1.7.2007 | 18:39
Hvað er fólk að gera á Netinu?
Business week birti 11.júní síðastliðinni greinina Web Strategies that caters to customers svona til að leiðbeina fyrirtækjum um hvernig eigi að ná til fólks núna á netvæðingartímum. Það fylgdu með greininni tvær afar áhugaverðar yfirlitsmyndir um hvað fólk er að gera á vefnum. í fyrri myndinni þá má sjá hver skipting aldurshópanna er. Það er áhugavert hve fólk á menntaskólaaldri les mikið blogg og er að notað félagsnet s.s. Myspace og hve margir í eldri kynslóðum eru ekkert að fylgjast með þessum nýju samskiptaleiðum.
Það er líka áhugavert að það eru mjög fáir að setja inn efni og skapa efni t.d. á youtube, flickr og wikipedia. Mér finnst þetta sérstaklega áhugavert vegna þess að ég er stórnotandi á öllum þessum kerfum, ég hef sett inn meira en 3000 myndir á flickr og ég hef sett inn marga tugi af vídeóum sem ég hef búið til sjálf á Youtube og ég skrifa reglulega greinar á Wikipedia. Ég er greinilega í minnihluta. Hér er kortið yfir þetta:
Athugasemdir
Helmingurinn er að skoða eitthvað dónó!
Geir Jónsson (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 22:13
Sem ,,older boomer" finnst mér þetta mjög áhugavert. Á tengdamóður sem er að vísu ekki farin að blogga sjálf, enda ekki nema 76 ára, en hún kommenterar á blogg og er dugleg að lesa bloggið.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 2.7.2007 kl. 00:10
Athyglisvert. Það væri gaman að sjá hvort könnun á evrópskri netnotkun skilaði svipuðum niðurstöðum.
Marta B Helgadóttir, 2.7.2007 kl. 10:47
Pétur Björgvin ber sína nethegðun saman við nethegðun annarra Íslendinga í þessum bloggpistli: Modernus og ég
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 2.7.2007 kl. 16:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.