19.5.2009 | 22:02
Dharavi
Dharavi er slömm í borginni Mumbai (Bombay) í Indlandi. Áætlað er að í því slömmi búi um 800 þúsund manns en í borginni allri búa 11 milljónir og er helmingur íbúanna búsettur í hinum ýmsu slömmum. Dharavi er næststærsta slömmið í Asíu. Það er frægt núna gegnum myndina Slumdog Millionaire
Það er gaman að skoða slömm á Google maps, hér má sjá hvernig slömmið umlykur skipulögðu svæðin, eitt einkenni á slömmum er að húsin þar eru reist í óleyfi fyrir utan allt skipulag: Dharavi - Google Maps
Dharavi var einu sinni eyja þar sem áður var mangrove fenjasvæði, svæði þar sem fiskimenn af Koli stétt bjuggu. Síðan fluttu þangað margir aðrir. Flestir íbúar Dharavi eru Dalítar.
Meira um Dharavi:
Photo Essay: India's Real-World Slumdogs
Dharavi - Photo Gallery - National Geographic Magazine
Dharavi - National Geographic Magazine
Núna er svínaflensan að stinga sér niður á Indlandi. Það getur verið að svoleiðis sjúkdómar breiðist mjög hratt út á svæðum eins Dharavi, svæðum þar sem fæstir hafa eigin salerni. Flestir hafa þó rennandi vatn og næstum allar fjölskyldur hafa sjónvarp.
Um aldamótin 1900 herjaði farsótt í Mumbai Þetta mun hafa verið plága af sömu sort og Svarti dauði.
Óttast að smitaðir séu 100.000 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Facebook
Athugasemdir
Sæl Salvör,
Veistu um íslenskt heiti á MANGROVE?
Bestu þakkir,
Viktor
Viktor Sveinsson (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 04:35
"Mangrove" er fenjaviður
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 20.5.2009 kl. 08:27
Takk fyrir svarið Ólöf,
Vona að þú sjáir þakkarkveðju mína,
Viktor
Viktor Sveinsson (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.