31.12.2006 | 16:14
Á síðustu stundu - Ár Ómars
Ég var að koma frá Kaffi Viktor þar sem ég var í viðtali í þættinum "Á síðustu stundu" ásamt tveimur öðrum bloggurum. Ég kom tímanlega og náði að fylgjast með Andra Snæ og Magneu sem voru á undan okkur og hlusta á hljómsveitina spila. Þegar ég fór var Ómar Ragnarsson að koma inn og núna var ég að hlusta á í útvarpinu að hann hefði verið kosinn maður ársins á Rás 2. Óska Ómari innilega til hamingju með titilinn, þetta er sannarlega árið þar sem málflutningur hans náði til fólks.
Hér er líka flippað vídeóklipp, ég var að æfa mig í að nota Jumpcut, maður setur vídeóin beint inn á vefinn og klippir til þar.
Ómar Ragnarsson valinn maður ársins af hlustendum Rásar 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gleðilegt nýtt ár! Af myndinni að dæma þá virðist andrúmsloftið ansi rafmagnað! Það getur ýmislegt leynst í gömlum húsum nema þetta sé mikill tóbaksreykur
www.zordis.com, 2.1.2007 kl. 10:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.