Ég þekki Grýlu, ég hef hana séð..

gryla1Ég þekki Grýlu og ég hef hana séð en ég held hún birtist ekki alltaf eins og Grýlan í  kvæði Stefáns í Vallanesi sem Ingólfur Sveinsson og Jón Guðmundsson syngja hér  og krakkar úr Norðlingaskóla myndskreyta. Hér  er textinn með þessu gamla kvæði. 

Ég teiknaði þessa Grýlumynd  í Inkscape og setti inn á Wikimedia Commons.  Fyrirmyndin var Grýlumynd Halldórs Péturssonar en ekki hin þríhöfða Grýla sem lýst er í kvæði Stefáns frá Vallanesi.

Meira um Grýlu og jólasveina má lesa í vefriti mínu frá 1996.

Úr Grýlukvæði Stefáns í Vallanesi:

Eg þekki Grýlu
og eg hef hana séð,
:,:hún er sig svo ófríð
og illileg:,:með.

Hún er sig svo ófríð
að höfuðin ber hún þrjú,
:,:þó er ekkert minna
en á miðaldra: kú.

Þó er ekkert minna,
og það segja menn,
:að hún hafi augnaráðin
í hverju:,:þrenn.

Að hún hafi augnaráðin
eldsglóðum lík,
:,:kinnabeinin kolgrá
og kjaptinn eins og:,:tík.

 


mbl.is Grýla komin í bæinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Salvör, veistu ég á eina Grýlulsögu, gerða af kjallaragyðjunni sjálfri.  Kanski ég myndskreiti og  setji  inn á bloggið.  Grýla er sko glettin mær og á sér margar líkar!  Mér líður stundum eins og Grýlu en með jákvæðum hætti, orkumikil og athafnasöm!

www.zordis.com, 11.12.2006 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband