Framsókn fundin

 Staksteinar Morgunblaðsins hafa eins og aðrir landsmenn haft þungar áhyggjur af því að við Framsóknarmenn höfum ekki haft okkur nógu mikið í frammi, sjá t.d. þennan pistil Hvar er Framsókn?

Þeir spyrja þar hvort að Framsóknarflokkurinn sé bara Björn Ingi Hrafnsson og benda réttilega á mikilvægi þess hér sé  stjórnarandstaða. En það er að færast aftur líf í Framsóknarflokkinn eftir kosningarnar og nú um helgina verður landsþing framsóknarkvenna. Eygló Harðardóttir í Vestmannaeyjum sem einmitt er ein af moggabloggurum býður sig fram í formennsku. Vonandi nær hún kjöri, bæði er Eygló mikill kvenskörungur en svo finnst mér ekki síður mikilsvert að konur úr sjávarplássunum taki virkan þátt í stjórnmálalífinu á Íslandi og hafi áhrif. Það er ástæða til að hvetja allar konur sem vilja byggja upp öfluga stjórnarandstöðu og taka undir hugsjónir Framsóknarflokksins til að taka þátt í kvennahreyfingu Framsóknarflokksins.

Vefsíða landsambands framsóknarkvenna er http://www.lfk.is 

Bjarni Harðarson Framsóknarþingmaður hefur lagt land undir fót í sumar og flakkað um heiminn í leit að Framsóknarmönnum. Hann er núna í Perú og þar er hann búinn að finna nokkra sem líta út eins og Framsóknarmenn bernsku hans, sjá bloggið hans I riki iturvaxinna Framsoknarmanna

Já. Fréttir af andláti Framsóknarflokksins eru stórlega ýktar.

Svo má fylgjast með skrifum margra framsóknarmanna á bloggi.

Þingmenn Framsóknar


mbl.is Býður sig fram til formennsku í Landssambandi framsóknarkvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Framsóknarflokkurinn er algjör tímaskekkja og ætti að leggja niður, sá flokkur hefur gert minna gang en ógagn gegnum tíðina, þannig er nú  það bara.

Skarfurinn, 17.8.2007 kl. 14:01

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ususs-suss-suss, þessi listi yfir framsókanrbloggara virkar á mig eins og skrá yfir íbúa í kirkjugarði.

Jóhannes Ragnarsson, 17.8.2007 kl. 14:49

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Framsóknarflokkurinn er ekki dauður, en ef honum tekst ekki að móta sér skýra stefnu, ekki síst í sjávarútvegsmálum, þá er ekki að búast við því að hann nái sinni fyrri stærð.Eygló Harðardóttir hefur talað fyrir þjóðnýtingu á fiskveiðiauðlindinni, hún hafði sömu stefnu og Kristinn H. Gunnarsson, meðan hann var í framsóknarflokknum.Ríkisvæðing atvinnuvega er allsstaðar á undanhaldi, sjávarútvegs sem annars, og myndi leggja landsbyggðina í rúst,fyrst Vestmannaeyjar.Ég hef ekki orðið var við mikinn stuðning við stefnu Eyglóar Harðardóttur í samtölum mínum við Vestmannaeyinga,eða fólk almennt í sjávarplássunum í suðurkjördæmi.

Sigurgeir Jónsson, 19.8.2007 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband