22.6.2008 | 21:35
Steingrímur - smiđur sem byggir brýr
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á málţingi til heiđurs Steingrími Hermannssyni 80 ára. Málţingiđ var haldiđ í Salnum í Kópavogi. Mörg góđ erindi voru flutt, sérstaklega fannst mér góđ rćđan hjá Guđna og svo erindi Birgis Guđmundssonar um brúarsmíđi Steingríms. Birgir líkti ţar Steingrím viđ brúarsmiđ sem byggir brýr milli fólks og flokka og fór yfir hvernig Steingrími hefđi tekist ađ mynda samstöđu međal félagshyggjuflokka og samstöđu innan eigin flokks.
Ţađ var í lok málţingsins afhjúpađ málverk af Steingrími.
Ég ţekki Steingrím ekki persónulega en ég ber virđingu fyrir honum sem miklum stjórnmálamanni og ég hef lesiđ ćvisögu hans sem Dagur Eggertsson skráđi. Móđir mín var mikill ađdáandi Steingríms enda var hún sanntrúuđ Framsóknarkona og allir leiđtogar Framsóknar hófust sjálfkrafa í guđatölu hjá henni. Man ég ađ mér ţótti nóg um hvađ hún var ógagnrýnin á allar gjörđir sinna flokksmanna.
Ţađ var gaman ađ heyra persónulýsingar á Steingrími í gegnum erindin sem voru flutt í dag, hann var mađur sem sameinađi, alţýđlegur mađur sem lagđi sig eftir ađ hlusta á alla og vann verk sín skipulega. Ţađ var líka gaman ađ heyra í lokaávarpi Steingríms sjálfs hvernig hann rakti ţroska sinn frá ţví ađ hann kom ungur mađur heim frá námi fullur af áhuga á ţví ađ virkja allt sem hćgt vćri ađ virkja á Íslandi til ţess ađ hann verđur međ árunum međvitađri um umhverfismál og umhverfisvernd og skođun hans og áherslur breytast. Ég held ađ ţessi ţroskasaga sem Steingrímur rakti fyrir okkur eigi viđ um íslensku ţjóđina alla.
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á málţinginu
Hjónin Edda og Steingrímur fyrrum forsćtisráđherra í lok málţingsins
Sigurbjörg fyrrum formađur Freyju í Kópavogi, Jónína fyrrum umhverfisráđherra og Vigdís fyrrum forseti Íslands
Geir Haarde forsćtisráđherra mćtti á málţingiđ til ađ heiđra forvera sinn í starfi.
Áhrifamenn í orkumálum og umhverfismálum á Íslandi í dag, Friđrik forstjóri Landsvirkunar, Ólafur Ragnar forseti Íslands og Össur iđnađar og orkumálaráđherra.
Sigrún Magnúsdóttir fyrrum borgarfulltrúi segir ađ Steingrímur Hermannsson hafi búiđ sig til sem stjórnmálamann.
Unnur Stefánsdóttir á íslenskum búning, Drífa Sigurđardóttir og ég
Guđni formađur Framsóknarflokksins í góđum félagsskap
Ungir Framsóknarmenn mćttu til ađ hylla Steingrím áttrćđan.
Hér eru Fanný, Eggert og Bryndís
Guđmundur sonur Steingríms stýrđi málţinginu af röggsemi og spilađi á nikkuna sína ađ ţví loknu. Guđmundur ljóstrađi upp hvernig hann hefđi faliđ sig á milli hćđa á bernskuheimili sínu í Mávanesinu og fylgst međ öllum viđrćđum og plottum. Núna er Guđmundur ekki lengur á milli hćđa, hann er meira svona inn og út um gluggann sem varaţingmađur. Guđmundur er ekki eins og góđur Framsóknarmađur og fađir hans og talar stundum um Framsóknarmenn af drambi ćskumannsins.
Unnur, Drífa og Ólöf formađur Landssambands Framsóknarkvenna
Ţađ skiptast á skin og skuggar í sögu Framsóknarflokksins, ţađ vita ţeir Steingrímur fyrrum formađur og Bjarni Harđarsson ţingmađur Framsóknarflokksins á Suđurlandi sem hér eru ađ sumu leyti uppljómađir af sólinni og ađ sumu leyti í skugga. Í dag var haglél á Hellu í kjördćmi Bjarna ţó um hásumar vćri.
En öll él styttir upp um síđir.
Steingrímur Hermannsson 80 | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.