23.10.2008 | 06:34
Óveðurskýin hrannast upp
Það er enginn huggun fyrir okkur Íslendinga að allt bendir til að heimskreppan skelli líka á aðrar þjóðir með miklum þunga. Financial Times birti í fyrradag þetta efnahagslega veðurkort fyrir Evrópu.
Það eru mörg lönd sem eru í þrumuveðri, þar eru Ísland, Ungverjaland, Írland og Eystrasaltsþjóðir. Svo er alls staðar spáð miklu meira atvinnuleysi. Það kemur auðvitað langverst niður þar sem atvinnuleysi var mikið fyrir eins og á Spáni. Heildaratvinnuleysistölur eru líka villandi, atvinnuleysi er miklu meira meðal ungs fólks.
Mikil lækkun á Asíumörkuðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það hefði verið fróðlegt ef Ameríkurnar væru með á veðurkortinu ásamt eyjaálfu - en þetta er samt fróðlegt. Spurning hvort úrræðin eru færri eða fleiri að við lendum í þrotum/nær þrotum í heimskreppu.
Því er kannski ómögulegt að spá fyrr en eftir fund 20 helstu iðnríkja heims þann 15 nóvember næstkomandi.
Anna Karlsdóttir, 23.10.2008 kl. 16:39
ég fæ ekki betur séð en að tölum beri ekki alveg saman í þessu korti Financial Times og gögnum alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem má sjá á slóðinni.
http://www.imf.org/external/datamapper/index.php
Það breytir þó í sjálfu sér litlu fyrir okkur. Samkvæmt yfirlitskorti IMF verða það Íslendingar og Lettlendingar sem munu upplifa mestan efnahagssamdrátt á komandi misserum.
Anna Karlsdóttir, 23.10.2008 kl. 17:21
Hér kemur tilvísun á vef saenska sjónvarpsins og fréttaskýrendatháttinn "Agenda"
frá sídastlidnum sunnudegi. Fyrir thá sem skilja saensku er thetta mjög fródlegur tháttur um orsakir fjármálakreppunnar.
http://www.svt.se/svt/jsp/Crosslink.jsp?d=96001&lid=puff_1251130&lpos=lasMer
Smellid sídan á tháttinn til haegri vid myndina. M.a er vidtal vid Paul Krûgman thar sem hann kemur inn á erfidleika Íslands ef ég man rétt.
S.H. (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 18:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.