21.3.2020 | 14:23
Viðspyrna fyrir Ísland
Ég hlustaði á blaðamannafund ríkisstjórnarinnar áðan og fyrstu viðbrögð eru að mér finnst allar aðgerðir sem eru fyrirhugaðar skynsamlegar og uppbyggjandi. Sérstaklega var gott að heyra að stjórnvöld átta sig vel á því að efnahagsleg áhrifa Covid-19 eru gríðarleg og margt gerist í umheiminum sem íslensk stjórnvöld hafa ekki neina stjórn á en mun hafa gríðarleg áhrif á almenning á Ísland og lífskjör hérna.
Séreignarsparnaður er hamfarasparnaður
Ég rifja upp tímann í kringum Hrunið 2008 og hvaða áhrif aðgerðir stjórnvalda höfðu á breytni mína og fjármál. Ég tók þá út yfir langt tímabil séreignarsparnað minn eins og leyft var í aðgerðum þá og við vorum þá með hús í byggingu og urðum mjög skelft eins og allir húsbyggendur. Ég vildi að við lokuðum bara húsinu á byggingarstigi, það var eins og að kasta peningum í sjóinn að halda áfram húsbyggingu sem sífellt lækkaði í verði. Aðgerðir stjórnvalda þá eins og "Allir vinna" og breyting á endurgreiðslu virðisaukaskatts voru þá eitt af því sem varð til þess að við héldum áfram með húsbygginguna.
Það hefur reynst skynsamlegt að hvetja allt vinnandi fólk til að leggja hluta af tekjum sínum í séreignarsparnað. Það kemur sér vel þegar ábjátar.
Ef til vill er réttara að kalla séreignarsparnað hamfarasparnað.
Að gefa öllum peninga
Ég er sérlega hrifin af aðgerðum sem eru fyrir alla og eru ekki tengjutengdar t.d. eins og barnabótaauki (eða var hann tekjutengdur?) og að senda öllum stafrænt peningjagjöf til að ferðast um Ísland. Þetta eru að vísu litlar aðgerðir en ég vona að það verði eitthvað slíkt gert aftur og í stærra mæli. Í algjöru sjokkástandi þegar atvinnulíf hefur lamast eins og var hér í kringum Hrunið þá komu upp hugmyndir meðal hagfræðinga að senda öllum ákveðna peningaupphæð. Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins talaði fyrir þeirri hugmynd hérna og útskýrði nokkuð vel og það er einmitt þetta sem ríkisstjórn Donald Trump ætlar að gera í Bandaríkjunum og ég hugsa að fleiri ríkisstjórnir reyni að gera ef þær hafa bolmagn til.
Fólk gapir oft af undrun og yglir sig í fordæmingu þegar stungið er upp á aðgerðum eins og að senda öllum peninga án þess að fólk setji einhverja vinnu, vöru eða þjónustu á móti eða án þess að sýna fram á að það líði skort. En það að dæla peningum út í samfélag er hagstjórnaraðgerð á krepputímum, ráð til að koma lömuðu kerfi af stað. Og það er bara skynsamlegra að setja það beint til fólks. Það er kallað eftir slíkum aðgerðum víða. Hér er ritstjórnargrein í New York times 18. mars 2020 sem kallar eftir að senda strax $2000 tékka til allra Bandaríkjamanna og hér er vídeó frá CNN um fyrirhugaðar tékkasendingar.
Það eru gríðarlega háar upphæðir lagðar núna í aðgerðir, svo miklar af tekjum ríkisstjóðs að það er alveg ljóst að þetta verður ekki hægt til langframa. En hamfaraástand er ekki langframi. Og ríkisstjórnir sem eru í löndum sem hafa sjálfstæðan gjaldmiðil búa yfir vopnum sem hjálpa núna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:08 | Facebook
Athugasemdir
Einu ríkisstjórnirnar sem skortir "bolmagn" til að prenta peninga eru þær sem hafa afsalað sér þeim hluta fullveldis ríkja sinna.
Guðmundur Ásgeirsson, 21.3.2020 kl. 15:14
Það er vissulega betra á hamfaratímum fyrir ríkisstjórnir að hafa eigin gjaldmiðil. Eða búa til einhvers konar ígildi gjaldmiðla (t.d.skömmtunarseðla). En það er ekki víst að það virki til lengri tíma litið eða sé heppilegt.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 21.3.2020 kl. 16:07
Það er ekkert bara betra á hamfaratímum að hafa eigin gjaldmiðil heldur er það alltaf betra og heppilegra til lengri tíma litið. Ríki sem hefur afsalað sér peningalegu fullveldi sínu er nefninlega ekkert að fara að endurheimta það á neinum hamfaratímum.
Guðmundur Ásgeirsson, 21.3.2020 kl. 16:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.