Sól í Laxárdal

Núna er ég stödd á Halldórsstöðum í Laxárdal og sólin skín í heiði. Ég ætla í Dimmuborgir í dag og reyna að hugsa ekki of mikið um hina dapurlegu stöðu fólksins á Íslandi. Ég næ Internetsambandi hérna þó ég sé langt inn í dal og les nýjustu fréttir og uppljóstranir úr sukkfenjaskógi íslenska fjármálaundursins. Það var merkilegt að heyra af lögbanni á RÚV og heyra Rúv auglýsa wikivefinn wikileaks margoft í sínum fréttatíma og núna les ég greiningu í mbl.is um wikileaks. Svona er máttur íslenskra fjölmiðla í að uppljóstra um hvað gerðist, fréttirnar koma ekki frá íslenskum rannsóknarblaðamönnum, fréttirnar koma að utan úr almennum wikisamvinnuvef.  Ég hef ekki mikla trú hvorki á íslenskum stjórnmálum né íslenskum blaðamönnum. Ég held að valdaþræðir séu of samtvinnaðir og í höndum svo fárra að jafnvel þó núna séu völdin sundurslitnir spottar og ein flækja þá sé sú spottahrúga eins og net sem fangar og reyrir niður alla sem reyna að synda niður og sjá til botns í spillingafeninu. En hér í Laxárdalnum er fallegt.

Hér sem ég tók áðan af þeim sem þurfa að borga Icesave skuldirnar.

halldorsstadir1.jpg

 


mbl.is Leyniþjónusta fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband