7.12.2006 | 15:05
Mynd mín af Hallgrími Péturssyni
Ég ætlaði á sýninguna í Hallgrímskirkju á laugardaginn þar sem margir listamenn sýna myndir sínar af Hallgrími Péturssyni en ég fór dagavillt. Ég skóp því mína eigin mynd af Hallgrími Péturssyni í þann efnivið sem ég þekki. Þemað er holdsveiki og trú, líkami og sál.
Hér er myndin:
Myndin er er remix mitt úr þremur myndum sem ég fann á Wikimedia Commons. Þema myndarinnar er innblásin trú, mót austurs og vesturs, þeir sem eru utan gátta, veikir afskæmdir og útskúfaðir. Bakgrunnurinn er mynd úr kórani Al Andalus frá 11. öld og mynd af holdsveikrakapellu í Cambridge. Í forgrunni er máluð mynd af íslenskri holdsveikri konu úr Íslandsleiðangri fyrri tíma.
Meginflokkur: Menning og listir | Aukaflokkar: Tölvur og tækni, Vefurinn, föndur | Breytt 27.10.2007 kl. 13:38 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er skemmtileg mynd og flott hugsun á bak við hana.
Þú skalt endilega kíkja á sýninguna, þarna eru margar áhugaverðar myndir og skemmtileg sýn á Hallgrím, til dæmis eftir Georg Guðna og Aðalheiði Valgeirsdóttur.
Árni Svanur Daníelsson, 7.12.2006 kl. 19:12
Forvitnilegt og skemmtilegt samspil. Mjög áhugavert að vinna eftr þema! gæsilegt.
www.zordis.com, 7.12.2006 kl. 23:01
já, ætla að skoða sýninguna, það er ennþá meira gaman núna þegar ég er búið að gera mína eigin mynd af Hallgrími.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 8.12.2006 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.