23.10.2007 | 01:55
Svart á hvítu, Oz, Softís, REI
Það er freistandi að bera saman REI málið núna við þau útrásarfyrirtæki og þekkingarfyrirtæki sem menn trúðu mest á fyrir meira en áratug. Eitt þeirra fyrirtækja var fyrirtækið Softís. Annað slíkt fyrirtæki var fyrirtækið Oz. Ennþá eldra dæmi um þekkingarfyrirtæki var svo fyrirtækið Svart á hvítu sem var reyndar bókaútgáfa en fór út í að búa til þekkingarbrunn, gagnabrunn sem forseti vor Ólafur Ragnar Grímsson hafði svo mikla trú á að hann tók veð í gagnagrunninum þegar hann stýrði fjármálum þjóðarinnar og varð grunnurinn innlyksa hjá fjármálaráðuneytinu. Það er nú ekki talið mesta afrek Ólafs Ragnars á sviði fjármála þegar hann tók veð í þessum gagnagrunni, það var haft mikið í flimtingum á sinni tíð. Svart á Hvítu var nú bara með rekstur hérna innanlands, til allrar guðs mildi var það fyrirtæki ekki komið með neinn rekstur í Kína og Ólafur Ragnar forseti ekki orðinn eins upptendraður af útrásardraumum eins og hann er núna og farinn að stússa mikið með fjármálamönnum í útrásinni. En sem sagt þá mun gagnagrunnurinn vera til í fjármálaráðuneytinu... nú eða það sem er finnanlegt er af honum.
Það var mikill völlur á sínum tíma á fyrirtækinu Oz en það hneig eins og önnur netfyrirtæki þegar tiltrú á netfyrirtæki þvarr í kringum árþúsundamótin.
það var mikið hype á sínum tíma í kringum fyrirtækin Softís og ég sé að Aflvaki Reykjavíkur (sambærilegt fyrirtæki og núna er kallað útrásararmur Orkuveitunnar) hefur lagt töluvert hlutafé í Softís á sínum tíma, sjá þessa grein.
Spurning hvort það fé sem Alfvaki lagði á sínum tíma í Softís hafi rentað sig vel, hvað skyldi Aflvaki hafa grætt á þessu?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:59 | Facebook
Athugasemdir
Einar Benediktsson stóð fyrir heilmikilli útrás fyrir tæpum 100 árum. Móðurskip útrásarinnar hét Titan með útgefin hlutabréf uppá 10 milljónir króna eða andvirði 50-100 nýrra togara á þeim tíma. Laust eftir 1950 var svo Titanfélagið gert upp og fengu hluthafar í sinn hlut ca þrjár milljónir. Verðlag hafði fertugfaldast frá því hlutabréfin voru keypt þannig að endurgreiðslan nam ca 0,75% af innborguðu hlutafé. Að launum fyrir þetta afrek var Einar jarðaður í þjóðargrafreit á Þingvöllum.
Gestur Gunnarsson , 23.10.2007 kl. 06:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.