9.3.2007 | 11:18
Baráttukvöld Bríetar 8. mars - Konan með hýjunginn undir höndunum
Femínistar brugðu á leik á baráttukvöldi Bríetar í gærkvöldi á Laugaveg 22.
Hér eru myndir sem ég tók á gleðinni
Þær má líka skoða sem "slideshow" hérna
Ég tók líka myndir í fyrra:
Myndir frá 8. mars 2006
Margir voru í skemmtilegum búningum, skreyttir límmiðum og með svuntur. Mér fannst skemmtilegasti búningurinn um hinn loðna femínista en eins og allir vita þá verður maður kafloðinn og dýrslegur um leið og maður gengur femínismanum á hönd. Annars orti meistari Megas einu sinni ljóð "Konan með hýjunginn undir höndunum". Ég þarf að finna þann texta. Kannski það sé hægt að syngja hann á svona femínistablótum með klassískum femínistalögum eins og "Sísí saumar á Susuki" og Svarthvíta hetjan mín og "Þori, vil ég get ég".
Flokkur: Tölvur og tækni | Facebook


Athugasemdir
Ég sé ekki betur en að sumar þessar kvenna séu með opinn munn. Þvílíkt viðurstyggilegt klám!
Jón B Sigurdsson (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 14:47
Vænn hýjungur á þessari snotru fljóð! Gæfi henni góð skæri og Gillett til að snyrta sig ..... býð varla í hinn staðinn ef þessi er svona ræktarlegur
www.zordis.com, 10.3.2007 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.