6.12.2006 | 11:06
Hvað er Fons?
Hvað er þetta Fons sem núna á 14,85% af 365 miðlum? Það eru frekar fátæklegar upplýsingar um það á vefsíðu fons. Þar stendur þetta eitt:
Fons er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum á fyrirtækjum með mikla framtíðarmöguleika til vaxtar og hagræðingar. Félagið kemur inn í fyrirtæki sem virkur eigandi og hjálpar til við ná hámarksárangri út úr rekstri fyrirtækja.
Mér finnst að fyrirtæki sem svona mikill völlur er á og stór spilari á íslenskum fjölmiðlamarkaði gæti nú spanderað einhverju meira í upplýsingar á vefsíðu sinni.
Fons á Iceland Express og slatta af flugfélögum.
Fons á sænsku ferðaskrifstofuna Ticket
Straumur Burðarás selur allan sinn hlut í 365 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:20 | Facebook
Athugasemdir
"Skrítið" að þú skulir vekja athygli á FONS. Það er félagið sem eyddi tugmilljónum í að styðja stórvin þinn Binga til Borgarstjórnar. Aðal stuðningsmaður hans, Matthías Imsland og formaður ungra í suður, er einnig í svo til öllum stjórnum sem FONS getur skipað. Framkvæmdastjóri Iceland Express, SHELL; Spron, Spvh osfrvh. Þetta "vissir" þú náttúrulega ekki.
svellir (IP-tala skráð) 12.12.2006 kl. 02:56
Takk fyrir upplýsingarnar þó mér líki ekki að þær séu settar fram til að gera lítið úr nafngreindum mönnum.
Ef það er svo mikill völlur á einu fyrirtæki að það eyði miklu fé í að styðja ítök sín í fjölmiðlum og stjórnmálaflokkum þá er þess meiri ástæða til að kalla eftir upplýsingum um þetta fyrirtæki.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 12.12.2006 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.