Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2011
12.7.2011 | 07:37
Myndir og vídeó frá bruna í Sundahöfn 12. júlí 2011
"Svífur yfir Esjunni sólgulliđ ský" segir í ljóđi Reykjavíkurskáldsins og víst var fallegt í Reykjavík viđ sundin í nótt ţegar mökkinn bar viđ fjalliđ eina og liđađist eins kötlu eđa heklu eđa eyjafjallajökuls eđa grímsvatna eđa vatnafjallagos upp úr borginni sem kennd er viđ reyk í hverfi bernsku minnar, hverfinu sem ber nafn af gufunni og hitanum sem sprettur upp úr iđrum jarđar. En reykurinn í Reykjavík í morgun var mengunarbruni af manna völdum, sennilega íkveikja í dekkjaskógi á hafnarbakka en hann lagđist yfir hverfiđ mitt eins og fyrirbođi um gosmökk og öskuský og minnti líka á brunann fyrir mörgum árum ţar sem fólk var í hćttu.
Viđ sáum reykjarmökkinn út um eldhúsgluggann hjá okkur í Sigtúni klukkan rúmlega ţrjú í nótt og ég fór á vettvang og tók ţessar myndir milli klukkan ţrjú og fjögur. Ég tók líka nokkur vídeóklipp sem ég set síđar á vefinn:
http://www.youtube.com/watch?v=MZ1y4fQmK4E
Hafa náđ tökum á eldinum | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)