13.3.2020 | 06:59
Bóluefni og lyf viđ Covid-19
Víđa um heim fara fram rannsóknir og ţróun á bóluefni gegn Covid-19. Eitt af ţeim rannsóknarsetrum sem vinnur ađ gerđ bóluefnis er The Institute for Biological Research í Nes Tziona í Ísrael en ţađ var sett á stofn áriđ 1952 og starfađi áđur undir hernađaryfirvöldum ţar. Ţróun mun hafa fariđ ţar fram á bóluefni viđ kórónaveiru sem herjar á hćnsni en ţví bóluefni hefur veriđ erfđabreytt til ađ virka gegn Covid-19. Gríđarlega ör ţróun er nú í genatćkni, svokölluđ CRISPR eins konar genaskćri og ţađ er líklegt ađ margir sem ţróa núna bóluefni nýti ţá tćkni en líka til ađ greina veiruna sjá t.d. Enabling coronavirus detection using CRISPR-Cas13: Open-access SHERLOCK research protocols and design resources
Prófun á bóluefnum
Venjulegu ţá er ţróunarferli bóluefna mjög langt ferli ţangađ til leyfilegt er ađ nota bóluefni til ađ bólusetja fólk. Ţó mörg bóluefni séu í ţróun ţá eru fá komiđ langt í ţví ferli ađ vera samţykkt, sem dćmi má nefna ađ bóluefni ţróađ af Commonwealth Scientific and Industrial Research Organizations (CSIRO)í Melbourne í Ástralíu er núna rétt komiđ á ţađ stig ađ ţađ eru ađ byrja tilraunir á dýrum.
Ţađ getur veriđ ađ međ breyttri genatćkni, samvinnu á heimsvísu um erfđamengi veiru og bóluefni og međ sérstökum prófunarađferđum og samvinnu viđ heilbrigđisyfirvöld ţá megi mjög stytta tímann sem tekur ađ framleiđa og koma í notkun bóluefni. En sporin hrćđa ţar sem of mikill asi hefur veriđ á ađ bólusetja fólk án fullnćgjandi prófana sb. polío bólusetningarnar í USA á sínum tíma sjá The Cutter Incident: How America's First Polio Vaccine Led to a Growing Vaccine Crisis sjá líka hérna um baráttu Salk og Sabin og bólusetningarnar sem voru ein og hálf milljón áriđ 1954. Myndin er af Salk međ bóluefni sitt sem dćlt var í börn.
Listi yfir Covid-19 bóluefni og lyf sem eru í ţróun
Ţađ er í gangi ţróun á ýmsum lyfjum viđ Covid-19, hér er listi yfir sum lyf sem eru í ţróun: Coronavirus treatment: Vaccines/drugs in the pipeline for Covid-19
Hér eru nokkur af ţeim bóluefnum og lyfjum sem núna eru ţróuđ og prófuđ:
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:38 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.