15.4.2008 | 16:31
Morðingjatékk
Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar í leiðara í DV í dag:
"Það er skylda íslenskra yfirvalda við þjóðina og sérstaklega pólska innflytjendur, að bakgrunnur innflytjenda frá Póllandi sé kannaður áður en þeir koma til landsins. Í það minnsta mætti athuga hvort þeir hafi myrt einhvern nýlega".
Það hefur líka komið fram í fréttum að í gangi sé undirskriftasöfnun meðal Pólverja búsettra á Íslandi þar sem farið er fram á að íslensk stjórnvöld skoði bakgrunn fólks og passi að hingað flytjist ekki glæpalýður.
Um þetta vil ég segja að fólk, líka ritstjórar DV verða að átta sig á því að lög um mannréttindi og lög um ferðafrelsi gilda líka um dæmda sakamenn og löggæsluyfirvöld á Íslandi mega ekki eltast við fólk nema einhver grunur leiki á því að það sé að fremja afbrot eða undirbúa afbrot hérlendis eða þeir séu eftirlýstir á alþjóðavettvangi.
Það eru í 66 grein stjórnarskrárinnar
Ég held að það sé eitt einkenni góðs réttarfars að ekki er flanað að neinu þegar fólk er svipt ferðafrelsi og/eða hneppt í varðhald. Það má ekki gera nema stoð sé í lögum. Þó fólk sé algjörir skúrkar og dæmdir morðingjar þá hefur það líka mannréttindi. Fólk á flótta undan stjórnvöldum í einu landi sem kemur til Íslands er ekki framselt nema að einhverjir samningar gildi milli landanna.
Þetta minnir mig reyndar á Gervasoni málið fyrir mörgum áratugum en þá tók ég þátt í mótmælum vegna þess að Ísland vildi ekki skjóta skjólshúsi yfir franskan mann sem hafði neitað að gegna herþjónustu í Frakklandi og átti yfir höfði sér fangelsi þar.
Það eru stífar reglur á því hvenær má svipta fólk frelsi. Þegar fólk er grunað um afbrot þá er hægt að hneppa það í gæsluvarðhald ef það er talið nauðsynlegt út af rannsókn málsins. Það er líka hægt að setja það í farbann meðan rannsókn stendur yfir og réttað er í máli og dómstóll getur dæmt fólk til fangelsisvistar.
Það eru mörg dæmi um það í Evrópuríkjum að valdhafar hafi sigað lögreglu á almenning og búið til lögregluríki þar sem hugsandi fólk og allir andófsmenn sem eitthvað þorðu að tjá sig voru hnepptir í fangelsi og fluttir ánauðugir frá heimkynnum sínum.
Ég held að ríki þar sem á landamærunum er horft á tortryggni á alla útlendinga og þeirg grunaðir um að vera morðingjar þangað til annað kemur í ljós sé á góðri leið í að verða lögregluríki
Efirlýstur maður handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Vel mælt.
Kveðja,
Baldur F.
Baldur Fjölnisson, 15.4.2008 kl. 19:28
Ég veit svo sem ekkert um málið en þó virðist það snúast um eitthvað mafíuhyski og verndarpeninga og svo var því stútað á endanum og hlutað sundur og sett í ferðatöskur og sökkt í stöðuvatn. Geispi. Helmingur þjóðarinnar hefur víst farið í meðferð og kóerí og vesalingadýrkun eru því fyrir lifandis löngu orðin landlæg og fórnarlamb orðið að sökudólgi. Er það ekki hræðilegt.
Baldur Fjölnisson, 15.4.2008 kl. 20:37
Ert þetta þú Gunnar?
Friðrik Jónsson (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 03:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.