Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Sigur í augsýn í Írak

Draumsýn Bush

Finnst þetta skrípó fyndið þó ég trúi nú reyndar bæði á álfa og bleika fí... femínista Grin


Er Breiðavík víða?

Ég hlustaði á viðtalið í Kastljósi við Bárð sem dvalist hafði sem barn  á Breiðavíkurheimilinu. Hann sagði hryllilega sögu af andrúmslofti ofbeldis og níðingsskapar.  Það mun vera unnið að kvikmynd um heimilið. Mig minnir að í bók sem ég las um  ævi Sævars  Ciesielski hafi verið frásögn af dvöl Sævars á Breiðavík sem dró upp jafndökka mynd og Bárður. 

Matthías Johannessen skrifaði leikritið Fjaðrafok. Yrkisefni þess leikriks var Bjargsmál  en heimilið Bjarg var betrunarheimili fyrir afvegaleiddar stúlkur sem rekið var að mig minnir af Hjálpræðishernum fyrir mörgum áratugum. Það  var töluvert í umræðunni út af harðræði við stúlkur þar.

Sennilega eru afskekkt vistheimili og stofnanir þar sem mikill valdsmunur er milli vistmanna og gæslumanna líkleg til að vera staðir þar sem ýmis konar ofbeldi er beitt. Einangrun þarf ekki að vera landfræðileg, oft er einangrun búin til af þeim sem vilja drottna og beita ofbeldi. Það er þekkt mynstur í heimilisofbeldismálum að sá sem er beittur ofbeldi er smám saman einangraður frá öllum sínum vinum og öllum tengslum við aðra nema þeim sem ofbeldismaðurinn stýrir. 

Það eru margir staðir einangraðir á Íslandi.  


Gula pressan SKAMMtímarit

Gula pressan SKAMMtímaritÁrnaðaróskir til netmoggans sem núna fagnar níu ára afmælinu. Ég óska líka sjálfri mér líka til hamingju með mitt vefrit Gula Pressan SKAMMtímarit sem einmitt var sett á vefinn sama dag og netútgáfa moggans opnaði árið 1998.  Það var nú grín hjá mér og gert til þess að vekja nemendur mína til umhugsunar um hvort og hvernig Internetið skipti máli í fréttamiðlun. Líka til að sýna þeim hve auðvelt væri fyrir hvern og einn að setja eigið fréttaefni út á Internetið. Þetta var fyrir tíma bloggsins sem eins og allir vita var ekki fundið upp fyrr en Egill Helgason tók eftir að það væri til. 

Ég skrifaði þetta um netritið mitt sem hefur komið ansi stopult út síðustu níu árin (lesist kom aðeins út í eitt skipti Tounge)

Hvað er Gula Pressan - SKAMMtímarit?

Gula pressan er einhvers konar fréttableðill sem kemur aðeins út á Netinu og er til að sýna hvernig fréttamiðlar geta breyst á upplýsingaöld. Sérstaklega er Gula Pressan - SKAMMtímarit byggð á slúðri, kviksögum, kjaftasögum, rógi og gróusögum um nafngreinda einstaklinga. Gula pressan er helguð gulri blaðamennsku, æsifréttamennsku, dægurflugum, skömmum og skætingi, óformlegri orðræðu eða hvaða nöfnum menn kjósa að nefna svona fréttir.

Svo til að vera alvöru fjölmiðill þá skrifaði ég líka leiðara sem mér finnst bara skrambi góður þó hann sé níu ára gamall. Ég tók þar líkingu af hvalskurði. Hér er leiðarinn:

 Netið er fjölmiðill

Netið er fjölmiðill. Það veit ég og það veit Mogginn, það vita Newsweek og Times, CNN og Washington Post og allir aðrir fréttafangarar sem síðustu daga og vikur hafa slípað og brýnt netfréttamennsku og búið til flugbeitta hnífa. Kvennamál Clintons var hvalrekinn sem skóp þennan nýja skóla fréttamennsku. Fiskisagan flaug fyrst á Netinu, hún hófst til flugs í slúðurdálkinum Drudge Report. Fiskimenn frétta þustu að rekanum, skáru málið niður í stykki sem þeir gegnumlýstu og krufu til mergjar, fluttu fenginn á vefsíður sínar og stöfluðu þar upp stykkjunum.

Venjulegur netverji hefur hvorki tíma né nennu til að leita djúpt að tormeltum upplýsingum. Hann sprangar um vefinn og týnir upp það sem honum finnst bitastætt. Hann er auðginntur inn í botnlanga ef fordyri þeirra lofar krassandi innihaldi. Sölumenn frétta á Netinu hafa þróað nýja frásagnartækni, lært að brytja málin niður í gómsæta munnbita. Netverjar fá að smakka og biðja um meira og meira og áður en varði eru þeir búnir að kyngja heilum hval. Þessi tegund af frásagnartækni er nokkurs konar öfugur pýramídi þar sem niðurstöðum er slegið fyrst upp með örstuttri lokkandi samantekt svo netverjinn æpi á meira.

Á Netinu er líka hægt að hafa afrit af ýmsum frumgögnum svo sem málskjölum, ljósmyndum, myndbandsupptökum og hljóðupptökum. Það er líka eðli Netsins að hver sem er getur sent þar út fréttir, stórar fréttastofur eins og CNN eða einstaklingar í hlutverki Gróu á Leiti. Gömlu stóru fréttarisarnir hafa aðrar og stundum íhaldssamari viðmiðanir í sambandi við hvað er fréttnæmt en einstaklingar sem ekki eru bundnir af hagsmunum hópa og hræðslu við málsókn eða álitshnekki. Það kostar heilmikið í vinnutímum og aðstöðu að halda úti fréttaharki á Netinu, einhver verður að fjármagna útsendingar, hjá hefðbundnu fréttastofunum virðast tekjur fyrst og fremst koma í gegnum smáauglýsingar. Sennilega eru netfréttir þeirra núna reknar með tapi, gróði frá hefðbundnu fréttaútsendingunum borgar brúsann fyrsta kastið. Einstaklingar sem senda út fréttir á Netinu fá sjaldnast neitt fyrir sína vinnu, þetta er ný tegund af tómstundaiðju.

Núna í dag hefur netfréttavefur Morgunblaðsins (http://www.mbl.is) útsendingar og á næstunni mun Vísir, netfréttarit Frjálsrar fjölmiðlunar hefja útsendingar. Morgunblaðið hefur verið á vefnum árum saman en hér er reginmunur. Fréttir og myndefni er nú skrifað sérstaklega fyrir vefinn og sett fram með því öfuga pýramídaformi sem rætt var um hér að ofan. Hingað til hefur útgáfa Morgunblaðsins á vefnum verið eins og hið prentaða blað án mynda. Það er engin tilviljun að ég vel sama dag og Mogginn til að gefa fyrst út minn eiginn netfréttamiðill en hann hef ég nefnt: GULA PRESSAN - SKAMMtímarit.

Nafnið hef ég valið svo vegna þess að þessi miðill minn er helgaður óvandari fréttamennsku, flytur SKAMMir á SKAMMarlegan hátt og kemur sennilega út í SKAMMan tíma. Ég kvíði alls ekki samkeppninni við Moggann því að meðan fréttastofa hans flytur áhugaverðar fréttafyrirsagnir sem koma á óvart eins og að Kúvætar ætli að styðja innrás Bandaríkjamanna í Írak þá fjallar fyrsta útgáfa á mínum miðli um mál málanna í dag, kvennamál Clintons. Þar getur þú kynnt þér innviði málsins, skoðað ljósmyndir, hlaðið inn myndbandsupptöku á þegar Clinton faðmar Monicu, lesið málskjöl og skemmt þér eða hneykslast á bröndurum um málið.

Þess verður varla langt að bíða að hval reki aftur að landi eða festist í einhverju þeirra aragrúa neta sem fréttafangarar hafa lagt með ströndum. Það eru margir fjölmiðlar í viðbragðsstöðu, hafa notað tímann til að koma sér upp verkfærum og verkkunnáttu til að skera með ógnarhraða sem stærstan hluta af fengnum. Það eru engar fornar bækur sem segja til um hvernig svona hvalreka skuli skipta og það þarf ekki að spyrja neinn leyfis til að útvarpa fréttum á Netinu. Það tjáningarfrelsi sem nú ríkir á Netinu er vandmeðfarið og það er líka vandvarið.

GULA PRESSAN - SKAMMtímarit hefur slóðina: http://www.ismennt.is/vefir/ari/gulapressan

Reykjavík 1.febrúar 1998

Salvör Gissurardóttir

 


mbl.is Mbl.is öflugasti fréttavefurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trasa migracji kapelanów

Fréttin sem ég valdi til að blogga um í dag er fréttin um að loðnukvótinn hafi verið aukinn í 380 lestir á vetrarvertíðinni í ár. Þetta eru mjög spennandi tíðindi, ég er ekki að segja það í neinu gríniGrin, ég flýtti mér náttúrulega að því að bæta þessu við wikipedia greinina um loðnuna, ég skrifaði þá grein á sínum tíma og finnst ég hafa skyldur til að passa upp á að hún vaxi og dafni. 

Svo sá ég að á vef sjávarútvegsráðuneytisins er hægt að hlaða niður nokkrum bindum af sögu sjávarútvegs við Ísland. Það er alveg til fyrirmyndar að útgáfa af fræðsluefni sem sennilega er kostuð af almannafé séu aðgengileg fyrir alla á vefnum.  Vonandi verður aukning á slíku efni.  Annars tók ég eftir þegar ég var að bæta loðnukvótanum við Wikipedia greinina að það er mjög ónákvæm grein á wikipedíu  um mælieininguna lest það þarf nú eiginlega að laga það, ég hvet þá sem hafa vit á málinu að fara á þá grein, smella á breyta og setja inn betri skilgreiningu. 

Ég var að skoða greinina um loðnu á þýsku wikipediu, það er ótrúlegt hvað þjóðverjarnir eru fljótir að taka upp það sem er komið nýtt í greinar, ég teiknaði skýringamynd af loðnugöngum við Ísland  og setti inn á íslensku og ensku wikipediu en núna sé ég að einhver hefur þýtt skýringartextann við myndina á þýsku og bætt við á þýsku greinina um loðnu umfjöllun um " Lebensraum und Wanderungen der Lodde im Nordpolarmeer um Island". Það er gaman að sjá þetta, gott að vita af því að vinna mín í ensku og íslensku wikipedia og það að teikna svg skýringarmynd og setja inn í wikimedia commons nýtist í alfræðiritum á mörgum tungumálum.

Hmmm... sniðugt, ég var að skoða pólsku greinina um loðnu og þar sé ég að skýringarmyndin mín er líka komin inn og búið að þýða textann um ætisgöngur og hrygningargöngur loðnu við Ísland. Nú er ég að fatta hvað wikipedia gæti verið gott verkfæri í nýbúakennslu, ef  greinar um ýmis fyrirbæri sem mikilvæg eru fyrir Ísland eins og  loðnur og fiskigöngur og ýmis fyrirbrigði í náttúru landsins þá gætu nýbúar lesið líka um þessi fyrirbæri á móðurmáli sínu. 

Best að ég breyti titli á þessum bloggpistli til heiðurs Pólverjum sem búa og starfa á Íslandi í  "Trasa migracji kapelanów".  Þetta er fyrsta setningin sem ég læri á pólsku. 

Það eru bara sorglega fáir Íslendingar sem hafa áhuga á wikipedia samfélaginu og allt of fáir sem skilja hversu sniðugt er fyrir lítil málsamfélög eins og Íslendinga að dreifa ekki kröftunum um of heldur byggja upp einhver sameiginlega gagnasöfn til að skilja heiminn. Einn aukabónus við íslenska wikipediu er að það er hægt að hafa tengingar í greinar um sama efni á milli tungumála t.d. er eðlilegt fyrir okkur að tengja fræðigreinar í ensku wikipediu því þar er yfirleitt vönduðustu greinarnar. 

Svo til að snúa þessari pælingu um loðnukvótann upp í femínisma  þá má benda á að það er líka skynsamlegt að  auka kvennakvótann í æðstu stjórn landsins.

Einmitt í dag 1. febrúar 2004 þá höldum við upp á Heimstjórnarafmælið  og hyllum   Hannes Hafstein Það hafa ekki margar konur verið forsætisráðherrar á Íslandi eða gerendur á sviði íslenskra stjórnmála. Það færir okkur hagsæld að stýra náttúruauðlindum okkar þannig að þær spillist ekki. Hagsæld samfélaga ræðst einnig af því hvernig mannauður er nýttur í samfélaginu og það er ekki skynsamleg nýting á mannauð að búa til samfélög þar sem alls staðar eru glerþök og ósýnilegir múrar sem halda ákveðnum þjóðfélagshópum í fjötrum. Það getur bæði verið kyn og þjóðernisuppruni sem halda fólki undir slíkum glerþökum.


mbl.is Loðnukvótinn aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband