22.1.2008 | 11:14
Jarðarfararsvipur 2
Ég er ekki að skynja neina gleði úr svipnum á borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins yfir hinum nýja borgarstjórnarmeirihluta. Nema auðvitað hjá Vilhjálmi, hann hefur allt að vinna en engu að tapa því að hann er rúinn æru og trausti og ekki er líklegt að framtíð hans verði löng í stjórnmálum úr þessu. Það var mikilvægt fyrir hann að ná fram einhverri betri stöðu en hann er í núna og þetta var leið til þess. Mér finnst vera svipaður jarðarfararsvipur og var fyrir rúmum hundrað dögum en þá skrifaði ég bloggið Jarðarfararsvipur
Ég held að hinir borgarfulltrúarnir átti sig á hve hálum ís þeir eru á og hvað þetta nýja kúpp getur komið í bakið á þeim. Þeim mun verða kennt um það að eilífu ef Ólafi farnast illa af því að vera leiksoppur í höndum þeirra. Það trúir því reyndar ekki nokkur maður að Vilhjálmur verði borgarstjóri aftur, það hefði Hanna Birna og hinni borgarfulltrúarnir tæplega sætt sig við. Það er hins vegar allt í lagi að halda því á lofti núna svo Vilhjálmur haldi andlitinu. Ég hugsa að það hafi verið samið um að hún taki við eftir Ólafsdaganna, það hefur alltaf verið gott púst inn í kosningabaráttu í Reykjavík að hafa verið borgarstjóri.
Sú var tíðin að Sjálfstæðismenn hlógu að Ólafi og tillögum hans. Sú var líka tíðin að þeir hikuðu ekki við að svíkja hann. Nú þurfa þeir á honum að halda.
Ólafur var í Sjálfstæðisflokknum en sagði sig úr honum í desember 2001.
Ólafur sagðist þá knúinn til þess að hætta í flokknum og sagði hann í viðtali við Morgunblaðið að teningunum hafi verið kastað á landsfundi Sjálfstæðisflokksins það ár en þá bar hann upp sáttatillögu í virkjanamálum sem var tekið fálega og raunar var beinlínis hlegið að tillögum hans.............................
Í síðustu kosningum fékk flokkur Ólafs um tíu prósent atkvæða og rekja margir þá góðu útkomu til eindregnar afstöðu Ólafs í flugvallarmálinu en hann var eini stjórnmálamaðurinn sem lýsti því yfir að flugvöllur ætti að vera í Vatnsmýri um aldur og eilífð.Eftir þá góðu útkomu héldu sumir, þar á meðal Ólafur sjálfur, að meirihluti yrði myndaður með þáttöku sjálfstæðismanna og Ólafs. Annað kom á daginn og sjálfstæðismenn náðu samkomulagi við Björn Inga Hrafnsson, framsóknarflokki.
Á þeim tíma var Ólafur afar ósáttur við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og taldi hann hafa svikið sig þegar hann náði samkomulagi við Björn Inga á sama tíma og hann hélt Ólafi heitum.
Haustið 2006 tók Ólafur sér frí frá borgarmálunum vegna veikinda sem hann hefur aldrei tjáð sig um á opinberum vettvangi. (sjá Hver er þessi Ólafur F. Magnússon?)
Þetta er ekki gæfuleg stjórn í Reykjavík. Fram hefur komið að Ólafur sem þó er eini fulltrúi sinnar stjórnmálahreyfingar nýtur ekki einu sinni stuðnings síns varafulltrúar. Fram hefur líka komið að innan raða borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er gífurleg óánægja með stjórnarhætti Vilhjálms. Það er alveg óhætt að fullyrða að Vilhjálmur nýtir ekki stuðnings Reykvíkinga. Dagur Eggertsson gerði það hins vegar og allt benti til þess að stjórnin sem núna fer frá hafi verið að vinna í sátt að uppbyggingarstarfi í Reykjavík og stefnumótun í orkumálum.
Ingibjörg Sólrún: telur nýjan meirihluta óstarfhæfan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:26 | Facebook
Athugasemdir
Það er alveg ljóst að þessi kynslóð er búin að drulla uppá bak og skilaboðin sem send eru til fólks með þessu eru að ekki er treystandi á stjórnmálamenn.
Kominn tími til að setja upp samkeppnishæft kerfi þar sem fólk er bara ráðið eða rekið eftir því hvernig það stendur sig.
Hversu margar milljónir fara í þessar breytingar og hversu óáreiðanlegt er þetta fólk ef það skiptir um skoðun eftir vindi ?????
Myndi ekki setja líf mitt í lúkurnar á svona liði.Og því síður greiða því atkvæði mitt.
Ólafur (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 11:33
Þessi atburðarás er svo mikil vitleysa að það tekur engu tali. Grímulaus uppdráttarsýki og ekkert annað. Bloggaði um þetta í gær, læt það duga í bili.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 22.1.2008 kl. 11:33
Hvað er hægt að kalla þetta annað en "Ísraelsvæðingu" íslenskra stjórnmála. Eigin- og minnihlutahagsmunir ráða ferðinni.
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 13:09
Já ekki er þetta gæfulegt og hlýtur að koma sem blaut tuska í andlitið á borgarbúum einmitt þegar skoðanakannanir sýndu gott fylgi við þann meirihluta sem tekinn var til starfa.
Guðrún Helgadóttir, 22.1.2008 kl. 13:11
Aha, það er þá svona sem "Sæt er hefndin-brosið" lítur út.
Mikið óskaplega vorkenni ég Reykvískum kjósendum í dag, þeirra er bakið með hnífasettunum í.
Gísli Guðmundsson, 22.1.2008 kl. 13:43
Kvenkynsborgarfulltrúar sjálfstæðismanna voru ansi súrar á svipinn, en hvað ætla þessir menn að segja við kjósendur 2010 ?
Frikkinn, 22.1.2008 kl. 16:35
Þú setur inn ,,svip"myndir. Ég þarf að læra það. kv. B
Baldur Kristjánsson, 22.1.2008 kl. 21:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.