Raddþræðir

Ég er að prófa nýja græju hjá voicethread.com  þar  getur  maður  skráð sig  inn (það er ókeypis) og byrjað að  taka sjálfa sig upp. Það er líka hægt að hlaða inn myndum og ég hlóð inn tveimur myndum til að prófa það. Það á líka að vera hægt að hlaða inn vídeó en það virkaði nú ekki hjá mér.

Þessi græja er hugsun  til  nota  með  nemendur og fyrir kennara að ég held.  Krakkarnir geta  tekið upp sögurnar sínar.  Þetta  virðist  mjög  aðgengilegt  og  gæti  ekki  verið  einfaldara.

Það virkaði þrælvel að líma þetta inn á blogg strax í fyrstu atrennu. Það fer sjálfkrafa á næstu mynd þegar þetta spilast. Þetta kom hins vegar risastórt á  bloggið, best að prófa að setja þetta inn í minni útgáfu, best að velja "Put a small version on your site or blog":

 

 


Vonandi kemur þessi seinni í skaplegri stærð. Ég hugsa að sjálfgefna stærðin sé svona stór af því þetta er kerfi sem litlir krakkar geta unnið  og þau eru að segja sögur.

Þetta voicethread.com er dæmigert fyrir þau verkfæri eða netþjónustur sem nú spretta upp. Ef maður er með ókeypis skráningu þá  má maður mest geyma 75 mb og þrjá raddþræði og mest 30 mínútur af vídeó.

Ég rakst á þessa sniðugu græju þannig að á netnámskeiði sem ég er í Kanada þá voru þátttakendur beðnir að kynna sig þegar þeir byrjuðu námskeiðið með að taka upp eitthvað sem þeir sögðu og setja inn mynd.

Hérna fann ég svo dæmi um voicethread hjá notanda sem setti inn söguna sem litla stelpan hans talaði inn á.  Mér sýnist hægt að nota þetta með ungum börnum. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Þetta væri ég til í að prófa

Rósa Harðardóttir, 15.11.2007 kl. 20:47

2 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Skráðu þig bara snöggvast og prófaðu. Eina sem þú þarft er míkrófónn sem virkar. Þetta var afar einfalt.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 15.11.2007 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband