Vargafélagið

HaförnMaður var nýlega sýknaður af ákæru um brot á lögum um vernd og friðum á villtum fuglum. Maðurinn var sakaður um að koma fyrir gasbyssu á eyju á Breiðafirði og hleypa af henni í þeim tilgangi að fæla erni frá hreiðurstæði í hólmanum og hindra þá í að verpa þar.  

Mesta útrýmingarherferð gegn örnum á Íslandi var við Breiðafjörð og Húnaflóa í kringum 1890. Svo langt var gengið að örnum var nánast  útrýmt um aldamótin 1900. Það var félag æðarræktenda sem gekk harðast fram í að hvetja til arnardrápsins og félag þeirra var kallað Vargafélagið en það veitti verðlaun fyrir hvern drepinn örn. Örn var friðaður á Íslandi með lögum sem  gengu í gildi 1. janúar 1914. Fuglaverndarfélag Íslands  var stofnað 1963 og var helsta markmið þess að beita sér fyrir verndun arnarins.  Sjá nánar í grein í gagnasafni Mbl.

Það hefur ekki mikið unnist þrátt fyrir alfriðun í 90 ár. Eiginlega grunsamlega lítið og það er mjög líklegt að steypt sé undan vargfugli hvar og hvenær sem fólk kemst að varpi þeirra og beitt sé aðferðum til að fæla ránfugla frá á öllum þeim stöðum þar sem hagsmunir æðarræktenda eru í veði. Arnarstofninn er ekki nema 65 pör í dag.  Fólk kemst ennþá upp með aðferðir eins og þessar gasbyssur. Maðurinn var sýknaður og það verður eflaust mörgum öðrum fordæmi til að koma upp gasbyssum á næsta ári á öðrum eyjum. Breiðafjörður er ein af náttúruperlum Íslands og vonandi verður þar einhvern tíma í framtíðinni stofnaður þjóðgarður bæði eyjar og fjörðurinn sjálfur. 

Vissulega  er réttur æðarræktenda mikill og nýting æðarvarps er gott dæmi um samspil dýrategunda þar sem báðir hafa hag af. Það má hins vegar ekki vera á þann veg í náttúrunni að einn aðilinn fái svo mikil völd og vopn að hann geti útrýmt og flæmt burt alla aðra en þá fugla sem skila honum tekjum. 

Það er flott að nota orðið Vargafélagið yfir alla þá sem taka þátt í að flæma burt villta fugla og alla þá sem láta átölulausa slíka hegðun. Það hefur ekkert breyst á einni öld nema okkur er núna ljósara hver er mesti vargurinn í náttúru landsins. Það er maðurinn. 


mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir að koma fyrir gasbyssu á Breiðafjarðareyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Takk fyrir upplýsingarnar Þrymur, þú veist greinilega meira um málið en kemur fram í fréttinni.  Ég fór í sumar út í Skáleyjar en bændur þar eru æðarræktendur.

Sjá myndir mínar frá Breiðafirði

http://commons.wikimedia.org/wiki/Brei%C3%B0afj%C3%B6r%C3%B0ur

Ég held hins vegar að það sé ekki hægt að búast við öðru af æðarræktendum en þeir hagnýti sér alla þá tækni sem þeir geta við að verja varpið. Það er hins vegar annarra m.a. náttúruverndaraðila að meta hvort það hefur áhrif á arnarstofninn og aðra fugla s.s. fálka og þá hugsanlega stemma stigu við notkun ákveðinna verkfæra. Örninum fækkaði fyristu árin eftir friðun og það var vegna þess að þá var eitrað fyrir tófu og ernir átu það æti líka. Það var því nauðsynlegt að banna að eitra fyrir tófu.

Mig minnir að ég hafi lesið að þessir flökkuernir væru það mikilvægasta í viðgangi stofnsins þ.e. arnarungar sem fara á flakk og setjast svo að þar sem þeir geta komið upp hreiðri og ungum. Það er því alls ekki nóg að vernda bara staði þar sem ernir verpa sannarlega núna. Arnarstofninn mun aldrei vaxa ef ernir eru friðlausir á öðrum stöðum. Það eru nokkrar aðferðir færar. Það er hægt að banna svona gasbyssur. Það er líka hægt að reyna að draga úr æðarvarpi á einhverjum stöðum, ég held að margar jarðir þar sem nú er æðarvarp séu ekki í ábúð þannig að fólk búi þar allt árið heldur eru nytjarnar bara yfir hásumarið. Sumar þessara jarða eru í  eigu ríkis og kirkju. Þeir eigendur ættu að hugleiða með hvaða móti þeir geta studd vistvænan búskap á jörðum sínum í sátt við náttúru landsins. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 28.12.2006 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband