28.3.2020 | 12:11
Kórónupartý
Ég fór í fyrsta kórónuveirupartíið í gær, það var starfsmannapartý á mínum vinnustað. Flestir á mínum vinnustað nota mikið alls kyns fjarkennslubúnað og eru alvanir að sinna vinnu sinni að stórum hluta gegnum netið. En ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem partíhald fer fram í gegnum netið. Það var ekki hist á krá í miðbænum eins og venja er heldur inn á Zoom netfundakerfinu. Það var góð mæting, sumir voru komnir í sumarbústaðina sína eða voru í bílnum á leið þangað, sumir voru heima í stofu en höfðu klætt sig upp á, þ.e.a.s. sett einhvern fínan bakgrunn eins og pálmatré á sólarströnd eða partýstemmingu. Þetta var staðlotulokapartý.
Staðlota verður netlota
Tilefnið var að fagna að nú væri búin ein mesta álagsvikan á misserinu, það er námslota þar sem vanalega er ætlast til að nemendur mæta á staðinn og heitir staðlota en auðvitað núna breyttist staðlotan snarlega í fjarlotu og kennslustundirnar sem hefðu verið í stofum breyttust í kennslustofum í Zoom fjarfundakerfinu.
Vinnustaður minn sem núna heitir Menntavísindasvið Háskóla Íslands en hét áður Kennaraháskóli Íslands er reyndar brautryðjandi í fjarkennslu og það var að mig minnir eitthvað í kringum 1993 sem fyrsta heildstæða háskólanámið var þar í boði og ég var rosalega önnum kafin þá við að kenna fjarnemum okkar á þessi nýju verkfæri, að nota módem og tölvupóst og tölvupósthópa og að nota tölvur því á þeim tíma voru tölvur alls ekki til á hverju heimili og alls ekki nettenging á heimilum enda var ekki ætlast til að nemendur tengdust frá heimilum sínum heldur var komið upp miðstöðvum í heimabyggð þeirra í grunnskólum eða fræðsluskrifstofum.
Samveira
En núna er sem sagt ekki bara námið og námsumhverfið komið inn í netheima, núna er líka samveran og félagslífið líka að færast á netið og fólk er að prófa alls konar nýja möguleika fyrir samskipti. Væri ekki sniðugt orð að nota samveira um alls konar svona samverustundir á tímum kórónuveikinnar?
Partýtips
Hér safna ég saman hugmyndum um kórónuveirupartý, samveiru eða zoompartý eða hvað við viljum kalla netgleðina
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.