Færsluflokkur: Tónlist

Mamma fór til Íslands

bennet - Mum's Gone To Iceland
bennet - Mum's Gon...
Hosted by eSnips

Datt niður á þetta skemmtilega 20 ára gamla lag um neyslusamfélagið og mömmuna sem fór til Íslands. Þetta er hljómsveitin Bennet. Textinn er svona:

Mum's Gone To Iceland


More food mama
Give us more food mama
Give us prawn ring mama
Give us anything mama
Thank God
My Mum has gone to Iceland
More cash dadda
Give her more cash dadda
Be a bit flash dadda
Give here more cash, more
Thank God
My Mum has gone to Iceland
And we don't have the dough
As the ad men well know
Got no concept of your bad cash flow
And if that ain't enough
Just as life gets more tough
They bring out a new game for my Nintendo
My head's popping
TV window shopping
And there ain't no stopping
With that ice cream topping
Thank God
My Mum has gone to Iceland
We want mama
What you can't afford mama
And the TV pressure's
Aimed at your little treasures
Thank God
My mum has gone to Iceland
Bleedy daddy dry
Watch my mummy cry
And I can't stop wanting
No matter how I try
Thank God
My mum has gone to Iceland


Símasexið fyrir 22 árum

Það eru 22 ár síðan hljómsveitin Village People söng lagið "Sex over the Phone" um keypt skyndikynni  með aðstoð samskiptatækninnar. Gaman að  spila þetta svona mörgum árum seinna.

Village People er skemmtileg  camp hljómsveit og flestir textarnir tengdir hommamenningu. Þetta lag um símasexið er nú bara meira camp í dag en fyrir 22 árum.

Hér er ágætur listi yfir lög nokkurra flytjenda á Youtube. 

Meira um camp HERMENAUT: Camp: An Introduction

 

 

  


New York ..... I don't like mondays

Ég fór í fyrsta skipti til New York  í janúar 1979 og það var líka í fyrsta skipti sem ég fór til útlanda. Ég hefði alveg eins getað verið marsbúi þarna, allt var svo framandi. Helsta heimild mín um amerískt þjóðlíf fyrir þann tíma var skrípamyndatímaritið Mad og svo  eldgamlar bandarískar bíómyndir sem sýndar voru í Rúv og svo meðan Kanasjónvarpið náðist þá hefði ég fylgst með "I love Lucy" og Bonanza.

En útlöndin voru öðruvísi, það var meiri harka, verra loft og minni sól og það var mökkur af gangsterum, fíklum, melludólgum, vændiskonum og útigangsmönnum. Það var alltaf skuggi á götunum í háhýsahverfunum á Manhattan. Ég sá strax fyrstu mínúturnar í borginni að útigangsmennirnir voru þeir sömu og hérlendis eru í ýmis konar vistheimilum og vændiskonurnar á götuhornunum voru allar svartar.  Svo heillaðist ég af sjónvarpinu á hótelinu og fjarstýringu. Ég hafði ekki séð þannig grip og aldrei verið í umhverfi þar sem síbyljan dunar á mörgum sjónvarpsrásum. Ég skemmti mér við að klikka á fjarstýringuna og ég man eftir hvað ég hugsaði þegar ég starði forviða á froðuna sem vall þar fram. Það var allt eins og guðdómlegur gleðileikur á þessum rásum og miklir brandarar og spenna, raddir sem  töluðu af innlifun og persónur sem geisluðu af gleði, tónlistin var dramatísk og hápunkturinn í öllum frásögnum var að borða eitthvað  og auglýsingar og efni runnu saman í eitt,  ég var ekki vön því frá landinu kalda.

Ég fór á tónleika með hljómsveitinni Dr. Hook í Radio City Hall og um leið og tónleikarnir byrjuðu þá gaus upp reykjarmökkur. Ég hélt að það væri kviknað í en svo fattaði ég að allir voru að reykja og það voru ekki sígarettur.  Hljómsveitin var á sama hóteli og við hittum þá á barnum eftir tónleikana.

Svo man ég eftir fyrstu fréttunum sem ég hlustaði á í landi Bush eða landi Nixons eins og það var þá, þar var fréttin um Brendu Spencer sem var sextán ára og mætti á mánudegi í skólann sinn með rifill og skaut á allt kvikt. Hún sagði "I don't like mondays" og hún sagðist vera að lífga upp á daginn. Ég héld að svona væru fréttirnar í USA, þetta væri hversdagslegur atburður í þessu skrýtna landi, mér fannst þetta líka í takt við lífið sem ég sá á götunum. 

Það var fyrst seinna þegar ég heyrði sönginn hjá  Bob Geldof og  Boomtown Rats "I don't like mondays" sem ég áttaði mig á því að þetta voru óvenjulegar fréttir. Þessi söngur er New York og Ameríka í mínum huga. Gaman líka að hlusta á þessa gömlu upptöku og hlusta á textann sem byrjar á því að kenna tölvuflögu í heila stúlkunnar um mánudagsæðið sem á hana rann. Hvað skyldi hafa verið sungið um í dag?

 Hér er frásögn af voðaverkinu:

On  29 January 1979, 16-year-old Brenda Ann Spencer opened fire on children arriving at Cleveland Elementary School in San Diego from her house across the street, killing two men and wounding eight students and a police officer. Principal Burton Wragg was attempting to rescue children in the line of fire when he was shot and killed, and custodian Mike Suchar was slain attempting to aid Wragg.

Spencer used a rifle her father had given her as a gift. As to what impelled her into this form of murderous madness, she told a reporter,''I don't like Mondays. This livens up the day.'' 

New York minning mín og þessi fyrstu mót mín við heiminn utan Ísland og fréttir annars staðar en í gegnum síu RÚV  er  fréttin af mánudagsdrápinu á versta degi ársins og  minningin er líka tengd hljómsveitinni Dr. Hook og  reykjarkófinu í Radio City Hall .

Síðan þá hef ég haldið upp á mörg lög með þeirri hljómsveit. Hér eru tvö þeirra:

Sylvias mother

Carrie me, Carrie

 


mbl.is Versti dagur ársins í vændum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónlist límt inn í blogg

Ég er að prófa SongSpots frá   Sonific.com en það er eitt af mörgum svæðum þar sem maður getur látið spila tónlist á bloggum og Myspace. Mér tekst ekki að nota lagafídusinn í moggablogginu og get ekki hlaðið inn neinum hljóðskrám þar. Best að hlusta á latneska tónlist til að æfa mig í spænsku. Ég virðist ekki geta spilað nema eitt lag í einu. Það er nú ekki sérstaklega spennandi.

Hérna prófa ég að setja inn óperutónlist



Prófa einu sinni enn... núna keltneskt lag um álfakonung.


og stúlkuna á ströndinni 

Sniðug lög frá Smithsonianglobalsounds


Myspace,netsamfélög og höfundarréttur

Það er ágætt að spila  Dont download this song  með Weirdal á meðal  maður les fréttir af málaferlum  eins og þessum frá Universal Music á hendur Myspace. Skrýtið ef Myspace væri dæmt fyrir "...leyfa almenningi að sækja myndbönd með ólöglegum hætti og veita aðgang að tækni sem gerir notendum kleift að skiptast á slíkum skrám..". Er það ólöglegt að veita aðgang að tækni? Fyrir mér hljómar það eins og einhver færi í mál við vegagerðina út af því að ökumaður keyrði drukkinn. Með því að hafa vegina opna þá skapast sú hætta að einhverjir ökumenn keyri drukknir. Er það á ábyrgð þess sem býr til og heldur við vegakerfinu?

Það er  viðkvæmt ástand í höfundarréttarmálum í heiminum í dag. Höfundarréttarlög eru snarbrotin á  vinsælum vefsvæðum þar sem inntakið kemur frá notendum. Það er einmitt eðli "web 2.0" vefsamfélaga að efnið kemur frá notendum.

Síðustu misseri hefur Myspace verið að breytast úr innantómum stefnumótavef og söluapparati í mjög áhugavert tónlistarsamfélag. Sennilega er nauðsynlegt fyrir alla unga tónlistarmenn í dag að hafa síðu á Myspace, þó ekki sé nema til að fylgjast með hvað aðrir eru að gera.

Hér er vefsíða sem ég tók saman um Myspace:

http://fyrirlestrar.khi.is/salvor/myspace/

Það er er ein leið greiðfærari en önnur fyrir skóla og aðila sem vilja og eiga að virða lög en vilja samt vinna með og fjölfalda margmiðlunarefni. Sú leið er að sleppa því alveg að nota efni sem varið er með hefðbundnum höfundarrétti og nota eingöngu efni  sem er heimagert eða sem sem má fjölfalda og vinna áfram með eftir settum reglum. Hér á ég við efni sem er sett á vefinn með höfundarréttarleyfi CreativeCommons.


mbl.is Universal Music stefnir MySpace
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband