bregðast betur við táknum sem hefðu einhverja merkingu heldur ljósum í tilteknum lit. En merking er tvíræð. Á yfirborðinu virðist þetta vera mynd af kalli, rauðum kalli kyrrstæðum út með hendur og grænum kalli á röltinu. Ég vissi ekki af þessum umferðarmerkjum og sá þetta fyrst á Rósu Luxemburgarstrætinu hérna. Ég var undrandi og starði á stoppmerkið og hugsaði "Hvers vegna er mynd af krossi á stoppmerkinu? Hvernig gátu kristnir menn samþykkt það?" Svo þegar ég rýni í merkið með græna kallinum þá get ég ekki betur séð en það sé skírskotun í þekkt germanskt tákn, sólkrossinn eða swastikuna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2007 | 09:16
Laumulegar starfsauglýsingar
Starf aðstoðarríkislögreglustjóra var auglýst eingöngu í Lögbirtingarblaðinu en ekki á Starfatorgi sem er sá vettvangur sem störf hjá ríkinu eru auglýst. Það er skylda með mörg stjórnunarstörf hjá ríkinu að auglýsa eftir umsækjendum í Lögbirtingablaðinu. Það er hins vegar mér vitanlega ekkert sem bannar að störf séu auglýst á fleiri stöðum.
Í umræðum um launamun kynja verður mörgum Sjálfstæðismönnum tíðrætt um að við starfaráðningar sé mikilvægt að velja hæfasta einstaklinginn. Maður skyldi ætla að þeir sem mest halda fram slíku leggi mikla áherslu á að hafa úr sem mestu að velja og sem flestir sem gætu verið sá hæfasti hafi möguleika á að sækja og vita að verið sé að leita að manneskju í starfið. En auglýsingar sem er farið með svo heimulega að þær eru bara auglýstar í Lögbirtingablaðinu eru langt í frá dæmi um opna og lýðræðislega stjórnarhætti.
Þvert á móti verður að telja að svona auglýsingar séu bara formsatriði til að uppfylla lagaskyldur og þegar sé búið að ráða í starfið, þegar sér búið að velja "hæfasta einstaklinginn". Okkur femínistum grunar að þetta orðalag "hæfasti einstaklingurinn" sé dulmál fyrir karlmann og það úthlutunarkerfi gæða sem viðheldur karlveldinu. Svona starfaauglýsingar ýta undir þann grun.
En þar er svo sannarlega kominn tími til að rýna í hvernig ráðið er í stjórnunarstörf hjá hinu opinbera.
![]() |
Embættinu skylt að nota Lögbirtingablað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2007 | 10:48
Stjarna deyr
Stjarnan SN 2006gy er að splundrast. Þessi stjarna er 150 sinnum stærri en sólin. Hún verður að sprengistjörnu (super nova). Ég held að við séum ekki í bráðri hættu að verða fyrir ögnunum því stjarnan er í 240 milljón ljósára fjarlægð.
Ég velti fyrir mér hvort einhvern tíma verði þær hugmyndir sem við höfum um alheiminn og sem fremstu vísindamenn okkar styðja með útreikningum sínum kollvarpað með öðrum kenningum og annarri hugsun. Tyche Brahe var fremsti vísindamaður Norðurlandanna á sinni tíð. Hann reiknaði og reiknaði og færði rök fyrir alheimi sem væri þannig að sólin snerist um jörðina.
Wikipedia greinin um Tyche Brahe fjallar meira um vandamál hans við að pissa og úr hvernig nefið á honum var gert heldur en hinar merku kenningar hans um stjörnufræði.
7.5.2007 | 10:36
Svo kom Kaninn, þaninn, kommúnistabaninn...
Það eru bara nokkrir mánuðir síðan bandaríski herinn kvaddi okkur hérna á Íslandi og þá héldu herstöðvaandstæðingar herkveðjuhátíð. En af hverju ekki að halda líka hátíðlegan daginn sem þeir komu en það var einmitt í dag 7. maí sem herinn kom niður úr skýjunum til Keflavíkur. Ég skoðaði Morgunblaðið, blað allra landsmanna þennan dag og hér er forsíðan. Reyndar sýnist mér Morgunblaðið á þessum tíma hafa verið meira blað "lýðræðisflokkanna" heldur en allra landsmanna, maður les milli línanna að þeir sem ekki vildu herinn væru bara rumpulýður sem ekki væri talinn með. Það er hatrammur andsovétskur áróður í Morgunblaðinu á þessum tíma og mjög harðneskulegt tal um andstæðinga markaðshagkerfis. Það er nú bara gott að Mogginn hafi mildast með árunum og orðið umburðarlyndari.
En sum skrif í Morgunblaðinu daginn sem herinn kom 7. maí 1951 eru alveg eins og þau séu skrifuð í dag og endurómi skoðanir sem notaðar eru til að réttlæta stríð í Austurlöndum. Ég gluggaði í Reykjavíkurbréf þennan og læt fylgja með hérna pistilinn Næsta skrefið í Iran þar sem útmáluð er nauðsyn þess að ráðast á Íran, það vanti olíu á Vesturlönd og svo geti sé bara hættulegt íkveikjuefni að hafa Íranina þarna afskiptalausa. Það vantar bara nýmóðins orð eins og hryðjuverk .
Herinn gerði aldrei neitt mikið hérna nema skaffa Íslendingum atvinnu og þjóðinni gjaldeyristekjur. Ég veit ekki einu sinni hver vann stríðið... kalda stríðið. Sennilega voru það Vesturveldin sem unnu, þau eru alla vega til ennþá og hafa ekki liðast í sundur eins og Sovétríkin.
En ég veit að víglínan lá í gegnum Berlín, hún var búin til í áróðursstríði og hún var líka búin til með járntjaldinu og múrnum sem skildi að austur og vestur.
Þó járntjaldið hafi fallið og múrinn verið brotinn niður þá get ég ekki séð annað en önnur tjöld og aðrir múrar hafi risið. Ég get ekki séð annað en núna sé víða þjarmað að fólki og frelsi þess skert einmitt í ríkjum og af valdhöfum sem telja sig frelsiskyndla hér á jarðkringlu.
Kaldastríðið náði hámarki þegar vesturhluti Berlínar varð eins og einangruð eyja inn í landsvæðum kommúnista.
Orð Kennedy Bandaríkjaforseta og ákall hans um frelsi og samkennd allra frelsisunnandi sem hann flutti af svölunum í ráðhúsi í Berlín eru fleyg. Hann sagði:
Two thousand years ago the proudest boast was civis romanus sum [I am a Roman citizen]. Today, in the world of freedom, the proudest boast is 'Ich bin ein Berliner'...All free men, wherever they may live, are citizens of Berlin, and, therefore, as a free man, I take pride in the words 'Ich bin ein Berliner!'
Ég fylki mér undir orð Kennedys og geri að mínum og segi "Ich bin ein Berliner" sem snarað á Framsóknaríslensku (Framsóknarflokkurinn er einnig nefndur kleinuflokkurinn) útleggst "Ég er kleinuhringur".
Kleinuhringir allra landa, sameinist!
6.5.2007 | 20:03
Forsetafréttir úr þremur löndum Ísland, Frakkland, Tyrkland
Vonandi er ekkert alvarlegt að Ólafi Ragnari forseta okkar. Hann var í Stykkilshólmi að opna vatnasafn Roni Horn .Ég hef lengi haft áhuga á list Roni Horn og pælingum hennar um vatnið og skynjunina, sjá þessi blogg:
Ég skrifaði þar m.a. þetta um Roni Horn:
Hún er mjög upptekin af því að staðsetja (to place) og hvað felist í að vera á stað og hugmynd hennar um Ísland er að það sé sögn fremur en nafnorð. Roni Horn er kannski alveg eins skáld eins og myndlistarmaður, hún er upptekin af kynleysi, þrá og eðli tungumáls og sækir efnivið í texta eftir Emily Dickinsson. Hún hefur velt fyrir sér hvernig Emily Dickinsson sá og skynjaði án þess að ferðast og hvernig Verne gat skrifað og lýst aðstæðum á Íslandi án þess að koma nokkurn tíma hingað. Hún pælir í því hvernig umhverfið verður manneskjan, hvernig eyðimörk getur ekki gefið manni neitt nema hún sé hluti af manni og hún segir "you are the weather" eða þú ert veðrið og hún hefur gert eina bók með myndum af íslenskri konu sem á að lýsa því, myndum sem eru teknar við mismunandi veður og það er ekki hægt að þekkja að það sé sama manneskja á myndunum því manneskjan verður veðrið. Hér til hliðar er forsíðumynd úr þeirri bók. Roni Horn er merkilegur listamaður og gaman að pæla í verkum hennar, þau eru ljóð eða mynd eða eitthvað sem er ekki bundið við form. Hún segir á einum stað: "The entrance to all my work is the idea of an encyclopedia of identity".
Annars var merkilegt að helstu fréttir kvöldsins eru fréttir af þremur forsetum. Forseti Íslands var fluttur frá Snæfellsnesi með þyrlu á Landsspítalann, úrslit voru kunn úr forsetakosningunum í Frakklandi - þar tapaði konan sem var í framboði en harður hægri maður vann og í Tyrklandi dró umdeildur forsetaframbjóðandi framboð sitt til baka - en konan hans gengur með slæðu.
![]() |
Forsetinn við góða heilsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2007 | 13:36
Börn alkóhólista, Youtube og Mogginn
Ég var hissa þegar ég sá frétt um þetta myndband á mbl.is. Fréttin er að sextán ára dóttir þekkts leikara tekur mynd af föður sínum dauðadrukknum og setur á Youtube. Mér fannst þetta tímamót í fjölmiðlum. Bæði að heimavídeó af einkalífi fólks á youtube væru fréttaefni á mbl.is og svo þetta gífurlega nærgöngula myndefni. Barn (16 ára er barn skv. íslenskum lögum) alkóhólista tekur vídeó af föður sínum drukknum og setur á Netið sennilega í því augnamiði að niðurlægja föður sinn - annað hvort til að hefna sín eða sem von um að niðurlægingin verði svo mikil að faðir hennar taki sig á. Þetta er sorglegt myndefni og þetta eru sorglegar heimilisaðstæður.
Því miður er ofdrykkja og alkóhólismi vandamál á nærri því hverju einasta heimili sem ég þekki til á. Því miður eru mörg þúsund börn að alast núna upp á heimilum við aðstæður þar sem foreldrar eru útúrdrukknir og vanrækja skyldur sínar sem foreldrar. Í flestum tilvikum eru það feðurnir og í flestum tilvikum er reynt að halda áfengisvandamálinu leyndu fyrir börnunum og kóa þar margir með.
![]() |
Dóttir Davids Hasselhoffs myndar útúrdrukkinn föður sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.5.2007 | 11:54
Guð launar þeim sem barnsins gætir
Foreldrar í sumarfríi á sólarströnd í Portúgal fara út á tapasveitingastað nokkur hundruð metrum frá hótelíbúð sinni. Það er ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þau skilja börnin sín eftir sofandi í íbúðinni, þriggja ára telpu og tveggja ára tvíbura. Þau skiptast á að fara að líta eftir börnunum, seinast sá faðirinn stelpuna kl. níu en þegar móðirin kemur kl. tíu þá er stelpan horfin. Það kemur fram í frétt á BBC að portúgalska lögreglan hefur ákveðinn aðila grunaðan um hvarf stelpunnar og telur hana vera á lífi og í nágrenninu.
Það sem manni finnst einkennilegast í þessu máli er hvernig í ósköpunum foreldrunum datt í hug að fara frá börnunum. Það var ekki eins og þau hefðu enga valkosti, það er boðið upp á barnagæslu á vegum fyrirtækisins sem rekur íbúðirnar og þau hefðu getað farið með börnin þangað. Þau eru einnig tvö og hefðu getað skipst á að vera hjá börnunum. Það er heldur ekki þannig að foreldranir séu fákunnandi og bláfátækir fíklar eða óreglufólk. Þau eru bæði læknar og sérfræðingar og þetta er þess óskiljanlegra þar sem þau hljóta að hafa fengið sérstaka þjálfun í að annast ósjálfbjarga fólk sem þarf stöðugt eftirlit.
Það er því miður svo að fólk skilur oft börn eftir við aðstæður sem geta verið hættulegar. Fólk fer frá sofandi börnum sem eru allt of ung til að passa sig sjálf og fólk skilur börn eftir í umsjá eldri systkina sem eru allt of ung til að bera ábyrgð á yngri systkinum. Í mörgum tilvikum kemur ekkert fyrir, það er ekki erfitt að passa sofandi barn en það getur verið að barnið vakni og taki upp á einhverju skrýtnu, það vita allir foreldrar sem hafa vaknað seinna en ung börn um helgar að það virðast lítil takmörk fyrir því hvað börnin geta tekið upp á ef þau eru ein að morgni dags t.d. eldhúsinu.
![]() |
Talið að breskri stúlku hafi verið rænt í Portúgal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.5.2007 | 16:27
Fangar tjúllast
Fangar tjúllast og unglingar tjúllast þegar teknar eru af þeim tölvurnar eins og þessi frétt um óeirðir í öryggisfangelsi í London segir frá. Ég er reyndar ekki að fatta hvers vegna fangar í fangelsum geta ekki haft aðgang að Netinu undir eftirliti. Þá vil ég náttúrulega undanskilja þá sem eru líklegir til að fremja glæpi sem tengjast netnotkun þ.e. fíkniefnasala og barnaperra eins og hann Ágúst sem einmitt reyndi að fremja afbrot þegar hann var að afplána í opnu fangelsi eins og Kompásþátturinn afhjúpaði svo eftirminnilega.
En Netaðgangur fanga er ekki bara verkfæri sem þeir geta notað til að fremja afbrot, leggja á ráðin um hryðjuverk, sammælast við dópsala og klæmast við börn. Netaðgangur gerir föngum líka kleift að stunda nám utan fangelsis og það má velta því fyrir sér hvort það þjóðfélag er ekki mannúðlegast sem leyfir öllum að hafa rödd, líka þeim sem lægst standa í samfélagsstiganum, líka þeim sem eru lokaðir inn á stofnunum vegna afbrota sinna. Þannig þætti mér hið besta mál að fangar gætu bloggað og lýst lífi sínu og líðan - og ekki síst sagt okkur hinum sem utan fangelsis erum hvort þar sé allt með felldu og mannréttindi virt. Ég hafði gaman af því að kíkja stöku sinnum á bloggið hjá Bryggjutröllunum en það voru nokkrir strákar á Kvíabryggju sem blogguðu saman - reyndar var það bróðir eins sem setti inn á bloggið skrif fanganna þegar hann kom í bæinn. Mér fannst þetta blogg gefa innsýn í hugarheim þeirra og hvaða ráð þeir höfðu til að umbera þær aðstæður sem þeir voru í, þeir báru sig vel, voru kokhraustir en undir niðri fann maður þá kvöl sem ég held að sé alltaf hluti af lífi þess sem sviptur er frelsinu. En blogginu þeirra var lokað.
