16.1.2008 | 11:27
Nígeríubréf og Nígeríuvændi
Það er íhugunarefni hvað það er í menningu og siðum og stjórnarháttum Nígeríu sem gerir það að verkum að fólk úr þessu ríki tengist svona mikið svindli og virðingarleysi fyrir lögum og reglu.
Þetta á ekki eingöngu við um Internetið, ég held að viðskiptahættir hafi verið skrýtnir í Nígeríuviðskiptum m.a. hef ég heyrt að þegar Íslendingar seldu þangað skreið fyrir mörgum áratugum þá hafi mútugreiðslur verið hluti viðskiptaháttum þar.
En Nígeríunetsvindlið er svo augljóst að maður er steinhissa hvað margir falla í þessar gryfjur og steinhissa á því að það komi tilkynning frá lögregluyfirvöldum að passa sig á þessu. Þetta er svona álíka og að senda út tilkynningu um fólk eigi að passa sig á kvefi og inflúensum, það séu bakteríur og veirur í loftinu sem geti smitast milli fólks.
Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að það sé á ábyrgð fjármálafyrirtækja eins og banka og opinberra aðila að uppfræða fólk um ábyrga nethegðun og varfærni í netviðskiptum og hjálpa því að sjá í gegnum svona augljóst svindl. Við erum fólk sem býr í þröngu samfélagi sem byggist á trausti, það er mjög erfitt fyrir fjármálaþrjóta að hverfa sporlaust í fjöldann hérna, það er ekki til neinn fjöldi til að hverfa í. Þess vegna eru við berskjaldaðri en margar aðrar þjóðir fyrir svindlurum þegar við flytjum okkur um set inn í óravíddir Internetsins þar sem allir geta horfið sporlaust, við treystum fólki.
En þó það sé pirrandi þetta Nígeríusvindl þá er annað sem nafn Nígeríu er oft tengt við og það er ennþá ömurlegra en netsvindlið og það er vændi og mansal á götum evrópskra borga. Það er hollt fyrir alla sem bera í bætifláka fyrir vændi að kynna sér hvernig staðið er að innflutningi kvenna og barna frá fátækum svæðum í Afríku. Ég held að vændiskonur sem fluttar eru til Evrópu komi allar frá svæðinu Edo í suðurhluta Nígeríu.
Sjá þessar greinar
Ítalska lögreglan ræðst gegn nígerísku mafíunni
Migration Information Source - Trafficking in Women from Nigeria ...
BBC NEWS | Africa | Nigerians lured to work in Italy
Hér eru tvö vídeó frá Youtube sem lýsa mismunandi sýn á vændiskonur í vegarkantinum. Annars vegar er það stúlka af Afríkuuppruna sem upplýsir um hvað er að gerast og reynir að hjálpa vændiskonum á þann hátt sem hún sér mögulegt og hins vegar er það 14 sekúndu myndbrot sem lýsir viðhorfum þeirra sem ég hugsa að séu dæmigerðir viðskiptamenn vændiskvenna í vegarkantinum.
Varað við fjársvikabréfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:57 | Facebook
Athugasemdir
Má til að þakka Ragnari og öðrum aðstandendum Næturvaktarinnar að vekja athygli á málinu í sínum þáttum. Ólafur Ragnar lét svo innilega plata sig.
Gestur Guðjónsson, 16.1.2008 kl. 11:38
Gott að vita að menn eru vakandi fyrir þessum málum, en á íslenska vefnum www.superhighway.is/iis er að finna stærðsta gagnabanka heims um málið, ásamt upplýsingum um nígeríusvindl, nígeríumál og almennt happadrættissvindl. Þessar upplýsingar eru öllum aðgengilegar án endurgjalds.
þessi vefur hefur verið starfræktur síðan 1992 eða frá byrjun Internetsins
Lifið heil
Njáll Harðarson, 16.1.2008 kl. 11:46
Ég tek undir með þér. Ég bara skil ekki hvernig fólk getur látið blekkjast af þessum fáránlegu sögum.
Steingerður Steinarsdóttir, 16.1.2008 kl. 16:20
einhvern veginn er erfitt að hafa samúð með þeim sem falla fyrir svona heimsku.
þurfa menn ekki að vera sérstaklega naívir til að falla fyrir löngum, epískum bréfum sem öll eru nákvæmlega eins:
segja raunasögu sonar fyrrverandi keisara í einhverju (helst óþekktu) bananalandi sem rétt tókst að bjarga milljónunum ( - stundum milljörðum - ) undan nýrri harðstjórn ..
svo fylgja á eftir nákvæmar leiðbeiningar hvernig maður getur grætt 20 - 50 milljónir með því að hjálpa brottreknu fjölskyldunni að bjarga peningunum burt.
bara gefa upp prívat bankareikning og allar helstu upplýsingar aðrar ..
samt er þetta ekkert nýtt. og ekkert bundið við internetið.
fyrir daga netsins fékk ég oftar en einu sinni bréf í pósti með sams konar tragískum sögum af forríkri landflótta fjölskyldu. ég skrifaðist á við marga á þessum tíma, og rétt eins og í dag virðist heimilisfangið hafa komist í hendur einhverra óprúttinna, jafnvel verið selt (- eins og algengt er í dag með netföng; fyrirtæki kaupa jafnvel 10 - 50.000 netföng í einu frá öðru fyrirtæki, enda vita þau að skvt. útreikningum munu 3 - 6% skila einhverjum árangri í viðskiptum til þeirra).
bréfin voru alltaf eins: það átti að senda svar fyrir tiltekinn tíma og bla bla bla.
þau voru reyndar allsvakaleg sum, miklu aggressívari en Nígeríubréfin frá landflótta keisarafjölskyldum í útlegð .. keðjubréfin innihéldu grimmilegar hótanir:
,, .. John Landworth sendi ekki bréfið áfram til 10 manns innan viku .. [það var yfirleitt krafan] .. Hann missti vinnuna í sömu viku og konan hans lamaðist frá hálsi og niðrúr .. "
en trikkið var að þau enduðu alltaf á loforðum um hrikalegan gróða - ef farið var eftir fyrirmælunum..
Halldór C (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 20:55
Ég hef takmarkaða samúð með þeim sem falla fyrir þessum gylliboðum. Oft á tíðum er verið að bjóða fólki að taka þátt í að stinga undan fé frá fátækum ríkisstjórnum fátækra Afríkuríkja, nú eða arfi sem annars hefði gengið til fólks í þessum löndum.
Kjartan Jónsson, 17.1.2008 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.