23.4.2009 | 19:40
Tjaldborg á Ingólfstorgi, stuđ á kosningaskrifstofum
Ţađ var allt á fullu alls stađar á landinu í dag í kosningaundirbúningi, margir flokkar voru sennilega međ mannfagnađi og samtök sem vilja hafa áhrif á stjórnmálin lögđu saman krafta sína. Atvinnumálin eru ţar náttúrulega mál málanna og hvernig semst um skuldir íslenskra heimila og íslensku ţjóđarinnar. Sú skjaldborg sem Samfylking og Vinstri Grćnir ţykjast hafa reist um heimilin í landinu er ekki úr merkilegra efni en veitingatjaldiđ okkar Framsóknarmanna á Ingólfstorgi í dag og ţau loforđ sem ţeir flokkar gefa eru úr sama efni og loftiđ í hoppukastalanum sem var á útihátíđ okkar í dag.
Vonandi áttar íslensk ţjóđ sig á ţví ađ eini stjórnmálaflokkurinn sem bćđi veit hvernig stađan er og ćtlar ekki ađ blekkja íslensku ţjóđina og vill horfast í augu viđ vandamáliđ strax og taka á ţví međ ábyrgum hćtti er Framsóknarflokkurinn. Vandamáliđ stćkkar bara og stćkkar ef ţví er velt á undan sér og lygin verđur stćrri og stćrri ef stjórnmálamenn ćtla ađ halda áfram ađ ljúga ađ almenningi.
Ég var á kosningaskrifstofunni í dag og á sumarhátíđ okkar Framsóknarmanna á Ingólfstorgi. Íslenska sumrinu var fagnađ međ grilli og leikjum og andlitsmálingu fyrir krakka á međan íslensk vorrigning bođađi vorkomuna. Á kosningaskrifstofuna mćttu margir hópar af ungu fólki sem voru ađ kynna sér flokkana.
Hér eru nokkrar myndir frá deginum:
Ţau sáu um grilliđ
Hér eru krakkar me flotta andlitsmálningu
Allir međ regnhlíf
Inni í veitingatjaldinu
Í biđröđ eftir andlitsmálningu
Fjórar stúlkur úr Menntaskólanum viđ Sund komu í heimsókn í kosningaskrifstofuna. Ţćr spurđu: Af hverju ćttum viđ ađ kjósa Framsókn?
Einar alveg óţreytandi ađ útbreiđa bođskapinn. Hér er hann ađ tala viđ nokkra háskólanema sem litu inn á kosningaskrifstofuna
Hlín er myrkanna á milli núna á kosningaskrifstofunni og svo önnum kafin ađ hún nćst ekki á mynd. En hér er mađur hennar og systir hans í kaffi á kosningaskrifstofunni í dag.
Ungur og glćsilegur Framsóknarmađur mćtti uppábúinn međ hatt á kosningaskrifstofuna í fylgd ćttmenna.
Hér er fyrrum varaţingmađur okkar á Suđurlandi og mađurinn hennar ađ taka púlsinn á kosningabaráttunni í Reykjavík
Hér er Vigdís Hauksdóttir međ dóttur sinni og litlum frćnkum
Fleiri myndir frá sumardeginum fyrsta má sjá hérna:
kosningar 2009 sumardagurinn fyrsti
Ćtla ađ slá skjaldborg um álversframkvćmdir | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.