3.5.2007 | 13:08
Ellý á toppnum
Ofurbloggarar fylgjast undrandi með æsireið Ellýar Ármannsdóttur á moggablogginu en mektardagar bloggara og vigt er ekki mælt í kílóum eða valdasprotum heldur hversu hratt teljarinn snýst. Ellý trjónir á toppnum með 74561 heimsóknir þessa viku og næsti maður að vinsældum hann Sigmar er bara með 32699 heimsóknir. það er von að bloggarar sem vilja ná upp teljaranum sínum velti fyrir sér leyndardómnum að velgengni Ellýar. Það gerir Tómas í blogginu Ellý upp úr þakinu og svo reyndi Björn Ingi af veikum mætti að herma eftir Ellý í gær með nokkrum tvíræðum bröndurum í blogginu Fótboltinn og samskipti kynjanna en stílbrögðin hjá Birni Ingi voru ekkert að slá í gegn og fékk hann samstundis þessa ádrepu á Trúnó blogginu: ,Léttur húmor" í boði Björns Inga
Þá varð málið femíniskt og Ómar bloggar um Húmorslausa femínista sármóðgaður yfir að ekki þyki öllum brandarar Björns Inga fyndnir og spyr: " Af hverju þarf líf últra-femínista að vera svona gerilsneytt af húmor?"
Ég ætla nú ekki að svara Ómari og segi ekki annað en það að mikið er ég fegin að Árni Mathiesen fjármálaráðherra er ekki moggabloggari. Það er viðbúið að hann væri núna að þræða sömu braut og Björn Ingi og prófa hvort hann gæti ekki náð upp teljaranum og þeyst um bloggheima eins og Ellý með tvíræðnum og klámfengnum bröndurum. Ég er nokkuð viss um að ég mun ekki hlæja að bröndurum sem Árni Mathiesen segir og mér er slétt sama þó einhver segi mig gerilsneydda af húmor fyrir vikið. Fólk getur kynnt sér brandarasmekk Árna fjármálaráðherra hérna.
En af hverju er blogg Ellýar Ármannsdóttur svona vinsælt?
Ég held að það sé sambland af innihaldinu og hver skrifar. Ég held að til langframa sé ekki hægt að halda neinum dampi með ekkert innihald. Þessar litlu sögur eða atvikslýsingar á blogginu hennar eru ansi vel skrifaðar, ég renndi yfir nokkrar alveg harðákveðin í að hneykslast á meintu klámi þarna en ég fann ekkert. Bara skoplegar aðstæður og samskipti kynja. En ég held ekki að þessar sögur myndu vekja svona mikla eftirtekt ef einhver annar skrifaði þær t.d. ef karlmaður sem hyggði á frama í stjórmálum myndi skrifa svona sögur þá værir hann samstundis dæmdur klúr. Björn Ingi prófaði sig aðeins með frekar hallærislega en voða meinlausa fótboltabrandara og uppskar ádrepu og hneykslan.
Ég hugsa að ef Gunnar í Krossinum myndi blogga svona eins og Ellý þá myndi teljarinn hjá honum líka hafa rokið upp. Það hefði sýnt eitthvað svo skrýtna og öðru vísi mynd af honum og sýnt að hann er margbrotinn persónuleiki ekki strengjabrúða og bókstafstrúarmaður. Það er eitthvað súrrelistískt við að kona sem brosir eins og prúðbúin og dúkka við okkur á sjónvarpsskjánum og er komin á steypirinn skrifi svona glettnar og listrænar sögur.
Ég enda svo þetta teljarablogg með lista yfir topp 50 bloggara dagsins í dag. Það er bara að muna að það nægir alveg að hafa sínar fimmtán mínútur af frægð, það koma aðrir á toppinn á öðrum vikum og það er allt í lagi og bara mannbætandi að vera ekki að eltast við að fá sem flesta til að lesa bloggið sitt. Mikilvægasti lesandi allra blogga er sá sem skrifar bloggið, blogg er samræða einstaklingsins við sitt eigið sjálf, ígrundun um lífið og skráning á lífshlaupinu.
1. | Elly Armannsdottir | ellyarmanns.blog.is | 74561 |
2. | Sigmar Guðmundsson | sigmarg.blog.is | 32699 |
3. | Guðmundur Magnússon | gudmundur | 27681 |
4. | Pétur Gunnarsson | hux.blog.is | 25020 |
5. | Björn Ingi Hrafnsson | bingi.blog.is | 22894 |
6. | Stefán Friðrik Stefánsson | stebbifr.blog.is | 21971 |
7. | Óli Björn Kárason | businessreport.blog.is | 20320 |
8. | Jon Axel Olafsson | jax.blog.is | 16649 |
9. | Sveinn Hjörtur | sveinnhj.blog.is | 14390 |
10. | Áslaug Ósk Hinriksdóttir | aslaugosk.blog.is | 12819 |
11. | Gestur Guðjónsson | gesturgudjonsson.blog.is | 12817 |
12. | Sóley Tómasdóttir | soley.blog.is | 11839 |
13. | Eyþór Arnalds | ea.blog.is | 10866 |
14. | Jens Guð | jensgud.blog.is | 10341 |
15. | Jenný Anna Baldursdóttir | jenfo.blog.is | 9909 |
16. | Pétur Tyrfingsson | peturty.blog.is | 9857 |
17. | Ómar R. Valdimarsson | omarr.blog.is | 9469 |
18. | Guðmundur Steingrímsson | gummisteingrims.blog.is | 8899 |
19. | Guðmundur Þórðarson | 1963.blog.is | 8638 |
20. | Hjörtur J. Guðmundsson | sveiflan.blog.is | 8255 |
21. | Salvör | salvor.blog.is | 8036 |
22. | Snorri Bergz | hvala.blog.is | 7888 |
23. | Sigurjón Þórðarson | sigurjonth.blog.is | 7588 |
Athugasemdir
Það er nú samt Salvör sem er besti bloggarinn að mínu mati !!!
Bloggið þitt er svo fróðlegt og það er einnig ígrundað.
Margrét Einarsdóttir Long, 3.5.2007 kl. 16:24
Góð blogg verða ekki skrifuð af Muggum.
Júlíus Valsson, 3.5.2007 kl. 16:51
Úps.. það hefur farið framhjá mér að hægt væri að finna svona lista á blogginu. Ég hef stundum kíkt til Ellýar, mjög vel skrifað hjá henni, því er ekki að neita, eitthvað svo hressandi.
Ester Sveinbjarnardóttir, 3.5.2007 kl. 17:02
Hvar finnur þú þessar tölur?
Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.5.2007 kl. 17:16
Arni M er illilega bilaður
halkatla, 3.5.2007 kl. 18:52
Og ég kemst ekki einu sinni á topp þúsund -- !!!
Halldór Sigurðsson, 3.5.2007 kl. 18:58
Einu sinni var listi yfir þá sem borgaði hæðstu skattana, og þótti fínt að komast á þann lista, í dag er það listi yfir bloggara. Ég spyr líka eins og Guðsteinn Haukur hvar finnur þú þessar tölur.
María Anna P Kristjánsdóttir, 3.5.2007 kl. 19:02
af öllum þessum 50 les ég 3-4 blogg, ekkert af þeim er í topp 10.
SM, 3.5.2007 kl. 19:38
Ja hérna ..... varð nú hissa að sjá mig ekki á topp 10 Af þessum topp 50 eru þrjár mætar bloggvinkonur mínar
www.zordis.com, 3.5.2007 kl. 20:41
Skemmtilegar vangaveltur. Ég vil bara bæta því við að ég held að þessar verðskulduðu vinsældir séu af áþekkum toga og vinsældir sjónvarpsþátta eins og Sex In The City og þykir mér ekki ólíklegt að Íslandsmeistarinn í bloggi sé þar undir nokkrum áhrifum. Svo getum við fílósóferað um græskulausan húmor versus hallærislegan húmor. En það eru dýpri fræði sem ég þori ekki að blanda mér í.
Pétur Tyrfingsson, 3.5.2007 kl. 21:26
„ég renndi yfir nokkrar alveg harðákveðin í að hneykslast á meintu klámi þarna en ég fann ekkert“
hnuss
Einar Örn Gíslason, 3.5.2007 kl. 22:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.