26.4.2007 | 08:32
Garðúrgangur...það er nú ekki aðalruslið
Gaman að sjá Villa borgarstjóra hamast með hrífuna að raka garðinn sinn. Hann hlýtur að búa í öðru hverfi en ég ef garðaúrgangur er aðalvandamálið í hans garði. Í mínum garði hérna í Laugarneshverfinu er mesta draslið í garðinum alls konar plast og pappírsdrasl sem hingað fýkur og stráist yfir garðinn í hvert skipti sem einhverjir vindar blása. Vor í Reykjavík er tíminn þar sem runnarnir blómstra plastblómum og þar sem sígarettustubbarnir liggja eins og hráviði um allt. Það sem mér finnst átakanlegast er hvernig ástandið er við opinberar stofnanir og skóla.
Vor í Reykjavík. Plastblómin blómstra á runnum og trjám.
Ég átti leið framhjá Menntaskólanum í Hamrahlíð um síðustu helgi og þar blöktu plastdræsur í hverjum runna, ástandið við skólann var svona eins og að koma á vígvöll eftir útihátíð um verslunarhelgi. Það eru mörg hundruð ungmenni sem ganga (keyra?) þar um á hverjum degi, af hverju dettur engum í hug að taka til á lóðinni?
Mesta vandamálið í sambandi við umgengni í Reykjavík eru svæði við opinberar stofnanir og fyrirtæki. Það er alveg magnað hvernig stórfyrirtæki í glæsilegum húsakynnum leyfa draslinu að flæða og þeytast um allt. Núna þegar reykingar eru víða bannaðar innanhúss þá er oft það fyrsta sem mætir manni við andyri við stofnanir einhvers konar reykingastampar og sígarettustubbar út um allt. Sem betur fer er sums staðar við skóla líka búið að banna reykingar á skólalóð, ég tók eftir að það er stórt skilti á Verslunarskóla íslands sem segir að reykingar séu bannaðar þar.
Óska svo borgarstjóranum til hamingju með afmælið í dag!
Vorhreinsun í Reykjavík hefst um helgina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:54 | Facebook
Athugasemdir
Ég er sammála og Það var virkilega ósanngjarnt þegar verið var að kenna fráfarandi borgaryfirvöldum um óhreina borg. Brekkan hérna í neðra Breiðholti þar sem ég bý er alveg eins og í fyrravor öll útbíuð í rusli. Það er ekki nóg að láta mynda sig með bros á vör með ruslapoka! Ruslið er alveg jafn mikið um alla borg Og það verður almennt ekki þrifið fyrr en krakkarnir í vinnuskólanum fara í það. Þannig hefur það verið í þau 40 ár sem ég hef búið hér Þetta vissu menn líka í fyrravor en kusu að nota ómerkilegan áróður sem nú kemur þeim í koll.
Bergljót Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 05:40
Ég var einmitt að tala um þetta við mömmu áðan. Hefurðu gengið framhjá utanríkisráðuneytinu við Rauðarárstíg? Þar sést varla í runnana fyrir rusli. Ógeð alveg.
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.