Færsluflokkur: Spaugilegt
9.12.2007 | 16:03
Tími hjá augnlækni
Sem betur fer á ég tíma hjá augnlækni eftir viku. Ég er skelfingu lostin af aðrir bloggarar sjá og ég á að sjá á þessari mynd hreindýr og á mbl.is að "einn tarfurinn er með krónu af öðru hreindýri fasta í sínum eigin hornum ásamt margra metra dræsu af rafmagnsgirðingarvír."
Eina sem ég sé á þessari mynd er snjór og fjall og girðingarstaurar og nokkrar dökkleitar þústir.
Flott mynd samt.
Ég sé bara girðingastauranna, það er náttúrulega eðilegt úr því að tarfurinn er búinn að vefja öllum girðingarvírnum um hornin.
![]() |
Með allt á hornum sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |