21.12.2011 | 07:17
Uppreisn í fiskiþorpinu Wukan í Kína
Sagan af því hvernig almenningar eru gerðir að einkaeign í kommúnistaríki
Hér á Íslandi taka margir ráðamenn fagnandi hugmyndum um uppkaup kínversks fjárfestingafélags á gríðarlegu landsvæði á Grímsstöðum á Fjöllum og hefur forseti Íslands, forsætisráðherra, efnahagsráðherra, utanríkisráðherra og margir aðrir talað fyrir slíkum landauppkaupum og þá borið fyrir sig röksemdir eins og velvild til Kína, væntingar um ýmis konar viðskiptasambönd við Kína og svo að fyrirætlanir kínverska fjárfestingafélagsins sé að byggja þarna golfvelli og lúxushótel, hér séu atvinnutækifæri í ferðaþjónustu. Það er ekki landnauð á Íslandi og mörgum finnst golfvellir og lúxushótel vera eftirsóknarverð fyrirtæki á strjálbýlum svæðum Íslands. En mörgum, þar á meðal mér finnst þessar hugmyndir grunsamlegar og einkennilegar og virka liður í einhverju öðru, liður í langtímaáætlun vaxandi stórveldis að koma sér fyrir á nýjum slóðum.
Það er áhugavert að bera innrás kínverskra fjárfestingafélaga á Íslandi við uppkaup lands og fasteigna við hvað er að gerast á sama tíma í Kína í fiskimannasamfélögum þar og skoða hvað er líkt og hvort fólki þar tekst betur upp á Íslandi að hrinda af sér innrásum. Það er miðstýrð stjórnsýsla í Kína og gagnrýni á stjórnvöld er ekki liðin en það er þannig að flestar óeirðir og uppþot og andspyrna sem þar er er einmitt vegna þess að land er tekið undir golfvelli og hótel og hús.
Land í Kína er ekki í einkaeigu heldur umsjón þorpa eða samfélaga en þessi upptaka á landi er eins konar einkavæðing á almenningum/almenningseign en þeim sem áður nytjuðu landið og höfðu lífsafkomu sína af því eru borgaðar smánarbætur eða engar bætur.
"Illegal land seizuresoften for golf courses, luxury villas and hotelsare seen by many Chinese and foreign experts as the single biggest threat to the Communist Party as it struggles to maintain legitimacy in a society that is becoming increasingly demanding and well-informed, thanks in large measure to the Internet, even as income disparities widen.
Such land disputes account for 65% of "mass incidents"the government's euphemism for large protestsin rural areas, according to Yu Jianrong, a professor and expert on rural issues at the state-run Chinese Academy of Social Sciences. "
Það sýður oft upp einmitt út af því að fólk er rekið burtu. Í fiskiþorpinu Wukan í Suður-Kína búa álíka margir og á Akureyri . Þar er núna uppreisn. Það stóð til að taka allt land sem tilheyrir þorpinu Wukan og leggja undir fasteignaverkefni á vegum svínabúsins Lufeng Fengtian Livestock Products og Country Garden sem er eitt af stærstu fasteignafyrirtækjum í Kína og er staðsett í Guangdong og skráð í Hong Kong. Það er í eigu fjölskyldu athafnamannsins Yang Guoqiang en dóttir hans Yang Huiyuan var 11. ríkasti maður Kína árið 2011 skv. Forbes. Var ekki Íslandsvinurinn Nubo líka á þeim lista?
Þorpsbúar eru mjög reiðir, telja að farið hafi verið bak við sig og land þeirra selt og þar brutust út mótmæli og uppreisn. Foringi uppreisnarmanna var handtekinn og drepinn af lögreglu (sem reyndar heldur því fram að hann hafi dáið úr hjartaáfalli en fáir trúa því). Þorpsbúar hafa reist götuvirki og hrakið lögreglu og staðaryfirvöld á brott og leita nú ásjár hjá stjórnvöldum í Peking. Lögregla hefur einangrað Wukan, stöðvað þar alla vistaflutninga á mat og vatni og fiskimenn geta ekki róið til sjávar. Fjölmiðlafólk fær ekki að komast þarna um. Stjórnvöld hafa lokað á allar nettengingar og fréttir fráWukan. Fréttir þaðan berast aðeins um Kína í gengum míkroblogg, svipað kerfi og Twitter. Svo virðist sem margir innan Kína hafi samúð með og styðji málstað þorpsbúa.
Í borginni Lufeng sem er nálægt Wukan taka margir undir málstað þorpsbúa því þar hefur land líka verið tekið af fólki sem lifir á landbúnaði og það þvingað til að samþykkja það og borgaðar smánarbætur. Hér er ein smásaga af því:
"The Cai family, for example, lived in a two-room stone house a few miles outside Lufeng for four generations, and earned a living from farming 3.3 hecatres of land.Last year, according to family members, property developers backed by the local government forced them to sell the land in exchange for roughly 1,000 yuan ($157) for each of their roughly six family members Cai family members said they resisted at first, but relented after a string of violent threats from the developer. Across the street from their home today, two or three dozen large pink houses with tiled roofs are under construction, surrounded by lush gardens and palm trees. Statues of copper horses stand outside the new complex's gates.The Cai family and others in Lufeng said they supported Wukan residents, but didn't believe they would be able to hold out for long against the town's heavily armed security forces. They have guns," said the Cai family's matriarch, pumping her fists as she spoke. "We have nothing."
Nú standa yfir viðræður milli stjórnvalda í Guangdong og uppreisnarmanna í Wukan. Þetta er talið alvarlegast uppþot og óeirðir í Kína í ár. Þorpið er einangrar, uppreisnarmenn hafa reist götuvirki og stjórnvöld einangra þorpið. Óeirðirnar breiðast út, þær hafa blossað upp í þorpinu Haimen út af mengun af kolakyntu iðjuveri. Þar tóku um 20 þúsund þátt í óeirðum í gær. Guangdong er eitt mikilvægasta útflutnings- og iðnaðarsvæði Kína.
Heimildir eru þessar greinar í Wall Street Journal
og twitter http://twitter.com/#!/bspegele
- Chinese Village in Standoff With Police 14. des
- China Ready to 'Strike Hard' at Revolt 15.des
- _Chinese Village Protesters Get the Ear of Ever-Higher Officials 21. des
Villagers hold placards chanting slogans as they march around their village during a protest in Wukan village, in China's Guangdong province on Thursday. http://www.msnbc.msn.com/id/45706482
Svo virðist sem núna sé víða mikil ólga og tekist sé á um þessa gerð af hina kommúníski nýfrjálshyggju með tilheyrandi samþjöppun auðs til fárra (Guangdong model) og annars konar nálgun, samfélagsendurbæta t.d. Chongqing model
Inside Wukan: the Chinese village that fought back
Núna hafa þorpsbúar í Wukan samið við yfirvöld. Hér er frétt frá CNN 21. des:
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Facebook
Athugasemdir
- góð samantekt!
Vilborg Eggertsdóttir, 21.12.2011 kl. 21:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.