28.3.2007 | 19:49
San Antonio í Texas
Ég er núna á ráðstefnunni SITE 2007 í borginni San Antonio í Texas. Það er nú ekki neitt sérstaklega hlýtt hérna, reyndar alveg ískalt hérna í ráðstefnusölunum. Einmitt núna sit ég á fyrirlestri um "Digital storytelling". Ég kom hingað í fyrradag, keyrði hingað frá Austin og lenti nú ekki í neinum sérstökum vandræðum á leiðinni nema þegar löggan stoppaði mig þegar ég var komin inn í miðborgina. Ég er ekki alveg viss um fyrir hvað, það var löggubíll við hliðina á mér á næstu akgrein og ég reyndi að halda mig eins fjarri honum og hægt var og hef sennilega yfirdrifið það eitthvað því lögreglan setti upp blikkljós og byrjaði að elta mig. Ég náttúrulega keyrði strax út í kant og löggan skipaði mér að vera í bílnum og það kom líka annar löggubíll á vettvang, þeir tóku ökuskírteinið mitt og voru óratíma að tékka og bardúsa en virtust svo komast að þeirri niðurstöðu að ég væri ekki ógn við almannaheill í borginni og kvöddu mig alúðlega. Það er alls ekki neitt þægilegt að vera ein á ferð í bíl í myrkri í niðurníddu verksmiðjuhverfi í ókunnri stórborg hundelt af löggum.
Athugasemdir
Ef þú ert ekki hrædd, þá hendir ekkert. Það gefur manni þó ekki passa á að vera fífldjarfur.
Ég varð forvitinn um þessa ráðstefnu. Hvað ertu að stúdera??
Jón Steinar Ragnarsson, 29.3.2007 kl. 12:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.