![]() |
Óeirðir í fangelsi í Lundúnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.5.2007 | 15:36
Rasphús Ríkisins
Það er verið að stækka og auka við fangelsi á mörgum stöðum á Íslandi. Það er kannski fylgifiskur góðærisins og liður í að grynnka á biðlistunum - biðlistum eftir að fá að afplána dóma fyrir afbrot.
Einhvers staðar verða vondir að vera. En það er afar óskynsamlegt að koma þeim fyrir við aðstæður þar sem þeir verða ennþá verri. Stór hluti (meirihlutinn?) þeirra sem nú gista fangelsi Islandi eru þar vegna fíkniefnabrota - í mjög mörgum tilvikum eru það fíklar sem hafa leiðst á þessa glapstigu vegna neyslu sinnar eða umkomulaust fólk sem er burðardýr og leiksoppar dópsala. Rannsókn sem var kynnt nýlega bendir til að margir fangar eigi við einhvers konar geðraskanir að stríða.
Hvernig sem á málið er litið þá er engin skynsemi í öðru en horfa á fangelsismál í samhengi við lífshlaup fanga eftir að refsivist lýkur en ekki einangraðan stað þar sem framtíðin skiptir ekki máli. Það er því miður margar, margar sögur af því hvernig fangelsin hafa verið sá staður sem steypti fólki út á glæpabrautina, þar myndaðist vina- og tengslanet aðila sem voru í sömu aðstæðum og sama lífsmynstri. Það var líka nýlega birt skýrsla um heimili unglinga í vandræðum og óreglu sem komið var fyrir í Háholti í Skagafirði. Unglingarnir létu vel af dvölinni en rannsóknin sýndi að 90% þeirra voru komnir aftur í óreglu fljótt eftir að þeir útskrifuðust af heimilinu. Það er sennilega flestum í fersku minni umræðan sem varð um unglingaheimilið á Breiðuvík og við höfum fengið að sjá hvernig dvöl þar lék drengina og merkti þá fyrir lífstíð og sumir þeirra pendla núna út og inn úr fangelsum.
Það er hægt að setja marga mælikvarða á gæði fangelsa.
Einn mælikvarði er hversu víggirt þau eru og hve erfitt er fyrir fangana að sleppa út og hve örugg við sem erum utan fangelsisins um að fangarnir gangi ekki lausir. Annar mælikvarði er hvernig föngunum líður á afplánunartímanum og hve vel mannréttindum er sinnt í fangelsinu og hvaða tækifæri fangarnir hafa til að taka sig á og bæta sig og halda sambandi við fjölskyldur sínar. Þriðji mælikvarðinn er hversu vel föngunum gengur að halda sig frá afbrotum eftir að fangelsisdvöl lýkur og hve nýtir þjóðfélagsþegnar þeir verða. Það er alveg nauðsynlegt að safnað sé gögnum um árangur og eða árangursleysi fangelsisdvalar og metið á einhvern hátt hvort þeir valkostir sem við höfum nú í fangamálum eru líklegir til að búa til forherta afbrotamenn úr smákrimmum.
Ég skrifaði pistil árið 2005 á málefnin.com í kjölfar umræðu sem þá var í Kastljósinu hjá Rúv um málefni fanga. Ég lími þennan pistil hér inn:
Kastljósið er búið að vera með ágæta umfjöllun um fangelsismál núna tvö kvöld í röð. Vonandi vekur þetta fólk til umhugsunar um þetta mikilvæga mál þ.e. hvað er að gerast í fangelsunum, hvernig er líf fanga og tengsl þeirra við fjölskyldur sínar og að hvaða leyti virka fangelsin sem betrunarhús. Ég vil hrósa Kastljósinu fyrir að hafa komið með bæði sjónarmið fanga og fangavarða og haft viðmælendur úr báðum hópum. Vonandi vekur þetta líka fólk til umhugsunar um hvernig fangelsin endurspegla þjóðfélagið og hvað þeim sem völdin hafa finnst vera glæpur og hverjum er refsað. Það er auðvelt að sjá flísina í auga náunga síns en koma ekki auga á bjálkann í sínu eigin auga. Þannig sjáum við að refsivist í öðrum löndum er einkennileg og virðast ákveðnum þjóðfélagshópum refsað meira en öðrum - þannig eru fangelsi í Bandaríkjunum full af ungum blökkumönnum - þannig er fólk af skrítinni trú eins og Falun Gong í fangelsum í Kína og þannig er fólk víða um heim í fangelsi vegna stjórnmálaskoðanna sinna. Hér á Íslandi er svo komið (það kom fram í Kastljósinu) að þriðjungurinn af þeim sem sitja í fangelsi eru þar vegna fíkniefnabrota og eru í mörgum tilvikum fíkniefnaneytendur og alkóhólistar sjálfir.
Það eru góðar upplýsingar um fangelsismál á Íslandi á vefsetrinu www.fangelsi.is og þar má m.a. lesa ársskýrslur fangelsismálastofnunar. Sú nýjasta á vefnum er frá 2003. Þar kemur fram að framlag til fangelsismála er yfir 600 millj. eftir að tekið hefur verið tillit til sértekna og það er að langmestu leyti (um 70%) launakostnaður. Fangar eru vistaðir í 42.222 daga í fangelsum, utan fangelsana voru vistunardagar 6.188 þar af um 3/4 á Vernd. Ef tekið er tillit til launakostnaðar við yfirstjórn og eingöngu litið á rekstrarkostnað við fangelsin sjálf og það skoðað og borið saman við fangelsisdaga þá sýnist mér að hver dagur sem fangi er í fangelsi á Íslandi hafi árið 2003 kostað íslenska skattborgara yfir 14 þúsund krónur eða yfir 420 þúsund á mánuði. Sennilega er þessi tala mun hærri núna tveimur árum seinna.
Út frá öllum skynsemis- og mannúðarsjónarmiðum er ástæða til að skoða vel valkosti í fangelsismálum. Borgar það sig virkilega fyrir íslensku þjóðina að loka fólk inni í langan tíma, borga fyrir það nálægt hálfri milljón á mánuði og láta það forherðast svo mikil að eftir vistina komi fólkið ennþá skaddaðra út?
Eru ekki einhverjir aðrir betri kostir í fangelsis- og betrunarmálun en að byggja fleiri og víggirtari og stærri fangelsi? Er ef til vill skynsamlegt að skoða þessi mál alveg upp á nýtt, af hverju er ekki hægt að nota sömu hugmyndafræði við fangelsi og við annað fólk sem einu sinni var staflað saman á stofnunum? Núna er t.d. mikið fatlað og þroskaheft fólk á litlum sambýlum - af hverju er ekki hægt að hafa örlitlar betrunarhúsaeiningar t.d. staðsettar út í sveit? Það er rándýrt að vista fólk á þessum fangelsum sem við höfum í dag og það er ómanneskjulegt umhverfi.
Ég bið fólk að kynna sér sögu brotamanna t.d. Vatnsberans. Hér er bloggpistill sem ég skrifaði um það mál árið 2002.QUOTE1.8.02 Salvor Gissurardottir
Íslensk sakamál - Vatnsberamálið
Ég horfði á þáttinn Íslensk sakamál í sjónvarpinu í gær, þessi þáttur var um Þórhall Ölver og Vatnsberamálið. Þetta er stórkostlega vel gerður þáttur, ég held ég bara muni ekki eftir að hafa séð svona áhrifaríkan og magnaðan íslenskan heimildaþátt áður. Vakti mig til umhugsunar um hvers konar örlagaþræðir tengja atburði saman og hvernig refsing og fangelsisdvöl geta brotið fólk niður og búið til skrímsli úr svikahröppum.
Þátturinn náði langt út fyrir að fjalla bara um sjálft sakamálið sem var morð Þórhalls á Agnari þann 14. júlí 2000. Þátturinn hófst á því að rekja hræðilega skotárás sem móðir Þórhalls og hann sjálfur lentu í þegar hann var unglingur og leitast var við að sýna hvaða áhrif sú reynsla hafði á hvernig Þórhallur brást síðar við á lífsleiðinni. Svo fjallaði þátturinn líka um íslensk atvinnulíf á ákveðnum tíma og hvernig erlendir og innlendir gullgrafarar og svikahrappar reyndu að búa til peninga úr engu og um afar litríkan og brösóttan feril Þórhalls í framkvæmdum, fjárglæfrum og fjársvikum. Þórhallur fékk árið 1995 einn þyngsta fangelsisdóm sem kveðinn hefur verið upp hérlendis fyrir auðgunarbrot en hann var dæmdur til 3 ára fangelsisvistar.
Þórhallur Ölver var framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Útflutningsfyrirtækisins Vatnsberans hf., sem var stofnað til að undirbúa útflutning á vatni. Agnar vann í bókhaldinu hjá því fyrirtæki. Fjársvikin voru framin á árunum 1992-1994 á þann hátt að skilað var vikulega röngum virðisaukaskattskýrslum.
Þórhallur Ölver krækti víða í fé, m.a. fékk hann töluvert fé frá Ábyrgðarsjóði launa vegna orlofs sem Vatnsberinn hefði átt að greiða honum, hann mun hafa hafði rætt við starfsmann sjóðsins og þá m.a. lýst því yfir að Vatnsberinn væri líknarfélag sem menn störfuðu fyrir af hugsjón. Allt féð sem svikið var út virðist hafa farið í umsvif Vatnsberans nema að Þórhallur segir að Agnar hafi komið undan fé og lagt á reikning í útlöndum, það var rót að misklíð þeirra og vígi Agnars.
Þórhallur og Agnar voru vinir. Atli Helgason og Einar Örn voru líka vinir og ráku saman fataverslun í Reykjavík. Atli var skiptastjóri í dánarbúi Agnars og sagði að í því búi hafi ekki verið sá erlendi sjóður sem Þórhallur segir Agnar hafa skuldað sér. Atli var nokkrum mánuðum seinna ákærður fyrir manndráp og fjárdrátt, m.a. fjárdrátt úr búi Agnars. Atli banaði Einari Erni 8. nóvember 2000 með því að slá hann margoft í höfuðið með hamri á bifreiðastæði í Öskjuhlíð í Reykjavík. Hann faldi líkið í Grindavík og tók sjálfur þátt í leitinni að Einari Erni.
Rúmu ári seinna eða 18. febrúar 2002 var Þór Sigurðsson á ferð um nótt á Víðimel vopnaður sveðju, slaghamri og kjötexi. Hann var í vímu og að koma úr innbrotsferð á fyrrum vinnustað sinn Hjólbarðaviðgerð Vesturbæjar og banar Braga Óskarssyni sem er að koma úr vinnu. Ekki er vitað til þess að þeir hafi þekkst.
Sennilega afplána þessir þrír morðingar núna refsingar sínar á fangelsinu á Eyrarbakka, þeirra afbrot eru stór og morðin óhugnanleg. Spurning er hvernig manneskjur þeir verða þegar þeir hafa afplánað og hvort þeir fá einhver tækifæri til að bæta fyrir glæpi sína og byggja sjálfa sig upp meðan á afplánun stendur. Þeir voru í áfengis- og fíkniefnaneyslu þegar morðin voru framin.
Það var viðtal við aðstandendur Þórhalls í þættinum í gær og það kom fram hvernig fangelsisdvölin fyrir fjármálabrotin hafði brotið Þórhall niður og hve óttaslegin þau eru um hvað tekur við eftir þegar hann hefur afplánað.
![]() |
Unnið að stækkun fangelsis á Kvíabryggju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)