28.1.2008 | 11:41
Til í allt með Villa
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sendu skýr skilaboð út í samfélagið þegar þau leyfðu tveimur mönnum þ.e. Vilhjálmi fyrrum borgarstjóra og Kjartani Magnússyni 4 manni á lista Sjálfstæðismanna að ginna Ólaf F. Magnússon til samstarfs og bjóða honum borgarstjórastól í Reykjavík og bjóða kúvendingar Sjálfstæðismanna í ýmsum málum og veita af rausn nokkur hundruð milljónum af fé borgarbúa í uppkaup á gömlum húsum til að liðka til fyrir plottinu. Þau opinberuðu fyrir okkur borgarbúum ábyrgðarleysi sitt í fjármálum borgarinnar og þau sýndu líka ábyrgðarleysi sitt og dómgreindarleysi í stjórnsýslu borgarinnar með því að leggja blessun sína yfir að Ólafur F. Magnússon yrði borgarstjóri. Þau sýndu líka siðleysi með því að notfæra sér aðstæður Ólafs og samþykkja hann sem borgarstjóra í Reykjavík þrátt fyrir að ekkert bendi til þess að hann sé hæfur og góður kanditat í það embætti.
Það er ekki það að Ólafur F. Magnússon sé fulltrúi lítils hluta kjósenda sem skiptir máli, svona samstarf hefur oft lukkast vel þó að fulltrúi lítils stjórnmálaafls sé í leiðtogasæti, það má minna á aðstæður í Kópavogi, þar var Sigurður Geirdal í mörg kjörtímabil bæjarstjóri í farsælu samstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, hann var fyrsta kjörtímabilið eini Framsóknarfulltrúinn. Það þarf hins vegar ekki annað en skoða framgöngu Ólafs F. í stjórnmálum undanfarin ár og skoða hve bakland hans meðal eigin fylgismanna og nánustu samherja er veikt til að sannfærast um að hann hefur ekki til að bera þá stjórnvisku, elju, dómgreind, samvinnulipurð og hæfileika til að sjá aðalatriði í málum sem borgarstjóri þarf. Ólafur F. er viðkvæmur hugsjónamaður og hugmyndir hans eru sumar góðar og framsýnar en hann hefur með verkjum sínum undanfarin ár sýnt að hann rekst ekki vel í stjórnmálasamvinnu og hann er ekki maður málamiðlana.
Hvernig getum við borgarbúar treyst því að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins taki málefnalega afstöðu og gæti hagsmuna borgarbúa þegar þau eru tilbúin til að nota borgarstjórastólinn sem skiptimynt í hrossakaupum og hvernig getum við treyst því að þau taki málefnalega afstöðu þegar þau eru tilbúin að skipta um skoðanir eins og vindhanar sem snúast í roki. Varðandi húsin sem þau samþykktu núna í vikunni að borga um 550 milljónir fyrir þá má rifja upp að 4. september síðastliðinn lögðu borgarfulltrúar F-lista og VG lögðu fram svohljóðandi tillögu:
"Borgarstjórn samþykkir að fela borgarstjóra að leita leiða til þess að borgin festi kaup á húsunum við Laugaveg 4-6 í því skyni að varðveita þau í því sem næst upprunalegri mynd."
Hvernig fór atkvæðagreiðslan?
Hún fór svona:
Já sögðu: Árni Þór Sigurðsson, Margrét K. Sverrisdóttir, Oddný Sturludóttir og Svandís Svavarsdóttir.
Nei sögðu: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Frímannsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Kjartan Magnússon og Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Sátu hjá: Björk Vilhelmsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Sigrún Elsa Smáradóttir.
Tillagan var því felld með 8 atkvæðum gegn 4.
Núna er tími jakkafata og hnífasetta í íslenskum borgarmálum. Það væri gaman að reikna út hve mörg jakkaföt er hægt að kaupa fyrir þær nokkur hundruð milljónir sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja núna spreða í hús sem þau voru alfarið á móti að kaupa fyrir fjórum mánuðum.
Það er líka ansi skrýtið hve ósýnileg Hanna Birna og Gísli Marteinn eru í þessu nýja borgarstjórnarplotti. Getur verið að þau hafi ekki verið höfð með í ráðum? Getur verið að þetta sé eitthvað einkaplott Vilhjálms og Kjartans sem er 4. maður á lista Sjálfstæðismanna? Það verður að segjast eins og er, við borgarbúar erum að upplifa þau sem þó ættu að vera í oddvitahlutverki sem undarlega valdalaus í eigin flokki. Það skilur ekki nokkur maður hvernig í ósköpunum hægt er að semja upp á þá kosti að Vilhjálmur verði aftur borgarstjóri. Er Hanna Birna virkilega sátt við það? Eða er verið að blekka borgarana og búið að semja um eitthvað annað undir borðið?
Það er gott að hafa til hliðsjónar hver þau eru borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna og í hvaða röð. Þau sem núna virðast vera til í allt með Villa og án þess að hafa neinn sjálfstæðan vilja:
- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
- Hanna Birna Kristjánsdóttir
- Gísli Marteinn Baldursson
- Kjartan Magnússon
- Júlíus Vífill Ingvarsson
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
Tenglar í önnur Til í allt með Villa blogg
Orðið á götunni: Til í allt með Villa
Segir Morgunblaðið hafa gert Ólaf að vígvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:20 | Facebook
Athugasemdir
Þar sem langtímaminni atkvæðanna er frekar brigðult treysta núverandi borgarfulltrúar á að þetta verði alt gleymt fyrir næstu kosningar.
Ég hef "alltaf" staðið í þeirri meiningu að sjálfstæðismenn kynnu með fé að fara, þeir hafa haldið því stíft á lofti, að þar væru þeir svo mikið fremri vinstri mönnum.
Eftir þessar upplýsingar verð ég eiginlega að endurskoða þá trú,hún hefur greinilega ekki verið á rökum reist. Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 28.1.2008 kl. 12:01
Takk fyrir ábendinguna. Breytti því. Það er skipt svo ört um borgarstjóra að maður er ekki búinn að læra öll nöfnin á þeim þegar sá næsti kemur.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 28.1.2008 kl. 12:02
Ari, ég myndi treysta okkur Framsóknarmönnum betur fyrir peningum en Sjálfstæðismönnum. Mér sýnist Sjálfstæðismenn bara ekkert skynbragð bera á peninga. Fyrir þeim eru 550 milljónir bara tala á blaði. Bara skiptimynt.
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 28.1.2008 kl. 12:07
klassísk Salvör - það var mikið
halkatla, 28.1.2008 kl. 13:13
Dýr mun Ólafur allur, og hans draumur um borgarstjórastól, fyrir sjálfstæðismenn.
Menn borga aldrei of mikið fyrir að vera í valda stöðu, og nota til þess skattpeninga borgarbúa.
Þórður Runólfsson (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 13:36
Eða "Villi til í game" eins og einhverjir ónefndir á stofunni hrópuðu.
Þórður Runólfsson (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 13:44
Segir þetta ekki allt sem segja þarf? http://finnurvilhjalmsson.blogspot.com/2008/01/styrmir-br-til-strmann.html
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 14:14
Mjög góð lesning!
Magnús Ragnarsson (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 14:49
Vitið þið hvað 'F' ið í Ólafur F. Magnússon stendur fyrir ?
..
Ólafur 'Fokkin Borgarstjóri' Magnússon !!
Viðar Freyr Guðmundsson, 28.1.2008 kl. 18:35
Sæl Salvør,
Les bloggid titt oft og er stundum sammála og stundum ósammála.
En nú hittiru naglan á høfudid! Skemmtileg lesning og gódir punktar.
kvedja
Páll Einarsson, 28.1.2008 kl. 20:49
Vel skrifaður pistill.
Er ekki sárt að vera Framsóknarmaddama um þessar mundir?
Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.1.2008 kl. 21:09
Heil og sæl Salvör.
Mér finnst þetta ekki málefnalegt hjá þér. mér finnst þú ættir frekar að skoða spillinguna í þínum flokki áður enn þú ræðst á fólk sem hefur ekkert gert þér.
Það skiptir ekkert hvaða röð menna eru. Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson er oddviti flokksins og stjórnar aðgerðum. Fyrverandi meirihluti var óstarfhæfur og gat ekki einu sinni tekið afstöðu með þessum húsum á Laugaveginum ég segi kofum sem átti að rífa strax. Enn meirihluti vildi gera þetta með þessum hætti að byggja þetta upp. það má vel vera að þetta takist fyrst verð ég að sjá teikningar að hlutunum fyrst.
Ég legg til við þig að þú skoðir og skrifir um alla spillinguna sem hefur átt sér stað í þínum flokki áður enn þú ræðst á fólk sem hefur ekkert unnið gegn þér. það er lágmarkskrafa sem ég geri til þín. Gremja fólks skila ekki neinu.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 28.1.2008 kl. 21:33
Flott færsla Salvör - tek undir hvert orð með þér.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 29.1.2008 kl. 01:20
Hvað ætli Ólafur hefði kostað ef þetta hefði verið í byrjun kjörtímabils? Annars tek ég undir það sem einhver sagði. " þessir krakkar í borgarstjórnarflokki íhaldsins kunna ekkert í pólitík. Og góðu fréttirnar eru þær að Sjálfstæðisflokkurinn er í frjálsu falli. Og vonandi verður hann orðinn 10% flokkur í næstu kosningum.
Annars hefur það komið mér það á óvart hvað Dagur B Eggertsson fráfarandi borgarstjóri er raunar frábær pólitíkus. Hér eftir mun ég alltaf hlusta þegar Dagur talar. Ég held að þarna sé komið framtíðar forustuefni íslenskra jafnaðarmanna. Og væntanlega borgarstjóri eftir næstu kosningar. Íhaldið hefur nú málað sig út í horn og verður væntanlega ekki í meirihluta næsta kjörtímabil og er það vel.
Sigurður (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 01:36
Ég trúi því mátulega að Ólafur hafi sprengt Tjarnarkvartettinn til að geta bjargað tveimur brunagildrum, ég held að honum hafi þótt borgarstjórastóllinn fallegri á litinn.
Það er frekar að þetta bragð með 19. aldar ímynd Laugavegsins hafi verið hugsað til að athuga hvað kæmist langt í kröfum sínum, sjá hvað Vilhjálmur og félagar væru þyrstir í völdin.
Theódór Norðkvist, 29.1.2008 kl. 01:45
Hafið þið tekið eftir glampanum í augunum á þeim sem eru í pólitík? Ég tók eftir þessu og fór að skoða þetta betur. Heyrðu, þetta er ljósendurkast frá hnakkabeininu, sem veldur þessu.
Hreggviður Davíðsson, 1.2.2008 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.