Rakú brennsla í Borgarfirði

Á sunnudaginn fór ég í sumarbústað í Borgarfirði í Rakú brennslu til Ásrúnar Tryggvadóttur  sem hefur kennt okkur leirmótun í vetur. Hér er  45 sek. vídeóklipp af brennslunni og mununum okkar:


 

Við vorum að prófa rakú brennslu sem er gömul japönsk aðferð við glerungsbrennslu. Hún er þannig að fyrst eru leirmunir mótaðir og   leirmunirnir hrábrenndir í rafmagnsofni. Síðan eru rakúglerungar settir á  og þeir gljábrenndir í sérstökum ofni sem er hitaður upp með gasi.  Glóandi heitir leirmunirnir eru svo lagðir í málmílát ásamt eldsneyti t.d. viðarsagi. Eftir ca. 20 mín “reduction” er brennslan stöðvuð  með því að setja munina í vatn. Sótið er svo þegið af mununum.

Það kemur stundum skemmtileg áferð á glerunginn eins og hann sé allur sprunginn. 

Sjá hérna Raku ware - Wikipedia, the free encyclopedia

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Alveg meiriháttar að sjá þetta!  Svo margir sem ég þekki á leirnámskeiðum, væri alveg til í að skella mér því það er orðið allt of langt síðan ég prófaði seinast!  Flott áferð á skálunum!

www.zordis.com, 22.5.2007 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband