Var amfetamín verksmiðjan tilraunaverkefni unnið í samstarfi við Fangelsismálastofnun?

Það er mjög áhugavert að lesa þessa frétt frá janúar síðastliðnum sem lýsir að mér virðist hvernig Fangelsismálastofnun stóð við bakið á einum af þeim aðila sem nú hefur verið ásakaður um að tengjast amfetamínverksmiðju í Hafnarfirði.Hættulegasta eiturlyfið sem er á markaði í heiminum í dag er einmitt svona amfetamín sem kallað er Meth og ekkert eyðileggur fólk á eins skömmum tíma.

Svona var fréttin:
Brotamenn verða bisnessmenn
Eftir Ægi Þór Eysteinsson aegir@24stundir.is
Þeir Jónas Ingi Ragnarsson, sem hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm árið 2005 fyrir aðild sína að líkfundarmálinu svokallaða, og Atli Helgason, sem dæmdur var í sextán ára fangelsi árið 2001 fyrir manndráp, hafa stofnað tvö fyrirtæki saman, Feni ehf. og Hjúp ehf.Atli er stjórnarformaður hjá Feni en einn endurskoðanda er Sigurbjörn Sævar Grétarsson, sem hlaut fjögurra ára fangelsi árið 2004 fyrir kynferðisbrot. Tilgangur fyrirtækisins er fjármálaráðgjöf og hliðarstarfsemi innheimta.
Jónas Ingi er stjórnarformaður hjá Hjúpi en Friðjón Veigar Gunnarsson, sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi í janúar fyrir stórfellt fíkniefnasmygl, er titlaður sem skoðunarmaður hjá fyrirtækinu. Tilgangur fyrirtækisins er fjarskiptaþjónusta og hliðarstarfsemi þess er sala á gróður- og efnavörum.Hugmyndin varð til í fangelsinu„Hugmyndin varð til inni á Litla-Hrauni þegar við Atli vorum að ræða af hverju menn koma þangað alltaf aftur og aftur.
Þá átti Atli hugmyndina að því að koma á fót fyrirtækjaumgjörð sem gæti skapað núverandi og fyrrverandi föngum vinnu og tekið fjármál þeirra í gegn,“ segir Jónas Ingi. Fenir ehf. býður föngum upp á fjármálaráðgjöf og hjá Hjúpi stendur föngum atvinna til boða.Á meðal þjónustu sem Hjúpur býður upp á er símsvörun fyrir fyrirtæki. Þá svara fangar á Kvíabryggju símtölum fyrir fyrirtæki. „Þessu framtaki hefur verið misjafnlega tekið. Þegar ég fór að ræða við fyrirtæki og bjóða þessa þjónustu voru sum ekki hrifin af því að nafntogaðir einstaklingar með stór afbrot á bakinu væru að svara símanum fyrir þau.
En eftir að hafa komið þeim í skilning um að fangar sem sinna símsvörun verði sérvaldir og ekki þurfi að greiða föngum nema fjögur hundruð krónur á tímann, skiptu nokkur þeirra um skoðun og við náðum samningum. Sömuleiðis áttuðu fyrirtækin sig á hversu gott málefni þetta framtak er.“Að sögn Jónasar er um að ræða tilraunaverkefni til árs, unnið í samstarfi við Fangelsismálastofnun. „Auðvitað er markmið okkar að græða peninga á þessu, en með hagsmuni fanga fyrst og fremst að leiðarljósi. Ef til vill verður samfélagslegur ávinningur af verkefninu það mikill að það verði gróðasjónarmiðinu yfirsterkara.“Í hnotskurn
Að fyrirtækjunum koma um tuttugu manns, núverandi og fyrrverandi fangar og aðstandendur þeirra. Fenir ehf. býður föngum upp á gagngerra endurskoðun á fjármálum þeirra . Hjúpur býður nú fyrirtækjum uppá símsvörun. Fleiri verkefni eru í burðarliðnum.

mbl.is Brotamenn verða bisnessmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Salvör.

Það sem mér finnst vera kjarninn í þessari frétt í upphafi,að þarna fengum við að sjá hvernig valdi er MISBEITT í persónulegri þágu og gildir þá engu HVER LÖG OG FERLI LAGANNA ER. Konan þverbrýtur allt sem hægt er að brjóta.

Það er einmitt svipuð athæfi sem eru að sliga okkar þjóðfélag leynt og ljóst og það er okkar eitt albrýnasta verkefni að GEREYÐA þessum glæpum gegn stjórnsýslunni.

Mér finnst vera kominn tími á og þó fyrr hefði verið.

Takk fyrir greinina, Kærleikskveðjur.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband