23.10.2007 | 22:20
Össur í Indónesíu
Ég fékk svo mikinn áhuga á Indónesíu í dag út af þessu ferðalagi hans Össurar aðg ég skrifaði nokkrar greinar inn íslensku wikipedia. Fyrst bætti ég við byrjun á kafla um sögu Indónesíu við aðalgreinina og svo skrifaði ég grein um Borobudur og þá náttúrulega varð ég að skrifa greín um stúpur.
Um daginn byrjaði ég á grein um kryddið Múskat en það var einmitt sú vara sem Vesturlandabúa þyrsti mest í frá Indónesíu.
Seinustu greinarnar sem ég hef skrifað á is.wikipedia.org eru
- Ryð
- Ljóstvistur
- Flikruberg
- Allrahanda
- Fólínsýra
- Joseph Paul Gaimard
- Lýsi
- Lífdrísinn
- Aseton-peróxíð
- Safaspæta
- Hafþyrnir
- Tíbetreynir
- Vegemite
- Granatepli
Mér sýnist ég skrifa núna að jafnaði eina grein á dag. Það virðist nú samt ekki vera neitt kerfi í hvað ég skrifa um.
Indónesar lýsa áhuga á samstarfi varðandi álframleiðslu og fiskveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:39 | Facebook
Athugasemdir
Sæl Salvör,
Aðdáunarvert framtak að skrifa inn á Wikipedia. Nýlega ræddi ég við ferðalanga sem voru áhugasamir um Jövu en höfðu aldrei heyrt minnst á Borubudur. Í dag hef ég sent þeim stoltur slóðina á Wikipedia.
Einnig þakka ég tilurð texta um stúpur. Ég hef lengi ætlað mér að skrifa almennan skýringartexta um hvað stúpa er því heima á Fróni þekkja það fæstir. Í skrifum mínum um Asíu koma stúpur reglulega fyrir og núna síðst hin sérkennilega melónustúpa við Visounhofið í Luang Prabang - sjá:http://www.oriental.is/destinations/laos/luang-prabang-hofin-wat-visoun.php
Á næsta ári hef ég einsett mér að standa fyrir ferð til Jövu (Baí verður aðaláfangastður) þar sem stefnan verður að sjálfsögðu sett á Borubudur.
Kær kveðja frá Asíu,
Viktor Sveinsson
Viktor Sveinsson (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 01:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.