Hverskonar ást

Hverskonar ástKlámunnendur og femínistar skiptast á skeytum á umræðuþræðinum um viðskipti klámhópsins hjá Katrínu Önnu. Í tilefni af nýliðnum degi elskenda Valentínusardeginum og þessari klámumræðu þá hef ég tekið bút úr umræðuþræðinum upp í þetta vefskrípó. Það eru Ásdís, Aðalheiður og Beta sem hafa orðið.

Ég teiknaði þetta skrípó í Inkscape.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég skal fyrir mína parta upplýsa fyrir alþjóð að klám virkar alls ekki kynörvandi á mig, heldur þvert á móti.

Til að slá varnagla við yfirlýsingum klámelskandi karlpenings um eitthvað annað, þá er ég líka tilbúin að upplýsa þá um að ég tel mig vera mjög eðlilega konu á alla kanta á þessu sviði og með jafn heilbrigðar hvatir og hver annar.

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.2.2007 kl. 16:05

2 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Góð nálgun. Má ég birta myndina á minni síðu?

Ingibjörg Stefánsdóttir, 18.2.2007 kl. 16:53

3 Smámynd: Sylvía

hehe

Sylvía , 18.2.2007 kl. 18:34

4 Smámynd: www.zordis.com

Flott teiknimynd, kynvera kvennanna er frábær!  Þrátt fyrir, þá eru konur sem hafa jafnan unað að þessu klámi sem karlmenn .....  Ég persónulega er ekki alveg að fatta þetta, kanski bara svona seeeeeeein.  Margur telur mig sig .......  Ég segi klám fyrir þá sem vilja og hinir hafa rétt á að tjá sig.  Þetta virðist bara vera allt of mikið felumál, skammarlegt fyrir flesta sem ekki ætti að vera.  Líkaminn er dásamlegur en þú segir hér að ofan "Cute teen .........."  Nákvæmlega, eitthvað sem hlítur að vera dissssgösting" sem hefur lítið með rómantíkina að gera enda hafa klám og rómatík ekkert með hvort annað að gera.   Flott nálgun! 

www.zordis.com, 18.2.2007 kl. 19:02

5 Smámynd: Adda bloggar

bestu kveðjur á konudaginn

Adda bloggar, 18.2.2007 kl. 19:48

6 Smámynd: Ibba Sig.

Frábært hjá þér Salvör.
 

Ibba Sig., 18.2.2007 kl. 21:18

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæl Salvör .

Þetta er alveg meiriháttar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.2.2007 kl. 00:48

8 identicon

Ég held að skortur á opnu hugarfari hrjái Salvör og hennar líkum all mikið, meira en þær gera sér grein fyrir. Fordómafullu skápafólki hlýtur að líða illa í dag, þar sem það getur ekki fordæmt þá sem ekki passa við úrelta hugmyndafræði þeirra án þess að fá það aftur framan í sig (þ.e skítin og lyganar sem fordómafullt fólk er að moka út þessa dagna í trukka vís).

Í anda feminista á Íslandi legg ég til að fordómafullum feminstum verði bannað að koma til landsins, þar sem þær eru þrælar fordóma og heilaþvotts. Ég einnig mæli með því að lögreglan rannski þær, þar sem að fordómafullt fólk er þekkt fyrir að grípa til ofbeldsfullra aðgerða gegn þeim sem standa gegn þeirra fordómafullu hugmyndafræði. Bönnum feminsta! Rekum þá af landi brott! Bönnum feminstum að koma til Íslands! 

Jón Frímann (IP-tala skráð) 19.2.2007 kl. 08:05

9 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Ingibjörg, þú mátt gjarnan birta þetta á þinni síðu. Gaman að fólki skuli líka svona skrípó. Það er oft áhrifaríkara að setja hlutina upp myndrænt og sem einhvers konar stuttar sögur - helst eitthvað fyndnar eða kaldhæðnar. Það vitum við kennarar.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 19.2.2007 kl. 10:49

10 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Jón Frímann, ég hef aldrei lagt til að þessu fólki verði bannað að koma til Íslands. Ekki gera mér upp viðhorf og skoðanir sem ég hef ekki. Ég hef skrifað mikið um mannréttindamál og frelsi og ég mun alltaf verja ferðafrelsi og athafnafrelsi fólks eins vel og ég get  og ég mun sérstaklega verja frelsi þeirra sem eru valdalaustastir og lifa við mesta eymd. Kynlífs- og  klámiðnaður er því miður oft ekkert annað en skálkaskjól fyrir nútíma þrælasölu. Ég hef frelsi til að hrópa hátt um að það sé ekki í lagi og ég nýti mér það.

Ég get ekki séð neinn flöt á því að banna þessum hópi að koma til Íslands, ég held að það séu engin lög sem gera það mögulegt.  Ég hins vegar vona að þetta fólk hætti við þegar það sér að það er ekki velkomið og margir aðilar hafa ályktað gegn því og nú ef það kemur þá finnst mér upplagt að við femínistar notum tækifærið og reynum að vekja athygli á málstað okkar í baráttu gegn mansali og klámi og helst reynum að vekja athygli erlendra aðila og reynum að stuðla að eins mikilli umræðu og hægt er. 

Ég vil líka benda þér á að viðhorf mitt er í andstöðu við þitt - þú leggur til að femínistum sé bannað að koma til landsins af því þú telur að "Salvör og hennar líkar" vilji banna klámhundum að koma til landsins. Hér vil ég segja þér að jafnvel þótt þú sért  rugludallur sem bara þruglar tóma steypu og heimtar ofbeldi gagnvart femínistum þá átt þú rétt á mannréttindum þeim sömu og þeir sem ég er sammála og sem aðhyllast mínar skynsamlegu og viturlegu skoðanir

Það er nefnilega þannig að lýðræðið og mannúðin á að gilda líka fyrir þá sem maður er ósammála og sem hafa skoðanir sem maður fyrirlítur. Því vil ég undirstrika að þetta fólk sem er á leið til landsins á líka sín réttindi alveg eins og hópar sígauna frá Rúmeníu sem haldið er að séu að koma í ránsferðir til landsins og hópar af dönskum Vítisenglum sem ætla að tæta hér og trylla. 

Ég mun sennilega taka þátt í einhvers konar mótmælum ef svo skyldi fara að hópurinn komi hingað - ekki mótmælum við því að þessu fólki sé hleypt inn í landið heldur mótmælum við iðju þeirra. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 19.2.2007 kl. 11:11

11 identicon

Ekki hlusta á lygarnar úr áróðursbúðum stigamótum, þetta eru ólögleg meinyrði sem þið eruð að stunda

Butcer (IP-tala skráð) 19.2.2007 kl. 19:46

12 identicon

Þetta er frábærlega flott hjá þér Salvör!Sumir femínistar einsog t.d. Annie Sprinkle vilja fyrst og síðast vera virkar sem kynverur, (hún var t.d. áður klámstjarna!)bókin Angry Women tekur á þessum málum. Á þeim bæ eru engir þolendur, það eru nefnilega ótal margar hliðar á fyrirbærum einsog klámi og klámráðstefnum - og umfjöllunin mætti mín vegna vera fjölbreytilegri,kveðjaML

Margrét Lóa (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband