11.1.2007 | 19:18
Föndur dagsins : Zapatista vetrarhúfur
Ég held áfram með föndurþátt á þessu bloggi og föndurhugmynd dagsins er Zapatista vetrarhúfur fyrir íslenska veðráttu. Þetta eru einkar klæðilegar flíkur og henta vel fyrir íslensk vetrarveður. Auðvelt er að prjóna svona húfur og má prjóna bæði á hringprjón og sem klukkuprjón eða garðaprjón. Svo má skreyta húfurnar með ýmsum merkjum og þær þurfa ekki endilega að vera svartar og það má gjarnan setja húfu á húfu.
Það má líka kynna sér uppruna húfunnar hérna:
Lausleg samantekt um zapatista-uppreisnina í Mexíkó og
Fleiri myndir af þessum fallegu húfum
Zapatista menningin er mjög myndræn og tíðkast að skreyta byggingar og veggi og bera borða með myndum. Zapatistar eru uppreisnarmenn sem berjast fyrir réttindum frumbyggja í Chiapas sem er fátækasta héraðið í Mexíkó.
Meginflokkur: Tölvur og tækni | Aukaflokkur: föndur | Breytt 27.10.2007 kl. 13:15 | Facebook
Athugasemdir
Það veitir náttúrlega ekki af hlýjum og góðum húfum í þessum kulda en ég yrði sennilega hálfhrædd ef ég myndi mæta einhverjum í myrkri með svona húfu ;)
Björg K. Sigurðardóttir, 11.1.2007 kl. 21:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.