Rödd óbreytta Framsóknarmannsins

Ég held ódeig áfram við það markmið mitt að bæta innviði og grasrótarstarf  Framsóknarflokksins. Þessi hugsjónabarátta mín hefur þó ekki skilað neinum árangri hingað til og reyndar oft orðið til þess að ég verð fyrir hnútuköstum annars vegar frá hollum Framsóknarmönnum sem finnst ég ekkert eiga með að gagnrýna og benda á það sem miður fer, ég eigi bara að vera stilllt og mæra og lofa foringjana og tala fallega um allt sem Framsókn hefur staðið að og hins vegar frá fólki utan Framsóknarflokksins sem finnst  Framsóknarflokkurinn  vera samsafn af óþjóðalýð  sem hafi spillst svo af setu við kjötkatlana að honum  sé ekki viðbjargandi.

Það er ekki alltaf þannig að úrslit kosninga ráði hvernig stjórn er mynduð og það er ekki víst að mestu sigurvegarnir setjist í stjórn. Það er ein leið í stjórnmálabaráttu að breyta flokkum innanfrá. Sú leið er hins vegar torsótt ef það eru hagsmunir einhverra að stjórnmálaflokkur breytist ekki.

Ég er ekki sátt við það sem borgarstjórn er að aðhafast þessa daganna í orkumálum, ég fatta ekki hvernig veitufyrirtæki í almannaeigu getur staðið svona að málum og ég hef bæði skrifað bæði Birni Inga oddvita okkar í borgarstjórn og fulltrúa í stjórn OR og póstaði áðan þetta bréf á umræðupóstlista Framsóknarmanna;

Ágætir framsóknarmenn,

Er ég ein um að hafa áhyggjur af því hvað er að gerast í borgarstjórn Reykjavíkur sb. þá umfjöllun sem er núna í fréttum? Ég velti því fyrir mér hvaða farvegur er innan framsóknarflokksins til þess að við óbreyttir flokksmenn getum fræðst um og komið sjónarmiðum okkar á framfæri. 

Ég held að það sé einn meginveikleiki Framsóknarflokksins í Reykjavík (a.m.k.í Reykjavík norður þar sem ég þekki best til) að grasrótin er alveg óvirk og ekki farvegur til að ræða málin.

Ég sendi þetta bréf líka til oddvita okkar í borgarstjórns Björns Inga Rafnssonar með ósk um að þessi Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Engergy verði rædd á vettvangi Framsóknarflokksins í Reykjavík og við frædd um hvers vegna Framsóknarflokkurinn tekur þátt í afgreiðslu með þessum hætti.

bestu kveðjur
Salvör Gissurardóttir
Framsóknarmaður í Reykjavík

 


mbl.is Vilja fara með Orkuveitufund fyrir dómstóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Hér erum við sammála Salvör. Sjá pistil minn í dag.

Kveðja

Anna Kristinsdóttir, 5.10.2007 kl. 11:35

2 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæl Salvör. Sæl Anna... Já þetta er nú meira með þetta mál. Bendi á grein mína á blogginu.

Kveðja,

Sveinn Hjörtur , 5.10.2007 kl. 21:57

3 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

þúr ert ekki ein um að hafa áhyggjur af þessu máli, mun fylgjast með þessu áfram.

Hallgrímur Óli Helgason, 5.10.2007 kl. 22:59

4 Smámynd: Andrés.si

Salvor.  Það er nær öruggt að mennir eru þegar keyptir, þannig að auðlind íslendinga er farin en og aftur.  En þíð eruð seinn að vakna. Um þetta er talað mánuðum saman og það virðist engin hefur áhuga að gera skapaðan hlut.

 Svo heyrði ég annað í dag. Það er þar sem vinur mín er að vinna, bara venjulegt verkstæði. Fólk einfaldlega pælir ekki í neitt, veit ekki hvort þeir horfa á fréttir og lesa blöðin. Þar á staðnum er alt fínu því öllum er sama um auðlind. Sorg bara.

Andrés.si, 6.10.2007 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband